Vísir - 24.04.1957, Blaðsíða 10

Vísir - 24.04.1957, Blaðsíða 10
10 vlsnt Ari Arnalds, f. bæjarfógeíi. F. 7. JUNÍ 1B7Z. — ^Fæddur 7. júní 1872. i Dáinrí 15. apríl 1957. i Nú hrynja þeir hver af öðr- ; um, mætustu og merkustu vor- menn íslands frá því um alda- mótin síðustu, íslendingar út í hvern sinn fingurgóm, og við hinir stöndum þöglir og hljóðir Ög horfum á brottför þeirra, og '-■ „mjök erumk tregt tungu at hræra“, svo sem Egill kvað. — Nú síðast hverfur oss sjónum Ari Jónsson, síðar Arnalds, frá Hjöllum í Þorskafirði. Hann ' ’var yngstur tíu systkina, einn- ar dóttur og níu drengja. — .Þorsteinn Erligsson sagði einu sinni: „Það þýðir ekki að þylja öfn- in tóm„ því þjóðin mun þau annarsstaðar finna“. Ég tek mér það til eftirbreytni. Þó get eg ekki látið þess ógetið, að á síðastliðnu sumri andaðist hér í Rvík, síðasti þeirra bræðra frá Hjöllum, áður en Ari, Samúel smiður 92 ára gamall. Ari var um skeið blaðamaður yið „Verdens Gang“ í Oslo, að- allega um leikhúsmál. Hann átti þeirri gæfu að fagna, að kynn- ast skáldinu mikla Björnstjerne Björnson á Aulestad. og vera viðstaddur í Osló á ríkisþinginu 1905, þegar Noregur sléit kon- ungssambandi við Svía; — Mun j.jjþá hafa glæðst hugur hans, um að slík gæti orðið skipti með Dönum og íslendingum. Hann , yissi, að hér voru kraftar í ,f kögglum. Hann yissi um það, , þegar Steigrímur Thorsteinsson . ,gekk fram fyrir skjöldu Land- , i varnarmanna, og mælti á þessa /,„Jund: ýjHEelumst rninnst í máli, metumst heldur of val feldan, látum skipta guð giftu — 1 gerum hríð þá er þeim svíði“. / Ari kom heim 1906, og stofn- :■ ©ði þá og gaf út á Eskifirði, blaðið „Dagfara“, hreinskilnis- lega skrifað, sem hans var von og vísa, eindregið á bandi Land- yarnarflokksins. t Það voru skáldmenn á ferð- inni á íslandi um og upp úr aldamótunum. Einar Benedikts- son hafði ort sitt ódauðlega fánakvæði: i ! „Rís þú unga íslands marki * • ' * upp, með þúsund radda brag. *. Tengdu í oss að einu verki ’ anda, kraft og hjartalag. ' Rís þú íslands stóri, sterki stofn, meðnýjanfrægðardag". 1 Og Hannes Hafstein yrkir 1911’: i „Sjá, hin ungborna tíð, D. 15. APRÍL 1957. vekur storma og stríð, leggur stórhuga dóminn á feðranna verk, heimtar kotungum rétt, og hin kúgaða stétt hristir klafann og sér hún er voldug og sterk“. Og áfram: „Þagnið, dægurþras og rígur, þokið, meðan til vor flýgur örninn mær, sem aldrei hnígur íslenzkt meðan lifir blóð“. fslendingar vru í raun og veru samhuga að sama markinu: fullveldi íslands og skilyrðislausum ríkisrétti. Það var aðeins ágreiningur um leið- irnar að markinu. Ég sagði áðan, að á þeim árum voru skáldmenn á íslandi, sem áttu vit og kraft, svo þjóð- in varð að hlusta. Á þeim ár- um gátu engir holtaþkuvælu- kjóar hreiðrað um sig á íslandi, þjóðinni til smánar, svo sem nú gerist. Ari var einn af forystumönn- um Landvarnarfl. alla tíð. Hann var meðritstjóri „Ingólfs“ í R.vík 1907—1909, ásamt Benedikt Sveinssyni. hinni höfuðmerku þjóðkempu Land- varnarmanna og þingheims. Þingmaður Strandamanna var Ari 1908—1911. — Sýslumaður Húnvetninga var hann 1914— 1918. Sýslumaður Norð-Mýl- inga og bæjarfógeti á Seyðis- firði 1918—1937. Daginn eftir andlát Ara, hitti ég aldraðan og merkan Hún- vetning. Sagði hann mér, að alla sína starfstíð í Húnaþingi, hefði Ari átt álmennings vin- sældum að fagna. Einstöku páfagaukar hefðu að vísu fund- ið honum það helzt til foráttu, að hann væri svo mikið Ijúf- menni, að hann gæti tæplega verið yfirvald. Jæja, verra gat það nú verið, sagði ég. — Og er það ekki einmitt góðmennsk- an, mannúðin og vitið, sem gerir menn hæfa til þess, að vera dómara í málum meðborgar- anna? Sá er ekki á í sál sinni og hjarta ljúfmennsku, skilning á báðar vogir, vit og drenglyndi, er ekki hæfur til þess að vera dómari i málum annarra. En þessa dómarakosti átti Ari Arnalds í svo miklum mæli. — Það var sama hvar Ari var, altaf fylgdi honum sama mann- dómsmerkið. Talið við Norð- Mýlinga, talið við Seyðfh’ðinga. Þeir munu allir mæla hið sama: Ljúfmenni, vitmaður og dreng- skaparmaður frábær. Getur nokkurt yfirvald hlotið ástsælli á Hvar ertu? sem Haukur eftirmæli! -Morthens hefur sungið inn á ' Skrifstofuþjónar hans: Ágúst HMV-hljómplötu. Haukur hef- Th. Blöndalj Einar Erlendsson ur mjög lagt sig fram um að Blandon og Jóhannes Arn- syngja lög Olivers á skemmt-1 grímsson, dáðu hann ávalt tmum og þannig gert mikið til sakir hans miklu mannkosta að kynna þau. Er það vel farið, sem þeir var gerkunnugt um. því að lög Olivers hafa alltaf j í sjódómsmálum á Seyðisfirði verið ein á ferð og siglt fram kvaddi hann venjul. sér til að- hjá öllum danslagakeppnum og stoðar Jóhann Hansson, vél- því moldviðri, er þyrlað hefur j smíðameistara og Jentoft Krist- yerið upp í sambandi við þær. jjansen, mjög siglingafróðan og . .. hljóðlega gegnum Hljóm- J merkan mann, og stóðust allir skálagarð, er gefið út í smekk- j dómar þeirra undantekningar- legri útgáfu fyrir píanó og ein- laust, svo sem allir dómar Ara léiks- eða einsöngsrödd. og úrskurðir. Miðvikudaginn 24. apríl 1957 í heiðurssamsæti, er Ara var haldið á Seyðisfirði 1938, er hann flutti þaðan, var þetta mælt: „Þinnar stéttar þú varst sómi, þökkum fyrir unnin störf“. og „Með gætnum huga, glögguim ráðum greiddir marga lífsins þraut“. Eg hygg að höfundur þess- ara orða hafi verið skrifstofu- maður hans Jóhannes Argríms- son, ættaður úr Svarfaðardal, og dómsmálum Ara kunnugur mæta vel. Þegar Ari var sjötíu og fimm ára var þetta um hann mælt: „Hann elskaði rétt, hann vann sitt verk í virðingu lands og þegna. Hans di-englund var hrein og höfuðsterk hárra sem lágra vegna, J. Hann sat við réttarins ritningarorði, er rekkjublund aðrir fengu. Hann meitlaði dómana orð fyrir orð, ávalt hinn sami drengur, Það var hans yndi að dæma dóm og dæma hið rétta manni. Á vökunóttunum vöktu blóm í vinsælu dómsmanns ranni. Og ei verður gleymt um unninn eið þess öðlings af frjálsum ráðum: að vernda þjóðréttar þrúðgan meið til þrauta af hug og dáðum. Dagfarans brautin er björt og heið og bér sín hin glæstu merki. Og vörðuð skal nú vor landvarnaleið, hér lifa skal saga ,í verki. Vér virðum hans ráð og heiðrum dáð, og hlökkum að mega vona, um aldir að megi ættarláð eiga sem flesta svona“. Nú hverfur þetta fráneyga, höfðinglega göfugmenni sjón- um vorum. Ekki er hægt að gleyma, að geta þess, hve snjall rithöfund- ur Ari ArnaJds var. Hann rit- aði á elliárunum mjög merkar bækur, á fögru máli, og’ kom þar víða fram íkáldmælska hans, sem hann hefir máske ekki vitað um sjálfur. Ari Aralds var um skeið kvæntur Matthildi Einarsdótt- ur, Hjörleifssonar, rithöfundar, Kvaran. Synir þeirra þrír: Sigurður, ritstjóri, Einar borg- ardómari og Þorsteinn skrif- stofustjóri. Allir gáfaðir og mætir menn, kunnir að mann- kostum af öllum er til þekkja. — Far þú í friði, kæri vinur! Sig. Arngrímsson. JC uupí gu\l og íitpir edilecjl íumar ! L» IHOCAVEC 10 - S!M1 39*9 'eóilegt ðumar 1 60ð«SmKSSðNgJIHHSflH! eóilegt áumar ! VERZL ■Bmtí S)œlercjá lá& óskar öllum viðskiptamönnum cjíekiíecjð ðutnarð ! eóilegt ðumar / .. * . LuAloAan F ilecjt ðumar 1 Matardeildin, Hafnarstræti 5. Matarbúðin, Laugavegi 42. Kjötbúðin, Skólavörðustig 22. Kjötbúð Yesturbssjar, Bræðraborgarstíg 43. Kjötbúð Austurbæjar, Réttarholtsveg 1. Kjötbúðin, Brekkulæk 1. SlíMttirSélay Sktðurtands eóilecjt ðumar. H. f. Hamar. eÓLlecjt ðumar. .ísg'. G. Gunnlaugsson & Co. etíilegt ðutnar i Ásbjörn ölafsson h.f. Hcildverzlun, Grettisgötu 2. eóilecjt ðutnar i í ' Litla blómabúðin.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.