Morgunblaðið - 07.11.1913, Síða 4
28
MORGUNBLAÐIÐ
Skautar
ódýrastir í verzlun
H|( P. I. Thorsteinsson
& Co.
(Godthaab)
Álnavara
landsins stærsta, bezta og
ódýrasta úrval.
Sturla Jónsson
Laugaveg 11.
Regnkápur
fá menn lang ódýrastar hjá
Jóni Zoega
Bankastræti 14.
Cadburijs
cfjocolade og cacao
er það bezta og ódýrasta. Aðal-
umboðsmaður fyrir Island
O. J. Jiausfeen.
Talsímar 2 6 8 og 2 6 0.
Upphlutsmillur, Beltispör o fl.
ódýrast hjá
Jóni Sigmundssyni
gullsmið. Laugaveg 8.
Svörtu gammarnir.
6 Skáldsaga
eftir
Ovre Richter Frich.
(Frh.)
— Eg er áflogahundur. Enginn
kærir sig neitt um mig. Og eg
kæri mig ekki um —----------, hann
varð alvarlegur. Jú, það er ekki satt.
Því mér þykir innilega væntumyð-
ur, Helena systir. Eg mundi ljúga
ef eg segði annað. Og eg sakna
þess þegar eg hefi yður ekki leng-
ur hjá mér.
Helena systir sneri sér undan og
gekk burtu. Hann horfði á eftir
henni, og svipurinn varð viðkvæm-
ari og þýðari en búast mátti við.
Dyrnar opnuðust og læknirinnkom
inn í herbergið. Hann var aleinn,
aldrei þessu vant. Burns virti fyrir
sér með undrun og aðdáun hve hann
var kraftlega vaxinn. Höfuðið, háls-
inn og úlnliðirnir, — alt jafn sterk-
legt. — Og Burns var manna bezt
trúandi til þess að kunna að meta
þvílíka yfirburði að verðleikum.
chnp&riaL
ritvélinni er óþarft að
gefa frekari meðmæli en það,
að eitt til tvö hundruð
hérlendra kaupenda
nota hana dagleða með sí-
vaxandi ánægju. Allir þurfa
að eiga og nota Imperial-
ritvélina, sem að eins kostar
205 kr.
Einkasali fyrir ísland og Fær-
eyjar, Arent Claessen, Rvík.
Mjölkurleysið i bænum.
Kaffið í Bankastræti nr. 4 þarf enga mjólk eða
neinn rjóma til bragðbætis. Það er svo bragðgott sjálft, að
nokkur blöndun er með öllu óþörf.
Kaupið hvergi annarstaðar!
Tíans Pefersen.
!Qin b;
RegnMkar! Regnkápur!
— allar tegundir og snið —
ódýrast í
C. A. HEMMERT
mælir með sínum góða nærfatnaði, handa konum, börnum og karlmönn-
um, verkmannafötum, hvítu vörunum og mislitu kjólatauunum.
— Hvernig líður yður nú ? spurði
læknirinn.
— Eg er »allright«, svaraði Burns.
— Þér eruð merkilega hraust-
bygður maður. Eftir vikutíma getið
þér snúið heim á leið til Englands...
Eg símaði það til Mr. Redpath í
morgun . . . Hann biður yðar með
óþreyju. Þessir fljúgandi djöflar
hafa, eins og þér vitið, skotið öllum
heiminum skelk i bringu. Öllum
stendur ótti af þeim, því þeir eru
allsstaðar og hvergi. Alþjóðalögregl-
an hefir gert sér alt far um að upp-
götva verustað þeirra. í fljótu bragði
virðist það ekki vera svo miklum
um erfiðleikum bundið, en þó er
maður engu nær enn þá . . .
Burns reis upp við olnboga.
— Það er hart, að mér skuli vera
varnað þess að vera með í leitinni,
sagði hann og stundi við.
— Mér hefði einnig þótt gaman
að því að fá að eltast við þá, sagði
læknirinn með hægð.
— Ha 1 hvað voruð þér að segja?
— Það er von að þér séuð hissa
á því. Skósmiðurinn ætti aldrei að
fást við annað en sína iðju. Eg er
læknir en ekki njósnari, en þrátt
fyrir það gæti eg þó orðið lögregl-
unni að miklu liði.
Burns varð efablandinn á svip.
— Það sem eg á við, er það,
mælti læknirinn, að lögreglan festir
aldrei hendur í hári þessara bófa,
nema hún beiti þá þeirra eiginvopnum.
— Hvað eigið þér við ?
— Eg á við það, að maður verður
að berjast við þá á þeirra svæði.
Það er augljóst, að þeir hafa fundið
upp nýja gerð á loftförum, sem tek-
ur öllum hinum eldri fram. Þess
vegna verður að ráðast á þá í loft-
inu, með flugvélum sem eru hrað-
skreiðari og betri en þær sem þeir
hafa.
Leynilögreglumaðurinn blístraði
lágt.
— En bess háttar loftför eru ekki
til.
— Jú, svaraði læknirinn öruggur.
Vinur minn hefir fundið nýtt raf-
magnsloftfar af betri gerð en áður
þekkist. Það er fullgert að viku lið-
inni .... Eg er kunnugri glæpa-
mönnum en þér hyggið. Við skul-
um gerast félagar . . . Eg ætla að
Margarine
hið marg eftirspurða er nú komið
aftur í verzlun
Jóns Zo'éga.
50 aura pundið.
Kristján Þorgrímsson
hefir miklar birgðir af Ofnum, Eldavél-
um, rörum, hreinsirömmum o. fl., frá elstu
verksmiðjn i Danmörku (Anker Heegaard).
Það er ekkert skrum, að þessar vörur taka
langt fram öllum eldfærum, sem flytjast
hingað til bæjarins.
LfEIGA
Herbergi
til leigu fyrir einhleypan
Miðstræti 8 A.
Ágætt herbergi til leigu, með
húsgögnum, í Þingholtsstr. 22.
Búð fæst til leigu. Upplýs-
ingar á Amtmannsstíg 4 A.
Kopíupressa
óskast til kaups nú þegar.
P. P. J. Gunnarsson.
Hótelstjóri.
Stór og vandaður
peningaskápur
til sölu með góðu verði. Minni
skápur tekinn i skiftum, ef þess er
óskað. — Ritstj. vísar á.
Verzlun,
með verzlunaráhöldum og húsi, er
til sölu á ágætum stað á Vestfjörð-
um. — Ritstj. visar á.
greiða með því skuld sem eg stend
í við þjóðfélagið . . .
Burns hafði ekki augun af lækn-
inum . . .
— Þetta er ekki svo vitlaust, sagði
hann með hægð. Eg hefi nú samt
sem áður haft það fyrir fasta reglu,
að treysta engum nema sjálfum mér.
En sá sem hefir mist annan hand-
legginn, má ekki neita því að þiggja
hjálp, þegar hún býðst. Þér hafið
nú hjálpað mér til þess að lifa. —
Hvers vegna ætti eg þá að hjálpa
yður til að deyja? . . . Þér þekkið
ekki stjórnleysingja. Við vorum 12
manns þegar eg byrjaði að fást við
þá, og nú er eg sá eini sem er lif-
andi eftir af þessum tólf mönnum.
Dawis var sá síðasti. Hann var eng-
inn kjáni, en þó sá hann ekki við
þeim. Þeir tóku hann með sér, á
eyðileggingarferð sinni, og fyltu vasa
hans með tundri . . . Þér vitið svo
hvernig fór. Það er ekki eitt ein-
asta hár eftir af honum, hvað þá
meira. Þannig getur farið fyrir
okkur . . .
— Eg veit vel til hvers eg hætti,
og einnig hvað eg vinn við það.