Vísir - 23.04.1957, Side 1
VI
47. árg.
Þriðjudaginn 23. apríl 1957
92. tb!.
Arend-Roland halastjarnan
sást vel í gærkvöldi.
Bjariasta halastjarna, sem sést hefur
síðan 1910.
í gærkvöldi gafst íslending-
tun að líta sjaldgæfa sjón, en
það var björt cg stór hala-
stjama, sem sást á norður
hinini. Sennilega hefði þessi
viðburður faiið framhjá flest-
um, ef Trausti Einarsson pró-
fessor hefði ekki vakið athygli
manna á þessu og útvarpið
skýrt frá halastjömunni.
Prófessor Trausti skýrði Vísi
svo frá í morgun að hálastjarn-
an væri kölluð Arend-Roland
eftir stjarnfræðingunum, sem
uppgötvuðu hana í nóv. s. 1.
Þá var hún ekki sýnileg berum
augum, en fljótlega var hægt að
reikna út braut hennar og sjá
að hún myndi ganga fyrir sól og
verða björt og sýnileg. Vakti
þetta mikla eftirvæntingu, sem
nú hefir ræzt.
Arend-Roland halastjarnan
verður sýnileg í um það bil
mánuð. Hún er næst jörðu
þessa dagana. Fjarlægð hennar
er um 82 milljónir kílómetra
frá jörðu, sem er um helming-
ur vegalengdar milli sólar og
jarðar. Hún fjarlægist nú jörð
og sól og hverfur. Braut hennar
ér, sem annarra halastjarna
annaðhvort parabolisk, sem
næst óendanleg, eða ákaflega
langur spörbaugur. Arend-Rol-
and halastjarnan er bjartasta
halastjarnan síðan 1910 þegar
Halley halastjaman sást. Hún
hefur sézt á 75 ára fresti í
nokkrar aldir og má búast við
að hún sjáist árið 1985 eða 86.
Þó er það ekki víst að hún
komi, því margt getur hent
halastjörnu á langri leið. Þær
geta blátt afram leyzt upp fyrir
áhrif annarra stjarna.
Hausinn á halastjörnunni er
’ safn steina og er hann því ákaf-
lega laus í sér. Ef halastjarnan
lendir nærri jarðstjörnu eins og
t. d. Júpíter skekkist hún og
breytist. Hún getur líka gufað
algerlega upp, ef hún lendir
nærri sól. Halinn á stjörunni
verður til fyrir hitann frá sól-
inni. Hann verkar sem þrýsti-
afl á hið mótstöðulitla efni
halastjörnunnar, þar af leiðandi
snýr halinn ávallt frá sólu.
Hér birtist mynd af halastjöm
unni, sem tekin var á tíma.
Pétur Thomsen tók myndina.
Aðalvegir í
slæmu ástandi
Aðalvegir eru nú viða í
slæmu ásigkomulagi, holóttir,
blautir og víða höft með stuttu
miliibili, svo að tafsamt er að
komast áfram, og ýmsum geng-
ið erfiðlega, cn ekki skilyrði til
úrbóta, fyrr en þornar mn.
T. d. er vegurinn slæmur í
Flóanum og Holtunum, og að
kalla alla leiðina milli Skelja-
brekku og Borgarness, en verst-
ur beggja vegna Hvítár um
páskana, enda var reynt að
bæta þar úr, þrátt fyrir erfiðar
aðstæður, og ekið ofaniburði í
verstu höftin og jafnað úr.
Rosknir bændur i Borrsr-
fjarðarhéraði segja, að þeir
niLnnist þess ekki, að vegir hafi
verið eins illir yfirferðar vegna
bleytu og hafta og’ að undan-
fornu. Eins og að líkum lætur
eru bað þeir vegirnir, sem mest
umferð er um, sem verst eru
farnir.
Leiðin norður hefur verið
afar slæm að undanförnu, —
og i rauninni varla fárandi. —
Rússnesk skip leita
vars í Hestfirði.
Tiiviijun, að þau voru í nánd við radarstöð-
ina á Straumnes-fjalii?
Siðast liðiiui mánudag komu fjögur rúsnesk skip inn
í Hestfjörð á Vestfjörðum. Þar sem byggð er engin þar við
fjörðinn, urðu menn lítt varir við ferðir skipanna, en þar
mnn hafa verið um þrjá hvalveiðabáta að ræða auk móð-
urskips. Munu þau hafa leitað vars þar í firðinum, þar sem
tvö skipauna voru biluð, að því er menn ætla, en skipin
höfðu ekki langt viðdvöl og er þá ekki vitað með vissu,
hversu lengi þau lágu þarna. Þau sáust frá Gruimavík, og
eiimig urðu menn úr varnarliðinu, sem bækistöð hafa á
Str mmnes-fjalli, varir við þai% er þeir voru á ferð í grennd
vil ] au. Eins og kunnugt er, er verið að reisa radar-stöð
f rir vamarliðið á Straumnes-fjalli, og er ef til vill engin
tilviljun, að hinna rússnesku skipa skuli hafa orðið vart í
grennd við hana. Svo mikið er víst, að hingað til hefur
ekkert frétzt xun rúsneskan hvalveiðaleiðangur hér við
land, fyrr en fregnimar berast um það, að liin biluðu skip
hafi leitað landvars í Hestfirði.
Tveir menn (SrukknuBu síðast-
liðinn miðvikudag.
Annar frá Hellissandi, en hinn
frá Ólafsfirði.
Það slys vildi til á Hellis-
sandi síðastliðinn miðvikudag,
að bát hvolfdi með tveimur
inönnum og drukknaði annar
þeirra. Þá tók einnig mann út
af togaranum Norðlend'ngi í
síðustu viku. og drukknaði
hann.
Slysið á Hellissandi varð með
þeim hætti, að Kristinn Bjarna-
son, oddviti á Sandi fór með
Jóhanni bróður sínum á smábát
frá Sandi að vitja um hrogn-
kelsanet. Sjór var þungur og
kvika mikil.
Allt í einu reið kvika á bát-
inn og hvolfdi honum á svip-
stundu.
Svo vel vildi til, að vélbátur-
inn Ver frá ísafirði var á leið
úr úr höfninni. Tókst bátverj-
um á Ver að ná báðum,mönn-
unum. Var lífsmark með Jó-
hanni, en ekkert lífsmark var
með Kristni og reyndust lífg-
unartilraunir árangurslausar.
Kristinn lætur eftir sig konu
og þrjú börn ung og auk þess
níu börn uppkomin af fyrra
hjónabandi.
Slysið á togaranum Norð-
lendingi frá Ólafsfirði skeði s.l.
miðvikudagskvöld um miðnæt-
urleytið. Skipið var þá að veið-
um djúpt út af Garðskaga. Tók
þá mann að nafni Rögnvald
Axelsson út og fannst hann
ekki. Nánari tildrög að slysinu:
eru enn ókunn, þar eð útgerðar-
félaginu hafði aðeins borizt
skeyti frá togaranum um slys-
ið.
Rögnvaldur var maður um
tvítugt, fæddur og uppalinn á
Ólafsfirði og á þar foreldra og
systkini á lífi. Hann var efnis-
maður hinn mesti og hafði ver-
ið háseti á Norðlendingi lengst
af'-frá því er togarinn komst í j
eign Ólafsfirðinga.
Mmknr drekktí
kisu.
Að Geithálsi var til
skamms tíma heimilisköttur,
mikið uppáhald heima
manna. Fyrir nokkru fór
aann út að kvöldlagi, og segir
ekki meira af honum, fyrr en
hann fannst drukknaður
t Hólmsá daginn eftir eða
síðar. Þar sem það er frekar
óvenjulegt, að kettir
drukkni, þótti rétt að athuga
málið nánar og rannsókn
leiddi í ljós, að minkur
mundi hafa náð í kisu, kaf-
fært og drekkt. Rökrétt af-
leiðing þessa var sú, að leit-
að var til Carlsens ininka-
bana, sem býr ekki langt frá
Geithálsi, og tókst honum
brátt að finna vágestinn með
aðstoð hunda sinna. Heldur
var bæli minksins torsótt, því
að hann hafði búið um sig í
brúarhleðslu, svo að ekki
mátti nota sprengiefni. Tókst
Carlsen samt að vinna mink-
inn og var kisu þar með
hefnt.
Stærst ferðamannahcpurinn fór
í Öræfin um páskana.
Mikill fjoldi IKeykvíkin^a leitaAi
úr bæiium.
Fjöldi Reykvikinga fóru burt ur í gærkvöld eða í nótt. Veður
úr bænuin í páskavikimni og \ var suma dagana mjög gott og
skemmti fólk sér hið bezta.
Auk þessara ferða dvaldi
fjöldi fólks i skíðaskálunum í
nágrenni Reykjavíkur.
nutu útivistar á fjöllum og ann-
arstaðar á ferðalögum.
I:
Flugvélarflaki náð
eftir 12 ár.
Yfirvöldin í Trieste hafa
látið ná & land flakinu af fljúg-
andi virki, sem Þjóðverjar
skutu niður úti fyrir borginni
orið 1945.. í flakinu fundust
beinagrindur fimm flugliða, er
'höfðu ekki komizt út úr flug-
vélinni.
Sennilega hafa flestir lagt leið
sína norður á Akureyri á skíða-
landsmótið þar. Þá fór Hekla
fullskipuð farþegum og vörum
vestur og norður um land til
Akureyrar. Fór hún héðan á
miðvikudagskvöld og kom aftur
í morgun, laust fyrir kl. 8.
Einhverjar óvenjulegustu ferð-
irnar munu hafa verið hópferðir
á bílum austur i öræfi. Hefur
aldrei verið efnt til hópferða á
bílum austur yfir Skeiðarársand
fyrr en nú og sennilega mun
aldrei jafn stór ferðamanna-
hópur gist Öræfin i einu sem nú.
Það voru þeir Guðmundur
Jónasson bílstjóri og ferðaskrif-
stofa Páls Arasonar sem efndu
til þessara ferða. 1 för með
Guðmundi voru 50 manns og 40
með Páli og mun samtals 6 bilar
í ferðinni.
Færðin austur var hin ákjósan-
legust, nema heizt frá Reykjavík
og austur að Hellu, en úr þvi
voru vegif Sem þdr vérða beztlr
á Sumardegi. Mjög iítið var. í
stórvötnunura ,i Skeiðársandi
miðað við þaö sem venja er til,
og Guðmundur Jónasson, sem
fór með sinn hóp alla leið austur
að Jökulsá á Breiðamerkursandi,
taldi Jökulsá fgera bifreiðum.
Óð Guðmundur ána og kannaði
botn hennar.
BAðir þessir hópar lögðu héðan1
á skírdagsmorgun 'og komu aft-
Lík finnst
í Vífilsstaðahrauni.
A föstudaginn langa fundu
þrír drengir úr Kópavogi lík
af manni £ lirauninu suðvestur
af Vífilsstöðum.
Drengirnir voru þarna á
ferli er þeir rákust á líkið í
hraunskúta nokkrum og gerðu
þegar aðvart um líkfundinn.
Líkið reyndist vera af Bald-
vin Skaftasyni héðan úr
Reykjavík, en hann var fædd-
ur 11. sept. 1909 og var ný-
lega tekinn við starfi hjá Sam-
bandinu.
Baldvin hvarf 19. janúar s.l.
og spurðist síðast til hans. er
hann fór úr áætlunarbíl við
Fífuhvammsveg og var talið að
hann myndi ætla þaðan fót-
gangandi til Vífilsstaða, en þar
hafði harm verið sjúklingur um
langt skeið og nýlega útskrif -
aður þaðan. Var veðrið vont
þeear Baldvin fór úr bílnum og
var talið að hann ætlaði að
stytta sér leið og fara beint aí'
augum suður að Vífilsstöðum.
Baldvins var leitað -mfl 15 -
eftir að veðtu- batnaði, en leitin
har ekki árangur.