Morgunblaðið - 04.11.1913, Side 2

Morgunblaðið - 04.11.1913, Side 2
14 MORGUNBLAÐIÐ þEIR sem kynnu að vilja kaupa hluti í steinolíuhlutafélagi, er hafi heimili og varnarþing hér í Reykjavík og stofnað er með tilstyrk Hins danska steinolíuhlutafélags i Kaupmannahöfn og í samlögum við það, eru beðnir að snúa sér til undirritaðs fyrir lok þessa mánaðar. Hlutafé félagsins er 300 þús krónur, sem skiftist í 2 5oo^króna og 5000 króna hluti. Reykjavík, 3. nóvember 1913. Gggert Qlaassan, yfirréttarmálaflutningsmaður. Niðursuðuverksmiðj an Island hefir nú til sölu niðursoðið sauðakjöt, kæfu, svið í syltu, kotelettur, beinlausa fugla og íiskirand og innan skamms fiskabollur í 2, 1 og J/a pd. dósum. Alt selt með verksmiðjuverði. Ennfremur kjötfars fyrir 0,35 og fiskifars fyrir að- eins 0,25. Pjáturverkstæði verksmiðjunnar tekur að sér alt það er að pjátursiðn lýtur. — Styðjið innlendan iðnað og verzlið við verksmiðjuna. D AGBÓIJIN. Afmælisdagar 4. nóv. Jnngfr. Ingileif Zoega. Jón Sveineson trésmiður, 59 ára. Sira Hafsteinn Pétnrsson, Ehöfn, 55 ára. Haraldur Árnason varzl.stj., 27 ára. Skrifað er frá Hamborg, að fánalag Sigfúsar tónskálds Einarssonar við hið kraftmikla og snjalla kvæði Einars Ben- diktssonar sé nú að jafnaði leikið á horn á þýzkum hafskipum, er til Ameriku fara. Mega þetta tiðindi heita og mun sjaldgæft vera, að al-íslenzkt lag sé leikið að stað- aldri i útlöndum. Morgunblaðið var i gær komið til allra áskrifenda kl. 8 */, árd. Var þar birt saga gjaldkeramálsins frá byrjun og þótti mörgum fróðlegt að rifja upp fyrir sér það hið merkilega stórmál, sem valdið hefir þeim gauragangi, er allir þekkja; og þá eigi síður hitt, þegar fregnmiðar Morgunblaðsins færðu mönnum fregnina nm dóminn, þegar nokkrum min- útum eftir að hann var kveðinn npp. Eins og getið er um hér á öðrum stað i blaðinu, var dómurinn kveðinn upp kl. 10,36 árd., en kl. 10,48 þutu vorir fóthvötu sendisveinar — alls 12 — um allar götur bæjarins og dreifðu fregnmiðunum á báð- ar hliðar. Voru menn svo fiknir í þess- ar fljótu nýungar, að upplagið, sem var 800, tæplega entist til. Skúli fógeti kom i gær frá Heestemiinde við Weserfljót. Er hann búinn að vera rúman mánuð erlendis; seldi fyrst afía sinn á Bretlandi, eins og getið var um í gær, en hélt þaðan til Þýzkalands til viðgerðar. Hafa vélar 0g katlar verið endurskoðaðir, og breytingar gerðar á kyndingaraðferðinni, þannig, að skipið eyðir nú miklu minna af kolum. Eru allar vélar af nýtizkugerð og skipið því hið bezta. Skúli fógeti lætnr i haf til fiskjar eftir nokkra daga. Botnvörpungarinn Marz seldi afla sinn fyrir 9000 kr., er hann siðast var áBret- landi. »Flugvél«. Ymsir menn hér i bænum hugsuðu á sannudaginn að hér væri kom- inn flnggarpurinn Chevillard frá Parísar- horg, eða einhverir hans nótar, þvi að yfir Melunum mátti sjá fugl einn mikinn sem liktist flugvél. Margir fóru suður á Mel- ana til að byggja betur að, og voru þar þá tveir heldri borgarar bæjarins — að leika sér að flugdreka með flugvélasniði! Jóh. Jóhannesson, bóksali og kaupmaður, ráðgerir að láta prenta Þjóðsögurnar af nýju i vetur. Mun sú bók kærkominn gestur mörgum, þvi að nú er hún með öllu ófáanleg, en eftirspurnin mikil. Sú fregn barst hingað i gærkvöld, að Baron Stjernblad hefði strandað á Sauð- árkróki. Morgunblaðið hefir spurst fyrir um þetta og g6tur nú borið aftur þær fregnir. Skipið kom kl. 6 ’/, siðd. nn á Blönduós, og ekkert að því þá. Misprentast hefir i gær í frásögn vorri um Súlustrandið. Skipið hafði innanborðs 3 0 0 tunnur af kjöti, ekki 300, eins og þar stóð. Gleir kom með skipið á laug- a r d a g i n n. Vélin i Gamla Bfð. Svo bar við i fyrra- kvöld, að dráttarvélin i Giamla Bió komst i ólag meðan á sýningunni stóð. Varð að hætta sýningunni, til allrar hamingju þó eigi fyr en þegar fyrri myndin var nær á enda, svo heildaráhrifin misti fólk- ið eigi. Siðari myndinni »hr. Kakerlak á ferðalagi«, varð að sleppa alveg, sem fólkinu þótti miður, þvi að myndin er með afbrigðum skemtileg. En Petersen for- stjóri ætlar að sýna þá mynd, sem auk- reitis aukamynd, fjögur næstu kvöld. I gærkveldi var hægt að hafa sýningu, eins og venjulegt er. I kveld verður sýnd löng mynd og tvær aukamyndir. Frá útsölunni miklu i Edinborg, er hófst í gær, koma nú konurnar heim með fang- ið fult af allskonar varningi. Reikning- inn fá hinir gæfusömu eiginmenn um mán- aðamótin næstu! En vörnrnar eru góðar og konurnar gera góð kaop. Innlent steinoliufélag er nýstofnað hér i bænum. Eggert Claessen, Debell forstjóri og Jes Zimsen eru í stjórn þess. Má ganga að þvi visu, að undirtektir manna verði góðar við hlutfjárútboði þvi, sem i dag birtist i Morgunblaðinu. Dýralæknirinn, Magnús Einarsson, er nýkominn ofan úr Borgarnssi. Hefir ver- ið að stimpla kjöt. Kjötskrokkana, sem hann hefir stimplað, mun erfitt að koma tölu á. Bífreiðin nýja bilaði mjög i gær á leið frá Hafnarfirði til Eeykjavíkur, skrapp út af veginum og var mildi, að farþegar meiddust ekki. -----—sfrt-C-r ----- Dómsuppkvaðningin. Frábrugðið mun hafa vcrið um- horfs í yfirréttinum í gær, frá þvi, sem vant er að vera þar upp frá á mánudögum. Eins og kunnugt er, þá er yfir- rétturinn háður kl. 10 á hverjum mánudegi. Venjulega útlitið er það, að fyrir innan dómgrindurnar sitja dómendurnir þrír við grænt spor- öskjulagað borð, dómstjórinn fyrir miðju borði með dómsmálaritarann sér við vinstri hönd, en 1. dómara við hægri. Utan grinda sitja máls- færslumennirnir — og Sigurður, sem er nokkurs konar Cerberus á þessu kyrra og þögula heimili réttvísinnar, sem á aðsetur sitt í »Steininum«. I gær var nokkuð öðru visi um- horfs. Þegar áður en klukkan var orðin 10 voru menn farnir að koma framan grinda, og í þeim hóp ýms- ir, sem ekki eru sækjendur og ver- jendur fyrir hinum háa rétti, bæjar- menn, sem komnir voru í þeim erindum, að hlusta á dómsuppkvaðn- inguna. Nú komu hinir reglulegu dómarar, þá Jón prófessor og Magnús sýslu- maður, og settust innan grinda. Nú var þyrpingin utan grinda orðin svo mikil, að Einar prófessor Arnórsson ætlaði ekki að komast inn gegnum þröngina. Hann átti líka erindi inn fyrir grindurnar, að sitja sem setu- dómari í málinu, sem næst var á eftir gjaldkeramálinu á dagskránni, þ. e. málinu gegn Magnúsi Torfa- syni. Þá var orðið svo fult utan grínda, að fleiri komust ekki fyrir, og varð að opna glugga til loftbætis; gaus þá köld morgungolan á hnakka þeirra Odds og Sveins, svo þeir urðu að bretta upp kragann! Voru nú opnaðar dyrnar á bæjarþingstof- unni og fengu þar pláss þeir forvitnis- gestir, sem ekki komust inn utan grinda. Þá leið kom og hinn setti dóm- stjóri, Páll Einarsson borgarstjóri, kl. rúmlega 10, voru þá 7 dómarar inn- angrinda. Skömmu eftir byrjaði hann upplestur dómsins, í fyrstu með litis- háttar skjálfta í röddinni, en síðan með festu og mjög glögt og skil- merkilega. Meðan á upplestrinum stóð hvíldi grafkyrð yfir dómsalnum, og allir hlustuðu með athygli og mennirnir allir virtust verða að eyr- unum einum. Upplesturinn stóð yfir í 30 mínútur. Áður en honum var lokið, þóttust ýmsir renna grun í, hver úrslitin yrðu. Kom þánokkuit kvik á hópinn. Að afloknum upp- lestrinum tæmdist salurinn á svip- stundu. Menn þustu út í bæ að segja kunningjunum fréttirnar og blaðamennirnir að koma þeim á prent. 15 mínútum síðar var fréttin um úislitin komin út um bæ með fregn- miðunum frá Isajold og Morqunblað- inu. En hin venjulega kyrð og hátíð- lega ró breiddi sig aftur yfir hinn háa yfirdóm. Ár munu líða þangað til eins mikið verður þar um að vera og í gær. Fluqmaður. Pantið Morgunblaðið. Alþý?>ufél.bókasafn Templaras. 8 kl. 7— Aupnlœknincr ókeypis í Lækjarg. 2 mvd. í -8 Borgarstjóraskrifstofan opin virka daga 1 ) -8 Bæjarfógetaskrifstofan opin v. d. 10—2 og -7 Bæjargjaldkerinn Laufásv. 5 kl. 12—8 og í -7 Eyrna-nef- hálslækn. ók. Austurstr.22 fstd í -8 íslandsbanki opinn 10—21/* og 51/*—7. R.F.U.M. Lestrar-og skrifstofa 8árd.—10 OL Alm. fundir fid. og sd. 81/* síðd. Landakotskirkja. Qubsþj. 9 og 6 á helmm Landakotsspítali f. sjúkraviti. 11—1. Landsbankinn 11-21/*, 51/*—6'/*. Bankastj. 12-2! Landsbókasafn 12—8 og 5—8. Útlán 1—8 Landsbúnaðaríélagsskrifstofan opin frá 12-2 Landsf éhirbir 10—2 og 5—6. LandsskjalasRfnib hvern virkan dag kl. 12—2 Landssiminn opinn daglangt^(8—9) virka d&ga helga daga 10—12 og 4—7. Lækningfiókeypis’Austurstr.22 þd.ogfsd. 12—1 Náttúrugripasafnið opib l1/*—21/* á puimid, SamábyrgbSIslands 10—12 og 4—6. Stjórnarrábsskrifstofurnar opnar 10—4 dagl. Talsími Reykjavíkur Pósth.8 opinn daglangt (8—10) virka daga helga daga 10—9. Tannlækning ókeypisJAusturstr. 22 þrd. 2—8 Vifilstaðahælib. Heimsókt artimi 12—1 Þjóðmenjasafnið opið sd, þd. fmd. 12- 2. Lesið Morgunblaðið. í^YIF^MYMDAIíEIKHÚjSIN Nýja Bíó. Mynd clskhugans heitir mynd, sem sýnd verður í Nýja Bíó í kvöld, ítölsk með litum, sér- staklega falleg landlagsmynd og sýnir auk þess mjög vel auðmanns heimili. Sjá ella myndaskrána. Þá er þar sýnd aukamynd, sem heitir Ror^undarhðlmsúrið. AðaJhlut- verkið leikur hinn nafnkunni danski gamanleikari Carl Alstrup. Hann leikur ástmann frúar einnar og verð- ur að fela sig í Borgundarhólmsúrir er mann hennar ber að óvænt og húka þar alla nóttina. Og um morg- uninn, er hann losnar, er hann orð- inn vitskertur og heldur að hann sé sjálfur Borgundarhólmsúr. Skemtilegasti gamanleikur i seinni tíð. ------------------- Auglýsið í Morgunblaðinu. Háskaprjónar kveníðlksins. Áhorfendur I kvikroyndahúsunum kvarta sáran yfir höttum og hattprjénum kven- fúlksins, sem sýningarnar sækja. Skyggja hattarnir á myndirnar fyrir þá áhorfend- nr, sem fyrir aftan sita; en bein hætta stafar af prjónunum, sem sverðbeittir standa fram úr höttunum á báðar hliðar. Er hættan eigi minni vegna myrkursins, sem ríkir meðan á sýningum stendnr, og guðsmildi að aldrei skuli ilt af hljótast. Þrengsli eru oft mikil við útganginn — óþægileg þrengsli þó — og þá má mað- ur vara sig á kvenfólkinu ! Erlendis er kvenfólki nú með öllu hann- að að nota hattprjóna án oddhlífa, i leik- húsum, strætisvögnum og öllnm opinher- um stöðum. Ef ekki sú regla hrátt kemst á hér, að kvenfólki sé bannað að nota hlifarlausa hattprjóna I leikhúsum, verður endirinn sá, að ungmeyjar þær í bænum, er erlendan búning bera, sita til sýnis i húsunum — með 4 auð sæti til beggja handa. Þá verður aðgöngumiðinn fyrir hattinn nokkuð dýr! Kaupið Morgnnblaðið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.