Vísir - 27.03.1958, Blaðsíða 8
Ekkert blað er ódýrara í áskrift en Vísir.
Láiið hann færa yður fréttir og annað
leatrarefni heim — án fyrirhafnar af
yðar hálfu.
Sími 1-16-60.
Munið, að þeir, sem gerast áskrifendur
Vísis eftir 10. hvers mánaðar,
ókeypis til mánaðamóta.
Sími 1-16-60.
Fimmtudaginn 27. marz 1958
Búið að taka á móti 500
lestum af loðnu i bræðslu.
Gert er ráð fyrlr að bræða 1000 lestír
til reynslu.
Alls hefur verið tekið á moti
500 lestum af ioðnu til bræðslu
í Keflavík og er ráðgert að hef ja
bræðsluna á morgun.
Tilraun var gerð um daginn og
varð mjölið heldur feitt og hefur
verið unnið að því að breyta því.
Gert er ráð fyrir að 1000 lestir a£
loðnu verði bræddar, og er þetta
íyrst og fremst gert í tilrauna-
skyni til að ganga úr skugga um
ihvort borgi sig að hagnýta lóðn-
nná á þennan hátt. Tiiraun þessi
Varð brá&kvaddur
á götu.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri, í morgun.
■ í gærdag varð roskinn maður
«g kunnur borgari á Akureyri
hráðkvaddur á götu úti.
Maður þessi var Maron
Sölvason, trésmiðameistari á
Akureyri, á 77. aldursári. Hann
var ættaður frá Ólafsfirði, en
hefir verið búsettur um 40 ára
skeið á Akureyri, landskunnur
hagleiksmaður og smiður, og
völundur í höndum. Á yngri
árum sínum vann hann m. a.
að smíði Grundarkirkju, sem
þykir í röð fegurstu kirkna á
íslandi að allri gerð.
Maron var á gangi í Brekku-
götu á Akureyri þegar hann
féll skyndilega niður. Var hann
þegar fluttur í sjúkrahúsið, en
athugun leiddi í ljós að Maron
var örendur.
Maron heitinn var vinsæll
snaður, og eins og áður getu%
kunur borgari á Akureyri.
Hann lætur eftir sig konu og
börn.
Her Soekarno
sækir fram.
Efcki þykir Iíklegt, að SEATO
sinni áskorun uppreistarmanna
á Súmötru um viðurkenningu á
stjórn þeirra og stuðning við þá.
Brezk blöð í morgun segja, að
uppreistarmenn séu sundraðir
og hafi orðið að hörfa undan æ
meira fyrir hersveitum sam-
bandsstjórnarinnar.
Sambandsherinn sækir nú
fram til tveggja aðalstöðva upp-
reistarmanna á miðri eynni og
kveðst hafa’ % eyjarinnar á sinu
valdi.
Olíuvinnsla er nú hafin aftur
á olíusvæðinu, þar sem Caltex-
oliufélagið bandaríska hefur
etöðvar.
er gerð fyrir tilstuðlan Fiskifé-
lags Islands. ,,
Að því er Huxley Ólafsson
skýrði Vísi frá í morgun, hefur
lítið borizt að af loðnu í bræðslu.
Verðið er lágt, aðeins 4Ö aurar
pr. kg., samanborið við 2 krónur,
sem fæst fyrir kg. af ferskri
loðnu í beitu.
Þessar 500 lestir eru afli 6
loðnubáta, sem veiða loðnu i
beitu fyrir Sandgerðinga og Kefl
víkinga, og það sem ekki er not-
að í beitu fer i bræðslu.
Auk smærri báta eru tveir
stórir bátar á loðnuveiðum, Fann
ey, sem veiðir fyrir Vestmanna-
eyinga og Svanur frá Akranesi,
sem leggur upp veiði sína fyrir
vestan.
Stjórnarkjör
■ F. í. H.
Aðalfundur Félags íslenzkia
hljómlistarmanna var haldinn
sl. laugardag.
Formaður félagsins, Gunnar
Egilsson flutti skýrslu um
starfsemi félagsins sl. ár. Ræddi
hann m. a. um nýafstaðnar
samningagerðir vegna hljóð-
færaleikara í Symfóníuhljóm-
sveitinni. Þá voru reikningar fé
lagsins lesnir upp og sam-
þykktir.
í stjórn voru kosnir Gunnar
Egilsson formaður, Hafliði Jóns
son gjaldkeri, Svavar Gests rit-
ari, Þorvaldur Steingrímsson
varaformaður og Jón Sigurðs-
son meðstjórnandi. f vara-
stjóm: Pétur Urbancic, Aage
Lorange, Einar VigfúSson,
Andrés Ingólfsson og Egill
Jónsson. í trúnaðarmannaráð:
Kristján Kristjánsson, Pétur
Urbancic, Aage Lorange, Ragn-
ar Bjarnason, Jónas Dag-
bjartsson og Óskar Cortes.
Fundurinn samþykkti ein-
róma að Kjósa Albert Klahn,
elzta starfandi hljóðfáeraleikara
landsins fyrsta heiðursfélaga
félagsins, en hann á 65 ára
starfsafmæli um þessar mundir.
Jafnfaliinn snjór 1,5 m.
djúpur í Vaglaskógi.
Frá fréttaritara Vísis.
Akureyri, í morgun.
f morgun var 10 stiga frost
á Akureyri, en bjart og gott
veður.
í gær var frost minna, aðeins
3 stig í gærmorgun og töluverð
sólbráð þegar á daginn leið.
Vegna sólbráðarinnar að und-
anförnu, en næturfrosta, hafa
skaflar harðnað svo aC þeir eru
mannheldir.
í Fnjóskadal eru snjóalög
það mikil, að í Vaglaskógi er
hálfs annars metra djúpur jafn-
fallinn snjór.
Úr Fnjóskadal hafa jarðýtur
farið nokkrum sinnum yfir
Vaðlaheiði til Akureyrar í að-
dráttarskyni, en búizt er við, að
auka þurfi þær ferðir til muna
á næstunni ef ekki breytist
veðrátta skyndilegalega, því
farið er að bera á fóðurbætis-
skorti í Fnjóskadal og mun
gera það í vaxandi mæli hvað
úr hverju svo fremi sem hagar
koma ekki upp innan skamms.
Ýturnar draga sleða með
flutningi og hefir þeim gengið
sæmilega yfir heiðina, enda
fara þær eftir troð;ium slóðum
í Hjarninu.
Lýst eftir
skellinöðru.
í gærkveldi var skellinöðru
stolið frá Laugavegi 105 á
tímabilinu kl. 10—11 í gær-
kveldi.
Skellinaðran ber skrásetn-
ingarmerkið R-598, er græn að
lit og af NSK-gerð. Rannsókn-
arlögreglan biður þá, sem varir
kynnu að verða við farartæki
þetta, eða hefðu orðið þess var-
ir framangreindan tíma í gær-
kveldi að láta hana vita þegar
1 stað.
Slökkvilið á ferð.
í gær var slökkviliðið tví-
vegis kvatt á vettvang en í
bæði skiptin af litlu tilefni og
án þess að tjón hlytist af. —
Höfðu krakkar kveikt í öðru
tilfellinu í sinu við Nesveg, en
strax slökkt.
„Haförn“ kemur til Hafnarfjarðar.
Hér sést Margrétt prinsessa hin sænska, sem eitthvað hefur
verið að skjóta sig í pilti af enskum eða skozkum ættum, eins
og getið hefur verið í fréttum. Myndin sýnir hana aka til hall-
arinnar í Stokkhólmi eftir að hafa liitt piltinn hjá sameiginlegum
vinum.
Verk Ibsens gefin út í „1000 ára
útgáfu" fyrir 6000 n. kr.
Yandaðasta bókaiitgáía, sem uin
i getnr í IVoregi.
Frá fréttaritara Vísis. —
Osló í marz.
Allt, sem Henrik Ibsen skrif-
aði, liggiir nú fyi-ir í ritsafni,
sem fuligert er eftir 30 ára vinnu,
enda 21 bindi.
Útgáfan er prentuð á bezta
pappír, sem fáanlegur er, bund-
in í pergament og með 1000 ára
„ábyrgð", svo að hér er um að
ræða dýrustu útgáfu, sem gefin
hefir verið út í Noregi. Hvert
eintak safnsins (komplet) kost-
ar 6000 norskar ki'ónur.
Vinna við útgáfu þessa hófst
árið 1928, og hgnni var lokið í
síðasta mánuði,' þegar Gylden-
dal tilkynnti á hátíðlegum blaða-
mannafundi, að síðustu tvö bind-
in væru fullgerð og komin út, en
þar er um að ræða skrá yfir
hvert orð, sem Ibsen notar í
verkum sínum. Kemur þar fram,
að orðaforði sá, sem hann notaði,
var hvorki meira né minna en
27,000 orð. Hefir ritstjóri orða-
safnsins, Ragnvald Iversen próf-
essor, skýrt frá þi'/í í sambandi
við þetta, að orðaforði Ibsens
hafi verið meiri en sjálfs Shake-
Athugasemd um
„Haförniuit"
í frásögn Vísis í gær af heim-
siglingu hins nýja skips „Haf-
örn“ var m.a. sagt að skipið hafi
verið ,,óskrásett“. Þetta var
ekki allskostar rétt, skipið var
skrásett af íslenzka ræðismann-
inum í Haugasundi áður en
skipið lét úr höfn, en skoðun
og fullnaðar skráning fer fram
í dag. Plafði hann áður úthlutað
skipinu einkennisstafina G.K.
321. Að öðru leyti stendur frá-
sögn blaðsins óbreytt.
speares, þvi að skáldjöfurinn
enski notaði aðeins 15,000 orð
í öllum verkum sínum.
Mörgum hrýs hugur við háu
verðlagi á útgáfunni, en útgef-
endur eru samt ekki hræddir um,.
að þeir tapi. Þeir vita að það
tekur tíma að selja svo dýra út-
gáfu, en hún mun seljast og
verða fágæt fyrr en varir.
Frakkar heiðra
Arsæi iónasson
Ársæll Jónasson kafari hefir
verið útnefndur riddari frönsku
„Ordre du Mérite Maritime“.
HeiðursskjaKð og merki gráð-
unnar var afhent honum í gær
af H. Voillery, sendiherra
Frakklánds, við móttöku, sem
haldin var í tilefni þessa í
sendiráðinu.
Um Árabil starfaði Ársæll í
þjónustu hins fræga björgun-
arfélags, Em. Z. Svitzers, við
Frakklandsstrendur og í N,-
Afríku og hafði hann þá um
nokkurra ára skeið búsetu i
Marseille. Hefir hann á löng-
um og gifturíkum starfsferli
veitt frönskum skipum og skip
um annarra þjóða ómetanlega
aðstoð með starfi sínu.
★ Komið liefur til tals, að ýms-
ar mibilvægar samstarfs-
stofnanir Vestur-Evrópusani-
takanna verði staðsettar í
sömu borg, er verði höfuð-
borg allrar Vestur-Evrópu-
Fjörutíu menn, stuðnings-
sifenn hugmýndarinnar Iiafa
íúælt með henni víð ríkis-
stjórnir Vestur-Evrópu.