Vísir - 28.06.1958, Síða 1
12 síbw
12 síður
i8. árg.
Laugardaginn 28. júní 1958.
188. tbl.
Frú Rajk fyrir leynirétti.
Ungverska stjórnfn
Sýsfeigum um
Frú Rajk hefur verið leidd
fyrir alþýðudómstól, sem starf-
ar fyrir luktum dyrum.
Það er nú kunnugt orðið, að
ekkja Rajks, sem tekinn var af
lífi 1940, hefur verið leidd fyrir
leynilegan dómstól í Ungverja-
landi. Er hún sökuð um þátttöku
í samsæri gegn ríkisstjórninni,
er frelsisbaráttan var háð haust-
ið 1956.
neitar ölíum upp-
aftökurnar.
nokkra yitneskju í té um aftök-
urnar. Nefndin kemur saman á
fund í næstu viku. Hún undir-
býr nú skýrslu, sem værður sýnd
öllum þjóðum í samtökum Sam-
einuðu þjóðanna.
Fundur með deiluaðilum I
farmannadeiiunni í
gærkvöldi.
Tveir aðrir kunnir Ungverjar (
hafa einnig verið leiddir fyrir j
leynirétt. Báðum hafði verið j Sáttasemjari hóf fund með
heitið frjálsræði áður en þeir dciluaðilum í farmannadeilunni
jfiigafu júgóslavneska sendi- klukkan 9 í gærkvöldi.
raðið, þar sem þeir höfðu leitað
hælis, en þeir voru þegar hand-
teknir á leið þaðan.
Ungverska rikisstjórnin hefur
neitað að láta Ungverjalands-
nefnd Sameinuðu þjóðanna
Gull- og doElaraforð-
inn 1000 m. stpd.
Fjármálaráðherra Bretlands
tilkynnti í gær, að vel gengi að
treysta fjárhagsgrundvöllinn,
og pundið stæði nú á föstum
grunni.
Gull- og dollaraforðinn er nú i
1000 milljón stpd. og hefur
aldrei verið eins mikill frá því
á miðju ári 1954.
Sökum þess hve laugardags-
blaðið fer snemma í prentun,
er ekki unnt að skýra frá því,
hvenær viðræðum lauk, en þær
stóðu enn yfir seint í gærkvöldi.
Fréttir í stuttu máli.
□ Kjarnorkuráó Bandarikjanna
hefur lýst Iiæthisvæði kring-
nm Johnstoneyju á Kyrra-
hafi næstu 3—4 vikur.
□ Tveir menn af griskum stofni
voru myrtir í gær og nótt í
Nikosíu á Kýpur.
□ Tekjulialli brezku járnbraut-
anna (þjóðnýttar) varð 27
millj. stpd. árið sem leið, en
það er 10 milljónum meira
en 1956.
Grænmetisverzlun landbúnaðarins:
Engar kartöflur fáanlegar
síöastliöinn hálfan mánuð.
IVý uppskera væntfaiileg ffrá Ilol-
landi eflir
Eins og almenningi er kunn-
Ugt, hefur verið lítið imi kart-
bflur í verzlunum að undanförnu
Og snéri tíðindamaður blaðsins
sér af jieim sökum til forstjóra
Grænmetisverzlunar landbúnað-
arins í gær og leitaði lijá honum
fregna af kartöfhiinnfliitningi
til landsins.
Slæm tið — sein
uppskera.
Ástandið í kartöflumálunum
er þannig, samkvæmt upplýsing-
um forstjórans, að engar kart-
öflur eru nú fyrir hendi hjá
grænmetisverzluninni. Á það
einkum rætur sínar að rekja til
þess, hve seint hefur vorað í
Dánmörku og Horfi.ndi, þeim
löndum, sem við erum vanir að
flytja inn kartöflur frá. Hefur
óhagstætt tíðarfar leitt til þess,
að nýja uppskeran er u. þ. b.
þrem vikum seinna á ferðinni í
þessum löndum og hefur þvi
X'ej nzt ómögulegt að fá nokkrar
i*ii iiia vikii.
kartöflur keyptar þaðan af fyrra
árs framleiðslu, sem að mestu
hefur farið til þess að fullnægja
t
eftirspurninni innanlands en ella
(verið boðin upp á mörkuðum og
^seld nágrannalöndunum á upp-
sprengdu verði.
Siðiistll sendingar
frá Póllandi.
Alla jafna hafa kartöflukaup
verið bundin við fyrrgreind
lönd, m. a. til þess að forðast að
'gin- og klaufaveiki eða kartöflu-
bjalla bærist hingað til lands, en
þegar framboðið minnkaði svo
mjög, sem raunin varð á; voru
fest kaup á 1000 lestum í Pól-
landi — og sérstakur eftirlits-
maður sendur þangað, til þess
að fylgjast með gæðum kartafl-
anna, er reynst hafa betri en bú-
izt var við.Kartöflur þessar komu
til landsins í mal og byrjun júní,
en vöru allar uppseldar hjá
grænmetisverzluninni um miðj-
Framh. á 7. síðu.
Sementsverksmiðjan á Akranesi.
Framleiðsla Sementsverksm íðjunnar
fer mikiil fram úr áætlun.
Fregn, sem vakti
nokkra furðu.
Bandarísku kjarnorknsérfræð-
ingarnir, seni sitja hina fyrir-
huguðu Genfarráðstefnu, sem
liefjast 1. júli eru komnir þang-
að.
Þeir kváðust hafa komið af því
að þeir gerðu ráð fyrir þátttöku
Rússa. — Þeim barst skeyti frá
Eisenhower forseta áður en þeir
stigu upp í flugvélina. I því end
urtók hann, að afstaða Banda-
ríkjanna væri óbreytt um það,
að koma á alþjóðasamkomulagi
um afvopnun með eftirliti.
Rússar tilkynntu í gærkvöldi
þátttöku rúmensks visinda-
manns í ráðstefnunni. Vakti hún
nokkra furðu, eftir að Banda-
ríkjamenn höfðu tilkynnt, að
Rússar virtust ætla að hætta við
þátttöku.
íslendingar
rúm 166 þús.
Hagstofan hefur nú tekið
saman bráðabirgðatölur yfir
fjölda landsmanna á sl.
hausti.
Mannfjöldi á Iandinu öllu
var 166.344, miðað við
162.700 árið áður. Er hér um
að ræða aukningu sem nem-
ur 2.2 af hundraði. Reykvík-
ingar eru nú 67.137 en voru
1956 65.305. Neniur sú aukn-
ing um 2.9 af hundraði og er
það nokkru meira en gildir
fyrir landið allt. Skýringin
er eflaust að nokkru leyti
fólgin í þeim fólksstraum,
sein liggur til höfuðstaðar-
ins. Eins og áður segir er hér
um að ræða bráðabirgðatöl-
ur.
Hin ákjósanlegasta reynzla
hefur fengist í hvívetna.
Viötal viö dr. Jón E. Vestdal framkvæmdastjóra.
Afköst sementsverksmiðjunnar á Akranesi muiui fara veru-
lega fram úr áætlun, og í stað 75 þúsund lesta árlegra afkasta
mun hún geta framleitt um 100 þúsund lestir af sementi á ári,
svo fremi sem markaður verður fyrir svo mikið magn.
Vegna þess að mörgum hefir
leikið forvitni á að fylgjast
með þessu mikla mannvii-ki —
einu því mesta, sem íslending-
ar hafa byggt til þessa — og
vinnubrögðum þess og afkös-
(um þegar framleiðslan er að
jhefjast, hefir Vísir leitað
kvæmdastjóra verksmiðjunn-
ar um fréttir.
— Eins og hlmenningi er
kunnugt, sagði dr. Jón — var
ofn verksmiðjunnar settur í
gang við vígsluathöfnina laug-
ardaginn 14. þ. m. og hefir
unnið stanzlaust síðan eins og
vera ber. Ofninn verður ekki
stöðvaður nema nauðsyn
krefji, en slíkt kemur stundum
fyrir, einkum í sambandi við
slit á fóðringu ofnsins. En ofn-
inn er allur fóðraður að innan
með eldföstum steini, og sá
steinn slitnar að sjálfsögðu
bæði mekaniskt vegna efnis-
ins sem um ofninn fer — á 5.
hundrað lestir á sólarhring —
og sömuleiðis vegna hitans og
efnabreytinga milli efnisins og
fóðringarinnar.
— Um slit á ofninum er ekki
að ræða ennþá?
— Nei, að sjálfsögðu ekki, en
hinsvegar má einmitt búast við
ýmsum truflunum á fóðringu
ofnsins við upphaf vinnslu
með nýjum hráefnum. Það
væri því ekkert óeðlilegt þótt
stöðva hefði þurft ofninn, en
til þess hefir bara ekki komið.
Mikil afköst.
— Og hvernig hefir vinnsl-
an gengið til þessa?
— Vonum framar. Eiginleik-
ar hráefnisins í ofninum
reyndust sízt lakari en við var
búizt og voru þegar á þriðja
sólarhringi brenndar í honum
290 lestir af sementsgj alli
(klinker), en við kaup á ofn-
inum hafði seljandinn ábyi'gzt
250 lesta afköst á sólarhring.
Þannig eru afköst verk-
smiðjunnar komin langt fram
úr áætlun og ekkert vafamál,
að enn má auka þau þegar bú-
ið er að keyra vélamar nægi-
lega til.
— Eru komnar miklar birgð-
ir af sementsgjalli?
— Meiri en búast hefði mátt
við, eða sem næst 3 þúsund
lestum, sem liggja í efna-
geymslunni.
— Hvað þarf svo meira til
framleiðslunnar?
— Til þess að framleiða sem-
ent þarf að mala sementsgjall-
ið ásamt litlu einu af gibsi, eða
sem svarar 4—5%. Hefir verk-
smiðjan nýlega fengið 2500
lesta birgðir af gibsi og eru þær
komnar til Akraness.
Sementið er síðan malað í
sementskvörn, álíka stórri og
hráefnakvörnin, sem verið hef-
ir í gangi frá því í lok maí.
I efnarannsóknarstofu Sem-
entsverksmiðjunnar á Akranesi
er þegar hafin rannsókn á sem-
entinu, en lítið magn af sements
gjallinu hefur verið malað í til-
raunakvörnum verksmiðjunnar.
Rannsóknum er að sjálfsögðu
ekki lokið ennþá, en það sem gert
hefur verið fram til þessa dags
bendir ótvíi-ætt til þess að allt
sé eins og' vera ber.
Framh. á 7. síðu.