Vísir - 11.07.1958, Blaðsíða 8

Vísir - 11.07.1958, Blaðsíða 8
Efckert blað er ódýrara í áskríft en Víslr. Látið hann færa yður fréttir og annað lentrarefnl heim — &n fyrirhafnar af . i, yfar *»áifn. Sími 1-16-60. ’lttSIR rviunið, að þeir, sem gerast áskrífendns V'isis eftir 10. hvers mánaðar, fá blaí'ð ókeypis til mánaðamóta. Sími Í-16-60. Föstudaginn 11. júlí 19581 II. C. Hansen kom ekki sem málamiðlari. landhelgi Grænlands færð út, verði víkkunar- áformin framkvæmd hér. Síðdegis í gær var boðað tii átmdar H. C. Hansens forsætis- náðlierra Danmerkur, sem liér <;.r staddur, og blaðainanna í •danska sendiráðinu, að viðstödd- iim Knuth greifa, ambassador. H. C. Hansen gerði grein fyr- ir tildrögum að komu sinni og tilganginum með henni, og vélc -að fiskveiðilögsögumálunum o. fl., og svaraði svo fyrirspurnum. Tók forsætisráðherrann fram, •að för hans til Grænlands og við- koma hér, hefði verið ákveðin áður en útvíkkun landhelginnar var tilkynnt. Hann kvað barna- legt að leyna því, að hann hefði Tætt fiskveiðilögsögumálin, við leiðtoga hér, en hann væri ekki kominn liingað til þess að miðla rnálum eða til þess að beita á- hrifum sínum við islenzka stjórn málamenn. Hann ræddi næst nokkuð af- stöðu Dana í Genf, „6 plús 6“- afstöðuna, eins og hann kallaði hana, þ. e. 6 sjómílna almenna landhelgi og 12 mílna fiskveiði- lögsögu fyrir þjóðir, sem byggju alla afkomu sína á hafinu, eins og á Færeyjum, Islandi og Græn landi. Ákvörðun íslands um 12 mílna landhelgi kvað hann hljóta að hafa keðjuverkanir. Hann kvaðst vona, að róleg athugun leiddi til friðsamlegrar lausnar. Heimdallarferð. Um helgina efnir Ferðadeild Heimdallar til ferðar í Kerling- arfjöll, eins og þegar liefir ver- ið skýrt frá, Þátttakendur eru þegar orðn- ir eins margir og gert var ráð fyrir í upphafi, en þar sem áframhaldandi veðurblíðu er spáð, má ætla, að enn fleiri fýsi að taka þátt í ferðinni og er þeim ráðlagt að hafa sam- band við skrifstofu félagsins í síma 17102. Hann sagði, að landhelgin í Grænlandi yrði stækkuð, ef víkkiiii landhelginnar kæmi til framkvæmda hér, en ekkert á- kveðið hvenær slíkt yrði gert. Ekki kvað hann áhuga í Dan- mörku fyrir meira en 6 mílna iandhelgi. Af Norðurlandsför H. C. Han- sens verður ekki, vegna tafa sem hann varð fyrir á ferðalaginu. Hann er ánægður yfir veru sinni hér — á hér marga vini og er aðdáandi íslands — og hyggur gott til Grænlandsfararinnar, þar sem hann hyggst kynna sér skilyrði og kjör manna, Bílfl sliemmisl af eldi. Frá fréttaritara Vísis — Seifossi í gær. Um hádegisleytið i dag kvikn- aði í nýlegum lúxusbil frá Rvík. og stórskemmdist liann. Þegar bíllinn kom til Selfoss um hádegisbilið stóð blár loginn aftur úr honum og var kominn í hann talsverður eldur. Var fyrst náð í brunaliðið á staðnum, en seinna bar að bílstjóra með sandhlass, sem sturtaði því á logandi bílinn og tókst þá að kæfa eldinn. Bíllinn sem er af Buickgerð 1954 var talinn mikið skemmdur. Ekki er mönnum Ijóst hvað olli eldinum. Hugðu sumir að það mundi stafa af því að hand- bremsan hefði verið á, en aðrir að orsakanna gæti verið að leita til þess að afturdekk hafi sprungið. Tveir forstjórar SÍS voru í bílnum. Fjórar bandarískar þotur hafa flogið í einum áfanga frá YVashington til Belgíu á 6—7 klst. Þetta voru litlar orustuflugvélar. Var særður svöðusári, en komst þó til bæjar. MtreysÉivoríi aldlraös aiuaias. Það slys vildi til fyrir nokk- iirum dögum að borgfirskur bóndi, Páll Þorsteinsson á Steindórsstöðum í Reykholts- dal, hjó sundur æð á fæti sér, er liann var við skógarhögg einn síns liðs og Iangt frá bæj- nm. Skeði þetta að Húsafelli íj Hálsasveit, efsta bætium í Borgarfjarðarsýslu, en þar er skóglendi mikið og vann Páll þar að skógarhöggi. Missti hann öxina úr hendi sér, svo að hún lenti á ristinni á fæti hans og hjó þar sundur æð. Bjæddi nijög mikið úr fætinum, en langt til bæja, eða sem næst klukkustundargangur. Þessa leið alla gekk Páll, sem þó er talsvert á áttræðisaldri, en hins- vegar hraustmenni mikið. Var mjög af honum dregið er hann kom heim að Húsafelli, sökum blóðmissis og féll þá í öngvit. Símað var eftir lækni að j Kleppjárnsreykjum, sem kom fljótt á vettvang og stillti blóð- rásina, Flutti læknirinr. Pál í sjúkrahúsið á Akranesi þar sem hann hefur legið rúmfastur síð- an, en er nú á batavegi og .í þann veginn að fara heim til sín af sjúkrahúsinu aftur. Bregið í 7. IL * H.H.I. i gær. Maðurinn fyrir miðju á myndinni er Ezra Taft Benson. land- búnaðarráðherra Bandaríkjanna, og er hann að óska tveim nýjum stúdentum til hamingju, því að livort um sig hefur verið kjörið „vingjarnlegasti“ stúdentinn í sínum bekk. Er það siður í flestum menntaskólum Bandaríkjanna að efna til atkvæða- greiðslu, um slíkt, þegar komið er að prófum. Þess má geta til viðbótar, að stúlkan er dóttir Bensons, en svertinginn heitir Harry Johnson. •í gær var dregið í Happdi'ættú Háskóla íslands, 7. flokki, um 843 vinninga samtals að uþphæð 1.085.0ÍM).— krónur. Hæsti vinningurinn, 100.000 k '. kom upp á númer 31116, heiln-.: 'ix seldan á Akureyri, hæsthæsti vinningurinn, 50.000 kr., á núnwr 10658, hálfmiða selda hjá Helg.i Sivertsen í Vesturveri og Frí- manni Frimannssyni í Hafnar- húsinu. Aðrir hæstu vinningar féUu eigendum eftirtalinna miða í skaut: 10 þúsund. 7670, 9000, 15826, 18724, 32107, 32342. 5 þúsund. 257, 1955, 2358, 11133, 21541, 26436, 28458, 32530. (Birt án ábyrgðar). Da Silva sigraði örugglega í jþristökksein víginu. Æslíulýðsmóf 1 Dýrafirði. Fimm Islendingar hafa náð lágmarks- árangri til þátttöku í EM í sumar. Seinni hluti iR-mótsins fór fra.m á íþróttavellinum í gær við heldur óhagstæð skilyrði, en í sumum greinum náðist samt all- góður árangnr. Mesta athygli vakti að sjálf- sögðu þi’ístökkseinvígi þeirra da Silva og Vilhjálms, en í þeirri viðureign bar Brazilíumaðurinn ótvíræðan sigur af hólmi og virt- ist þar ekki ráða hending ein. Átti hann í heild jafnbetri stökk | heldur en Vilhjálmur og stökk lengst 15.62 metra. Vilhjálmur stökk 15.42 í fyrsta stökki sinu og náði þeirri stökklengd aldrei eftir það. Tugþrautina vann Pétur Rögn valdsson að heita mátti keppnis- laust og hlaut samanlagt 6116 stig. Árangur hans í einstökum greinum var þessi: 100 m. á 11.3 sek., langst. 6.68 m., kúluvarp 13.15 m. hástökk 1.70 m., 400 m. hl. 54.0 sek., 110 m. grindahlaup 15.2 sek., kringlukast 38.65 m„ stangarst. 3.20 m., spjótkast 51.83 og 1500 m. hl. 4:43.0 mín. Með þessu hefur Pétur náð því lágmarksafreki, sem krafist er til þátttöku í E-M-mótinu í sum- ar. Fjórir aðrir íslendingar hafa náð tilskildu lágmarki, en það eru þeir Hilmar, Huseby, Val- björn og Vilhjálmur. Sumir aðr- ir eru við það að ná markinu. 1 1500 m. hlapi sigraði Svavar Markússon KR á 3:53,5 mín. Kristl. Guðbjörnsson KR hljóp á 3:59.4 mín. 1 200 m. hlaupinu tognaði Hilmar illa í miðju hlaupi og hafði þá örugglega forystuna. Hætti hann þegar og var studd- ur út af vellinum. Þórir Þor- steinsson Á. sigraði á 23.2 sek. og 2. varð Úlfar Teitsson KR á 24.3 sek. í 40 m. grindahlaupi náðist á- gætur árangur og munaði ekki nema 3/10 úr sek. á metjöfnun. Guðjón Guðmundsson KR sigr- aði á 55.0 sek. Annar varð Daní- el Halldórsson ÍR á '55.5 sek. og þriðji Björgvin Hólm IR á 56.0. Jóel Sigursson ÍR bar enn einu sinni sigur úr býtum i spjót kasti með 57.52 m. löngu kasti. Gylfi S. Gunnarsson IR kastaði 57.19 m. og Valbjörn Þorvalds- son IR 51.97 m. I kringlukasti sigraði Friðrik Guðmundsson KR á 46.86 m. 2. varð Hallgr. Jónsson Á 45.64 og 3. Þorsteinn Löve IR 45.40 m. Valbjörn Þorláksson IR sigr- aði örugglega í stangarstökkinu 4.20 m. 2. varð Heiðar Georgsson lR 3.90 m. og 3. Valgarður Sig- urðsson lR 3,80 m. Kínverjar segjasf ætla að fara fram úr Bretuni í fram- leiðslu á reiðhjólum eftir tvö ár. ísafirði í gær. Æskulýðsmót var haldið að Núpi í Dýrafirði 6. og 7. júlL Jón ísfeld prófastur á Bíldu- dal annaðist forstöðu mótsins. Sóttu mótið sjö prestar og rúm- lega hundrað börn og ungling- ar. Kvenfélag Mýrahrepps ann- aðist myndarlegar veitingar. Séra Sigtryggur Guðlaugsson, sem nú er 96 ára gamall, ávarp - aði mótsgesti og hvatti til hóf- semi og bindindis. Jónas Tóm- asson var söngstjóri mótsins. Var mikið sungið og er mót þetta liður í æskulýðsmótum Þ j óðkirkj unnar. Ekið úi í skurð.. í fyrrakvöld eða nótt var bifreið ekið út í skurð við Rétt- arholtsveg og meiddist tvemnt sem í bílnum var. Stúlka, ók bílnum, en piltur var farþegi og annað ekki í bílnum. Hlutu bæði einhver meiðsli, en ekki alvarleg að því er talið er. * Froðleg grein um Island í merku, erlendu tímariti. „World Físhing" sendi fréttaritara hingað í vor. Tímaritið „World Fishing“, því að grein hans er rituð af sem gefið er út « Lundúnum, góðri þekkingu og vinsemd í helgar Islandi mikið rúm í júlí- íslands garð. Tímaritið tekur hefti sínu. j fram í ritstjórnargrein, að sem Fjallar aðaigrein timaritsins alþjóðlegt rit taki það ekki af- um landhelgismálið og afstöðu íslendinga. Heitir hún „Iceland: The Law of the Sea? NO, THE LAW OF SURVIVAL." Höfund- urinn heitir H. S. Noel, einn af föstum fréttamönnum Jtimarits- ins, sem sendi hann hingað til stöðu í málinu, dragi taurn hvorugs aðila, en hvetur hins vegar til þess, að reynt verði að semja um málið í bróðerni, því að ella kunni illa að fara. Næstum tuttugu myndir fylgja greininni, en tímaritið lands til vikudvalar í vor til að er til sölu í Bókaverzlun Snæ- afla efnis í grein 'um ísland í bjarnar Jónssonar, sem gerði sambandi við boðaða stækkun landhelginnar. Hefur hann ber- sýnilega átt tal við marga menn ráðstafanir til að fá það hingað flugleiðis, af því að skipaferðir hafa lagzt niður.

x

Vísir

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Vísir
https://timarit.is/publication/54

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.