Morgunblaðið - 10.11.1913, Side 2
42
MORGUNBLAÐIÐ
eða þeim staðnum. Ferðirnar séu
auglýstar reglulega, svo lengi sem
nægir farþegar bjóðast o. s. frv.
Ef þetta fyrirkomulag yrði haft,
gæti enginn kvartað, en allir yrðu
ánægðir og gætu fyllilega reitt sig á
ferðirnar.
Hafnarf. 8/u. 1913.
S. — 10. f. —
SmáYegis víðsvegar að,
Skipstjórinn á »Fram«, hinu nafn-
kunna skipi, sem Nansen sigldi
í Norðurskauts-leiðangri sínum og
Amundssen til Suðurskautsins, hefir
símað frá Colon, að hann muni að
líkindum sigla um Panamaskurðinn
í næsta mánuði.
Tveir svertingjar gerðu uppreist i
bænum Fayette (Norður-Ameríku)
fyrir skömmu síðan. Óðu þeir sjóð-
bandvitlausir um alla borgina og
skutu með skambyssutn á hvern, sem
varð á vegi þeirra. Drápu þeir 13
menn og særðu sex. Að lokum voru
þeir handsamaðir og drepnir án dóms
og laga, en likin siðan hengd á járn-
brautarstöðinni, öðrum til viðvörunar.
VoOalegur stormur æddi yfir Alaska
í fyrra mánuði. Fimm hundruð hús
í borginni Nome fuku og fjöldi
annara húsa skektust, svo að þeim
liggur við hruni. Skaðinn er met-
inn D/a miljón dollara.
Frá »mið8töð« i Paris. Fjórtán
símameyjar og tvær umsjónarkonur
við talsima borgarinnar eru ákærðar
fyrir að hafa hjálpað kornsala nokkr-
um til þess *að snuða keppinauta
sína. Málin standa yfir þessa dagana.
Viöa er pottur brotinn. Metcalf,
sem lengi var forstjóri Atlantic
Nationalbankans í New-York, hefir
verið varpað í myrkvastofu fyrir fjár-
drátt. Hann hefir stungið i sinn
eigin vasa 200.000 doll. af bank-
ans fé.
Kvenréttindi. Enskar konur berjast
fyrir frelsi sínu með oddi og egg
og þó af lítilli fyrirhyggju. Hafa þær
gert sig að götuskríl og spilt mál-
stað sinum stórum. En hitt er
virðingarvert, er konur neyta allrar
orku til þess að standa karlmönnum
jafnfætis í hverju sem er. Nii hefir
norsk skúlka, Anna jensen að nafni,
fetað í fótspor Þuríðar formanns og
gerst sjómaður. í vetur æfir hún
sig á hverjum degi í leikfimi og
aflraunum og verður svo háseti á
skipi þegar vorar. Eftir hálft þriðja
ár ætlar hún sér að ganga á stýri-
mannaskóla. Og eftir nokkur ár
væntir hún þess að verða skipstjóri.
Dýr kálfur. Á landbúnaðarsýn-
ingunni, sem haldin er árlega i
Buenos Aires, var i haust seldur
bolakálfur fyrir 133.136 kr. og er
það hæzta verð, sem nokkur naut-
gripur hefir selst fyrir. Hann heitir
Americus, er að eins 19 mánaða
gamall, en vegur þó rúm 2000 pd.
Svo mikils þótti um þessi kaup vert,
að bæði seljandi og kaupandi voru
bornir á gullstóli aftur og fram um
torgið.
Til skýringar á simskeyti því er
birtist í Morqunblaðinu í gær, skulum
vér með fáum orðum minnast á
Tammanyhringinn.
Hann er stofnaður í New-York
árið 1789, sem góðgerðaklúbbur. Er
hann kendur við hús það, er hann
hélt fundi sína í og hét Tammany
Hall. Síðar tók hann að sér afskifti
opinberra mála og 1860 fengu þeir
félagar mikilsverð embætti í borgar-
stjórn New-York. En skjótt varð
sú raun á, að þeir kunnu ekki með
völdin að fara. Þó héldu þeir þeim
um tíu ára skeið og höfðu þá stofn-
að bænum í stórskuldir. Var reynt
að koma fram ábyrgð á hendur þeim,
en þeir gátu skotið sér undan. 1889
komust þeir aftur til valda og 1892
var einn þeirra manna í kjöri við
forsetakosningu. 1894 biðu þeir ó-
sigur og hafa síðan haft sig minna
í frammi, þangað til nú, að þeim
skýtur aftur upp á hæstu stöðum.
Hvernig á eiginmaður-
inn að vera?
Svar nr. 2.
Það er maðurinn, sem ann þvi
góða og berst fyrir því, veqna hins
góða. Eg ann manninum mín-
um af því að hann þorir að horfast í
augu við sannleikann, og talar aldrei
á móti sannfæringu sinni. Stór, sterk-
ur og fríður má hann til að vera —
og kurteis við kvenfólkið.
Eiginkona.
Hrekkur.
Fyiir all-skömmu kom heldri
maður nokkur inn í búð gimsteina-
sala i París, og bað kaupmanninn
að selja sér hálsband úr perlum.
Maðurinn var með hægri hendina i
fatla, en var vel búinn og hafði þjón
með sér. Kaupmaðurinn sýndi hon-
um vöru sína, og keypti maðurinn
eitt hálsband og kostaði það sex
þúsund franca. En þegar hann ætl-
aði að |borga það, vildi svo illa til,
að hann hafði ekki nóg fé á sér.
Honum þótti þetta sýnilega miður.
Eins og þér sjáið, mælti hann
við kaupmanninn, þá er eg hand-
lama og get því ekki skrifað. Vild-
uð þér nú ekki vera svo góður að
skrifa konunni minni fyrir mig og
biðja hana að senda mér peningana.
Svo læt eg þjóninn minn hlaupa
með bréfið.
Eg skal með ánægju gera það,
sagði gimsteinasalinn og greip skrif-
færin. Og svo las maðurinn hon-
um fyrir:
»Elskan minl Gerðu það fyrir
mig að afhenda þjóninum 6ooofranka.
Mér liggur á peningunum. Eg ætl?
að koma með nokkuð þér á óvart.
Þinn )acques«.
Kaupmaðurinn skrifar.
Jacques! segir hann, það er skrítið.
Við erum þá nafnar!
Það lítur svo út, segir komumað-
ur, og afhendir þjóninum bréfið.
Hann fer og kemur aftur innan lít-
illar stundar, með sex þúsund-franka
seðla. Komumaður fær nú háls-
bandið og fer síðan brott.
Gimsteinasalinn fer skömmu siðar
heim til að borða. Hann var í ágætu
skapi, því jð verzlunin hafði gengið
vel þann daginn. Konan tók á móti
honum í dyrunutn.
Hvað er það, sem á að koma mér
á óvart? spurði hún og bar ótt á.
Við hvað áttu?
Þú sendir hingað áðan eftir 6000
frönkum og lézt þess um leið getið,
að þú ætlaðir að láta eitthvað koma
mér á óvart.
Nú fór kaupmaðurinn að skilja
samhengi málsins. Hann þaut eins
og eldibrandur til lögreglunnar. En
hún hefir ekki ennþá fundið dýr-
gripinn.
Móðurlausa barnið.
Fátæk kona býr í litlu þakherbergi
í stóru húsi. Hún lifir á því að þvo
fyrir fólk. Allan daginn, frá morgni
til kvölds, stendur hún við þvotta-
balann og kemur ekki heim nema
tvisvar á dag, sem allra snöggvast,
til þess að vitja um barnið sitt, sem
hún lokar inni i herberginu. Því að
hún er svo fátæk, að hún getur ekki
keypt sér hjálp, og barnið verðurað
sjá um sig sjálft meðan hún er burtu.
Svo er það einn morgun, skömmu
eftir það að konan er farin að heiman,
að barnið langar til þess að komast
út. Hurðin er auðvitað læst, og þó að
hún væri það ekki, þá kæmist barnið
samt ekki út um dyrnar, því að það er
svo lítið, að það nær ekki í snerilinn.
En það er annar vegur til undan-
komu, — glugginn. Barnið kemst
upp á borðið og getur opnað glugg-
ann. Nú er vegurinn opinn og óvit-
inn fer út.
Frá húsinu hinu megin við göt-
una sézt þessi atburður. Fólkið verð-
ur gagntekig af skelfingu. Innan
fárra mínútna er búist við því, að
barnið liggi niðri á strætinu blátt og
blóðugt, líkara öllu öðru en lifandi
veru. — En hvað skeður? Fötin
festast á þakrennunni og barnið hang-
ir þar i lausu lofti.
Á götunni hefir safnast saman
múgur og margmenni að horfa á
þessa hryllilegu sjón. Á hverri mín-
útu er við því búið að barnið losni
og hrapi niður á steinlagt strætið.
Sumir hlaupa eftir stigum en aðrir
hljóða og biðja fyrir sér. Þá er opn-
aður gluggi uppi undir þakbrún og
sterkleg hönd seilist út og nær barn-
inu. Það er frelsað. Nú keppast
allir við að fá að sjá það, og allir
vilja vera því eins góðir og hægt
er. Frú, sem býr á þriðja lofti, læt-
ur sem hún hafi aldrei til þess vitað,
að barnið hafi verið einsamalt uppi
í þakherberginu. Hún tekur það inn
til sín, og þar á það nú að vera hér-
eftir, meðan móðir þess er úti að
vinna.
Þessi saga gerðist að vísu ekki hér
í bæ, en hún er sönn.
Og er menn lesa þetta, þá muna
menn eftir myndinni, sem sýnd var
í »Nýja Bió« nú fyrir skömmu. Þar
var lika barn, sem klifrað hafði út á
húsþakið meðan móðir þess stutta
stund var vant við látin.
C=3 DAGBÓE[IN. -----------------------
Prk. Ólafía Runólfsdóttir.
Sesselja Þorsteinsdóttir.
Andrés Fjeldsted augnlœknir, 38 ára.
Q-ísh Halldórsson trésmiður, 43 ára.
Þórður Þórðarson Laugarnesi.
Morgunblaðið. Af því var í gær borið
út til áskrifendu og selt á strætum bæjarins
1893. Blaðið var 8 siður og fullar 5 sið-
ur af þvi lesmál. Mun það nýung vera
fyrir bæjarbúa, að fá svo stórt blað fyrir
65 aur. á mánuði heim til sin eða 3 aura
á götunum. Yér þökkum bæjarbúum og
öðrum fyrir þær góðu viðtökur, sem þessi
tilraun til þess að koma hér á góðu dag-
blaði hefir fengið alment og mnnnm vér
reyna eftir mætti að gera blaðið svo úr
garði að sem flestum liki.
Sturla kaupm. Jónsson hefir látið gera
gluggatjöld fyrir búðargluggasina áLauga-
veg 11, sem vekja mikla eftirtekt fólksinsr
sem framhjá gengur. Eru það auglýsing-
ar um varning þann, er þeir bræður
Sturla og Friðrik verzla með, og þykir
prýða vel.
Veðrið i gær var fallegt, logn um land
alt, nema andvari á Akureyri og Seyðis-
firði, heiðskirt i Rvik og á ísafirði, hálf-
heiðskirt á Seyðisfirði annars ,skýjað.
Hitastigin voru 3.00 i Rvík. 0.4 á ísafirði,
1.5 á Akureyri, 4.5 á Q-rimsstöðnm, 1.1 í
Yestmanneyjum.
Háflóð er i dag kl. 3,16
Sólarupprás 8.40 og sólarlag 3.42.
Hafnarfirði. Nýju kvikmyndahúsi er
verið að koma þar á. Búist við að sýn-
ingar hefjist um næstu mánaðamót.
Austurvöllur. flann var vatni ausinn
alla nóttina og sunnudaginn með, en sást
hvergi að völlurinn vöknaði. Stjórnar-
meðiimir skaotafélagsins stjórna vatns-
austrinum, og er sagt, að sumir þeirra séu
farnir að örvænta. Ausið bara, bræður
og systur, og gefist eigi upp fyr en gamli
Bertel stendur undir hendur i vatni! Ann-
ars kvað nú vera bezta skautasvell í
kjöllurum húsanna kring um völlinn.
Pistill sá, sem vér birtum i blaði vorm
í dag úr Hafnarfirði, mun mörgum Reyk-
víkingum þykja fróðlegur. Það er ótrú-
legt hve bæjarbúar vita litið um það, sem
er að gerast i kaupstaðnum i nánd við
höfuðstaðinn. En framfarir eru þar miklar.
Skautasvell var ágætt á Tjörninni i gær
og mikið notað af yngra fólki bæjarins.
Virtust margir vera þar »á hálum braut-
um kærleikans* og var gleðskapur mikill
á isnum. Skauta-íþróttin á hér marga
góða vini, sem nota hvern dag er gefst
til skautaferða.
Ceres kom til Yestmanneyja kl. 3‘/2
siðd. igær. Væntanleg hingað um hádeg-
isbilið.
Trolle skipstjóri brá sér til Vestmann-
eyja í fyrradag — með bifreið til Hafn-
arfjarðar og á fiskiskipi þaðan út i Eyjar
Væntanlegur hingað til bæjarins með Cer-
es i dag.
Látin er i gær, 8. nóvbr., I n g i b j ö r g
Magnúsdóttir, kona Guðjóns alþing-
ismanns Qnðlaugssonar i Hólmavlk. Hún
varð 66 ára. Hafði legið rúmföst 2—3-
vikur áður en hún dó.