Vísir - 27.03.1958, Page 4

Vísir - 27.03.1958, Page 4
ITÍSIR. DAGBLAÐ Víslr kemur út 300 daga á ári, ýmist 8 eða' 12 blaðsíður. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritstjórnarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 0,00—18,00. Aðrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00. Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—19,00. Sími: (11660 (fixnm línur) _ Vísir kostar kr. 20.00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Fé Iðnaðarbankans ber að nota í þágu iðnaðarins. Ársþing iðnrekenda mótmælti að bankinn leggi háar upphæðir í húsalánasjóð. Hver er „þriðja leiðin" ? Alþýðublaðið skýrði frá því í gær, að „tillögur ríkisstjórn- J arinnar um lausn efnahags- j málanna11 myndu „sennilega I ekki verða gerðar heyrin- : kunnar fyrr en eftir páska“. ; Er á blaðinu að skilja, að erfitt sé að ná samkomulagi ! um „lausnina“ innan stjórn- arinnar og „margir sérfróðir menn verði að koma við þá j sögu“. Segir blaðið að slíkt ! samkomulag náist ekki „með ! einræðishraða“, og geta víst ! flestir tekið undir það, að sá háttur sé ekki á vinnubrögð- ! um núverandi ríkisstjórnar. ! Hún hefur nú bráðum setið j hálft kjörtímabilið og ekki hraðað sér meira en svo, að ’ allt, sem hún lofaði að gera í efnahagsmálunum, er enn ógert. Innbyrðis sundurlyndi : og úrræðaleysi hefur ein- ; kennt þetta stjórnarsamstarf ! ff'á upphafi, og enginn mað- j ur væntir þess framar, að nokkuð gott komi þaðan. Alþýðublaðið segir að almenn- , ingur „hugleiði mjög að von- um, hvaða leiðir verði farn- ] ar í efnahagsmálunum". ] Hugleiðingar almennings snúast aðallega um það, ) hvort vont geti enn versnað, j en ekki um hitt, hvort rík- isstjórnin finni færa leið út úr ógöngunum. Við því býst ] enginn, eftir nálega tveggja ára reynslu af úrræðaleysi f hennar og aumingjaskap. Engum dettur heldur í hug að forsætisráðherrann sjái ! sóma sinn í því, að biðjast ; lausnar fyrir sig og ráðu- j neytið, enda þótt erfitt ■ myndi að finna dæmi þess, j hvar sem leitað væri, að i stjórn sem hefur reynst svo gersamlega ófær til þess að leysa vandamálin, sæi sér fært að sitja áfram. Eftir sögusögn Alþýðublaðsins eru kommúnistar ánægðir með ástandið eins og það er og „vilja halda áfram nú- gildandi kerfi“. Hins vegar kvað Framsóknarflokkurinn nú vilja „algerlega snúa blaðinu við og gerbreyta öllu kerfinu“. Loks er svo að skilja, að Alþýðuflokkurinn sé með „þriðju leiðina“, og 1 telur blaðið sennilegast að hún verði reynd, en getur þó ekki „á þessu stigi skýrt frá, ' hvað ofan á verður“ né í hverju hún sé fólgin. Eftir þessu að dæma á „samkomu ’ lagið“ langt í land og þarf ■ víst engum að koma á óvart þótt nokkuð verði liðið fram ■ yfir páska áður en lausnin finnst. Gæti vel farið svo, að tveggja ára afmæli ríkis- stjórnarinnar yrði líka liðið. Engan, sem þekkir hinn raun- verulega tilgang kommún- ista, mun heldur furða á því, 1 að þeir skuli vilja óbreytt efnahagsmálakerfi. Sú öfug- þróun sem orðið hefur í tíð núverandi ríkisstjórnar er auðvitað í fullu samræmi við stefnu þeirra og mark- mið. Þjóðviljinn lýsti þvi yfir fyrir nokkru, að stjórn- in hefði komið efnahagsmál- unum á svo góðan grundvöll, að nú væri athugandi að fara að hækka kaupið, því það væri undir vissum kringum stæðúm eitt það bezta sem hægt væri að gera fyrir framleiðsluna og efnahags- kerfið! En nú mætti spyrja: Hvenær hafa ekki komm- únistar talið grundvöll fyr- ir kauphækkunum, ef und- an er skilin afstaða þeirra meðan þeir voru að hreiðra um sig í núverandi stjórn- arsamstarfi? Hafa ekki verkföll og kauphækkanir endranær verið þeirra eina og sjálfsagða lausn? Þetta hlýtur Hermann Jónasson að vita og hafa vitað, þegar hann var að efla þá til áhrifa og valda í verkalýðs- félögunum á kostnað hins samstarfsflokksins í ríkis- stjórninni. Hann hlýtur því að vera þeim sammála um að bezt sé ,,að halda áfram núgildandi kerfi“. Annars yrði erfitt að finna nokkurn botn í afstöðu hans, og er raunar full erfitt þótt þetta bætist ekki við. En vilji Framsóknarflokkurinn „ger- breytingu11, eins og Alþýðu- blaðið segir, þá er það með öllu óskiljanleg afstaða, að formaður hanns skuli beita sér fyrir þvi, að efla áhrif þess flokks í verkalýðssam- tökunum, sem enga breyt- ingu vill, telur allt fara bezt eins og verið hefir og ekki saka þótt dýrtíðin yrði aukin dálitið meira með nýjum kauphækkunum og hærra vöruverði. Alþýðuflokkurinn hefur ekki til þessa reynzt svo á- hrifamikill í ríkisstjórninni, að menn eigi auðvelt með að trúa því, að hans leið til lausnar á vandanum verði valin. Sé hún eitthað annað en „draumur“ þess, sem rit- aði nefnda grein, er nokk- urnveginn víst, að komm- únistar standa gegn henni eins og einn maður, og þá Ársþing Félags ísl. iðnrekenda Iiefur krafizt þess að stjórnar- völdin noti Iieimild þá sem Al- þingi veitti til lántöku fyrir Iðn- aðarbankann að uppliæð 15 millj. króna. Jafnframt var því mót- mælt að bankinn leggi háar upp- liæðir í húsalánasjóð og til raf- væðingar. Varðandi þátttöku íslendinga í svonefndu fríverzlunarsvæði, er ársþingið telur athyglisverða, tel ur það hins vegar, að það sé ó- frávíkjanlegt skilyrði fyrir þátt- töku í slíku efnahagssamstarfi, að um algert jafnrétti allra að- ila og framleiðslugreina sé að ræða. Tryggja beri Islendingum sömu markaðsaðstöðu fyrir framleiðsluvörur i þátttökulönd- unum og þau kunna að njóta hér. Bendir þingið á mikilvægi þess að iðnaðinum sé gefið tækifæri til að mæta vaxandi samkeppni. Eðlilegar og nauðsynlegar fram- farir í iðnaði landsmanna megi ekki stöðva af fjárfestingar- og gjaldeyrisyfirvöldum og óraun- hæfum skattalögum eins og nú er. Gjaldeyrissparnaður. Ársþingið telur að það komi eigi nógu skýrt fram að gjald- eyrissparnaður er eins mikils virði og sá gjaldeyrir sem aflað er. Framleiðsla iðnaðarins spar- ar þjóðinni mikinn gjaldeyri til viðbótar þeim gjaldeyri, sem út- flutningsframleiðslan aflar. Er því nauðsynlegt að allur almenn- ingur svo og ráðamenn geri sér það ljóst hversu þýðingarmikil starfsemi iðnaðarins er á þessu sviði. 1 beinu framhaldi af þessu var skorað á iðnaðarmálaráð- herra að hlutast til um að rann- sakaður verði sá gjaldeyrissparn aður, sem islenzkur iðnaður hef- ur i för með sér. Þjóðleikhúsið frumsýnir þrjá balletta annað kvöld. Danskur ballettmeisfari dansar sóló. Annað kvöld kl. 8 verða þrjár ballettsýningar frumsýndar í Þjóðleikhúsinu. Ballettsýningarnar eru: Eg bið að heilsa, með hljómlist, eftir Karl Ó. Runólfsson, Brúðubúðin, eftir ýmsa höf- unda og Tjaikovskystef. Jan Moravek hefir tekið saman tónlistina í tvo síðastnefndu ballettana. Bidsted hefir samið dasnana í alla ballettana. Dansflokkur úr Ballettskólanum dansar og einnig Bidstedhjónin, sem dansa í öllum ballettunum. Þá dansar danskur ballettdansari sóló, John Wohlk að nafni, en hann er sólódansari við Tívólí í Kaupmannahöfn. Sólódans- arar verða einnig Bryndís Schram, Guðný Pétursdóttir og Irma Toft. Allar nemendur Ballettskólans hér. Alls koma fram 35 dansarar, þar af 8 piltar. Stúlkurnar eru Atvinnuleysi í hámarki í U.S.A. Fara ber með gat, segir Eisenhower. Eisenhower kvað atvinnuleysi í Bandaríkjunum nú vera í há- marki og nú væri því við mestu erfiðleikana að etja, en liann kvaðst vera sannfærður mn, að nú færi að rætast úr. Hann kvaðst ekki geta fallizt á skattlækkun nú til þess að girða fyrir atvinnuleysi. Gera bæri það, sem skynsamlegt mætti teljast, en varast að flana að neinu, sem gæti skaðað Banda rikin siðar. á ýmsum aldri. Yngsta stúlk- an er 8 ára, en 10 börn í dans- flokknum eru á aldrinum 8— 11 ára. Leiktjöld eru eftir Magnús Pálsson, við Eg bið að heilsa, en Lárus Ingólfsson hefur gert leiktjöld við Brúðubúðina Hljómsveitarstjóri verður Ragr ar Björnsson, en Magnús Blön- dal Jóhannsson hefur annazt undirleik. hlyti Hermami Jónasson að eiga bágt með að fallast á hana. En það væri gaman að heyra hver hún er. 100 nýliðar hand- teknir í Alsír. Franska lierstjómin í Tunis tilkynnir, að handteknir hafi verið 100 nýliðar, og 20 menn felldir í bardaga. Flokkur úr liði uppreistar- manna var að flytja nýliða þessa til þjálfunar, er Frakkar gerðu árás á þá, með þeim árangri er að ofan um getur. Eg vil dansa. Kvikmynd þessi, sem Aust- urbæjarbíó hefir nú hafið sýn- ingar á, er þýzk og fer með að- alhlutverk í henni Hannerl Matz, stjarnan úr „Sumar í Tyrol“. Aðrir leikarar eru ekki vald- ir af verri endanum, Arian Hovan, Pauk Hörbiger, Ric- hard Romanowsky, Rudolf Platte o. fl. — í kvikmyndinni er leikið og sungið hið vinsæla lag „Ich tanze mit dir in den Himmel hinein“. Kvikmyndin er alveg fram- úrskarandi skemmtileg, enda hefir hún alla þá kosti, sem mynd af þessu tagi mega prýða, og það fram yfir, að leikur er alveg afbragðs góður, en Han- nerl Matz dansar af slíkri list, að unun er að. —1. Fimmtudaginn 27. marz 1955 Útvarp.sumræður imi miðilsfyrirbrigði. Nýlega fóru fram í útvarpinu umræður um það, hvort fyrir- bæri þau sem kölluð liafa verið draugar, vofur, svipir, líkamn- ingar o.fl. væru raunveruleg eða ekki. Þátttakendur voru þau Ástríður Eggertsdóttir, Sverrir Kristjánsson, Þórbergur Þói’ðar- son, Thor Vilhjálmsson. Þórberg- ur Þórðarson sagði frá ástæðum sínum til að trúa því, að þessi fyrirbæri hefðu í raun og veru átt sér stað og að þau væru sönn- un fyrir þvi, að lif væri eftir dauðann. En Sverrir taldi fyrir- bæi’in óhugsanleg og frásagnir af þeim hlytu að byggjast á skynvillu eða ímyndunum. Ást- ríður virtist gei’a ráð fyrir því fyrii’fram, að lif eftir dauðann ætti sér stað og Thor Vilhjálms- son vildi raunar ekki heldur af- sala sér þeim gseðum, en talaði þó allan tímann á móti þvi, að þau fyrirbæri, sem menn hafa byggt á hugmyndir sinar um framhaldslif, ættu sér stað. Ger- ir það málstað hans miklu veik- ari en Sverris, þvi að Svérrir sagðist ekki trúa a neitt fram- haldslif, jafnfi'amt því sem hann hafnaði fyrirbærunum. Leitun að sannleikanuni. Ekki gat ég fundið, að umræð- urnar fæi'ðu þátttakendur nokkru nær þvi að komast að sameiginlegri niðurstöðu eða þvi hver væri sannleikurinn. Þó er ekki hægt að bera á móti því að hinir gömlu garpar, Þói’bergur og Sverrir ræddu þetta mál í talsverðri alvöru og röksemdir þeirra eru, hverjar í sínu lagi, allrar athygli verðar. Svei-rir bar það fram að þegar maðurinn dæi, þá ónýttust þau lífæri, sem ómissandi eru til þess að með- vitundin geti starfað. Af þessu hefur möi;gum virtzt það óum- flýjanleg ályktun, að lífi manna og allri tilveru væri þá lolcið, og Sverrir er einn i þeim hópi. Dularfullu fyrirbrigðin. ~Hinsvegar eru svo fyrirbæi’in, sem Þói-bergur var að segja frá. Sum þeiri’a hafa veiið rannsök- uð og vottfest af snjöllustu vís- indamönnum éins og Sir Wiliam Crookes, Sir Oliver Lodge, Zölln- er stjörnufræðingi o.fl. Sumir gera sér lítið fyrir og í’engja um- svifalaust niðurstöður slíkra manna, jafnvel blákalda vitnis- burði þeirra um hvað þeir hafa séð og þi’eifað á. En hitt mun þó sönnu nær, að þessi fyrir- brigði, serh fylgt hafa mannkyn- inu frá ómunatið, og ævinlega verið mönnum uppspretta undr- unar, séu raunvei’uleg og þarfn- ist skýringar. Það þarf að skilja hvers eðlis þau eru, og ef menn líta nógu vel í kringum sig, þá munu þeir komast að raun um að sú uppgötvun, sem skýi'h" þessi fyrii’brigði og sýnir þann- ig óyggjandi fram á raunveru- leik þeirra, hefur þegar verið gerð, þótt á það vanti, að sú uppgötvun hafi fengið þá viður- kenningu sem henni ber. Það er hér á íslandi, sem íslenzkui vísindamaður, dr. Helgi Péturss, hefur gert þessa uppgötvun, og þeir sem hana þekkja, munu aldrei láta sér til hugar koma að trúa á andaheim eða ýf'1' náttúrulega hluti, en það hafa til þessa vei’ið þær „skýringai . sem menn hafa sætt sig við a þessum fyrii’bærum. Ný og óvænt , j útsýn. En í stað þeirra hugmynd

x

Vísir

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.