Vísir - 24.05.1958, Síða 7
Laugardaginn 24. maí 1958
VÍSIR
CATHERSNE GASKIK.
Ubótíir |
FDÐUR SÍNSÍ
31
breytt öllu. Ilann hefði þá ekki fariö til Mauru. Ekkert af þessu
öllu hefði skeð.
Irene sá hve Tom var óhamingjusamur og hún sá einnig ör-
væntingu Mauru og hún var ekki sigri hrósandi lengur. Henni
vafðist tungu um tönn.
— Eg sagði honum ekki frá því vegna þess að eg bjóst við — ó,
hamingjan góða! Hverju bjóst eg við. Ef til vill að hann segði
mér annað hvort, að hann elskaði þig eða væri hættur að hugsa
um þig. Eg hef veitt ykkur báðum athygli í allan vetur og vissi,
að annað hvort hlaut að ske. Og loks þegar hann talaoi við mig,
bað hann um skilnað — enda þótt hann hefði ekki mikla von
um að fá þig. Gat eg sagt honum það undir slíkum kringum-
stæðum?
Hún endurtók þetta hátt og það var þjáning í málrómnum.
— Hefðir þú sagt honum frá því þá — þegar hann tilkynnti
þér, að hann elskaði aðra konu — að þú ætlaðir að fara að ala
honum bam? Það hefði ekki verið heppilega valið tækifæri til
þeirra hluta. Og það var ekki bam ástar okkar — heldur ótryggð-
ar hans við þig.
Hún fór að gráta og blygðaðist sín fyrir tár sín. Svo hætti hún
að gráta og settist aftur á sófann.
— Getið þið ásakað mig fyrir það, að eg vil fá hann aftur.
Eg hef aldrei áður kynnzt manni eins og Johnnie. Hann hefur
alltaf Ufað í öðru umhverfi, en eg. En það var ekki ástæðan til
þess að eg varð ástfangin af honum. Eg elskaði hann vegna þess,
að hann var sá eini, sem nokkru sinni hafði reynt að skilja af-
stöðu mína til lífsins.
Nú fór hún að ræða hið liðna.
— Þegar eg man fyrst eftir mér átti eg heima í borg, sem
jheitir Moreton í Georgíu. Eg held, að eg hafi ílutzt þangað,
þegar eg var fimm ára gömul, eftir að foreldrar mínir höfðu
farizt í umferðaslysi í New York. Afi minn bjó í timburhúsi
skammt frá alþýðuskólanum, þar sem hann var kennari. Fjöl-
skylda hans hafði flutzt frá írlandi, þegar kartöfluuppskeru-
brestui-inn varð. Fjölskyldan hafði erfiðað stranglega, en það er
ekki hægt aö auðgast á fáeinum tunnum lands, þar sem ekki
er liægt að framleiða nema annars flokks baðmull. Afi var
greindur karl. Eg held, að hann hafi verið góður kennari. En !
hann var fátækur og það voru átta böm á heimilinu. Svona
fólk á ekki um marga möguleika að velja.
— Eg man vel eftir því, hélt hún áfram. Þegar eg stsekkaði,
gekk eg í skólann, þar sem hann var kennari. Eg lék mér við
frændsystkini mín — börn sonar afa míns. Henry íööurbróðir
átti sex börn og var hérumbil alltaf atvinnulaus. Afi vildi ekki,
að eg kæmist á snoöir um fátækt þeirra, en þó gat hann ekki
hjálpað þeim.
Hann var metnaðargjarn fyrir mína hönd. Hann vildi að eg
gengi menntaveginn. Eg held, að hann hafi viljað, að eg yrði
kennslukona. Eg átti víst að gera það, sem honum hafði mis-
heppnast. En eg var hrædd við það og þegar eg hafði lokið
stúdentsprófi fór eg aö vinna í bókaverzlun í Moreton. Afi hafði
verið veikur í hérumbil ár áður en eg lauk námi og hann varð
aö hætta kennslustörfum. Hann hafði næstum alltaf kvalir út
frá meinsemd í brjóstinu. Eftir lát hans bjó eg í þrjá mánuði
á heimili Henrys föðurbróður míns. En okkur kom ekki vel sam-
an. Eg hefði ekki farið frá Moreton, ef afi minn hefði lifað. En
þegar hann var látinn, var ekkert lengur, sem tengdi mig við
þann stað. Einhver hafði sagt mér að eg gæti orðið ijósmynda-
fyrirsæta. Þess vegna fór eg til New York.
Á KVÖLDVÖKUNNI
l!!!l
Ekkert er betra en konurnar,
þegar maður viil eyða pening-»
um og láta það sjást.
★ \ !
Einasta leiðin til þess að
skilja konuna er að elska hana
— og þá þarf maður ekki að
skilja hana.
★ I í
— Eg var ekki nógu há vexti til þess að tizkuteiknarar hefðu
áhuga á mér, svo að eg fékk aðeins vinnu, þar sem þurfti stúlk-
ur i baömullarfötum. Sem betur fór þurfti margar stúlkur
baðmullarfötum, svo að eg gat unnið fyrir mér. En eg var svo
einmana, að mig langaði til að deyja á hverju kvöldi þegar eg
kom heim í herbergi mitt. Eg var vön að fara i bíó, en það var
líka allt og sumt. Eg átti enga kunningja og mér var aldrei
boðið út. New Yoi-k var svo stór og þar var allt svo dýrt. Eg
saknaði afa mikið.
Sá nýgifti við kiumingjð
sinn: — Að því er matargerð
viðkemur, þá getur hún í mesta
lagi hitað .... mér í hamsL
★ .:/i
Lítill drengur við bókavörð-
inn á safninu: — Er ekki til
einhver bók um foreldrana &
erfiða skeiðinu? t
— Þegar eg hafði verið í New York um tíma spurði stúlka
mig að því, hvort eg vildi leigja með sér herbergi. Við leigðum
saman fjórar stúlkur. Við vorum allar Ijósmyndafyrirsætur, og
þar átti eg heima, þegar eg hitti Johnnie.
Eg kynntist honum vegna þess, að minnstu munaði aö hann
★ *
Frúin í símann: — Páll hafðl
heppnina með sér, þegar hann
fór á veiðar með byssu síðast
— hann kom óslasaður heim!
• Vt
CEREBOS I
HANDllÆGU BLAU DOSUNUM
HEIMSpEKKT GÆÐAVARA
Mrssr^. KrUljájf O. ‘ikagfjoid Limilci.
Posl Box 41IvRKVKJA\TK. l.e»aiHL
Annan s hvífasunnu kl. 8 teika á !VfeKavellinum
VALIIR - VÍKINGDR (“OLD BOYS“)
Dómari: „Steini Mosi“ (K.R.) — Línuverðir: Sigurjón Jónsson og Hans Kragh.
og strax á eftir
AKRANES - UNGLIIMGALANDSLIÐ
Ðómari: Guðjón Einarsson. — Línuverðir: Hannes Sigurðsson og Guðhjörn Jónsscn.
Aðgöngumiðasala hefst kl. 2.
VÍKINGUR.
•• '/KaviV*'
rJÍ&Ji&Jim*
• •Vt« •//!» • 1/tV •'/!
H
E. R. Burroughs
TARZAINI
2027
Með geysilegu sr.arræði svertingjans cg sneri síðan hans og rak Veera á hol og
tókst Jim að forðast spjótlag leiftusnöggt spjótið úr hendi féll hann dauður niður.