Vísir - 15.02.1958, Síða 8
i Efckert blað er ódýrara 1 áskrift en Vísir.
•Látið hann færa yður fréttir cg annað
fesEtearefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Laugardaginn 15. febrúar 1958
Mnnið, að þeir, sem gerast áskrifendux
Vísis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaðið
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
ViiHiuveitendasanibanciið megi
nota hus sitt í eigín þágu.
HHsnæðísþrengsIi huiu liumluii iiijug
sáaríseBiai stariseini |iess.
í gær var lagt fram á Alþingi
árumvarp til Iaga um húsnæði
ffyrír félagssarfsemi. Flutnings-
rnenn eru Jón Kjartansson o. fl.
í frumvarpi þessu er kveðið
svo á, að Vinnuveitendasam-
'fcand fslands skuli heimilt að
tlakahúseign sína við Fríkirkju-
veg 3 í Reykjavík til nota fyrir
félagsstarfsemi sína.
Greinargerð frumvarpsins
bljóðar svo:
Á undanförnum árum hafa
etörf Vinnuveitendasambands
íslands aukizt mjög mikið, og
má nú segja, að það komi að
meira eða minna leyti til kasta
jþess um alla meiri háttar kaup-
og kjarasamninga, sem gerðir
eru í Iandinu. Þröngt og ófull-
jnægjandi leiguhúsnæði, sem
3/innuveitendasambandið býr
xiú við, hefur hins vegar tor-
veldað alla starfsemi, og hafa
samninganefndir tíðum þurft
að afla sér húsnæðis hér og þar
i bænum vegna þrengsla í hús-
Slys á Snorrabraut.
í gæ,r varð slys á Snonaíiraut,
©r lítill drengur varfí fyrir bíl.
Var þetta f jögurra ára gamall
snáði, sem hljóp fyrir bifreið á
móts við Snorrabraut 48. Dreng-
urinn hlaut einhverja áverka á
höfði og var fluttur í Slysavarð-
Stofuna til aðgerðar. Ekki' er
blaðinu kunnugt um hve mikii
meiðslin voru.
„Nýjar hugmyndir,/
Lioyds um lausn kýpurdeifu
Selwyn Lloyd, utanríkisráð-
Bterra Bretlands, kveðst hafa
oðlazt nýjar hugmyndir um
iausn Kýpurdeilunnar á fund-
ttiniim í Aþenu.
Kveðst hann munu ræða þær
mánar á stjórnarfundum.
Sir Hugh Foot, landstjóri
Breta á Kýpur, sem tók þátt í
viðræðunum, ræddi við Makar-
íos erkibiskup í Aþenu. Hann
hefir skýrt leiðíoga T. rkja á
Kýpur frá þeirri viðræðu.
1rmröairLaiH *
Vaihöii í
MíL. 3-1 s.€Í.
næði sambandsins. Við svo búið
varð ekki unað, og hóf því
Vinnuveitendasamband íslands
að leita fyrir sér um kaup á
rýmra húsnæði á þægilegum
stað. Sumarið 1956, hinn 10.
ágúst, 'eðá nokkru áður en lögin
um bann við að breyta íbúðar-
húsnæði í skrifstofur gengu í
giidi, keypti svo Vinnuveit-
endasambandíð húseignina 'nr.
3 við Fríkirkjuveg bér í bæn-
um. Hús þetta er gamalt timb-
urhús, byggt fyrir meira en
háifri öld, um 100 m2 að stærð,
kjallari, hæð og ris. Ef sam-
þykki Alþingis fæst, hefur
Vinnuveitendasambandið á-
kveðið að leggja í nokkurn
kostnað við breytingar og end-
urbætur á húsnæði þessu og
flytja þangað starfsemi sína í
stað þess að rífa það strax. þar
sem litiar líkur eru fyrir, að
fjárfestingarleyfi fáist á næst-
unni til að reisa nýtt hús á lóð-
inni.
Rétt er að taka fram. að fé
því, sem Vinnuveitendasam-
bandið greiddi fyrir téða fast-
eign, hefur nú þegar verið varið
til að reisa tvær stórar íbúðir
hér í bænum, sem þegar eru
komnar í notkun. Húsnæðið á
Fríkirkjuveg 3 er hins vegar
tæplega íbúðarhæft nema með
mikium lagfæringum og til-
kostnaði.
Þess skal að lokum getið, að
félagsmenn Vinnuveitenaasam-
ban'ds íslands eru á áttunda
hundruð, og ætti það, sem sagt
hefur verið hér að framan um
húsnæðismál sambandsins, að
nægja til að sýna, að samband-
inu er brýn nauðsyn á að fá
heimild þá, sem frumvarp gerir
ráð fyrir, og að hér er um full-
komið sanngirnismál að ræða.
Hann byrjar 14.
áríð í svefni.
Paul Souwa í Chicago hefir
byrjað 14. áriö í fasta svefni.
Hann lagðist til svefns þann
20. janúar 1944, og hefir ekki
opnað augun síðan. Pauí, sem
er orðinn 19 ára, þjáist af
svefnsýki, og' læknar gera sér
litlar vonir um, að hann vakni
nokkru sirrni. Móðir hans seg-
ir: „Við getum aðeins beðið
fyrir kraftaverki“.
Heilbrigðismálastofnun Sam
einuðu þjóðanna (WTO) skýrir
frá því, að eiginlega sé búið
að uppræta svartadauða.
Fyrir sjö árum voru skráð
15,399 tilfelli af honum, og rúm
lega helmingur í Indlandi, þar
sem hann hefir verið að kalla
landlægur, en á síðasta ári voru
aðeins skráð 514 tilfelli, þar af
44 í Indlandi, en flest í Kongo.
Alþingi komi saman
10. okt.
I gær var samþykkt í efri
deild Aljþingis fnunvarp til
iaga um samkomudag regiu-
Iegs Alþingis 1958.
Hjóðar það svo:
Reglulegt Alþingi 1958 skál.
koma saman fostudaginn 10.
öktóber, hafi forseti íslands
eigi tiltekið annan samkomu-
dag fyrr á árinu. I athuga-
semdum við frumvarpið segir,
að verði eigi annað ákveðið
með lögum, skuli reglulegt Al-
þingi koma saman eigi síðar
en 15. febrúar. Þar sem Alþingi
því, sem nú. situr, mun eigi
lokið fyrir þann tíma ber nauð-
syn til að ákveða annan sam-
komudag. Lagt er til að Alþingi
komi saman í síðasta lagi föstu-
daginn 10. október 1958.
Var frumvarp þetta sam-
þykkt í efri deild í gær og af-
greitt sem lög frá Alþingi.
ísbndmgar taka þátt í fisk-
ðnaiarráistefiHi í Tromsö.
Fjórir fulltrúar fara héðan.
20 ára afmælis
minnst.
> Akureyri í gær.
Kvenfélag' Akureyrarkirkju
átti ný\'grið 20 ára afmæli og
minntist þess með veglegn hófi
í kirkjukapellunni.
í tilefni afmælisins gaf félag-
ið 60 stóla í kapellu kirkjunnar.
Tilgangur félagsins var upp-
haflega sá að vinna að fram-
gangi kirkjubyggingarmálsins
og afla fjár til byggingarinnar.
En eftir að kirkjan var full-
byggð hefur starfsemi félagsins
beinst að skreytingu kirkjunnar
og fegrun umhverfis hennar.
í félaginu eru nú á annað
hundrað konur. Fyrsti formað-
ur þess var Ásdís Rafnar vígslu-
biskupsfrú og hefur hún gegnt
þvi starfi um allmargra ára
skeið. Núverandi formaður er
Sólveig Ásgeirsdóttir, kona Pét-
urs Sigurgeirssonar ; sóknar-
prests.
Hinn 10. oírtóber s.1. barst Iðn-
aðsirniálastofmin íslands boð frá
norsku f ramleíðslustof nunlnni,
Norsk Produktivitetsinstitutt,
um þátt.töku fulltrúa IMSÍ eða
íslenzka hraðfrystiiðnaðarins í
ráðstefnu, sem lialdin skyldi í
Tromsö 29. og 30. okt.
Var hér um að ræða ráðstefnu,
sem halda átti í sambandi við lok
hagræðingarrannsóknar (rasjo-
naliserings undirsökelse), sem
hin norska stofnun hafði geng-
izt fyrir ásamt Norsk Frossen-
fisk A/L i samvinnu við nokkur
hraðfrystihús í Norður-Noregi
árin 1955 og 1956.
Hið ágæta boð Norsk Produk-
tivitetinstitutt, sem hefur háft
allnáið samstarf við Iðnaðar-
málastofnunina á undanfömum
árum, var þegið með þökkum,
og tóku eftirtaldir aðilar héðan
þátt í ráðstefnunni:
Frá Sölumiðstöð hraðfrystihús
anna, Björn Halldórsson og Snæ
bjöm Bjamason. Frá Sambandi
ísl. samvinnufélaga, Eina'r M.
Jóhannsson. Frá Fiskifélagi Is-
land, Sigurður Haraldsson. Fisk-
iðjuveri ríkisins var einnig gef-
Ibúðir í stað kvik-
myndavers.
Warner Brothers-fyrirtækið
í Bandaríkjunum er að hætta
kvikmyndaframleiðslu á mikl-
um hluta Iandrýmis síns í
HoIIywood.
Hefir rekstur fyrirtækisins
gengið svo mjög saman undan-
farið, að félagið ætlar að reisa
íbúðai’hús á lóð sinni, og 'munu
þar geta búiðW.OOO manns eft-
ir sjö ár. Ætlar það að leggja
400 milljónir dollara í þessar
byggingai’.
Allar synfóníur Bethovens
kynntar í háskólanum.
Dr. P.ell Isólfsson fiefur kyuning>
una á uiorgðsn.
inn kostur á að senda fulltrúa,
en þvi miður reyndist honum ó-
kleift á síðustu stundu að takast
ferðina á hendur.
Mál þau, sem einkum voru
rædd á hinni norsku ráðstefnu,
voru: Kennsla og leiðbeiningar-
starfsemi fyrir vinnslustjóra og
verkstjóra. Geymsla hráefna frá
því að fiskinum er landað og
þar til hann er unninn, hráefnis-
miðlun. Gæðamat. Vinnsluað-
ferðir og nýting hráefnis. Eftir-
lit sölusamtakanna með fram-
leiðslunni.
í lok ráðstefnunnar í Tromsö
var þátttakendum boðið að
skoða nokkur frystihús í Noregi
og Danmörku. Fengu ísl. þátt-
takendurnir í för þessari tæki-
færi til þess að kynna sér ýmis
atriði, sem mikilsverð eru til
samanburðar við ísl. staðhætti.
Þess skal að lokum getið, að
þeir Snæbjörn Bjarnason og Ein-
ar M. Jóhannss. hafa tekið sam-
an stutta skýrslu um ráðstefn-
una, sem reyndist að mörgu
leyti mjög athyglisverð. Virðist
vera ástæða til að athuga, hvort
til greina komi að stofna til hag-
ræðingarrannsóknar í hraðfrysti
iðnaði hér á landi á svipuðum
grundvelli og gert var í Noregi.
enda verður þessi grein fiskiðn-
aðar Islendinga að teljast hitr
mikilvægasta og mikils um verí,
að ekkert sé látið ótilsparao,
sem getur orðið til að .ryðja
braut aukinni hagkvæmni í þess-
ari framieiðslugrein.
Næsta tónlistarkynning há-
skólans verður í hátíðasainum
á morgun, sunnudaginn 16.
febr., og hefst kl. 5 stundvís-
Iega.
Verða þá fluttar af hljóm-
plötutækjum skólans tvær
fyrstu symfóníur Beethovens,
leiknar af Filharmonisku' sym-
fóníusveitinni í New York
undir stjórn Brunos Walters.
En ráðgert er að kynna þannig
á þessu ári allar symfóníur
Beethovens í réttri tímaröð',
þótt vitaskuld verði ýmis verk
annarra tónskálda kynnt þar
á miiii. En með þessu móti
gefst einstakt tækifæri til að
fylgja þroskaferlinum í list
Beethovens, ef menn sækja
kynningarnar reglulega frá
upphafi, auk þess sem njóta
m á auðvitað hverrar um sig
sem sjálfstæðra tónleika. —
Fyrstu symfóníurnar tvær eru
yndisleg tónlist og tiltölulega
aðgengilegar. Beethoven stend-
ur þar enn að miklu leyti á
herðum Haydns og Mozarts, en
einkum í annari symfóníunni
er greinilegur fyrirboði þess, er
Beethoven kemur fram í fullu
veldi sínu með 3. symfóní-
unni.
Dr. Páll ísólfsson mun flytja
inngangsorð og skýra verkin
og leika helztu stefín á flygil.
Aðgangur er ókeypis og öll-
um himill. jf:
Gestur á vegum Frjálsr*
ar menningar.
Um næstu helgi kemur hing-
að á vegum Frjálsrar menn-
ingar imgur rússneskur
menntanraður, David Burg.
Að því tilefni verður sam-
koma haldin í Þjóðleikhús-
kjallaranum sunnudaginn 16.
þ. m. kl. 3, þar sem hann held-
ur fyrirlestur. Auk þess syngur
þar ungfrú Guðrún Á. Símonai
rússnesk og íslenzk lög og
Indriði G. Þorsteinsson rith.
flytur stutta ræðu. Tómas
Guðmundsson setur samkom-
una og kynnir gesti féagsins.
Kosningar í Súdao,
Fyrstu almennar þiiig-
kosningar eiga að fara fram í
Súdan 27. febrúar nk. til 10.
marz.
Frambjóðeiidur til fulltrúa-
deildarinnar eru 637 og til efri
deildar 135.
Súdanbúar eru um 10 mill-
jónir og 4 af 100 læsir og skrif-
andi. Framkvæmd kosning-
anna verður því nokkrum erf-
iðleikum bundin. Yfirkjör-
stjórn er skipuð þremur mönn-
t um, '.„r .1