Alþýðublaðið - 15.04.1958, Page 3

Alþýðublaðið - 15.04.1958, Page 3
Þriðjudagur 15. apríl 1958. Alþýðublaðið 3 Alþýímblaðiö Útgefandi: Ritstjóri: Fréttastjóri: Auglýsíngastjóri: Ritstjórnarsímar: . Auglýsingasími: Afgreiðslusími: Aðsetur: Alþýðuflokkurinn. Helgi Sæmundsson. Sigvaldi Hjálmarsson, Emilía Samúelsdóttir. 14901 og 14902. 1 4 9 0 6 1 4 9 0 0 Alþýðuhúsið Prentsmiðja Alþýðublaðsins. Hverfisgötu 8—10. f eru sur: MORGUNBLAÐIÐ hefur undanfarið beðið þess dag hvern, að núveraiudi ríkisstjórn hrökklaðist friá völdum. Hefur það ekki sízt komið þeim tilmælum á framfæri við Alþýðubandalagið. Einn daginn á kommúnistum að vera ó- stætt á stjórnarsamvinnu við Alþýðuflokkinn og Fram- sóknarflokkinn vegna efnahagsm'álanna. Næsta dag eru svo utanríkismalin komin á dagskr'á, og þá eru frýjunarorðin sannarlega ekki spöruð. Morgunblaðið rifjar upp. að ame- ríska varnarliðið sé enn hér á landi og segir, að slíkt og þvílíkt geti Alþýðubandalagið ekki látið bjóða sér. Svona er söngurinn dag eftir dag. Og tilgangurinn leynir sér ekki. Morgunblaðið lifir í þeirri trú, að kannski vilji kommúnist- ar taka höndum saman við Sjálfstæðisflokkinn. Og þá ætti víst ekki að verða langt að bíða þess, að efnahagsmjálin leystust og aniierjska varnarliðið hyrfi af landi brott. Raun- ar hefur Sjálfstæðisflokkurinn haft nokkur afskipti af þess- um máium, en því gleymir Morgunhlaðið, þegar það gengur með grasið í skónum á eftir Alþýðubandalaginu. Fyrir því vakir sem sé að reyna að spilla núverandi stjórnarsam- vinnu í þeirri von, að Sjálfstæðisflokknum vaxi fiskur um hrygg við stjórnleysi og upplausn. Óneitanlega er fróðlegt að ,bera bessar bón-orðsferðir Morguiiblaðsins á fund Alþýðubandalagsins saman við málflutning íhaldsíns erlendis. Þar er reynt að halda þvú fram, að Alþýðufloldvurinn og Framsóknarflokkurinn megi sán lítils eða einskis í stjórnarsamvinnunni, en kommúnistar séu alls ráðandi. Með beim hætti er reynt að,spilla áliíi íslendinga á Vesturlöndum. Kæmust frétta skeyti ihaSdsins hins vega,- gegnum járntjaldið, ,myndi annað hijóð verða í strokknum. Þá myndu .Alþýðuflokk- urlnn og Framsóknarflokkurinn áreiðanlega .sitja yfir lilut Alþýðubandalagsins og tij þess verða mælzt við kommimistaherrana í Kreml að láta ekki lítillækka sam- herja sína úti á íslandi, Og svo er þriðja útgáfan. Hér heirna er Morgnnblaðið öðru hvoru að belgja sig út af vandlætsngu yfir því, að kommúnistar skulj vera þátt- takendur ií inúverandi ríkisstjórn. Þeim reiðilestri er skot- ið inn í bónorðsbréfin íil Alþýðubandalagsins. Sumir gera sér í hugarlund, að hetta stafi af bví, hvað ritstjórar Morgunblaðsins eru margir. Sú ályktun fær ekki stað- izt. Sjálistæðisfloklíurinn tíðkar aldrei nema eina skoðun í áróðri og málfiutningi. Hringsnúninguriim orsakast af því, hvað Bjarni Benediktsson þarf að hyggia að mörgu og misjöfiiu i þeirri von, að valdadraumar íhaldsins ræt- ist. Nú virðist Bjarni loksins uppg'efinn, þriátt fyrir ofur- kappið og þrautseigjuna. Morgunhlaðið seg'ir í Rsykjavík- urbréfi sínu á sunnudag, að vinstri stjórnin rnegi sitja að völdum eins lengi og' henni þóknist. Því betra fyrjr Sjálf- stæðisflokkinn, þar eð sigur hans verði þeim mun meiri sem núverandi níkisstiórn sitii lengur. Vafalaust verður mörgum á að brosa að þessum hreystiyrðum. Þau eru hróp- andi mótsögn við allt það, sem Morgunblaðið hefur haft fram að færa undanfarna m'ánuði. Og ástæðan er einfald- lega sú, að Bjarni B’enediktsson e,r orðinn leiður og þreyttur að bíða. Þá hefur hann sama ráð og refurinn, sern sagði um vínherin, að þau væru súr, eftir að vera útrkula vonar um að ná til þeirra og gæða sér é þeim. Bjarni þykist vera af- huga völdum og áhrifum eftir að hafa fengið hvert hrygg- brotið öðru verra. Hann sér fram á, að Sjálfstæðisflokkur- inn gierir sig að viðundri með bónorðum sínum og' barna- legum áróðri. Kannski hefur hann heyrt einhverja hlæja? 'Sjálfstæðisflokkurinn ætti að hætta fíflalátunum í stjórn arandstöðunni og reyna þess í stað að móta stefnu og taka afstöðu til vandamála nútíðar og framtíðar. Það er skylda stærsta stjórnmálaflokksins, hvort heldur hann er í stjórn- arandstöðu eða fer með völd. Og hætt er við því, að á- byrgðarieysið komj honum í koll, svo að Bjarni stoði lítið að hugga sig við ímyndað fylgi í næstu kosningum. EINN ÁGÆTASTI sonur'og varð blátt áfram ruglaður sem ísland hefur fóstrað, Ás- !grímur Jónsson, málari, er hniginn í valinn, og í dag verð- ur hann lagður í mold á æsku- stöðvum sínum í Árnessýslu. Með fráfalli hans hefur þjóðin misst eitt þelrra sólarbarna sinna, sem markað hafa djúp spor í söguna. Ásgrímur er fæddur í Rúts- staða-Suðurkoti í Flóa í Árnes sýslu árið 1876. Foreldrar hans voru Jón Guðnason bóndi og kona hans, Guðlaug Gísladótt- ir. Æska Ásgríms var eins og æska fátækra sveitapilta á þe;im tímum. Fjórtán ára gam- all fer hann að heiman og byrj ar að vinna fyrir sér á ýmsum stöðum í sveit og á sjó. Árið 1897 siglir hann til Danmerkur og gengur í teikniskóla þar í tvö ár, er síðan við nám í Lista háskólanum í Kaupmannahöfn í þrjú ár. Til Ítalíu heldur hann 1901 og dvelst þar um skeið, en hverfur að námi loknu heim til fósturjarðarinnar og tekur til óspilltra málanna, legg- ur land undir fót og ferðast um landið vítt og breitt, einkum þó sunnanlands, sækir fast á vit náttúrunnari, skoðar og málar, hggur við í tjöldum og vinnur myrkranna á milli, og fyrstu sýningu sína hér heima heldur hann ár.ið 1903. Framhaldið þekkja allir. Með ótrúlegri eljusemi, sjálfsaga, gáfum sínum og sálarfegurð varð Ásgrímur í lifanda lífi einn ástsælasti listamaður þjóð ar sinnar. Hann braut nýtt land í íslenzkri myndlist og er faðir h,innar nýrri íslenzku myndlistar, og það var mikið lán myndlist okkar, hversu heil steyptum og góðum hæfileik- um þessi fyrsti málari íslands var gæddur. Eins og allar stór- ar sálir ánetjaðist hann aldrei teoríum né fastskorðuðum kennisetningum, hann lærði að sjálfsögðu af útlendum meist- urum og lærði vel, en hans eig ið sjálf, heilt, sterkt og íslenzkt, er ríkjandi í öllum verkum hans. Og eins og' að líkum læt- ur, hreifst Ásgrímur með endur vakningu þjóðarinnar um alda mótin, nemur landið manna á- kafast og strax í fyrstu mynd- um hans gætir þeirrar vakning •ar sem var að lifna með þjóð- inni, og menn fara að sjá land- ið með augum hans, eins og hann sá það og festi á léreftið, bj óðsagnahetj ur, drauga, skart búnar huldukonur, heiðríkjuna á norðurslóðum, hvítbláa víð- áttu jöklanna, eldgos, frjómögn moldarinnar, allt er þetta í myndum Ásgríms. Landið verð ur hlýrra, betra, fegurra, og allir íslenzkir málarar, ungir og gamlir, standa í ómetanlegri bakkarskuld við þennan mikla brautryðjanda sem nú hefur runnið skeið sitt á enda. Eitt af því sem ég man ljós legast frá uppvaxtarárum mín um hér í Reykjavík eru Páska sýningar Ásgríms. Mann hlakk aði alltaf til páska vegna þess- ara sýninga, og svo sterkt heill uðu þessar myndir mann, að væri maður í vafa um gildi list arinnar, þá bókstaflega frelsað ist maður af öllum vafa í litla salnum í „Gúttó“ uppi, og eng inn talaði þá um þrengsli ‘eða ,,illa upphengdar“ myndir. Myndirnar böktu alla veggi frá gólfi til loftsr og þarna logaði sál Ásgríms í dýrlegum litum eins og þúsundblaða blóm, svo að maður fékk ofbirtu í augun allri þessari dýrð. Þannig málaði Ásgrímur. Ásgrímur var vel vaxinn, létt ur í spori, bar höfuðið hátt og frjálslega, brosmildur skemmtinn og ræðinn svo og •af þessa stóra barns, hlustandi hugfangið á sálufélaga sína, Mozart og Bach. En þegar kría og lóa hófu söng sinn, þá tók Ásgrímur trönur sínar, liti og pensla og héit út í vorið, óþreyt andi í leit sinni að viðfangsefn- bar í góðra vina hóp. Hann bjó yfir ágætri kímn.igáfu, og frá- sagnargleði hans var mikil og sérstæð. Hann kunni ósköpin öll af munnmæla- og þjóðsög- um og alls staðar rak hann menn á gat í þeim fræðum, og meðan maður ferðaðist með honum um þennan þjóðsagna- heim hans, þá hvarflaði aldrei að manni að efast um sannleiks gildi þessa alls, svo mikill sannfæringarkraftur fylgdi orð- um hans. Ásgrímur fylg'dist af lifandi áhuga með öllu sem var að ger ast í heimi myndlistarinnar, hér heima og erlendis, var spur ull mjög um söfn og einstakar myndir og útlendar sýníngar sem hann vissi að maður hafði séð, og bá iðaði hann allur af kæti þegar talið barst að þeim snillingum sem dýpst spor höfðu markað í þroskaferil hans, impression,istunum og hollenzku meisturunum, og ó- gleymanlegt var að heyra hann segja frá þeirri opinberun, er hann stóð í fyrsta sinn frammi fyrir myndum Van Goghs, Cé- sannes og Rembrandts. En listáhugi Ásgríms spann aði fleiri svið en myndlistina eina þótt hún væri honum kær- ust. Hann hafði yndi af bók- menntum og hljómlist. Mozart og Baeh voru heilög nöfn í munni hans, og ég geymi enn í minni svip hans þegar ég sat hjá honum og hann spilaði fyr ir mig á fóninn verk þessara tónskálda: uppljómað andlit hans, fastmótað, sterkt, næst- um forneskjulegt, íslenzka þjóð areðlið holdi klætt í andliti um, þrammandj yfir holt og hæðir og fjöll. Og Ásgrímur var ekki ein- asta stórbrotinn listamaður, hann var óvenjulegur dreng- skaparmaður, hafinn yfir allt dægurþras, hrekklaus, laus við refsmennsku og prakkaraskap, velgerðarmaður margra lista- manna, alltaf fús til að leið- beina og keypti oft verk ann- arra málara þegar þeir voru í fjárþröng og borgaði þá jafnan miklu meir en upp var sett. Hann var góður heim að sækja, reglusamur og hófsamur, en veitti raunsnarlega þegar það átti við. Hjarta hans var stærra, ríkra og göfulla en flestra samtíðarmanna hans, og það voru hamingjustundir hverjum manni að vera í návist hans. Nú er þetta stóra hjarta hætt að slá, og í dag sameinast jarð- neskar leifar Ásgríms moldinni á æskustöðvum hans í Árnes- sýslu, þar sem hann óx úr grasi undir lok síðustu aldar og reik aði um ungur sveinn við söng lóu og kríu og málaði sína fyrstu mynd með þvottabláma og krít, myndina af Heklu. Hönd hans stýrir ekki framar pensli og augu hans eru lukt, en sálarfegurð hans og ást á landi sínu og þjóð lifir í mynd- um hans um ókonmar aldir. í þeim skilningi lifirðu á- fram, Ásgrímur, eins og allir miklir listamenn, og með þeim orðum kveð ég þig, góði vinur, cg þakka þér ómetanleg kynni, vináttu og drengskap og það sem ég á þér upp að unna í myndlistinni. Jón Engilberts. ■ j.

x

Alþýðublaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.