Vísir - 01.04.1958, Side 7
3?riðjudaginn i. apríl 1958
VtSIR
I Otahk tjerbi}:
Fjársjóðurinn í
$
©
54
sagði nokkur orð og las kafla úr biblíunni. Málrómur hans skalf
©f geðshræringu. Nate, Bruce, Jesús, Jósefína og Juana lásu
bænir. Enginn las bæn upphátt nema Nate.
Þegar Bruce kraup niður, hugsaði hann: Hafi nokkurn tíma
verið til dýrlingur, þá varst þú það.
Því næst hafði hann farið heim að húsinu, án þess að segja
Nate, hvert hann ætlaði. Hann fór beint inn í svefnherbergi
Mæddi sig úr sínum óhreinu og eyðilögðu kvöldfötum. Hann tók
að klæða sig í loðbryddan búning fjallamanna. Þegar hann var
fullklæddúr, sparkaði hann til hliðar kvöldklæðum sínum. Hann
laut riiður og tók upp skammbyssu. Hann horfði á hana stundar-
korn í lófa sínum. Svo fleygði hann henni í rúmið, opnaði hurð-
ina og hvarf út í nóttina.
Og morguninn eftir fann Juana skammbyssuna þar á rúm-
inu. Hún nam staðar og horfði á hana.
Hann — hann hefur gleymt henni, sagði hún við sjálfa sig.
En um leið og hún hugsaði þetta, var henni ljóst, að Bruce
hafði ekki gleymt skammbyssunni. Hún hreyfði sig ekki, en
starði á hana og loks skildi hún ástæðu hans.
Hún var komin þessi fölleita Ameríkustúlka. Pepe hafði séð
hana og lýst fegurð hennar með skáldlegum orðum. Hann hafði
einnig sagt henni, hvernið hin ótrygga kona hefði svikið Bruce
og gerzt frilla vegna peninga. Og hann hafði farið vopnlaus
íit í nóttina og kuldan á móti þremur vopnuðum mönnum.
Það var eg, hugsaði hún grátandi, sem dæmdi hann til dauða.
Það var eg, en ekki þessi fölleita vændiskona. Hann sneri ást
sinni til hennar einungis vegna þess, að eg mátti ekki elska
hann. Eg hefði heldur átt að svikja Pepe og snúa mér til guðs
tneð synd mína á samvizkunni en að gera þetta.
Hún greip skammbyssuna og stakk henni undir mittislindann
og hljóp inn í herbergi Jósefínu. Hún tók kápu hennar, hanzka
og sjal, sem hún sveipaði um herðar sér. Því næst fór hún út í
hesthúsið og tók hinn gamla jálk prédikarans, setti reiðtygi á
hann, steig á bak og reið af stað upp til fjallanna. Hún hvislaði:
— Þú ert ekki lengur neinn gæðingur en reyndu nú samt að
herða þig. Reyndu að álíta að þú sért ungur í annað sinn og
það gildir líf Peps — og hans.
Þeir fóru upp klettasvæðið. Pepe var fremstur og allir fjórir
höfðu þeir bundið sig saman.
Hvers vegna fer ekki að hríða, hugsaði hann. O, padre diose,
hvers vegna fer ekki að hríða.
Hann hélt áfram og hjó spor. Þeir höfðu leyft honum að
hafa hnífinn, eftir að hann hafði sannfært þá um, að hann gæti
ekkert ráðið við þrjá menn með skammbyssu, þótt hann hefði
hníf.
Hann þurfti á snjó að halda. Klettarnir voru þurrir og alls ekki
neitt hálir. Hann efaðist um, að hann gæti losnað við þá án
snævar, enda þótt þeir væru orðnir grænir i framan af fjalla-
veiki. Hann var dauðhræddur um, að þeir mundu uppgötva
brellu sína, þegar hann leiddi þá um gil og gljúfur, en löngun
þeirra eftir gullinu blindaði augu þeirra.
Svo gekk hann upp klett einn. Og þegar hann kom upp sá
Tilboð óskast í að byggja íbúðarhús að Bergstaðarstræti 70.
Teikninga og út'boðslýsingar má vitja til Hjalta Geirs
Kristjánssonar, Laugavegi 13 i dag og á morgun gegn 300
kr. skilatryggingu.
Tilboðin verða opnuð á sama stað miðvikudaginn
9. apríl kl. 11 f.h.
AUGLYSING
Nr. 1/1958
frá Innflutningsskrifstofunni.
Samkvæmt heimild i 22. gr. reglugerðar frá 28. desember
1953 um skipan innflutnings- og gjaldeyrismála, fjárfest-
ingarmála o. fl. hefur verið ákveðið að úthluta skuli nýjum
skömmtunarseðlum, er gildi frá 1. apríl til og með 30. júní
1958. Neínist hann „ANNAR SKÖMMTUNARSEÐILL
1958“, prentaður á hvítan pappír með brúnum og grænum
lit. Gildir hann samkvæmt því, sem hér segir:
REITIRNIR: Smjörlíki 6—10 (báðir meðtaldir) gildi fvrir
500 grömmum af smjörlíki, hver reitur.
REITIRNIR: SMJÖR gildi hver fyrir sig fyrir 250 gömrn-
um af smjöri (einnig bögglasmjöri).
Verð á böggiasmjöri er greitt niður jafnt og mjólkur- og
rjómabússmjör, eins og verið hefur.
„ANNAR SKÖMMTUNARSEÐILL 1958“ afhendist aðeins
gegn því, að úthlutunarstjóra sé samtímis skilað stofni af
„FYRSTI SKÖMMTUNARSEÐILL 1058“ með árituðu nafni
og heimilisfangi, svo og fæðingardegi og ári, eins og form
hans segir til um.
Reykjavik, 1. apríl 1958.
Innflutnmgsskrifstofan
Yfirfuílt á kaffisölu Hrmgsins
í Sjáifstæðishusinu.
Spákonan í önnum allan daginn.
Barnaspítalasjóður Hringsins
efndi til kaffisölu í fyrradag í
S j álf stæðishúsinu.
Stóð hún frá kl. 2—7 og kom-
ust færri að en vildu, enda góð
ar veitingar frambornar, auk
þess að styrkt var gott málefni.
Auk kaffisölunnar var þarna
spákona, sem skyggndist inn í
framtíð manna og sá- ekki út
E. R. Burroughs
TAHZAN
úr önnum allan daginn. Einnig
höfðu konurnar bazar með
ýmsum eigulegum munum og
seldist að mestu upp það, sem
á boðstólum var. Að lokum var
svo barnahappdrætti og komu
upp þessi númer: 806, dúkku-
rúm, 254 stór aúkka, 407
dúkkuhús, 627 dúkka, 815
vörubíll, 887 vörubíll.
25Ú1
Nú var komið myrkur og
Tarzan kveikti eld. Við vor-
um skömmu síðar teknir til
far.ga af dvergum, hélt
Biggiins áfram. Þeir fóru
með okkur í dal nokkurn og
þar fyrst sáum við Veera og han. Hann er foringi þeirra
hin bölvaða roðastein. — og sonur djöfulsins að eg
Hver er Veera, spurði Tarz- held. Veera getur bugað
vilja hvers einasta mánns
Sœjai^éttÍK
Veðrið í morgun:
Rvík S 4, 1. Loftþrýstingur
kl. 8 var 1008 millibarar.
Minnstur hiti í nótt var um
0. Úrkoma í nótt mældist 5.5
mm. Sólskin í gær. Minnstur
hiti á landinu í nótt var -4-5
á Grímsstöðum. Síðumúli S
2, 0. Stykkishólmur SV 4, 1.
Galtarviti SV 5, 4. Blöndu-
ós SSV 3, 2. Sauðárkrókur
SV 4, 2. Akureyri SA 3, 3.
Grímsey V 5, 2. Gríms-
staðir á Fjöllum SSV 4, ~1.
Raufarhöfn VNV 7, 1. Dala-
tangi V 6, 7. Horn í Horna-
firði SV 6, 4. Stórhöfði í
Vestmannaeyjum SV 6, 3.
Þingvellir VSV 1, -r-1. Kefla
víkurflugvöllur S 4, 3.
Yfirlit: Yfir Grænlands-
hafi er lægð, en hæð yfir
Norðurlöndum. Ný lægð
suður í hafi á hreyfingu
norður á bóginn.
Horfur, Faxaflói: Suðvest-
an kaldi, lítilsháttar slyddu-
él, en bjart á milli í dag.
Vaxandi SA, þykknar upp
og hlýnar í nótt.
Hiti erl.: London 6, Khöfn
-4-2, Oslo -4-7, Stokkhólmur
-4-5, Þórshöfn í Færeyjum 6.
Eimskip.
Dettifoss fór í gærkvöldi frá
K.höfn til Rvk. Fjallíoss fór
frá Hafnarfirði í gærkvöldi
til Bremen, Hamborgar, Rott
erdam og Hull. Goðafoss er
í New York. Gullfoss er í
K.höfn. Lagarfoss fón frá
Vestm.eyjum 26. marz . til
London, Rotterdam og' Vent-
spils. Reykjafoss er í Rvk.
Tröllafoss fer frá Rvk. í
kvöld til New York. Tungu-
fór frá Lysekil í morgun
til Gautaborgar, Lysekil,
Hamborgar og Rvk.
Skip S.Í.S.
Hvassafell er væntanlegt til
Rotterdam í dag. — Jök-
ulfell er væntanlegt til
New York 3. apríl. Dísarfell
er í Rvk. Litlafeil er í Rends-
burg. Helgafell er væntan-
legt til Akureyrar í dag.
Hamrafell er væntanlegt til
Rvk. 4. apríl. Troja lestar
sement í Álaborg til Kefla-
■ víkur.
Wfei.
Eimskipafélag Reykjavíkur:
Katla er í Durrazzo. Askja
er væntanleg til Rvk. á
sunnudag eða föstudag.
. ' .. ,ja,
Flugvélarnar.
Edda, millilandaflugvél Loft
leiða kom til Rvk. kl. 7.00
í morgun frá New York; fór
til Glasgow og London kl.
8.30. Hekla er væntanleg kl.
07.00 í fyrramálið frá New
York; fer til Staíangurs,
Khafnar og Hamborgar kl.
8.30.
Kaupi gull og sfffur
íSít'rt'-'ÍÚ.'4 ' “ "
S
i
Bezt að auglýsa í Vísi