Vísir - 26.05.1956, Síða 4

Vísir - 26.05.1956, Síða 4
visrn Laugardaginn 26. maí 1956. DAGBLAÐ ■■: ...if Ritsíjóri: Hersíeinn Pálsson Auglýsingastjóri: Kristján Jónsson. Skrifstofur: Ingólfsstræti 3 || AfíreifSsla: Ingólfsstræti 3. Sími 1660 (fimra linuij iLk Otgefandi: BLAÐAÚTGÁFAN VlSlR H/F Lausasala 1 króna Félagsprentsmiðjan h/f V Hvar var áhuginn? Robevt Sliaw kórinn. Robert Shaw kórinn syngur hér á miivikudagskvöld. Koma kói'sins stói'nierkui' (ónlisiar- viðburðm* *. Nokkru fyrir þingslit var kjör- in fimm manna þingnefnd til að .kanna milliliðagróðann svonefnda, og þá einkum hvaða áhrif hann hefur á framleiðslu- og framfærslu- kostnað í landinu. Nefnd- inni var einnig falið að ganga úr skugga um, með hverjum hætti væri unnt að lækka kostnaðinn af starf- semi milliliðanna. Það voru sjálfstæðismenn, sem báru tillögu fram um rannsókn þessa, þegar andstöðuflokk- arnir hofðu hamazt mikið og lengi yfir milliliðagróðanum, sem þeir kölluðu svo, og átti j að vera að keyra allt í kaf j í þessu landi. Þess varð þó j ekki vart, að þessir fjand- j menn milliliðagróðans 'fögn- J uðu tillögunni um rannsókn j hans, þvert á móti, svo að I ekki var nema eðlilegt, að | rnenn grunuðu þá um að j óttast að *missa spón ur ! áróðursaski sínum, ef rann- sókn væri látin fram fara. Tillagan var samþykkt um síðir, og síðan voru kosnir í • nefndina fimm menn, eins | og tillagan sagði til um, og svo varð allt hljótt. Hefði þó mátt ætla, að „fjendur“ milliliðagróðans, er vilduj bjarga þjóðinni undan hon- um eins og öllu öðru, hefðu þegar í stað tekið til starfa með makt og miklu veldi, svo að þeir fengju jafnvel einhver skotfæri fyrir kosningarnar. En það var öðru nær, því að hinir miklu vökumenn sváfu sem fastast, og hvergi var á þetta minnzt fyrr en fyrir nokkr- um dögum hér í blaðinu, að þéir voru minntir á stóru orðin. Það hefur nægt til þess að nefndin hefur verið kölluð saman, og byrjað var á að ' kjósa formann og ritara — Gylfa og Berg — svo að menn sjá', að einvalalið er í henni, og sennilega starfar hún kauplaust að auki. En það er hlálegt, að þessir miklu forsvarsmenn alþýð- unnar skuli hafa sofið þann- ig á verðinum. Hvers er þá að vænta af hinum, sem hafa engar hugsjónir á borð við þá? Eins og Vísir hefur áður greint frá, er væntanlegur hing að snemma í næstu yihu hinn heimsfrægi Robert Shaw-kór, svo og 20 manna hljómsveit, sem halda mun eina hljómleika hér á vegum Tónlistarfélagsins og Íslenzk-ameríska félagsins. Robert Shaw hljómsveitar- stjóri er 39 ára gamall, frægur tónlistarmaður í heimalandi sínu, Bandaríkjunum, en um árabil hefur verið mikil sam- vinna milli hans og Toscaninis, sem oftlega hefur fengið Shaw- kórinn við flutning verka hinna miklu meistara, svo sem Missa Solennis og 9. symfóníu Beet- hovens, Te Deum og óperur Verdis og fleiri, og má af því marka, hvers konar kór Shaw- kórinn er og hver hljómlistar- maður stjórnandi hans er. Hef- ur Tónlistarfélaginu lengi leikið hugur á að fá kórinn hingað, kantata nr. 4 eftir Bach fyrir kór, hljómsveit og einsöngs- raddir og c-dúr messa Scliu- berts, þá eru amerískir negra- söngvar en hljómleikunum lýk- ur á verkum eftir tónskáld, sem uppi voru á fyrra helmingi þessarar aldar. Fréttamenn áttu í fyrradag tal við þá Ragnar Jónsson og Björn Jónsson f. h. Tónlistar- félagsins, er þeir skýrðu svo frá, að þessi blandaði kór Ro- berts Shaws væri óefað einn allra bezti í heimi, og að hér væri um stórmerkan tónlistar- viðburð að ræða. Hljómleikarn- ir verða á miðvikudagskvöld kl. 9.15 í Austurbæjarbíói. <50 ára: Björgvin Jónsson, kaupmaður. Björgvin Jónsson er sonur hinna merku ágætishjóna Jóns Guðnasonar fiskkaupmanns og frú Höllu Ottadóttur hér í borg. Ungur gjörðist Björgvin bindindisbaráttumaður undir merkjum Goodtemplararegl- unnar og hefur ætíð reynzt ó- trauður og einbeittur, en sam- tímis mjög drengilegur í störf- um sínum. Trygglyndi Björg- vins er með fádæmum. Hann er hinn mesti dugnaðarmaður í sinni atvinnugrein, og í því efni í fremstu röð sinnar stétt- ar, enda framúrskarandi á- byggilegur í viðskiptum og skemmtilegur viðskiptis. Björgvin er giftur ágætis- konu, frú Þórunni Björnsdóttur, sem er manni sínum samhent í öllum hans störfum. Hann er mjög vinsæll og á það skilið. Þorsteinn J. Sigurðsson. Hafrannsoknir — Vaitdræii kommiínista. Kommúnistar eiga ekki sjö dagana sæla um þessar mundir. Þeir verða fyrir hverju áfallinu af öðru, og vita varla, hvernig þeir eiga að snúast við þeim. Þeir eru jafnvel orðnir svo ruglaðir, að þeir eru farnir að amast við því, að varnarliðið-skuli ekki ætla að semja um neinar nýjar framkvæmdif, svo að atvinna muni minnka af þeim sökum. Þar við bæt- ist, að Áki Jakobsson, einn af helztu foringjum þeirra um langt skeið, hefur nú sagt frá viðskiptum ýmissa foringja 'flokksins innbyrð- I is, og brugðið upp mynd af „lýðræðinu“, sem þar'rikir. Kommúnistaf vilja — segja þeir —- að varnarliðið Vérði flutt á brott, og hafa raunar krafizt þess lengi. Það kem- ur engum á óvart, því að brottflutningur þess mundi vera ómetanlegur greiði fyr- ir stefnu kommúnista í heimsmálum — að allar þjóðir sé berskjaldaðar nema þær, sem eru á þeirra bandi í skoðunum. Og þeir hafa fengið ötula bandamenn í þessu efni, sem eru Hermann og glæframenn af því tagi. Enginn mun hafa átt von. á því, að kommúnistar reidd- ust yfir því, að varnarliðs- vinnan minnkaði. Þeir hafa alla tíð talið hana þjóð- hættulega, og ættu að fagna, er úr henni verður dregið. Hvers vegna gera þeii: það ekki? Hvað reiðast þeir? . Robert Shaw. Hræddir verða hræddari. Mikil skelfing hefur gripið um sig meðal þeirra manna, sem fylla flokk Hræðslubanda- j lagsins. Það voru hræddir' | menn, sem stofnuðu það í j upphafi, og nú eru þeir ves- | alingar orðnir hálfu hrædd- j ari en áður, og var þó ekki bætandi við raunir þeirra. Það veldur meðal annars w vaxandi skelfingu þeirra, að almenningur hefur fyllzt megnri fyrirlitningu yfir skipun listans hér í Reykja- vík, þar sem Rannveig nokkur er á þriðja sæti, og nokkrum framsóknarmönn- um öðrum dritað eins og tittlingaskít víðar á listann. Auk þess getur svo farið, að bandalagið verði að hafa sameigínlega landslista. og hingað kemur hann nú úr tónleikaför um löndin fyrir botni Miðjarðarhafs og mejgin- landi Evrópu, þár sem hann söng í 38 borgum í 20 löndum. Efnisskráin er mjög fjölbreytt en hún hefst á sönglögum frá því um 1600, síðan verður flutt það táknar, að hagnaðurinn af atkvæðabraskinu fer veg allrar veraldar. Það er ekki að ástæðulausu ;að hinir en hræddu eru órðnir hræddari. Framh. af 1. síðu. tilhögun sjórannsóknanna verða með líku sniði og undan- gengin ár. Rannsakað verður hitastig sjávar með sjálfritandi djúp-hitamæli, og ennfremur verða notuð sjótöku-tæki (til að ná sýnishornum af sjo) með áföstum hitamælum. Út frá hitastigi og seltu fáum við mikilvægar upplýsingar um strauma, en auk þess' er svo rannsakað næringarefni og súr- efnismagn. Línurit geri ég jafnóðum um hitastig, súrefnis- magn og næringarefni til sam- anburðar við línurit frá fyrri árum. Við leggjum milda á- herzlu á að staðsetja hitaskil í hafinu. Iiöfum við stöðugt í gangi sjálfritandi hitamæli, sem mælir hitann á tveggja metra dýpi; " : d;Mj Áturannsóknifnar.- Á 250 stöðum á leið til Fær- eyja setju.m við út háf niður á 50 metra dýpi. Einnig höfum við sérstakt tæki, uppfundið af Hermanni Einarssyni, sem skip- ið dregur 15 mínútur í senn og er þannig útbúið að það helzt á 20 metra dýpi. Tekin eru úr háfnum um 100 dýr af handa- hófi, til að sjá um hvaða dýr er að ræða á hverjum stað, og línu'rit færð um magn átunnar og breytingar frá einum stáð til annars. Auk þess tökum við sýníshorn af sjó á ýmsu dýpi til athugunar á plöntulífi í sjónum.' Vísindamennirnir lögðu á- herzlu á, agi það hefði feikna þýðingu að fræðast um lífs- háttu rauðátunnar, hvar hún hrygnir o. s. frv. Sennilega hrygnir hún þrisvar árlega hér við land, á uppt.ök sín suður af íslandi og berst með straumum norður. Ennfremur, að við rannsóknirnar verði aflað visindalegra g'agna, til skýr- ingar á næstu stórbreytingu sem verður, til þess að geta skýrt í megindráttum hvað hafi gerst. Verði síldarár, koma undangengnar rannsóknir að miklu liði, og meginhlutverkið verður í surnar sem áður, að .leiðbein.a flþtanum um hvar :síldip.!;ér,; án þess að fara út | neina spádóina. ■ • n Rússar hafa 4 rannsóknaskip á svæðinu, sem íslendingar, Norðmenn og Danir fara um, og á Kaupmannhafnarfundin- um kom til or.ða, að æskilegt væri, að samvinna gæti tekist við Rússa um þessar rannsókn- ir, og er það í athugun á veg- um Alþjóða hafrannsóknar- ráðsins. Á Hafnarfundinum voru menn . á einu máli um mikilvægi slíks samstarfs.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.