Vísir - 10.07.1958, Síða 7

Vísir - 10.07.1958, Síða 7
Fimmtudaginn 10. júlí 1958 VÍSIK f WWWWW| Jennsfsp 'Asnes: o SAGA SEKT • II STJÖRNULÁUS NÓTT UM □ G ASTIR „Það er satt,“ sagði Jones rólega, „en ég get eí til vill hjálpað minninu yðar við, ef ég segi yður að faðii. minn hét Sempleton Jones. Hann var einn af skjólstæðingum yðar, herra Valentine." Nú varð þögn aftur. „Góði vinur minn. Er það alvara að þér séuð sonur Sempletons Jones?“ hrópaði Valentine. „Eg held að þér hafið verið ráðunautur föður míns,“ sagði Clark. „Eg annaðist aðeins um nokkur mál fyrir hann.“ „Úrslit þeirra mála urðu ekki sem heppiiegust.“ Valentine yppti öxlum. „Það kann að vera. Faðir yðar var ein- stakt ljúfmenni, en leyfið mér að segja það: hann hafði ekkert vit á kaupsýslu." „Hann hlýtur að hafa verið hreinasta barn í fjármálum,“ sagði Clark, „því engir nema börn glutra aleigu sinni. Er það ekki, herra Valentine?" „Jú góði, nú man ég hvernig þetta var,“ sagði hann og strauk mjórri hendinni um kolsvart hárið. „Hann var hræðilega óhepp- inn. Ef ég man rétt var hann mjög einþykkur. Eg gerði mitt ýtrasta til að afstýra því að hann legði peninga í fyrirtæki, sem ég áleit mjög tvísýn, en eins og ég sagði fór hann sínu fram. Eg get ekki lýst hve þungt mér féll að þurfa að skrifa yður og segja yður að ekkert væri eftir af eignum hans þegar hann dó.“ „Nei, það var allt fokið út í veður og vind,“ sagði Clark. „Og faðir minn er horfinn líka. Eg get sagt yður, ungfrú Grey,“ sagði hann svo og sneri sér að Nancy, „að hann fórst í járnbrautar- slysi." „Eg heyrði það,“ svaraði hún og varir hennar urðu allt í einu þurrar. Hún hlaut að hafa fölnað, því að Valentine drap eitt- hvað á, að þetta væri viðkvæmt efni fyrir ungfrú Grey, sem sjálf hefði lent í járnbrautarslysi. Honum fannst hörmulegt hvernig æfilok Jones hefði orðið. Því miður hefði hann sjálíur veriö norður í Skotlandi þegar þetta gerðist, en komst þó nógu snemma heim til að vera í jarðarförinni. „Mér þótti vænt um að einhver var viðstaddur, sem ekki stóð á sama um fráfall föður míns,“ sagði Clark. Þetta var undarlegt samtal og siðustu Qrðin hljómuðu lengi í eyrum Nancy. — „Sem ekki stóð á sama um fráfall föður míns ...“ Hún fann að hún þurfti að spyrja Clark Jones um eitthvað, þegar þau yrðu ein. En hún kom sér ekki að þvi áður en komið var að heimferðinni til Glebe House. Stjúpinn hafði komið þarna út til Meg í leigubíl, en hann varð Nancy og Frea samferða heim. Hann sagðist ætla að taka þátt í samkvæmum unga fólksins meðan Nancy væri i Glebe House. Vonandi amaðist hún ekki við að vera með honum öðru hverju, þegar Fred heíði svo mörgu að sinna. Fred hló og hafði orð á því að stjúpi hans væri orðinn gamall, kvennabósi. En Fred sagðist ekki hafa hugsað sér að geía honum. tækifæri til að gefa sig að Nancy, hann sagðist ekki mundu hafa mörgu öðru að sinna meðan hún væri gestkomandi. „Það var skrítið að þú skyldir kannast við þennan lögreglu mann frá Jamaica," sagði Fred eftir dálitla stund og hnyklaði j brúnirnar. „Og einkennilegt að hann skyldi koma hingað til Sedhurst. Hér er ekkert til að lokka ókunnugt fólk, sem ekki á kunningja hérna.“ Nancy hugsaði með sér, að Clark mundi vafalaust hafa eitt- hvert annað erindi hingað en að mála. Hún varð að spyrja hann um dálítið, en það var hlutur sem hún hafði syo miklar áhyggjur af að hún kveið fyrir svarinu. « Fred stakk upp á að þau brygðu sér eitthvað í vélbátnum eftir hádegisverðinn. Valentine leit út á sjóinn og sagði að aldan væri full mikil til þess. „Og ég held.að hann sé að hvessa,“ sagði haiin. „Því betra,“ sagði Fred. „Þá verður enn meira gaman, heldurðu það ekki, Nan? Eigum við að segja, að við förum klukkan fjögur?“ Og hún félst á það. Eftir hádegisverð gekk hún dálitla stund ein út í klettana. Það var snarpur vindur og sjórinn faldaði hvítu inni á víkinni. Líklega mundi Fred snúast hugur. Hún rakti götuslóða inn með fjörunni. í fjörðunum milli klettanna hafði verið plantað blómum, það var fallegt, en drottinn minn — skelfing var eyðilegt hérna. Engin furða þó að móðir Freds hefði orðið þunglynd. Á leiðinni til baka sá hún álengdar fjær að i maður kom út úr bátskýlinu. Hún hélt að það væri Valentine, og ' hún faldi sig í gjótu milli kletta þangað til hann var kominn upp j að húsinu. Fred kom niður í fjöruna klukkan fjögur. Hann var í * bezta skapi. „Þetta eykur hjá okkur matarlystina undir mið- degisverðinn hjá Rockaway," sagði hann. Nancy var að vísu hrædd um að hún mundi verða sjóveik, en sagði við sjálfan sig að allt væri betra en að vera ein með Valentine heima í húsinu. Fred tók undir handlegginn á henni og brosti glaðlega, hún var áræðinn félagi og það féll honum vel. Og þá létti henni strax. Fred stýrði vélbátnum, sem var lítill, og stefndi beint til hafs. Sólskin var og heiður kominn, en stormurinn ágerðist með hverri mínútu. Sjórinn freyddi við hvasst mahognystefnið og Nancy hélt sér dauðahaldi og reyndi að harka af sér að verða sjóveik. „Þetta er nú ekki neitt,“ sagði Fred. „Þú ættir að vita rokið, sem ég hef verið í á þessum bát. Hvað gengur að þár, Nan. Þú ert þó varla að verða sjóveik?“ „Nei-ei,“ sagði hún og beit á jaxlinn til að reyna aö bæla niður umbrotin, sem voru í henni. En það tókst ekki. Eftir stutta baráttu varð hún að forða sér inn i klefann. Henni leið betur eftir að hún hafði kastað upp, en hún treysti sér ekki upp á þilfarið aftur, henni fannst betra að fá að liggja á bakið þarna niðri, með lokuð augun. Báturinn veltist sitt á hvað. Og bráðum fannst henni hann vera farinn að reka, vélin var hætt að ganga. Fred rak hausinn inn um klefadyrnar. AKVÖLDVÖKUNNí lllll Prestur einn í vilta vestrinu var að halda ræðu um skyldur eiginkvenna. mm. Biðjið allsstsðar um þessar vinsælu tegundir SINALCO SPUR COLA ENGIFERÖL (GINGER ALE) APPELSIN SODAVATN MALTEXTRAKT PILSNER BJOR KVITOL H.F. Öfgerðin Egill SkallagrÉmsson Sími 1-13-90. rft-rw E. S. Burroughs - TARZAM - Áður en Tarzan gæti spurt fleira, greip innfæddur með- ur fram í fyrir honum með því að Buffalo!“ fram og kalla: „Bwana- Mennirnir stukku renndu augunum með skjálfandi fingri burð- armannsins, sem benti á ryk_ ský í fjarska, þar sem það var hverju orði sannara, að æðisleg buffalohjörð kom þjótandi yfir slétturnar í átt- ina .til þeirra! - Til allrar óhamingju er ein lcona í söfnuði mínum, sem á langt í land með að sýna eig- inmanni sínum viðeigandi hlýðni. Svo orðið geti öðrum til viðvörunar, ætla eg að henda bók minni í hana. Plann hóf bókina á loft — og hver einasta kona í söfnuðin- um beygði sig. ★ Maður nokkur sagði kunn- ingja sínum frá „hræðilegum draumi“, sem hann hafði dreymt nóttina áður. Hann sagðist hafa verið skipreika á eyðiey ásamt Marilyn Monroe, Diana Dors og Jane Mansfield. Kunningjarnir gripu fram í fyrir honum, þegar hér var komið sögu, og sögðust alls ekki sjá neitt hræðilegt við þetta. — Jú, bætti sögumaður þá við og stundi þungan. — Eg var Ava Gardner. ★ — Eg hefi ruglað saman kon- íaksflöskunni og flöskunni með D.D.T skordýraeitrinu. — Hamingjan hjálpi mér! hefirðu drukkið skordýraeitr- ið? — Nei, en eg ber ábyrgð á drykkjuskap næstum allra flugnanna í húsinu! MjóSkurfræðingar í verkfall á miðnætti? Samningar hafa ekki tekizt við mjólkurfræðinga og hcfst verkfall þeirra á miðnætti í nótt að aðstæðum óbreyttum. Það var misskilningur hjá blaðdnu, að fund ætti að halda með deiluaðilum í gær. Sá fundur, sem um var að ræða, hefst kl. 5 í dag og verður þá gerð síðasta tilraun til þess að ná samkomulagi, án þess að til verkfalls komi. Suðurnesjaferðir byrjaðar. Fyrsta Suðurnesjaferðm var farzn síðastliðinn laugardag og komust færri að en vildu. Þó að dimmt væri yfir og fjallasýn lítil kom hópurinn hinn ánægðasti úr ferðinni og all- miklu fróðari um þetta sérkenni lega hérað. Sérstaka ánægju vakti heimsóknin að Reykjanes- vita og undurfögur kvöldstund að Bessastöðum. Leiðsögumaðurinn lét sér ekki nægja að segja frá iandslagi og staðháttum heldur flutu með nokkrar þjóðsögur, þar á meðal ein aiveg ný um hinn fræga Stapadraug. Sérieyfishafar hafa beðið blað- ið að geta þess að í ferðir þessar verði aðeins notaður einn lang-- íerðarvagn, sem tekur 50—55 manns í sæti. E ^ :

x

Vísir

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.