Morgunblaðið - 03.11.1913, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
ii
Ný verzlun í Austurbænum
Eg leyfi mér hér með að tilkynna yður, að eg hefi opnað verzlun í
húsi mínu nr. 37 Við Laugaveg, með ýmsar vörur til mat-
ar. Eg get því miður ekki nú þegar boðið yður alt það, sem þér kunn-
ið að óska eftir í þessari verzlunargrein, en eg mun gera mér far um,
að taka óskir yðar til greina svo fljótt sem hægt er.
Það sem eg nú þegar hefi að bjóða er: Ostar, Pylsur, Egg,
Fiskabollur, Reykt síld, Anchovis, Sardínur, Sætmeti, Mjólk, Rjóma og
Ávexti í dósum, Pichles, Soya, Fiskisósa, Maccaroni, Býtingsduft, Eggja-
duft, Bökunarduft, Margarine o. fi.
Kartöflur, Laukur, Kjöt frá Sláturfólagi Suður-
lands.
Virðingarfylst
cflrni cJónsson.
Hirðsiðir á Frakklandi.
Poincaré Frakkaforseti skeytir
lítt um reglur þær og hirðsiði sem
þar tíðkast og hefir hvað eftir annað
brotið í bág við þá. — Fyrsta sporið
i þá áttina var það, þegar hann skip-
aði svo fyrir, að umferð á götunum
skyldi ekki stöðvuð þó hann æki um
þær, en í tíð fyrri forseta hafði það
verið svo. — Nokkru síðar varð
hann þess var, að hermaður átti að
sofa fyrir framan herbergisdyr hans.
Hermaðurinn var í einkennisbún-
ingi og vopnaður frá hvirfli til ilja,
því svq mæltu reglurnar fyrir. For-
setinn kvaðst þá ekki vilja vita til
þess, að vopnaður hermaður svæfi
fyrir framan dyr hans, og eftir nokk-
urt þras milli hans og þess sem á
að sjá um að hirðsiðunum sé fylgt,
hafði hann sitt mál fram.
Enn á ný hefir Poincaré fyrir
skömmu gert nýja árás á hirðsiðina
og er það mál enn þá óútkljáð. Svo
er mál með vexti, að forsetinn hélt
veizlu og kom þangað meðal annara
embættismannskona nokkur og var
klædd á annan hátt en siður er til.
Henni var ekki hleypt fyr inn í veizlu-
salinn, en kjólnum hennar hafði verið
breytt eins og þurfti. — Forsetinn
frétti þetta og þótti það ærið mikið
umstang og óþarft. Vildi hann, að
hver kona réði því sjálf, hvernig hún
kæmi búin í veizlur þær er hann
héldi. Þetta mætir mikilli mótspyrnu
og er óvist hver ber sigur úr být-
um.
AlþýöuféLbókasafn T«mplara». 8 kl. 7—
Augnltekning ókaypii i Lwkjarg. 2J,mvd. 2-8
Borgarstjóraskrifstofan Copin virka daga 1 )—8
ÐnjarfógetaskrifBtofan opin v. d. 10—2 og 1 -7
Bwjargj&ldkerinn Laufáev. 6 kl. 12—8 og 5—7
Eyrna-nef-bálslœkn. ók. Austurstr.22fstd. á--8
íslandsbanki opinn 10—2x/t og B1/*—7.
K.F.U.M. Lestrar- og skrifstofa 8 Ard.—10 »iðd.
Alm. fundir fid. og sd. 81/* sibd.
Landakotskirkja. öubsþj. 9 og 6 á helgum.
Landakotsspitali f. sjúkravitj. 11—1.
Landsbankinn.11-21/*, B1/*—0'/*. Bankastj. 12-2
Landsbókasafn 12—3 og 6—8. Útlán 1—8
Landsbúnaðarfélagsskrifstofan opin frá 12—2
Landsfóhirðir 10—2 og B—6.
Landsskjalasafnið hvern|virkan|dag kl. 12—2
Landssiminn opinn daglangt (8—0) virka daga
Rhelga daga 10—12 og 4—7.
Lækning .ókeypis Austurstr. 22 þd. og fsd. 12 —1
Náttúrugripasafnið opið l1/*—21/* á sunnnd.
Samábyrgð Islands 10—12 og 4—0.
Stjórnarráðsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl.
Talsimi Reykjavikur Pósth.3 opinn daglangt
(8—10) virka daga helga daga 10—9.
Tannlækning ókeypis Austurstr. 22 þrd. 2 8
Vkfilstaðahælið. Heimsókna.rtimi 12—1
Þjóðmenjasafnið opið sd, þd. fmd. 12- 2.
Morgunblaðið.
Kemur út á hverjum morgni,
venjulegt blað (4 bls.) á rúmhelgum
dögum, tvöfalt blað (8 bls.) á sunnu-
dögum.
Auglýsingum sé skilað fyrir kl. 2
deginum áður í ísafoldarprentsmiðju.
Kostar 65 aura um mánuðinn.
Tekið við áskriftum í ísafoldar-
prentsmiðju.
Einstök blöð kosta 3 aura.
Talsímar 500 og 48.
ir ..ir=^l
„Sjáðu JTlangi",
sagði strákurinn, sem mætti vini sinum, er gekk haltur af skóþrengslum,
»mér er ekkert ilt í löppunum, því eg er á stigvélum frá Lárusic.
Það er líka áreiðanlegt að hvergi fæst skófatnaður, sem fer eins veí
á fæti, og það sem betra er, hvergi eins haldgóður, og það sem bezt err
hvergi eins afar-ódýr, sem í
Skóverztun
Lárusar G. Lúðvígssonar,
Pingfjottsstræfi 2.
Arni Eiríksson
Austurstræti 6.
Bezta vefnaðarvöruverzlunin í borginni I
Prjónafót n Stúfasirts L. Ullarband
Peysur S s. Álnasirts =-s Bródergarn
Sokkar -J 03 "J Tvistdúkar rji CJ> = « Silkitvinni
Vetlingar g- =■ Léreft Tvinni
Bolir 3 œ_ Sængurdúkar co ífc > ^ Hnappar
Sjöl 0- 3 an —■ =;-g Kjóladúkar Bendlar
Sjalklútar Svuntudúkar a> l. Blúndur
Slæflur -cr 00 03 s. Flauel 3 CD Milliverk
Treflar ia Flúnel 05-ZI <X> Nálar
Hanskar 03 -| co Dömuklæði Cö © Fingurbjargir
Millipils 0. fl. !"‘® Kápuefni o.fl. „Reynslan er ólygnust“. Skæri 0. fl,
Regnkápur, Glanskápur,
allar stærðir, kr. y.25 til kr. 11.50. Olíuföt, Stakkar enskir.
Slitfötin þektu. Yfir höfuð öll hlífðarföt til útivinnu.
Nýkomin í Austurstræti 1.
Ásg. G. Gunnlaugsson & Go.
Beztir trúlotunarhringar
hjá
Magnúsi Erlendssyni, Þingholtsstræti 5. Simi 176.
*3mpQrial-
ritvélinni er óþarft að
gefa frekari meðmæli enþað,
að eitt til tvö hundrud
hérlendra kaupenda
nota hana dagleða með sí-
vaxandi ánægju. Allir þurfa
að eiga og nota Imperial-
ritvélina, sem að eins kostar
205 kr.
Einkasali fyrir ísland og Fær-
eyjar, Arent Claessen, Rvík.
Hárlækningastofa
mín er flutt á'Laufásveg 5 (uppi) og lætur i té eins og að undanförnu:
Höfuðböð með ýmsum hárlyfjum, sem eyða flösu og stöðva hárlos;
sömuleiðis Andlits gufuböð með massage, sem hreinsa, mýkja og slétta
hörundið. Óþægilegur hárvöxtur i andliti á dömum er tekinn burtu.
Manicure og Pedecure. Ennfremur set eg upp hár og vinn úr hári viÖ
islenzkan og útiendan búning. jjy Alt eftir nýjustu tízku.
Kristólína Kragh.
Talsími 23.