Vísir - 28.01.1958, Síða 8

Vísir - 28.01.1958, Síða 8
Ekkert Ijlað er ódýrara í óskrift en Vísir. Látið hann færa yður fréttir og annað leítrarefni heim — án fyrirhafnar af yðar hálfu. Sími I-16-G0. Ondð /^pss np TBnrii, WlSIit Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið ókeypis til mánaðamóta. Sími 1-16-60. Þriðjudaginn 28. janúar 1958 Alvarlegar óeirðir á Kýpur I gærkveldi. l'tgöngubann í hluta af Nikosiu, tveir biðu bana, 100 meiddust. Mikiar óeirðir urðu á Kýpur í gærkvöldi og biðu.tvéir menn bana, en um 100 hlutu meiðsl. Gierðist -þetta í fyrkneska hlut- anum í Nikósíu og var sett þar útgöngubann, sem brezkt her- Bið sá um, að (hlýtt væri. Af Tyrkja hálfu hafa verið borin fram mótmæli út af því, •sem gerðist, er tveir tyrknesk- ir menn, karl og kona, biðu fcana. Fyrst varð karlmaður fyrir brezkri herbifreið og meiddist svo, að hann beið bana nærri samstundis, og svo varð kona fyrir sömu bifreið. Segja Tyrkir á eynni, að þetta hafi verið upptök óeirðanna. Bifreið hans hafi verið umkringd og hann ætlað að aka úr þröng- inni. Menn hafi tekið til að grýta bifreiðina eftir að mað- urinn og konan meiddust, og cinnig hafi þá verið kveikt í verksmiðju og þremur lög- reglubifreiðum. Af Breta hálfu hefir því hins- vegar verið haldið fram, að slysin hafi orðið eftir að grjóti var kastað á bílinn og fram- rúðan sprakk og brotnaði, svo að bílstjórinn missti stjórn á bílnum í bili. Leiðtogi tyrkneskra mianna á eynni ræddi við fréttamenn í gærkvöldi og kvað mjög al- „Víð höfum allí'7, segir Krií.vév. Krúsév ávarpaði vestræna sendiherra i móttöku í gær í Moskvu og ræddi m. a. fund æðslu manna. Kvað hann m. a. svo að orði: „Við höfum allt, sem við þurf- um. Við viljum aðeins frið.“ Krúsév lýsti sig enn fráhverf- an frekari tilraunum innan vé- banda Sameinuðu þjóðanna til þess að ná samkomulagi um af- vopnunarmálin. varlega horfa. Hann gæti ekki ábyrgzt lengur, að fólk færi með friði. Útgöngubannið mun í gildi þar til útför þeirra sem létust hefir farið fi'am. Foot fer til Ankara. Áður en fréttist um þessar óeirðir hafði Selwyn Lloyd ut- anríiksráðheri'a Bretlands, sem nú situr fund Bagdadríkjanna í Ankara, kvatt Sir Hugh Foot, landstjóra Breta á Kýpur, þangað til viðræðna. Tju'knesk- ir menn á Kýpur eru gramir landstjóranum, eins og fyrr hefir verið getið, og telja hann draga taum grískumælandi manna. Aðeins 701. í 9 róðrum. Fré fréttaritara Vísis. Akraiiesi, í morgun. Það sem af er vertíð hefir afii Akranesbáta verið sáralítill og vantar mikið á, að jafnvel afla- hæsti báturinn hafi aflað fyrir tryggingu, en hann er búinn að fá 70 smál. af óslægðu í 9 sjó- ferðum. 15 bátar eru byrjaðir róðra, 12 róa með línu en 3 með net. Línubátarnir hafa í flestum tilfellum róið í Jökuldjúp og fer allt að sólarhringur í sjó- ferð, en aflamagnið eftir svo langa ferð nær hjá flestum bát- um varla 7 smál. að meðaltali. Ekkert hefir verið róið síðan á laugardag, en þá fengu bát- arnir vont veður og voru sumir 12 til 14 klukkustundir að berja til lands. Útlit er fyrir, að ekki verði hægt að fá áhöfn á alla bátana, en á Akranesi eru 24 stórir bát- ar. Búizt er við því að nokkrir byrji róðra á næstunni. Rússar vilja ekki frjálsar fréflir. Annars nokkuö aukiö menningarsamsfarf. f Bandaríkjunum hefur verið ekýrt frá árangri samkomu- lagsumleitana milli Bandaríkj- anna og Rússa um aukið menn- ángarlégt samstarf. M. a. hefur orðið samkomulag ■oim að listamenn og listamanna- hópar komi 1 gagnkvæmar heim sóknir til sýninga og hljómleika, gagnkvæmar heimsóknir há- skólakennara og háskólanema, skipti á sjónvarpsdagskrám og kvikmyndum o. fl., en samkomu ..1 Myndin er tekin í kjarnorkustöðinni í Amersham, Bretlandi. Sést þar hvernig stúlka (Slieila Morrison), vel einangruð, hand- leikur ísotópa. Þessi stöð var stækkuð vegna aukinnar eftir- spurnar eftir geislavirkum ísotópmn, en árlegt söluverð þeirra, sem þarna eru framleiddir er nú 400.000 stpd. eða þrefalt meiri en fyrir 3 árum. „Valborg" stendur enn óhogguð á Garðskagaflös. Tilboð í skipið hafa borist Trolle og Rothe. lag náðist ekki um það, sem var meginmark bandarísku samn- ingamannanna, þ. e. að frétta- þjónusta til hvors landsins um sig skyldi engum hömlum háð. Er því vonlaust eins og stendur, að nokkru verði um þokað til þess að fá Rússa til þess að hætta að trufla fréttasendingar frá Bandaríkjunum til Sovét- ríkjanna. Frjáls fréttastarfsemi er því sem áður þyrnir- í augum Rússa.! Finnska skipið „Valborg", sem strandaði á Garðskagaflös þaiin 18. janúar s.I. heldur enn velli gagnvart hafinu og er ekki að sjá á því neina breytingu frá því að það strandaði, sagði vita vörðurinn á Garðskaga, er Vís- ir talaði við hann í morgun. Tíú, dagar eru liðnir síðan skipið strandaði og allan þann tíma hefur verið norðaustan átt og fremur sjólítið. í nótt sem leið varð í fyrsta skipti nokkur breyting á veðri og vindstrekk- 'ingur af suðaustri, en áttin var það austlæg að ekki gerði neinn sjó. Ekki hefur verið farið um borð í skipið síðan það strand- aði, en skipið liggur óhreyft á skerinu, Stendur það um miðju en all djúpt er við báða enda þess og þá sérstaklega að aft an. Búizt er við því að þao' 20 þúsufld flýðu til Júgósiavíu. Skýrsla liefur verið birt um 20.000 Unverja, sem flýðu til Júg'óslavíu. Mikil og víðtæk hjálparstarf- semi var skipulögð þeim til hjálpar og 16.000 fluttir til Vest- ur-Evrópulanda, Bandaríkjanna, Kanada og Ástralíu. Um 600 sett ust að í Júéóslaviu, en hinir fluttust meim aftur flestir. myndí jafnvel brotna um miðju ef brimaði við Skagann. Að- staða til björgunar skipinu er erfið því að jafnaði er þar tals- verð hreyfing á sjó þó lygnt sé. Tilboð í skipið áttu að hafa borizt vátryggingarskrifstofu Trolle og Rothe í Reykjavík fyrir hádegi í dag. Að því er skrifstofan tjáði Vísi hafa nokk- ur tilboð borizt. Lítill leki á togaranum. Þýzki togarinn, sem strandaði á Malarrifi á Iaugardagskvöidið kom til Reykjavíkur á sunnii- dagsmorgun í fylgd ineð öðrum þýzkum togara. Bíður skipið eft- ir því að komast í slipp, en leki þess er ekki mikill. Slysavarnafélag íslands gerði björgunarsveitum á Snæfélls- nesi aðvart, en skömmu síðar losnaði skipið sjálfkrafa af ar það lenti upp. Vindur stóð af landi og sjór fór hækkandi. strandstað og var komið áleiðis til Reykjavikur í fylgd annars þýzks togara. Skipið mun hafa verið að lóna nærri Iandi og á lítilli ferð þeg- ar það lenti upp. Var það með 70 lestir af fiskí, sem skipað hefur verið upp i Reykjavík. Tillögur Eisenhowers um gapkvæmar kjarnorku- upplýsingar lagöar fram. Lagðar hafa verið fyrir Banda- ríkjaþing í friunvarpsformi til- lögur Eisenhowers um heimilcl hommi til handa til þess að láta auknar kjarnorkuupplýsingar í té samstarfsþjóðum. Tillögur þessar eru í samræmi við loforð Eisenhowers til Mac- millans, er þeir ræddust við, og síðari yfirlýsingar haná, og er hér átt við þjóðir eins og Breta, Kanadamenn og Frakka, eða bandalagsþjóðir, sem hafa með höndum kjarnorkurannsóknir og framleiðslu kjarnorkuvopna. Líklegt er talið, að nokkrar deilur verði ifln þetta á þingi. Tillögurnar verða ræddar á fimmtudag og föstudag í þess- ari viku. „ Dulles heimsækir Marokkó og íran (Persíu) fyrir Bag- dadfundinn. Maitnhæðarháar snjótraðír á götum Akureyrar. í Eyjafirði hafa ýtur sumstaðar orðið 20 draga sleða með mjólk og öðrum flutningi. Akureyri í morgun. í Eyjafirði og á Akureyri er koniið gífurlegt snjómagn, enda hafa stöðug hríðaiweður verið af norðri að undanförnu og kyngt niður snjó. Á Akureyri var orðið ipjög erfitt að komast um göturnar sökum ófærðar, en kosningar- daginn var unnið að því að ryðja götur eftir því soin tími Vannst til og er nú betra að komast um þær en áður. En eftir ruðninginn urðu víða 2—3 metra háar snjóhrannir með- fram akbrautunum. Víða í nærsveitum Akureyr- ar og annars staðar i Eyjafirði er þungfæi-t eða jafnvel ófært bílum með öllu. Hefur sumstað- ar orðið að fá ýtur til þess að draga sleða með mjólk og öðr- um flutningi. Úr Höfðahverfi geta ibúarnir ekki komið mjólk- inni frá sér landleiðina og flytja hana á bátum frá Grenivík til Akureyrar. Á kosningadaginn var bleytu- hrið og leiðindaveður á Akur- eyri, en kjörsókn samt mikil og áhugi almennings mikill fyrir kosningunum. Nú hefur breytt um veður nyrðra og í morgun var kominn austanátt þegar með 4 stiga hita. Flugsamgöngur hafa verið stopular að undanförnu og eng- in flugvél komizt norður síðustu dagana, en í dag er von á flug- vél að sunnan.

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.