Morgunblaðið - 05.11.1913, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 05.11.1913, Blaðsíða 2
i8 Upplitsmillnr, Beltisbönd o fl. ódýrast hjá Jóni Sigmundssyni gullsmið. Laugaveg 8. Kristján I»orgrímsson hefir miklar birgðir af Ofnum, Eldavél- um, rörum, hreinsirömmum o. fl., frá elstu verksmiðju i Danmörku (Anker Heegaard). Það er ekkert skrum, að þeBsar vörur taka langt fram öllum eldfærum, sem flytjast hingað til bæjarins. Franski háskólakennarinn nýi, hr. A. Barraud, hélt fyrsta fyrirlestur sinn i Há- skólanum i gær. Hann talar á mánu- d ö g u m kl. 6—7 e. h. um »Yictor Hugo, poéte lyrique«, en á miðvikudögum kl. 6—7 e. h. um »le Roman Psycbologique au XIX. siécle. Hr. Barraud er mjög vel máli farinn, og er liklegt að þeir hæjar- búar, sem frönsku kunna, noti tækifærið og hlýði á þessa fyrirlestra, sem frjáls aðgangur er að. Fjárhagsáætlun Reykjavíkur. Fjárlaga- frumv. Rvíkurbæjar kemur fyrir bæjar- stjórn á morgun. Tekjur hæjarins eru ásetlaðar kr. 372.794.53 au., og er það hér um bil 27 þús. kr. meira en í fyrra. Sá tekjuauki fæst með þvi að hækka nið- urjöfnun um þessa fjárhæð. — Hækkun á gjöldum er aðallega á fátækraframfærslu- lið og þnrfamanna annara sveita og harna- skólaliðnum. Smekkleg sýning: Th. Thorsteinsson hefir látið gera sýningn mikla i gluggum fatabúðar sinnar í Austurstræti. Stendur jafnan hópur karla og kvenna fyrir fram- an gluggann og lofa mjög hve smekklega öllu er niðurraðað Eru slíkar sýningar hænum til mikillar prýði, og mundi vel farið, ef slíkt væri oftar gert hér í bæ. Sýninguna hefir annast Haraldur for- stjóri Árnason, sem, eins og kunnugt er, lengi starfaði erlendis við verzlanir stór- borganna. Með Botníu fóru, auk þeirra sem áður er getið um, frú Ellen Hallgrimsson, er- lendar jungfrúr 2, Maria Kos og Marg- rethe Glaser, jungfrú Sigurveig Sveins- dóttir (Hotel Island), Englendingur einn, Mr. Aitken, Kathenhöj danskur kaupm,, og til Yestmanneyja Axel Bjarnason o. fl. Botnía fór frá Vestmanneyjum i gær- kvöldi kl. 6'/2. Yeður vont í Eyjnm og gat hún eigi lokið alveg að taka vörurn- ar, sem taka átti. Baron Stjernblad komst loks frá Blöndu- ósi í gær siðdegis. Er búinn að sitja 7 dagana sæla á Húnaflóa! Nýja bifreiðin. Orðum aukið kvað bún hafa verið frásögnin, sem Morgunblaðinu barst i gær um skemdir á Nýju bifreiðinni. Ekki orðið meira að en að fjaðrir sprnngu, en farþega sakaði ekki að neinu. Mjög orðvar maðnr sagði Morgunblaðinu frétt- ina, en honum verið flutt hún ýkt. Marz, botnvörpungur, seldi afla sinn i Hull fyrir 9000 kr. Sauðárkróksprestakall er laust. Umsókn- arfrestur til 18. des. Veitist frá fardögum 1914. Kirkja er reist í Hafnarfírði, af frikirkju- söfnnðinum þar, smíði komið það langt, að prédikunarstóll verður settur í hana i dag. Hún er 28 álna löng og 16 eða 18 álna breið. Þjóðkirkjumenn vilja ekki vera minni menn og eru nú einnig að hugsa um að reisa sér kirkju. Gift voru í gær (4. nóv.) Kristján Guð- jónsson Skram og ym. Kristín Guðmunds- dóttir, Bræðraborg. MORGUNBLAÐIÐ Fálkinn. Hann fer héðan til útlanda um miðjan mánuð og kemur aftur eftir nýárið. Það eru þannig nær tveir mánuðir, sem engin strandgæzla verður hér við land. Má geta nærri hvort botnvörpungar muni ekki nota sér það tækifæri, til þess að brjóta lögin og veiða í landhelgi. Þeir eru líka sjaldan seinir á sér, þegar »Fálkinn« er farinn og ekkert skip, er lengur til að gæta þeirra. Vaða þeir jafnan nær upp í landssteinum og gera tjón mikið. Þegar Fálkinn kemur aftur eftir nýárið, verður Aabye skipstjóri, en Bistrup, Evers, Albeck og Örsted honum til aðstoðar. Hr. Bistrup var hér við mælingar í sumar í Gilsfirði. Fisksalan enn. Rangar vogir. Maður keypti lúðu, sem seljandinn kvað vera 9 pund, en sem reyndist vera 7 7/io pd. þegar hún var vegin á rétta búðarvog. Ennfremur var stúlku seld önnur lúða er vóg 5 pd., en var að eins 4 3/10 pd. á rétta vog. Yfir þessu var kvartað við seljendur og skiluðu þeir aftur mismuninum. Kaupendurnir kvörtuðu einnig yfir þessu við bæjarfógann, ef vera mætti að hann gæti komið í veg fyrir að slíkar vogir yrðu notaðar framvegis, og brá hann þegar við og sendi V. E. fulltrúa sinn til þess að rannsaka vogirnar, en þá var salan um garð gengin og mennirnir á brott. Von- andi reynir bæjarfógeti að hindræað slíkar vogir séu notaðar framvegis. Kaupandi. I£YIE[MYMDAIíEIKHÚj3IN Gainla Bíó. Þar var í gær- kvöldi sýnd mynd sem heitir Vatna- búinn. Sýnir hún mann sem hefir vanið sig á að vera svo lengi í kafi að hann má fremur kalla sjódýr en mann. Er myndin skemtileg og auk þess lærdómsrík, því hún er mjög greinileg. Önnur myndin heitir Kon- ungsdóttirin indverska. Efnið er í fám orðum þetta: Greifi nokkur hefir keypt indverska furstahöll, en í garði hennar finst kista og í kistunni for- kunnar fögur stúlk. Með tilstyrk töframanns tekst að lífga hana, og er þá svo töfrandi fögur, að greifinn verður gagntekinn af ást til hennar, en gleymir unnustu sinni. En annar maður, vinur greifans, verður einnig ástfanginn og nemur hana á brott. Og til að segja ekki of mikið skul- um vér að eins geta þess, að greif- anum tókst að frelsa hana úr hönd- um hans. Þá kemur unnustan heim. Konungsdóttir fórnar sjálfri sér, er hún veit hvernig í öllu liggur, og lætur töframanninn dáleiða sig aftur. En alla æfi minnist greifinn at- vikanna sem fegursta draumsins, sem hann hefir dreymt. Auk þessa er sýnd gamanmynd: Kakerlak á ferðalagi, sem allir verða að sjá. Auðugasta barn heimsins. Auðugasta barn í heimi er dreng- ur að nafni Vinson Walsh Mc. Lean. Þegar hann fæddist átti hann 400 milj. krónur, og áður en hann vex svo upp, að hann geti farið að eyða fé, verður þessi upphæð yfir 800 miljónir. Ef hann skyldi nú verða duglegur maður og sóaði ekki fé úr hófi fram, yrði hann um þrítugt talsvert ríkari en mesti auðkýfingur veraldarinnar, sem J. P. Morgan hét, og nú er dáinn fyrir ári síðan. Fé þetta erfði drengurinn eftir þau afa sinn og ömmu, en foreldr- ar hans eru heldur ekki blásnauð, því eftir þau fær hann 200 milj. kr. arf. Þegar Vinson varð þriggja ára var mikið um dýrðir. Tvö hundruð börnum heldra fólksins í Washington var boðið í afmælisveisluna. For- eldrarnir voru ekki talin með, því þau komu til þess að gæta barna sinna. Afmælisgjöfunum rigndi nú yfir barnið eins og nærri má geta. Foreldrar hans gáfu honum full- komna eftirlíkingu af stærsta skipi heimsins sem þá var Lusitania, með gufuvélum, loftskeytaáhöldum og raflýsingu. Kostaði gripurinn 10,000 dali (ca. 40,000 krónur). Auk þess voru honum gefnar flugvélar, neðan- sjávarbátar, brúður sem gátu talað, hvolpar, ketlingar, hermenn úr líni sem gátu gengið, grammofón, járn- braut með öllu tilheyrandi, svo og gufuvagn, fólks- og flutningsvögnum og játnbrautarstöð. Auk als þessa bárust honum einnig óteljandi mun- ir aðrir, og kostaði þetta alt mörg hundruð þúsund krónur. Drengur- inn hefir 14 herbergi til þess að leika sér í. Þar var nú öllum þess- um gripum komið fyrir auk þeirra, sem hann átti fyrir og geta menn getið sér nærri, hvort ekki hefir ver- ið glatt á hjalla þar á afmælisdaginn. Dýrasta leikfangið sem Vinson á, er bifreið sem hann ekur i, aftur á bak og áfram, um þessi 14 herbergi sín. Vagnin er að fullu og öllu eins og þeir vagnar, sem notaðir eru til fólksflutninga. Sætin eru dún- mjúk, og allur er vagninn fóðraður innan, til þess að ekki skuli fara illa um piltinn, ef hann skyldi sofna þar í ógáti. Gripur þessi var smíðaður í París, og kostaði, með flutningsgjaldi, 165 þús. krónur. Mc. Lean fjölskyldan á fjórar geysistórar og skrautlegar hallir, sem hún býr i til skifta. A milli þeirra er óravegur, og er því allur farang- ur fluttur á járnbrautarvögnum, og i hvert skifti eru margir vagnar ein- göngu hlaðnir leikföngum Vinsons litla. Auk þessa, sem hér hefir nefnt ver- ið, má geta þess, að hann á fimm barnfóstrur, sem gera ekkert annað en hlýðnast keipum hans; því það er auðvitað, að ekkert má láta á móti auðkýfingnum. Fjórir varð- menn gæta hans nótt og nýtan dag. Rúmið hans er úr gulli; kostaði það 200 þús. krónur, og var einu sinni í eign Leopolds Belgíu konungs. Tvisvar hefir verið gjörð tilraun til þess að nema Vinson litla á brott. Bófafélagið »Svarta höndin«, sem nú um nokkura ára skeið hefir drýgt klæki sína í stórborgum Ameríku, veit vel hvers virði drengurinn er. Ef félagið gæti klófest hann, mundi það fá í lausnargjald hvað sem það heimtaði. En drengsins er vel gætt, svo það eru litlar líkur til þess að honum verði stolið. Skósmiðir! Munið eftir skógarninu í Veiðartæraverzluninui „Verðandi“ Álnavara laudsins stærsta, bezta og ódýrasta úrval. Sturla Jónsson Laugaveg 11. Hvítar, svartar eikarmálaðar. Likklæði. Likkistuskraa’. Teppi lánuð óbeypis i kirkjuna. Eyv. Árnason. Trésmíðaverksmiðjan Laufásveg 2. Uppboð verður haldið á frakkneskum skips- bát við' frakkneska spítalann hér,. föstudaginn þ. 7 kl. 12 á hádegi. Bæjarfógetinn í Reykjavík. Regnkápur fá menti lang ódýrastar hjá Jóni Zoeg*a Bankastræti 14. *£rúlofunarfíring ar vandaðir með hvaða lagi sem menn óska, eru ætíð ódýrastir hjá Jöiii Sigmundssyni gullsmið. Laugaveg 8. Margarine hið marg eftirspurða er nú komið aftur i verzlun Jóns Zoega. 50 aura pundið. Taða og stargresi fæst keyptr Afgr. vísar á. Peningabudda með 12—16 kr. tapaðist í gær á leið frá Vestur- götu niður i Edinborg. Skilvís finn- andi skili henni á afgreiðslu Morg- unblaðsins. Bókaskápur og búðar- skilti til sölu. Ritstj. vísar á. Ágætt herbergi til leigu, með eða án húsgagna, i Þingholtsstr. 22. Restir af stumpasirsi seljastnæstu viku á að eins 1 krónu pnndið á á Laugaveg 63. Jóh. Ögm. Oddson.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.