Alþýðublaðið - 04.12.1957, Side 9

Alþýðublaðið - 04.12.1957, Side 9
Miðvikudagur 4. des. 1957 AlþýðublaSið 9 Nýjar vöryr rrseð fiverri skipsferð amcrisk, tékknesk þýzk, íslenzk. Epli, appelsínur. perur, grape-fruií sítrónur, döðlur, fíkjur. C ÍÞrótfSr ) EINS OG á undanförnum árum hóf glímufélagið Ármann vetrarstarfsemi sína í byrjun október, en vegna Xnflúenzufar aldurins dró úr aðsókn æfinga um tíma, en nú eru æfingar hafnar af fullum krafti aftur. í vetur hefur félagið 10 í- þróttagreinar á stefnuskrá sinni, hefur það tekið upp kennslu í japanskri glímu, sem þýzkur íþróttamaður kennir og er aðsókn að þeim æfingum svo mikil að ekki komast nærr; allir að sem vilja. 5 nýjir íþróttakenn arar starfa hjá félaginu í vetur. 7 FIMLEIKAFLOKKAR. Fimleikar eru kenndir í 7 fl. kvenna og karla og ungiinga. Kennir frú Guðrún Nielsén sem fyrr úrvalsflokki kvenna, 2 telpnaflokkum kennir Kristín Helgadóttir og 2 fl. kvenna Jón- ína Tryggvadóttir, eru þær báð- ar útskrifaðar frá íþróttakenn- araskóla íslands, eru þekktar frá starfi sínu í félaginu, því báðar hafa þær um mörg ár verið í hinurn þekkta úrvalsfl. félagsins og sýnt í honum bæði heima og erlendis. Karlaflokk- unum kennir Vigfús Guðbrands son eins og síðastliðinn vetur og æfa þeir áhaldaleikfimi, en öldungum kennir Hannes Ingi- bergsson. Kennari í frjálsum íþróttum er Eiríkur Haraldsson og verða æfingar bæði úti og inni í vet- ur. Frjálsíþróttamenn Ármanns hafa verið sigursælir mjög á s.l. sumri og hafa þeir keppt bæði hérlendis og erlendis við hinn bezta orðstfr. Guðmundur Ágústsson kenn- ir glímu eins og undanfarna vet ur, er Guðmundur þekktur fyr- ir sína glímusnilld, hefur orðið ágætur árangur af starfi hans hjá félaginu. I handknattleik er kennt í öllum flokkum bæði kvenna og karla og hefur félagið fengið Hallgrím Sveinsson til þess að 't'iálfa kvennaflokkana og ung- lingaliðin, hafa þessir flokkar staðio sig með prýði. Hallgrím- ur dvaldi á námskeiði Danska handknaítleikssambandsins á s. 1. sumri á vegum félagsins. Jens Kristleifsson hefur tekið að sér að þjálfa drengi yngri en 12 ára. Japanska glímu lcennir þýzk- ur kunnur íþróttamaður í þeirri Ágústa Þorsteinsdóttir, liin vinsæla sundkona Ármanns. grein, Friedhele Geyer að nafni. Áhugi fyrir þessari íþrótt er mjög mikill og mun deildin hafa í huga að reyna að hafa sýn- ingar á þessu starfsári. KÖRFUKNATTLEIKUR VINSÆLL. Asgeir Guðmundsson hefur nú aftur tekið við þjálfun körfu knattleiksmanna félagsins að mr m i HANDKNATTLEIKSMÓTIÐ hélt áfram um helgina, en háð- ir voru þrír leikir í meistara- flokki karla. ÍR tapaði bæði fyr ir Ármanni og Val, en í leikn- um gegn Armanni voru ÍR-ing- arnir einum færri allan leikinn vegna forfalla. KR-INGAR ORÐNIR REYKJAVÍKUSMEISTARAR Þó að KR-ingar eigi eftir að leika gegn ÍR, eru þeir þegar orðnir Reykjavíkurmeistarar, hvernig sem sá leiku rfer, því að öll liðin hafa tapað tvisvar eða oftar, en KR hefur engum leik tapað. Ármann vann Í.R með 15:9 á laugardagskvöldið og Valur sigraði ÍR með 11:9 eftir geysi- harðan og skemmtilegaii leik. Dómari í þeim leik var rnjög mistækur og hafði vægast sagt engin tök á leiknum. Frimann Gunnlaugsson, sem var skráður dómari leiksins, en hann er mjög öruggur dómari, kaus heldur að vera meðal áhorf- enda. Hvernig stendur á því, að ekki er farið eftir því, sem stendur í leikskrá, þegar um þýðingarmikinn leik er að ræða? Þessi dómaramái í hand knattieiknum eru orðm hálf- gert vandaræðamál og er þá átt við mistúlkun dómaranna á leikreglunum, þegar einn ágæt- ur dómari ful.lyrðir ákveðið að dæma eigi vítakast, þá vill ann- ar í mesta lagi dæma fríkast og sáu þó báðir brotið greinilega. Þrið j i meistaraf lokksleikur- inn var milli KR og Víkings og vann KR yfirburðasigur, 15:5. Leikur KR-inga var frábær, en þó vakti skothæfni og góðar sendingar Karls Jóhannssonar í þessum leik alveg sérstaka at- hygli, hann skoraði hvorki meira né minna en 9 mörk í leiknum. Reynir gerði einnig margt fallegt. AÐRIR LEIKIR 2. flokkur kvénna: Fram — Ármann (a) 2:11, KR — Þróttur 5:3. Fram — Ármann (b) 4:3. Meistarafl. kvcnna: Þróttur — KR 5:8. 2. flokkur karla: KR — Ármann 10:8. I. flokkur karla: Ármann — SBR 8:4. lokinni námsdvöl sinni í Dan- mörku og Englandi. Er þe?si í- þrótt mjög vinsæl hjá félaginu enda flokkar þess undir stjórn Ásgeirs viðurkenndir fyrir góð an leik. Víkivakar og þjóðdansar eru kenndir börnum í tveim flokk um og er kennari þar Jónína Tryggvadóttir. Undanfarin ár hefur þessi flokkur verið mjög fjölmennur. Auk víkivaka og þjóðdansa mun Jónína kenna börnum bæði leiki og aðra dansa. SKÍÐAÍÞRÓTTIN IÐKUÐ AF KAPFI. 1 Ymsir beztu skíðamenn fé- lagsins munu annast kennslu í skíðaiþrctt og er aðseíur þeirrá í hinum ágæta skála félagsins í Jósefsdal — eitt bezta skíðaiand í nágrenni Reykjavíkur er í Jósepsdal og Bláfjöllum. Hafa Ármenningar lagt akfæran veg í Jósefsdal með ágætri aðstoð vegamálastjóra og nú nýverið lýst upp æfingasvæði sitt þar með aðstoð Rarfmagnsveitu Reykjavíkur. SUNDDEILDIR. Sundmenn og konur félags- ins æfa af miklu kappi, er deild inni skipt 1 tvennt og er æft bæði sund og sundknattleikur. Þjálfari sundflokksins er nú Ernst Backmann. Eins og kunn- ugt er eiga Ármenningar marga beztu sundmenn og konur þessa lands, sem getið hafa sér hins bezta orðs bæði utan lands og innan. Skrifstofa félagsins í íþrótta- húsinu við Lindargötu, sími 13356, er opin mánudaga, mið- vikudaga og föstudaga frá kl. 8—10 síðdegis. Þar geta menn fengið allar nánari upplýsingar um starfsemi félagsins og enn- j fremur hjá kennurum í hinum 1 ýmsu greinum. j Aðalfundur félagsins verður : haldinn í félagsheimili V.R. í Vonarstræti 4, miðvikudaginn 4. desember kl. 8,30. rMannamár effir Þórarinn G. Víking komið út hjá NorSra. LEIGUBÍLAR Bifreiðastöðin Bæjarleiðii Sími 33-500 —o— Síminn er 2-24-40 Borgarbílastöðin Bifröst við Vitatorg Sími 1-15-08 Bifreiðastöð Steindórs Sími 1-15-80 ■—o— Bifreiðastöð Reykjavíkui ! Sími 1-17-20 SENDIBÍLAR Nýja sendibílastöðin Sími 2-40-90 Sendibílastöðin Þröstur Sími 2-21-75 1 I KOMIN ER UT hjá Norðra , ný bók eftir Þórarinn Grímsson , Víking. Nefnist hún Mannamál, j 171 blaðsíða að stærð prentuð \ í Eddu. j Hér er um að ræða gamlar 1 sagnir, sem höfundur færir í letur af smekkvísi. Hann segir um sagnir þessar í formála: I ,,Að sjálfsögðu getur ekki skrásetjari gamalla sagna á- byrgzt sannleiksgildi þeirra. En: þótt margt kunni að bykja ó- trúlegt, sem sagt er frá bæði í íslendingasögum og þjóðsögum okkar, þá hefur áreiðaniega margt geymzt óbrjálað furðu-; lengi. Og einhver flugufótur mun vera fyrir flestu að minnsta kosti. Með hverri kýn- slóð, sem hverfur, glatast mik- ið af fróðleik vegna tórnlætis þeirra, sem eftir lifa. Ætti að færa í letur, meðan tími er til, sem flest af reynslu gamla fólks ins, því „oft er _það gott, sem gamlir kveða“. Ég hef hlustað á mál manna. Og nú hef ég tínt saman í þessa bók sumt af því, sem festst hefur í minni mínu auk frásagna af eigin reynslu". Eiginmaður minn og faðir, SVEINN JÓNSSON, andaðist í Hjúkrunarheimilinu Sólvangi 3. þessa mánaðar. Jóna Jónsdóttir, Jóhann Sveinsson. Þökkum hjartanlega sýnda samúð við andlát og jarðarför ástkærs eiginmanns, fósturföður, tengdaföður og afa, SIGURÐAR GUÐMUNDSSONAR, Njarðargötu 61. Hólmfríður Björnsdóttir. Þorsteinn B. Jónsson. Jón Guðmundsson, Margrét Magnúsdóttir. Halldóra Víglundsdóttir og barnabörn.

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.