Vísir - 18.07.1958, Page 5
Föstudaginn 18. júlí 1958
V í S I R
Rússar...
Frh. af 1. s.
stjórn hans um aðstoð, þar sem
samskonar byltingartilraun og
gerð var í Irak væri yfirvof-
andi, undirbúin og skipulögð af
Arabiska sambandslýðveldinu,
og hefði brezka stjórnin komist
að raun um, að þetta hefði við
rök að styðjast, og ákveðið að
verða við beiðninni, gegn lof-
orði Jordaníu um, að her Jord-
aníu yrði ekki sendur til árása
á Irak. Var fallist á þetta skil-
yrði Breta. Macmillan kvað
ákvörðunina siðferðilega og
lagalega réttmæta. — Kvaðst
hann þess fullviss, að þjóðin
aðhyltist hana.
Gagnrýni
Hugh Gaitskells.
Hugh Gaitskell leiðtogi
stjórnarandstöðunnar kvað
flokkinn og þjóðina alla hafa
áhyggjur af afleiðingum þeim,
sem ákvörðin kynni að hafa
fyrir Breta og friðinn í heim-
inum. Hann vék að yfirlýsing-
um sovétstjórnarinnar, til-
kynningum um heræfingar
Hússa við landamæri Irans og
Tyrklands, flutning á flugvél-
um og skriðdrekum þangað o.
s. frv.
Hvers vegna — ?
Svarræða Macmillans var
stutt. Hvers vegna, spurði
hann, greiddi stjórnarandstað-
an ekki atkvæði gegn Banda-
ríkjunum fyrir liðflutningana
til Libanon, og rauf þannig
ekki þjóðareiningu út af þeim,
en gerði það nú með því að
greiða atkvæði gegn Bretlandi.
Viðræðurnar
í Washington.
Viðræður Eisenhowers og
Selwyns Lloyds stóðu 1 klst.,
en viðræður S. L. og Dullesar
í 7 klst. og verður haldið áfram
í dag. Einnig er um sameiginr
legt viðhorf og aðgerðir. —
Tilkynnt hefur verið, að
Bandaríkin áformi ekki lið-
flutninga til Jordaníu.
Skjótar, gagnkvæmar
viðui'kénningar.
Lýðveldisstjórnin, sem bylt-
ingarmenn í Irak hafa sett á
laggirnar, kveðst ekki vera
kommúnistísk, en skjótar,
gagnkvæmar viðurkenningar
þykja benda til þess a. m. k.,
að frá kommúnistum vænti hún
helzt stuðning. Kemmúnistarík-
in flýttu sér að viðurkenna
hana.
Og nú he.fur lýðveldis-
stjórnin endurreist stjórn-
málalegt samhand milli Iraks
og Sovétríkjanna sem
slitið var fyrir þremur
árum og einnig viðurkennt
alþýðustjórnina kínversku.
Mótmælafundir.
í Moskvu og mörgum öðrum
borgum Sovétríkjanna hefur
vérið efnt til mótmælafunda
út af liðssendingum Bandaríkja-
manna til Libanon og Breta
til Jordaniu. Fjöldi mótmæla-
funda var haldinn í Peking.
Brezk blöð
í morgun
ræða enn mest um Jordaníu
ög telja flest ákvörðun ríkis-
stjórnarinnar réttmseta og óhjá-
kvæmilegt að verða við
henni. Daily Herald harmar
ákvörðunina, og telui’, að allar
ráðstafanir til öryggis eigi að
vera á vegum Sameinuðu þjóð-
anna. Til marks um afstöðu
óháðra blaða og íhaldsblaða er,
að það hafi verið óhjákvæmi-
legt að veita umbeðna aðstoð,
önnur Arabaríki myndu hafa
dregið af því sinar ályktanir,
hefði beiðninni verið hafnað, en
Daily Mail segir, að bið hefði
orsakað, að glatast hefði það,
sem leitast væri við að varð-
veita.
'fc Skógareldar geisuðu nærri
París um s.l. helgi og eyddu
30 hekturum skóglendis.
Ný, ódýr reiknivél fyrir
minni fyrirtæki.
Hún getur bæðí reiknað og
99 geymt” tölur.
Matronicverksmiðjurnar í
New Yorkborg sendu nýlega á
markaðinn nýja gerð rafeinda-
reikningsvéla, sem munu gera
minni háttar verzlunum auð-
veldara með að mæta kröfum
nútímans um hraða og ná-
kvæmni í daglegum viðskipt-
um.
Þessi nýja reikningsvél hefur
hlotið nafnið „Mastermind
1500“ (,,Meistaraheilinnl500“)
og kostar hún allt frá 8.000 til
15.000 dollara. Það er um 1/10
af verði þeirra véla, sem fáan-
legar hafa verið áður. Velin er
litlu stæri’i en venjuleg ritvél,
og segja framleiðendur, að hún
sé einfaldai’i í notkun en rit-
vélar. Þá geta menn fengið
leigða slíka vél gegn 400—500
dollara leigu á mánuði.
„Mastermind 1500“ getur hald
ið skrá yfir vörubirgðir verzl-
unai'fyrirtækis, sölu þess og
umboðslaun, fjárhagsáætlanir,
áætlanir um nýtingu starfs-
krafta og tækja, og loks heldur
hún skýrslur yfir innstæður og
útlán og bankareikninga.
Robert Meisel, forstjóri
Matronicsverksmiðjanna, skýr-
ir svo frá, að hingað til hafi raf-
eindareikningsvélar verið svo
flóknar og dýrar, að þær hafi
ekki borgað sig nema í allra
stærstu fyi'irtækjum og opin-
bei’um skrifstofum.
„Mastermind 1500“ getur safn
að saman og geymt tölur og
reiknað út á nokkrum sekúnd-
um sölu, birgðir og vörukaup
á hverri einstakri vörutegund
af samtals 500. Aðaluppistaðan
í vélinni er nokkurskonar
„talnageymsla“ (sem heldur
saman upplýsingum og geym-
ir þær og gei'ir útreikningana)
og lyklaborð. ,,Geymslan“ er
í málmhylki, sem er skrúfað
fast á vélritunarborð. Lykla-
boi’ðið, sem líkist einna helst
reikningsvél að stærð og út-
liti, er fellt inn í boi’ðið. Lykla-
borðið eitt nægir við notkun
vélarinnar, hvorki bönd, götuð
spjöld né önnur hjálpargögn
eru nauðsynleg. Borðið og sá,
sem við það vinnur, rúmast
á ekki stæri’i gólffleti en 1,67
fermetrum.
Með því að þrýsta á lyklana
má stimpla tölur inn í vélina
til útreikninga og til geymslu
og taka þær úr henni aftur.
Samskonar lyklaborði má koma
fyrir, hvar sem er í fyrirtækinu,
jafnvel í öðrum borgum, og eru
lyklaboi'ðin þá tengd með síma
þráðum. Ekki er hægt að nota
Veiðin 1200
selir á skip.
Frá fréttaritara Vísis —
Osló í fyrradag.
Fregnir frá Álasundi herma,
að fyrstu selveiðiskipin hafi ver
ið að koma heim af Grænlands-
miðunum að undanförnu, en
þeim átti að vera lokið 15. þ. m.
Meðal þeirra, sem komu á
dögunum, var Polaris, sem hafði
veitt 1200 seli og Brandal með
1250, en auk þess hafði hvort
skipið um sig 60 lestir af spiki.
Á þessari vertíð var í fyrsta
skipti ákveðið, að afli mætti
ekki fara neitt að ráði fram
úr 1200 á skip og eru allar lík-
til, að flest skipin hafi veitt eins
marga seli og leyft var.
nema eitt lyklaborð í einu. Ef
eitt þeirra er í notkun, fara hín
sjálfki'afa úr sambandi. Af
þessu sézt, að ekki er nauðsyn-
legt að sitja við vélina til þess
að geta notað hana, heldur geta
forstjórar, sölustjórar, fram-
leiðslustjórar og aðrir starfs-
rnenn fengið nauðsynlegar upp-
lýsingar frá vélinni um sölu og
birgðir á hvei’jum tíma, aðeins
með því að ýta á takka á skr:í-
boi'ðum sínum.
„Mastei'mind 1500“ er hægt
að taka í notkun, jafnskjótt og
henni hefur verið komið fyxir
í borðinu, og ekki er nau-í-
synlegt að hafa sérstakar raf-
leiðslur né annan útbúnað i
húsakynnunum. Framleiðend-
urnir stilla sjálfir hverja ein-
staka vél fyrir þau störf, sem
henni eru ætluð, og þar af
leiðandi gerist þess ekki þc-rf
að ráða sérfræðinga til þess
að vinna við vélina — það get-
ur hvaða símastúlka og hvaða
skrifstofumaður sem er.
Maður ferst und-
an síldarfargi.
í gærmorgnn varð voveiflegt
slys í Neskaupstað. Veggur bra.st
í einni síldarþró verksmiðjumwr
með þeini af(/iðingiun, að maður
sem var að vinna í næstu þió,
varð imdir og beið bana.
Um níuleytið fyrir hádegi í gær
voru nokki’ir menn að vinna að
smíði þróar, þeirra á meðal ung-
ur vélvirki, Þoi’steinn Jónsson.
Næsta þró var komin í notkvn
og æði mikið magn síldar í henni,
sem veggurinn lét undan. Flest-
ir mennirnii' gátu forðað sér og
sluppu ómeiddir, einn slengdíst
þó á vegg og marðist talsvert,
og eins og áður segir, varð einn
undir þunganum og fórst, en
það var Þorsteinn Jónsson. Lik
hans náðist ekki upp fyrr en um
kvöldið.
Þorsteinn Jónsson var aðeins
23 ára að aldri. Hann lætur eftir
sig konu og tvö börn.
3. LANDSMÓT
Landssamband hestamanna verður háð
við Skógarhola, Þingvallasveit dagana 19. og 20. júlí 1958
ÐAGSKRÁ:
LAUGARDAGUR:
1. Kl. 10,00 Mótið sett: Steinþór Gestsson, Hæli, for-
maður L. H.
2. Kl. 10,15 Sýning stóðhesta. Hestar sýndir í skrán-
ingarröð.
3. Kl. 13,00 Sýndar stóðhryssur. Dómum lýst og
verðlaun afhent.
4. Kl. 17,00 Gæðingar í dómhring. Hestar sýndir,
dómum lýst og verðlaun afhent.
5. Kl. 20.00 Kappreiðar, undanrásir. Skeið, 300 m.
hlaup og 400 metra hlaup.
6. Kl. 22,00 Dansað í Þingvallai'étt. (Ókeypis fyi'ir
sýningargesti).
JFerðtr ird
Ætiireiðasiöð Mttlaads
SUNNUDAGUR:
1. Kl. 9,30 Hópferð inn á sýningarsvæðið. Hesta-
mannafélögin með fána í fararbroddi.
Kl. 10 Bæn, sr. Gunnar Jóhannesson.
Ræða: Forsætis- og landbúnaðarráð-
herra. Að því loknu heldur hópferð
áfram um sýningarsvæðið.
Kynbótahryssur sýndar og beim lýst,
eftir því sem tími vinnst til.
Kynbótahryssur sýndar og þeim lýst,
eftir því sem tími vinnst til.
Ræða: Gunnar Bjai’nason, form. dóm-
nefndar. Stóðhestar sýndir, dómum lýst
og vei’ðlaun afhent,
Gæðingasýning. Hestum lýst og dómum.
Úrslit í kappreiðum.
Að því loknu dregið í happdrætti og vinningar af-
hentir. Dansað ef veður og aðrar aðstæður leyfa. —
Lúðrasveitin Svanur leikui’. Stjórnandi Gísli Ferdin-
antsson,
FRAMKVÆMDANEFNDIN.
—- ---------
2. Kl. 10,15
3. Kl. 11,15
4. Kl. 11,15
4. Kl. 13,30
5. Kl. 17,30
6. Kl. 18,00