Morgunblaðið - 12.11.1913, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ
-----■ D AGBÓIJIN. 1=
Afmæli 12. nóv.
Magnás Helgason skólastj. 56 ára.
Pétnr Hjaltested stjórnarráðsritari 48 ára.
Lárus Lárusson verzlm. 48 ára.
Sigurgeir Finnsson 43 ára.
Dáin: Ekkja Halld. Elíasdóttir, Njálsg.
13. 49 ára gömul. Dó í gær.
Veðrið i gær var hálfleiðinlegt. Bleytu-
kafald um morguninD, en úrkomulaust
seinni part dags. Himinn alskýjaður um
land alt vindur, ekki mikill.
Hitastigin voru: í K,vk.-f-1.3. YeBtm.
eyjum-|-1.5. Ísafirði-í-l.l. Akureyri-i-1.2.
Grimsstöðum-r-3.0. Seyðísfirði -J-0.2.
Háflóð er í dag kl. 11,24. síðd.
Sólarupprás 8.46 árd., sólarlag 3.35 síðd.
Hlutavelta Ungmennafélagsins gekk held-
ur hærilega í fyrrakvöld. A að gizka
helmingur komst inn af þeim sem ætluðu,
enda var rækiiega auglýst: götuauglýsing-
ar hlemmistórar og marglitar, fregnmiðar
frá Bárnbúð flugu út, bifreiðin þaut um
göturnar með trúðbúnum hljóðabelgjum,
flugeldarnir þntn út í geyminn, ljóslet-
ursauglýsingarnar voru bornar um strætin,
máluð spjöld héngu hér og þar. — Inni
lék alt í lyndi, aliir keptust um að draga
— og meira bar á ánægju þeirra sem
hreptu Llendingasögur, haframélssekki,
kolaskippund og annað þess háttar, en
hinum sem »núllin< hlutu. — Ungmenna-
félagið á, og á að eiga ítöb i hugum
manna, en þá á það iiba að vera duglegt!
Utanför. Jes Zimsen ræðismaður ætlar
að bregða sér »út yfir pollinn* einhvern
tíma bráðum. flugsar hann sér að ferð-
ast á botnvörpungnum »Apríl« og er bú-
ist við að skipið sæki hann hingað mjög
bráðlega. Sú fregn gekk um bæinn i gær,
að ræðismaðurinn færi utan til þess að
taka við forstjórastöðu fyrir h.f. P. J. Thor-
steinson & Co. hér i bænum. Morgunblaðið
átti viðtal (1 síma) við Zimsen I gær, og
kvað hanD engan flugufót vera fyrir fregn
þessari.
Marz. Botnvörpuskipið Marz kom i gær
frá Bretlandi og hafoi selt afla sinn í
Hull fyrir 502 sterlingspund. Hafði fengið
ágætis veður frá Bretlandi hingað —tæpa
5 daga ferð.
Bragi, botnvörpungur Thorsteinssons
bræðra, kom inn í gærkvöld með um 600
kitti af fiski. Per hann áleiðis til Hull i
dag og með honnm Gunnar cand. Egils-
son frá Yestmannaeyjum.
Hljómleikar. Undir stjórn Brynjólfs Þor-
lákssonar verða í kvöld hljómleikar. Er
þar góð efnisskrá og fjölbreytt, bæði
karlakór, karla og kvennakór, einsöngur
(hr. Símon Þórðarson) og harmoniumspil
Brynjólfs sjálfs. Leikur Brynjólfur m. a.
lög eftir Chopin, Schumann, Grieg og
Hassenstein. Má búast við góðri skemtun
í Bárubúð í kvöld.
Gamla bifreiðin fór á sunnudaginn suður
i Kefiavík með Gnnnlaug Claessen læknir,
sem sóttur, var til sjúks barns snður i
Höfnum. I ferð með Gunnl. voru þeir
Arent Claessen kaupm. og Ólafur Björns-
son ritstj. Fór bifreiðin. undir stjórn Jóns
Sigmund8Sonar, á 1 ’/« kl.st. frá Kvík til
Keflavikur og mnn það vera hröðust ferð,
sem farin befir verið milli bæjanna
Um kvöldið skrapp bifreiðin með nokk-
ura Keflvikinga inn i Njarðvikur en i
því ferðalagi bilaði tannhjól eitt, svo að
hún komsl ei úr stað. Er hún nú suður
í Njarðvíknm vafin seglum, en »stranda-
glóparnir< komu á Ingólfi i fyrradag.
Yerðnr bifreiðin sjálfsagt i lamasessi viku-
tima og guð má vita hvort hún kemst
það fyr en með vorinu, ef snjóar verða
slíkir, sem spáð er!
Verzlunin Víkingur. Vefnaðarvöru verzl-
unarinnar »Víbingur* á Laugaveg 5 hefir
frú Rasmus nýlega keypt. Er þar haldin
útsala þessa dagaDa — eins og sést annars-
staðar i blaðínu — og alt á að seljast.
Geta margir gert þar góð kaup.
Síra Matthías fekk heila legió samúð-
arskeyta á afmæli sinu i gær víðsvegar
að, flest á íslenzku, en frá Meulenberg
presti á latínu.
I gærkveldi var honnm haldið dálitið
samsæti af ýmsum vinum hans, körlum og
konum 50—60 alls. Hafði verið til þess
efnt af skyndingu og því eigi ráðrúm til
að hafa það; fyrir »alþjóð«, svo sem þó
hefði æskilegast verið, með þvi, að Matt-
hias er alþjóðar eign.
Vigfús Sigurðsson.
Grænlandsfarinn kominn heim.
Hann kom með Ceres í fyrradag
landinn, sem gekk með Kock um
þvert Grænland í sumar. Höfðu
þeir félagar farið frá Akureyri þ. 7.
júli 1912 og komið til Danmerkur-
hafnar á austurströnd Grænlands þ.
21. júlí. Þaðan héldu þeir inn í
landið að skriðjökli sem »Storströmm-
en« kallast, og reistu þar hús sitt.
Þar bjuggu þeir um veturinn 1912
til 1913, en fóru þaðan alfarnir þ.
20. apríl. Gengu þeir svo vestur
allir fjórir, þeir Kock, dr. Wegener,
Larsen og Vigfús, og komust í bygð
á vesturströndinni þ. 15. júlí þ. á.
Var það að »Pröven« — iitlu skræl-
ingjaþorpi á 72. stigi norðurbreíddar.
Ferðalagið gekk mjög misjafnt —
eftir veðráttu og landslagi. Samt
höfðu þeir að jafnaði gengið um 15
rastir á dag — svo vel hefir þó verið
haldið áfram. Með þeim félögum
var einn ísl. hundur og 16 hestar.
Hestana skutu þeir, er fóðrið tók
að þverra og hundinn urðu þeir
að drepa — og éta sjálfir — skömmu
áður en þeir komu til »Pröv-
en«. Voru þeir þá mjög þjáðir
orðnir af hungri og ekki gott að
vita hvernig það farið hefði, ef ekki
hefðu þeir haft »seppa«. Annars
sagði Vigfús Mortrunblaðinu, er
vér fyrstir manna buðum hann
velkominn heim, að mat hafi þeir
ætíð haft nógan, nema síðustu dag-
ana. Og hann bætti við: »hund-
urinn var ágætur á bragðið«. —
Frá Grænlandi fóru þeir áleiðis
heim þann 22. sept. og komu til
Khafnar þ. 18. okt., eftir 26 daga
sjóferð. Var þeim þar haldin veizla
mikil, og var yfir höfuð mikið um
dýrð í Danmörku við heimkomu
þeirra.
Yalurinn veiðinn.
Valurinn var í fyrra kvöld á leið
frá ísafirði hingað til Reykjavíkur.
Um miðnætti skaust hann inn til
Ólafsvíkur og hitti þar þrjá botnvörp-
unga og einn þeirra i landhelgi.
Hann var ljósalaus og við veiðar.
Valurinn brá ljósum sinum yhr söku-
dólginn og sendi þegar þrjá vopnaða
menn út á skipið. Var skipið her-
tekið og komið með það til Rvíkur
í gær kl. hálf tvö síðd.
Skipið heitir Edinburgh Castle,
eign Waverley S. T. Co. í Grímsby
og var réttur haldinn á varðskipinu
kl. 3 i gær. Skipið var sektað um
1800 kr. og afli og veiðarfæri ger
upptæk. — Mikill fiskur var í skip-
inu. Hann er fengsæll, Valurinn, i
árl Hefir hann nú náð 32 söku-
dóigum á tæpum 8 mánuðum.
IíANDAI^ EIpLBNDIjE) |
Viqfús Sis’urðsson Grænlandsfari var
af konungi sæmdur verðlaunapeningi
úr silfri um daginn. Hann var og
heiðursgestur i veizlu, sem danski
innanríkisráðherrann hélt Grænlands-
förunum í Khöfn. Mælti Daniel
Bruun þar fyrir minni Vigfúsar, en
dr. Valtýr þakkaði fyrir hans hönd
og mintist Danmerkur.
Pétur Jónsson, söngmaðurinn góði,
hefir fengið lof mikið í þýzkum blöð-
um fyrir söng sinn í fjöllistaleikhúsi
í Berlinarborg. Ráðgerir hann að
syngja þar áfram fram yfir nýjár.
Sóffvarnarmeðafíð
Desinfecfor
gefa menn sefíð fengið í
rakarasfofunni í
Jfafnarsfræfi 16.
Hinn fjeimsfrægi
Cobden-
vindill fæst hvergi nema hjá okkur.
Sömul. mælum vér með:
Cervantes, La Corona,
Maréchal Niel, Yurac Bat
o. fl. o. fl.
H.f. P. J. Thorsteinsson & Co
Kex og Kafflbrauð
er altaf lang-bezt
í Liverpool.
Nýútkomin póstkort
af Einari Péturssyni á bátnum, sem
Valurinn tók herfangi 12. júní 1913,
fást í bókaverzl. ísafoldar, Arinbj.
Sveinbjarnarsonar, Sigf. Eymundss.
og Guðm. Gamalíelssonar.
E^YIEJMYMDADEIKHÚjSIN
Nýja Bíó sýndi í gærkvöld mynd frá
dögum Napoleons mikla. Hefst hún
með því að frá París er sendur
hraðboði á fund hersins, sem um
þær mundir er suður á Ítalíu, og á
að flytja þangað peninga. En á leið-
inni er vagninn rændur af þorpur-
um nokkrum. Nást þeir allir, að
einum undanteknum. En í hans
stað er saklaus maður handsamaður,
dæmdur til dauða og líflátinn.
Myndin er leikin af alþektum
frönskum leikurum, og er svo eðli-
leg og blátt áfram að áhorfendum
hlýtur að finnast að þeir séu sjónar-
vottar atburðanna.
GamlaBíó. AstPierrots. Sjón-
leikur i 3 þáttum. Ziska og Tucci
voru æskuvinir og störfuðu bæði við
sama leikhús. Kvöld eitt verður Stan-
islaus greifi ástfanginn í Ziska og
vaknar þá afbrýði Tuccis. En Ziska
er einnig ástfanginn í greifanum, og
þó henni falli það sárt, þá verður hún
þó að snúa bakinu við Tucci.
Myndin er bæði fögur og efnis-
rík. Frú Psilander og Einar Zang-
enberg leika aðalhlutverkin af sinni
alkunnu snild. Mun óhætt að telja
þessa mynd með því bezta, sem sýnt
hefir verið á kvikmyndaleikhúsunum
hér.
Nýjir ávextir
kornu með „Ceres“ í
Nýhöfn.
■i DEIG-A
Gott herbergi með húsgögn-
um og rúmi fyrir einhleypan, ósk-
ast leigt nú þegar. Menn snúi sér
til skrifstofu E. Chouillou, Hafnar-
stræti 17.
Dansíeikur
í Skautaféíaginu
laugardoginn 15. nóvbr. kl. 9 e. h. á
Hotel Reykjavík.
Félagar vitji aðgöngumiða í Bóka-
verzlun ísafoldar fimtudag og föstu-
dag.
Púður
bæjarins bezta og ódýrasta komið
aftur í verzlun
h.f. P. J. Tborsfeinsson & Co
(Gobtfyaab).
Ávextir og Kálmeti
komið í Liverpool
svo sem:
Hvítkál Appelsínur
Rnuðkál Epli
Gulrætur Vínber
Rauðbeður Purrur
Selleri Laukur
Kartöflur.
Aldan
Fundur i kvöld kl. 8x/a í Bárubúð..
Fé'.agsmenn beðnir að mæta.
Stjórnin.
Stúlka, 13—16 ára, óskast fc
vist nú þegar. Frú Krogh, Schoushús.