Vísir


Vísir - 13.02.1956, Qupperneq 10

Vísir - 13.02.1956, Qupperneq 10
10 . vísat 3iÆáiui4ag®m 13- febrúar, .1-95 6 Hemdu ajftur tíi ptifti geta talað svona. Fyrrum hafðir þú sömu hugsjónir og ég. Og þú áttir líka draumsýmr....“ „Draumsýnir koma engum að gagni,“ sagði hún með ákefð. „Þær hafa aðeins ógæfu í för með sér. Það er hollast að taka hvern og einn eins og hann er, með öllum hans göllum, og elska hann þrátt fyrir gallana, ef .maður þá getur elskað á annað borð. Það er um að gera að elska hann þrátt fyrir for- tíð hans og daglegt framferði. Maður verður að geta elskað manneskjuna einmitt af því að hún er eins og hún er.“ „Þú hefur breyst í ákveðnu tilliti, Anna,“ sagði hann hljóð- lega. Svo varð hann ákafur: „Er það þessi Lockhart, sem hefur haft áhrif á þig — sem hefur grafið undan hugsjónum þínum?“ „Það er Dirk alveg óviðkomandi,“ svaraði hún. „Það várst þú sjálfur,.sem áttir upptökin, Cyril — þegar þú trúðii' mér ekki.“ , . ........ , „Ég veit að ég hef gert þér rangt til.... ég verðskulda allt það misjafna, sem þú getur sagt um mig. Ég setti þig á stall eihs og goð, og eftir að ég hélt að þú hefðir hrapað af stall- inum,... Nei, ég vil ekki vera að rifja upp þetta gamlá... við verðum að reyna að gleyma því, öllu þessa ógeðfelda sem olli því að við skildum. Við verðum að reyna að muna að við elskuðum hvort annað svo takmarkalaust. Ég elska þig enn. Ég elska þig enn meira, Anna, vegna þess að ég hef kvalist svo mikið.“ Hún strauk laust um hárið á honum og lagaði á honum ennis- lokkana. „Þykir þér ekkert vænt um mig lengur?“ spurði hann hásum bænarrómi. ,Ég veit ekki hvemíg tilfinningum mínum er varið,“ svaraði hún hvíslandi, „Ég ætti sjálfsagt að gera það, því að mér þótti svo óendanlega vænt um þig, Cyril, en samt finnst mér að einhverj u leyti Hann tók xun hendur hennar og kyssti þær. „Segðu ekki meira núna, góða mín! Getum við ekki reynt að verða vinir fyrst um sinn — þó að ég finni að ég hef engan rétt til að biðja þig um vináttu þína. En ég bið um hana samt, Anna — og ég geri það af því að ég elska þig svo heitt.“ Hún strauk enn harið á honum, en hreyfingar hennar virtust henni ósjálfráðar. Hún hafði samúð með honum. Á vissan hátt elskaði hún hann líka — það var líkast móðurást. „Auðvitað getum við verið góðir vinir, Cyril,“ sagði hún, ,,ef þú villt vera vinur minn.“ Hann kyssti hendur hennar og stóð upp. Það var líkast og hann væri sneyptur. „Þú ert svo yndisleg, Anna,“ sagði hann, „og ég skammast mín fyrir að ég brást þér, en.... en.... það er líklega bezt ,að við tölum ekki um það. Við skulum í staðinn hugsa um hve góða daga við getum átt í framtíðinni-, farið í leikhús, á dans- leiki og' ekið í bifreið — það er svo margt sem við getum gert okkur til gamans, og síðan — kannské.... “ Hann þágnaði allt í einu og bætti svo við eftir nokkra stund: „Getum við ekki 'komið út saman og fengið okkur matarbita á viðkunnanlegum stáð?“ Hún brosti. „Það væri gaman, CyriL“ Hann dró hana upp af sófanum. Faðmaði hana eitt augnablik og hún hélt að hann ætlaði að láta koss fylgja, En í sömu svifum og henni datt það í hug varð hún krædd. „Mig langar svo til að kyssa þig, Anna. Mig langar ekki eins mikið til neins í veröldinni, en ég vil ekki gera það samt.... ekki enn þá, góða mín.“ Það fór vel á með þeim meðan þau voru að borða, þó að hvorugt væri sérstaklega glatt. Þau fimdu bæði til þess að ein- kennilega stóð á fyrir þeim. Samtalið varð talsvert slitrótt og einkennilegt. Hún sagði honum frá nýju stöðunni sinni og hann sagði: „Þetta er geypikaup. Nina Caruthers rekur auðsjáanlega góðgerðastarfsemi,“ bætti hann við og hló. „Þetta finnst mér ekki kurteislega mælt,“ sagði hún. „Ég meinti ekkert illt með því,“ sagði hann og roðnaði. ,Ég er viss um að þú stendur prýðilega í stöðu þinni, sem einkaritari. En þetta er verulega hátt kaup, finnst þér ekki?“ „Jú,“ sagði Anna og kinkaði kolli. Hún hafði oft furðað sig á því sjálf hve vel Nina borgaði henni. En ef hún var ánægð með hana og hafði efni á að borga, hafði Anna vitanlega ekkert við þetta að athuga. „Heldurðu ekki að einhver launráð geti verið bak við þetta?“ „Launráð? Hvað áttu við?“ spurði hún. Hann yppti öxlum. „Ég veit það varla sjálfur. Mér finnst það bara svo einkenni- legt — og þessi þarna Lockhart er vinur hennar.“ „Ráðning mín hjá henni er því alveg óviðkomandi,“ sagði hún dálítið hvasst. „Og svo vil ég helzt ekki að þú segir „þessi þama Lockhart" ef þér stendur á sama.“ - „Fyrirgefðu — ég skal alltaf segja „herra Lockhart" fram- vegis, þegar ég minnist á hann,“ svaraði hann glottandi. Hún svaraði ekki en fann að henni sámaði meir og meir. Hvernig dirfðist hann að gefa í skyn að hún hefði fengið stöð- una hjá Caruthers fyrir einhver launráð? Og hvemig dirfðist hann að gera Dirk getsakir? Ðirk, sem hafði gert svo mikið fyrir hana og hafði reyrist hehni tryggur vinur þegar Cyril sveik hana.... Dirk, sem var svo geðfeldur í alla staði.... Hún tók sig á og varð órótt er hún fann hvaða rás hugsanir hennar höfðu tekið. „Við tölum ekki um Dirk,“ sagði hún ákveðin. En það var svo að sjá sem ómögulegt væri að halda Dirk utan við samtalið. Cyril var það að minnsta kosti ómögulegt, hann var afbrýðisamur. Hann var að segja henni hvernig gengi á skrifstofunni sinni, en skaut allt í einu inn í: „Ég hef vitanlega ekki haft mikinn tíma afgangs til skemmt- ana, eða réttara. sagt engan. Það hefur verið mér fyrir öllu að láta ekki neinu hnigna. frá því sem var í tíð föður míns. Ég hef aldrei farið út að; dansa, síðan við vorum saman síðast. Ég er ekki eins mikil samkvæmishetja og þessi Lockhart mun vera — hann getur ekki notað tímann til neins betra en að dansa og skemmta sér með ungum stúlkum.“ „Nú gerir þú honum rangt til,“ svaraði Anna og var bæði áköf og ergileg. „Dirk er margt fleira til lista lagt og hann hugsar um márgt fleira en að skemmta sér. Hann er bifreiða- maður og ekur bílum, sem á að reyna í kappakstri. Það munaði minnstu að hann dræpi sig í kappakstri á Ítalíu nýlega." Hún sá þennan kappakstur í huganum. Hún sá veginn, sem lá í bugðum í bröttu fjallinu, krappar beygjur sem bíllinn skrikaði í. Og allt í einu datt henni í hug: „Ég veit ekki hvemig ég hefði getað lifað áfram, ef hann befði farist.“ „Kallarðu það starf að taka þátt í kappakstri?“ sagði Cyril fyrirlitlega. „Ef ég hefði nógan tíma og nóga peninga skyldi ég heldur ekki amast við að aka bíl.“ „Vitanlega er það starf og ekki leikur.“ „Lockhart hefur auðsjáanlega lagt kappaksturinn fyrir sig, til þess að láta taka eftir sér og leika hetju.“ „Ef þú þekkir Dirk nokkurn skapaðan hlut mundi þér vera kunnugt um að síst af öllu langar hann til að leika hetju. Hon- Á kvöldvökunni. Þegar hinn ágæti kínverski stjómmálamaður Li Hung Chang var seridiherra Kínverja í Bandaríkjunum hafði hann í veizlu einni evrópska sendi- herrafrú fyrir sessunaut. ! — Yðar tign, sagði frúin. — Hvaða kvenleg dyggð er mest metin með þjóð yðar? — Að konan sé þögul, sagði Li Chang. — Þið Kínverjar þolið þá ekki tölugar konur. — Nei, það getur orðið skiln- aðarsök. • — Þá yrði eg að skilja ef eg ætti að búa í Kína? sagði frúin. — Fjarri því, sagði Li Cháng og hneigði sig. — Þann dag, sem landi mínu hlotnðist sá heiður, að þér gerðust einn af þégnurn þess, yrði hjónabandslöggjöf- inni samstundis breytt. Picasso var eitt sinn boðið til kvöldverðar ásamt ungum málara. Picasso var mjög þög- ull meðan á máltíðinni stóð, en að heimi lokinni, stóð hann á fætur( tók í höndina á hisum unga málara og sagði: — En hvað eg öfunda yður af því að hafa fengið að borða með Pinasso, ungi maður. löyT falleg gardínuefni. Kr. 95.00 í dívanteppi. Verzlunin FRAIVi Klapparstig 37 simi i 2937 MWWWWIWVWVWW wwwwmwwwumvMV Bústaðahverfís- búar Ef t>ið þurfið «ð setja sniáauglýsingu • dagblaðið VÍSI, þurfið þið ekki að fara lengra en í Bókabúðiiia Hólmgarði 34. Þar er blaðið einnig selt. Smáauglýsingar Vísis borga sig bezt. £ & Bumuqk&f TARZAN - 2014 j En það var ekki um að villast. Þama lágu leifar Olus, nagaðar krókódí lstönnum. — Við verðum að fara til stöðv- arinnar, sagði Tarzan. — Ef til vill hefur harm kornið bjálkanum á áfangastað áður en hann dó. — En ef ekki, þarf ég að spyrj. fáeinna spurninga.

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.