Vísir


Vísir - 29.05.1958, Qupperneq 4

Vísir - 29.05.1958, Qupperneq 4
I VlSIV Fimmtudaginn 29. maí 1958 WMSIXL DA6BLAÐ ▼Mr kemur út 300 daga á árl, ýmist 8 eOa 12 blaOsíöur. Ritstjóri og ábyrgðarmaður: Hersteinn Pálsson. Skrifstofur blaðsins eru í Ingólfsstræti 3. Ritatjómarskrifstofur blaðsins eru opnar frá kl. 8,00—18,00. ASrar skrifstofur frá kl. 9,00—18,00, s Afgreiðsla: Ingólfsstræti 3, opin frá kl. 9,00—18,00. Sími: (11660 (fimm línur) J j Vísir kostar kr. 20.00 í áskrift á mánuði, kr. 1,50 eintakið í lausasölu. Félagsprentsmiðjan h.f. Hin nýja >egar núverandi rikisstjórn hafði verið nokkrar vikur við völd, réðst hún í að stöðva vísitöluna og banna kaup- gjaldshækkanir, og stefna ; sú, sem hún tók upp, var þá þegar kölluð verðstöðvunar- stefnan. Mjög orkaði það þó tvímælis, að sú nafngift gæti staðizt, því að almenningur varð ekki sv osérstaklega var , við verðstöðvunina, þegar komið var fram yfir jólin, og áhrifin frá jólagjöfinni fóru ; að segja til sín, svo að um munaði. Sannleikurinn var nefnilega sá, að allt hækk- aði nema vísitalan, svo að ekki var um neina verð- stöðvun að ræða. Stjórnin og flokkar hennar, óbreyttir fylgismenn í þeim þrem flokkum, sem stjórn- ína styðja, héldu þó áfram að gefa stefnu stjórnarinn- ar þetta nafn, enda þótt það yrði sífellt meira háð eftir því sem lengra leið. En -stjórnarflokkarnir máttu ekki heyra annað nefnt en að verðstöðvunin væri eina stefna. rétta stefnan, sem um væri að ræða, og jafnvel komm- únistar, sem alltaf hafa barizt fyrir kauphækkun- um, án þess að spyrja um gjaldþol atvinnuveganna, sneru algerlega við blaðinu og börðust ákaflega gegn verkföllum og kauphækk- unum, svo að stefnan byði ekki ósigur. Það er sagt, að Adam hafi ekki verið lengi í paradís forðum, og hann var það heldur ekki lengi að' þessu sinni. Verð- stöðvunarstefnan, björgun- unin, sem átti að vera, ent- ist ekki einu sinni hálft kjörtímabil, því að hún hef- ir nú verið fordæmd, svo að um munar. Ríkisstjórnin hefir kúvent, svo að ekkert verður eftir af hinni gömlu stefnu hennar, þegar bjarg- ráðin miklu og góðu verða komin til framkvæmda. Hún berst ekki lengur við verðstöðvunarstefnu, held- ur verðbólgustefnu, sem enginn getur gert sér grein fyrir hvernig endar. Miklar veribækkanir. Fyrirsjáanlegt er, að verðiag ailt hækkar til mikilla muna, og ríkisstjórnin treystir sér ekki til að mót- mæla því. Eitt af stuðnings- blöðum hennar hefir meira að segja látið svo um mælt, að það sé ekki hægt að gera sér almenniléga grein fyr- ir því, hversu miklar verð- . hækkanirnar verða, sem yf- ir eiga að dynja af völdum bjargráðanna. Er hægt að ganga öllu lengra í vesaldómi en þetta? Stjórn arblað viðurkennir, að rík- isstjórnin viti ekki, hvaða áfleiðingar verða af þeim ráðstöfunum, sem hún hefir ákveðið að gera. Er hægt að kalla þetta stjórn, eða æt] réttara sé að viðhafa nafn giftir almennings — kall þetta óstjórn, stjórnleysi eð ráðleysi? Stjórnarblaðið veit ekki, hvað afleiðingar verða af því, a hún hefir tekið upp nýj stefnu til að bjarga þjóðinn Það ætti þó að gera sér grei: fyrir einu: Stefna sú, ser stjórnin hefir tekið upi; hlýtur óhjákvæmilega a leiða til enn meiri vandræðí en við eigum við að glím nú, enda þótt ekki sé hæg að segja, í hve ríkum mæ! þau vaxa. En finnast stjórn arliðinu þau ekki nóg? Unnið fyrir Eitt af því, sem stjórnin hefir tekið sér fyrir hendur er að auka kostnað námsmanna til mikilla muna, svo að margir efnilegir menn en efnalitlir hljóta að gefast upp við að afla sér menntunar ytra. Þetta afrekar stjórnin með því að leggja 30% á allan gjaldéyri, sem námsmenn þurfa á að halda. Með þessu er rlkisstjórnin sannarlega að vinna fyrir framtíðina, því að með þess- ari ráðstöfun vinnur hún beinlínis að auknum kaup- kröfurti í framtðinni, þegar framtíðina. þeir námsmenn koma heim, sem nú stunda,'nám erlendis. Þeir verða í meiri skuldum, þegar námstími þeirra er á enda, og þeir munu eðlilega heimta betri launakjör til þess að auðveldara verði að endurgreiða þær. Með þess- ari ráðstöfun er því verið að efla dýrtíð í framtíðinni, og verður að segja það, að stjórnin vinnur langt fram í tímann. Henni nægir ekki að efla dýrtíðina á næstu mán- uðum, heldur hugsar hún mörg ár fram í tímann. Ekki er ráð nema í tíma sé tekið. Ekki hefir dregið úr ferðamannastraumiuim Spara ver5ur 20 milljarða í erlenduin gjaldeyri. í fréttapistli til New York Times í fyrri viku segir, að öngþveitið í Frakklandi hafi ekki orðið til þess að draga úr ferðamannastraumnum. Segir fréttamaðurinn, að skemmti- ferðafólk sé komið í þúsunda- tali til Parísar og ekkcrt lát á ferðamannastraumnum. Fulltrúar ferðaskrifstofa, flugfélaga og skipafélaga sögðu honum, að nokkuð hefði borið á því, að fólk í Bandaríkjunum hefði frestað áformuðum ferð- um til Frakklands, en það komu bara aðrir í staðinn undir eins, fólk, sem var á biðlistum. Á götum Parísar* segir hann, er allt með sínum vanalega brag, nema að lögreglubifreiðar sjást miklu víðar en áður. Frakkar vilja líka ferðast, en — En Frakkar vilja líka ferðast til annarra landa og horfur á því, að þeir geti brugðið sér til annarra landa í sumar eru vissulega dökkar. Franska stjói’nin hefur fyrirskipað strangt eftirlit, til varnar því að fólk, sem hætta gæti stafað af, fari úr landi (til Alsír), og þess er því krafzt, að öll vega- bréf Frakka, sem úr landi fara, séu árituð. Og áritunina verður að fá í lögreglustöðvum lands- ins. Svo eru gjaldeyrishömlurn- ar þrándur í götu, en aðalerfið- leikarnir eru að fá áritun, og í París bíða menn í röðum við aðallögreglustöðina til þess að fá áritun. Og afgreiðslan geng- ur seint, því að menn eru yfir- heyrðir, og menn verða að sanna, hverjir þeir eru, hvað sem liður vegabréfsmyndinni þeirra, að þeir eigi heima, þar sem vegabréfið gefur til kynna o. s. frv. Lögreglan vill vera alveg viss um, að menn ætli ekki til Alsír, og er ekkert að flýta sér við afgreiðsluna. Hömlurnar. Á undangengnum tíma hafa Frakkar, sem ætla í sumarleyfi til annarra landa, jafnan fengið sem svarar til rúmlega 87 doll- ara í gjaldmiðli þess lands, sem ferðast er til. í fyrra eyddu franskir ferða- menn meira fé í öðrum löndum én erlendir ferðamenn í Frakk- landi, en í ár ætlar franska stjórnin að spara hvorki meira né minna en 20 milljarða í er- lendum gjaldeyri (um 50 millj. dollara) með því að neita ferða mönnum um gjaldeyri, með þeirri einu undanþágu, að þeir mega hafa með sér 20.000 franka (50 dollara), sem þeir ,,höndla með“ sem bezt þeir geta, og svo eru smávegis íviln- anir, ef einhverjar sérstakar á- stæður eru fyrir hendi, svo sem ef menn fara í kaupsýsluerind- um, í heimsókn til ættingja o. s. frv. og þeir, sem fara til Spánar, fá leyfi til að hafa með sér 60.000 franka eða sem svar- ar til 150 dollara. „í allri hreinskilni —“ Hér i blaðinu var birt viðtal i gær við belgíska konu, miðaldra, prinsessuna E\'rad d’Arenberg, bráðgáfaða- víðförla konu. Eg, sem þessar línur rita, átti viðtal við hana, og lét þess getlð, að sitthvað fleira hefði borið á góma, er ég ræddi við hana, en fram kom í viðtalinu, og má vera, að ég minnist á eitthvað af því síðar, en á eitt vildi ég minnast í þessum dálki. — Eg spurði hana og son hennar, lækn, inn unga frá Belgíska Kongö, hvort þau hefði lesið mikið um Island eða heyrt, þ. e. fræðst um það af bókum, blöðum, útvarpi o. s. frv. Svar þeirra var stutt og afdráttarlaust: „í hreinskilni sagt — ekki neitt.“ Umhugsunarefni. Umhugsunarefni má þetta okk ur Islendingum vera, með tilliti til kynningar á landi okkar, þjóð og menningu, því að í því, að vel menntað og „víðreist" fólk, sem er alveg ófrótt um þetta allt og af tilviljun kynnist landinu og fær þegar löngun til nánari kynna, hlýtur að vera bending um, að kynni menntaðs fólks, Jafnvel i tiltölulega nálægum löndum, af íslandi, séu miklti minni en við höfum gert okkur í hugarlund. Nú er það vitað mál, að á Norðurlöndum, Þýzka- landi Bretlandi, Irlandi, Banda- rikjunum og Kanada, er margt menntaðra manna, sem þekkir Island allvel og islenzka menn- ingu, og í þessum löndum munu talsvert margir innan ýmissa stétta, sem vita eitthvað um ís- land. En hvemig mun það vlra í öðrum tiltölulega nálægum menningarlöndum, Frakklancli, Italíu, Spáni, Hollandi, Belgíu o. fl. löndum? Ætli það megi ekki telja þá á fingrum sér í þessum löndum og fleiri, sem hafa lítil kynni af íslandi, — og allur fjöldinn viti sáma sem ekkert um það? Landkynningin. Er hin aukna landkynning nú- tímans, sem svo mjög er talað um — og oft gumað af — ekki eins mikils virði og af er látið. Mér er fjarri að draga úr gildi kvikmynda, sjónvarps, fyrir- lestrahalds, ferðaritlinga o. fl. til landkynninga — og þó hefur flögrað að mér, að þessi land- kynning rissti sjaldan djúpt. Til bóta er þó sjálfsagt, að stunda hana. Er við hugleiðum þetta mætt- um við minnast þess, að senni- lega hefur þekking á Islandi ekki orðið eins útbreidd með nokkurri þjóð fyrir aldamót sein ustu og á fyrstu tugum þessarar aldar, sem á Þýzkalandi og jafn- vel i Austurríki. En það var vegna mikils áhuga fræðimanna og unnenda íslenzkra bókmennta í þessum löndum, sem þekking- in breiddist út, á fyrrnefndum tíma og fyrr, þekkingin á því, sem er- áreiðanlega með því bezta, sem við eigum. En ef sú þekking er til staðar, kemur þá ekki þekking á öðru i kjölfarið. Er það með öðrum orðum ekki meginatriðið, að grunnurinn til landkynningarinnar sé kynning- in á sögu landsins og bókmennt- unum? — ATH. Leiðrétting. Við leiðréttingu á viðtali, sem birt var I gær, hafa fallið alveg úr nokkrar línur. Réttur er þessi kafli svona: „ ... en hvergi. finnst mér ég hafa fundið það, sem ég hef fundið hér, t d. auk Kunnið þér „ástkæra, ylhýra málið“? Á reykvíska nokkuð skylt við það? „Bréf“ þáð hér fer á eftir, hefur Vísir leyft sér að taka upp úr fjölrituðu blaði, Aski, sem gefið er út í Verzlunarskóla ís- lands. „Dollý“ leyfir mönnum þar að kynnast reykvískunni, eins og hún er meðal æskunnar í dag, og vonandi lærist þeim, sem þannig tala, móðurmálið rétt og óbjagað síðar. „Dollý“ verðskuldar þakklæti fyrir að bregða upp þessari skopmynd af bæjarmálinu. „Elsku Dúdí. Eg þakka þér ægilega'vel fyrir bréfið, sem þú sendir til mín um daginn. Eg margrídaði það og hafði gassalega gaman af því. Eg er nú að dressa mig upp, því eg er að hugsa um að juinpa í távnið smátíma og labba nokkra rúnta. Veðrið er svo ógurlega gott. í gær, laug- ardag, fór eg á ball, ægilegt jamm, og hvað heldurðu. Sússó og Johnny voru þar báðir og voru alltaf að reyna að dobla okkur, mig og Gúgó, út í karið þeirra. Við föttuðum þetta samt eins og skot og blöffuðum þá með því að þykjast vera vondar út í þá. Þá urðu þeir gassalega reiðir og fóru að eiga við einhverjar fýsur þarna. En í restina meldaðist þetta allt saman, því að við fifíuðum þá með smátrikkum. Annars skeði dálítið svaka- legt niður á ísborg um daginn. Við sátum þar inni, þegar nokkrir gæjar úr Gaggó-Aust voru að hilla afgreiðsludömun svo að kallinn (eigandinr hringdi á pólísinn. Þegar har kom féllu gæjarnir alveg rusl og þóttust ekkert ha gert. En pólísinn hlustaði ek! á þá, ein druslaði tveimi gæjunum upp í einhver skruggukerru og brenndi beii á stöðina. Ekki hef eg nokki ædeu um, hvað gert var við þ en ekki býst eg við, að þei hafi verið stungið inn. Þe höfðu víst bísað hjálpartík daj inn áður. Eg er enn í Gaggó-Hrin komin í fjórða bekk, en mi þykir samt gasalega leiðinleg Eg hlakka skverlega til vor: ins. Jæja nú er að hugsa u að fiffa enda á þetta rövl í mé Gerðu nú engar dillur þan fyrir norðan, skrifaðu fljótt. Með ástarkveðju, Dollý. PS. Hvað ætlarður að jobba sumar?“

x

Vísir

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.