Vísir - 24.10.1957, Blaðsíða 8

Vísir - 24.10.1957, Blaðsíða 8
Kkkcrt ilaS u Mýrara I átkriít en VUlr. Láttð hann fœra jrður fréttir mg annaS lestrarefni heim — án fyrirhafnar af ySar hálíu. Simi 1-18-88. VSSBR hiunið, a8 l>eir, »em gerast éskrifendtns Vísis eftir 10. hvera mánaðar, fé khlif ókeypis til mánaðamóta. Fimmtudaginn 24. október 1957 Ný samsteypustjórn mynduÓ I Paklstan. övissar stjórnmálahorfur vegna valdabaráttu höfuðleiðtoga. Stjórnarkreppa kmn tíl sög- itannar í Pakistan í [þessum nián- uði. Er líuseyn Shakeed Símra- wardy forsætisráðherra liaf&i ueySst til að biðjást lausnar sneri forsetinn, Iskander Mirza, sér íil Moliammeðsbandalags- ins, og hað það hafa forgöngu um myndun nýrrar samsteypu- stjórnar. Árangurinn af því varð, að 60 ára gamall lögfræðingur, Ismail Ibrahim Chundrigar, tók að sér að mynda fjögurra flokka stjórn Hann er 6. forsætisráðherra þessa 10 ára gamla lýðveldis. Fréttaritari New York Times símar frá Karaehi, að þar geri enginn ráð fyrir, að með þessu séu leyst stjórnmálavandræðin í landinu — og sannast að segja hafi ný vandamál komið til sög- unnar vegna þessarar stjórnar- myndunar. Mohammeðsbanda- lagið hefur aðeins 12 af 78 þing- sætum en gat tekið að sér stjórnarmyndun, af því að stærsti flokkurinn, Lýðveldis- flpkkurinn, sem hefir 23 þing- sæti, gat ekki fengið aðra flokka til að mynda með sér stjórn, sem hefði meirihlu'ta á þingi. Lýðveldisflokkurinn sem hef- ur haft allnáin tengsl við Mirza forseta, en ekki opinberlega, Viðræður hafnar í Washington. Viðrœður þeirra Eisenhower Bandaríkjaforseta og Macmill- ans forsœtisráðherra Bretlands hófust í gœr í Washirigton. Fyrst var haldinn undirbún- ingsfundur og stóð hann rúma klukkustund. Viðstaddir voru utanríkisráðherrarnir Selwin Lloyd og John Fuster Dulles. í miðdegisverðarboði var rætt um iriö'rg mál. — Boðið stóð 3V2 klst. Kunnugt er, að þegar hefur verið rætt nokkuð um aukið samstarf Breta og Bandaríkja- manna á tæknisviðinu og sam- rœmda stefnu og afstöðu til ná- lægra Austurlanda. sleit samstarfinu við Shura- wardy og flokk hans, Awami eða alþýðuflokkinn. Aðilar að hinni nýju stjórn eru m. a. smáflokkar, sem kalla ísig Bændaflokk og Verkalýðs- íflokk, og svo er Nizam-Islam- j flokkurinn. Margir í Lýðveldis- ílokknum voru áður í Mohamrn- eðsbandalaginu og lítill vin- skapur milli þeirra og leiðtoga þess. Óvissa er því hversu tekst til um samstarf Lýðveldisflokks ins og Mohammeðsbandalags- ins. Hin nýja stjórn mun hafa samstarf við vestrænu þjóðirn- ar sem hin fyrri, en engu verð- ur spáð um hvernig lyktar á- tökum tveggja höfuðleiðtoga landsins, — Mirza forseta og Shurawardy fyrrv. forsætisráð- herra. Sumir stjórnmálaflokk- anna í landinu eru lítið meira en nafnið tómt. ÖIl stjórnmála- barátta er í rauninni valdabar- átta höfuðleiðtoganna. Chundrigar getur ekki talist þjóðarleiðtogi á borð við Mirza og Shurawardy. Hann átti .sæti í tveimur Mohammeðsbanda- lagsstjórnum á þeim 8 árum, sem bandalagið var við völd, og hann var leiðtogi stjórnar- andstöðunnár gegn Suhrawardy en samt var hann á launum hjá ríkinu sem ráðunautur þjóð- bankans. í fyrradag var gleðidagur — fyrsti snjórinn var kominn, og þótt hann stæði ekki lengi við, var hann þó notaður, meðan hægt var. Þessi mynd er af athafnasömum ungum borgurum, sem eru að bjarga snjó undan skemmdmn á blettinum syðst við Snorrabraut. ins hófst í gær. Þátttakendur era um 80 talsins. Tilraumr me^ eld- fSaugar vestra. Bandaríkjamenn skutu tveim ur fjarstýrðum skeytum í loft upp í gær og heppnuðust' háð- ar tilraunirnar. Öðru var skotið í loft upp frá loftbelg yfir Kyrrahafi. Hitt skeytið var af Vanguard-gerð, en með það hafa áður verið gerðar tilraunir. Það verður not að næsta ár til þess að flytja gervitungl Bandaríkjamanna út i genninn. Vanguard-skeytinu var skotið í loft upp frá Flór- idaskaga. Afstaða til Tito endurskoðuð. Engin ákvörðun hefur verið tekin um það í Bandarikjunum, að hætta að veita Júgóslavíu efnáhagsaðstoð. Það hefur verið tekið fram, að afstaða Bandaríkjanna sé til enduríhugunar, vegna þess að Belgradstjórnin viðurkenndi austur-þýzku stjórnina, en ekk- ert verður hröflað við þeirri efnahagsaðstoð, sem nú fer fram samkvæmt gerðum samn- ingum. Haustmót Taflfélags Keykja- víkur hófst í gærkveldi og eru keppendur um 80 talsins í öllurn flokkum. Keppt er í meistaraflokki, 1. og 2.flokki og unglingaflokki. 1 meistaraflokki eru þátttakendur 13 talsins, í 1. fl. 14 en í 2. flokki og unglingaflokki eru þeir um eða yfir 50 að tölu. 1 1. umferð í meistaraflokki í gærkveldi fóru leikar þannig að Gunnar Gunnarsson vann Krist- ján Theódórsson og Gunnar Ól- afsso vann Kára Sólmundarson. Jafntefli gerðu Kristján Sylverí- usson og Guðmundur Ársælsson og Reinir. Sigurðsson og Ragnar Emilsson. Biðskákir urðu hjá Ólafi Magnússyni og Hauk Sveinssyni og Guðm. Magnús- syni og Guðmundi Aronssyni. Sveinn Kristinsson átti frí. Alls verða spilaðar 13 umferð- ir í meistaraflokki og jafnmarg- ar í 1. flokki. Næsta umferð verð ur spiluð í kvöld að Þórskaffi. Rokos$ovski fær nýtt hlutverk. Rokossovski hefur verið skip- aður yfirmaður Rússahers sunn an Karpatafjalla. Hann er nú aðstoðar-land- varnarráðherra Ráðstjórnar- ríkjanna, eða síðan er hann hrökklaðist frá Póllandi, er Gomulka náði völdunum, en þar var hann yfirmaður hersins. — Dokossovski er af pólskum ætt- um, en dyggur þjónn Rússa, og er það ætlan manna, að skipan hans í ofangreinda stöðu eigi ao vekja beyg sunnan landa- mæranna, í Tyrklandi og víðar. Tanner reynir stjórnarmyndun. Tanner, formaður finnska jafnaðarmannaflokksins, gerir nú tilraun til stjórnarmyndun- ar. Hann mun reyna að mynda stjórn með þátttöku allra flokka, nema kommúnista. |éei af ddgosí. í fyiTadag hófst skyndilega eldgos á eyjunni Oshima í Jap- ansklasamtm. Hópur manna, sem var mjög nærri eldgígnurin, komst ekki undan öskufalli, og beið einn bana, en 54 meiddust Oshima- ey er sunmn við Tokio. ■ Keppt er í meistarafl. um skák meistaratitil Reykjavíkur. Þrjár afiasöhir í vikunni. Þrir islenzkir togarar hafa selt afla sinn eriendis í þessari vikn. Á mánudag seldi Bjami Ólafs- son í Bremenhaven 142 lestir fyr ir 108 þúsund mörk, á þriðjudag seldi Surprise einnig í Bremer- haven 187 lestir fyrir 112 þúsund mörk og í gær seldi Hafliði í Cuxhaven 189 lestir fytir 120,490 mörk. Fleiri aflasölur verða ekki í vikunni. Skipin hafa fengið gott verð fyrir aflann, því hörgull er á fiski á markaðnum. Afli togar- anna er hins vegar lítill. Tíðar- far hér við land hefur verið erfitt og lítið um fisk. Þjóðviljinn hirtir sína! a mii* ræti sldáesida „Þeir menn, sem ekkert eiga tiH nema kaldrifjað kæruleysi og jafnvel fögnuð, þegar „réttir menn“ era drepnir og svívirtir, er þeir jerjast fyrir frelsi sínu, ættu ekki að dirfast að minnast á samúð og mannúð. Hvatir þeirra eru ein saman hræsni, til að fela ofstækið og hatr- ið, þá eiginleika, sem eru óþarfastir mannkyninu í dag.“ Þáð á við að bakka Þjóð- viljanum fyrir þessi um- mæli. — Hann birtir þau í morgun um andstæðinga sína, er hafa ekki gleymt þjóðarmorðinu • Ungverja- landi, en þau eiga bezt við hann og hans menn. Það er sannarlega löðrangur fyrir kommúnista að fá slíka á- drepu í blaði sínu, því að frá upphafi hefur Þjóðviljinn prédikað hatur og ofbeldi, og aldrei hefur hann lagt góðu máli lið, ef hann hefur getað gert einhverja bölvun. Og undir það munu margir taka, er stóð undir mynd- inni á fyrstu síðu Vísis í gær. Þetta vita kommúnist- ar, og því verða þeir svo reiðir. _________ BEA-flupél ferst vil Belfast. Viscountflugvél fórst í lend- ingu á flugvellinum við Bel- fast um hádegishilið í gœr. Allir, sem í flugvélinni voru, biðu bana, fimm manna áhöfn og tveir farþegar. Flugvélin var frá BEA, en var ekki í áætl- unarflugi, — átti að sækja brezkan ráðherra, Audrey Jon- es, nokkra fréttamenn og ljós- myndara, sem verið höfðu á heimsókn í Belfast. Niðurskurður viðbótar í á bæjum til Dalahólfi. A81s sláfral 1500-1600 fjár á 6 bæjum. Samkvœmt ráðstöfunum þeim, sem Sauðfjársjúkdóma- nefnd hefur gert að undanförnu; og seinast í gœrmorgun, verð- ur slátrað samtals á 6 bæjum 1500—1600 fjár vegna mœði- veikihœttunnar. Áður hefur verið sagt frá niðurskurði á 3 bæjum, en þess ir 3 bætast við, Aflastaðir, Kaldakinn og Vatn. Fé frá öll- um 6 bæjunum hefur mikinn samgang í högum. | Vonandi reynast þessar ráð- j stafanir nægar til þess að hindra útbreiðslu veikinnar,. nema að setja verður upp girð- ingar til frekara öryggis, og verður það gert í haust og næsta vor. Á fyrrnefndum sex bæjum verður sauðlaust næsta haust. Reynt verður eftir því sem frekast verður hægt, að hafa vakandi auga með öllu fé í Dalahólfi, og verður rannsak- að þegar, ef nokkur merki sjást þess, að kind hafi fengið ein- kenni, er bendi til mæóiveiki. Slátrun mun hafa hafizt £ morgun á viðbótarbæjunura þremur.,

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.