Morgunblaðið - 15.11.1913, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 15.11.1913, Blaðsíða 2
62 MORGUNBLAÐIÐ sat ístrubelgur nokkur með glóandi demantshringa á hverjum fingri, de- mantsprjón i hálsbindinu og stóra og langa gullfesti við úrið sitt. Hr. ritstjóri I kallaði járnbrautar- þjónninn. »Þessi maður segir að hann sé aðstoðarmaður við blaðið yðar*. »Alveg rétt, alveg rétt«, svaraði ritstjórinn. »Nú, hvernig hafið þér það, herra minn?« Járnbrautarþjónninn bað afsökun- ar á tortrygninni og flýtti sér burt sem mest mátti hann, en blaðamað- urinn hneig niður í bekkinn og lof- aði Guð fyrir að hafa sloppið svona vel úr klípunni. »Eg skil þetta hvíslaði auðkýfing- urinn, en eg skal segja yður nokk- uð: Eg ferðast einnig ókeypis með járnbrautinni*. »En, herra ritstjóric stamaði mann- garmurinn. »Hvaða bull er þetta! Eg er als ekki ritstjóri. W. slátrari frá Bost- on. Gleður mig að kynnast yður, herra minnlc Hjá fótbrotna manninnm. Vér gátum þess í blaði voru í gær, að maður nokkur, Þórólfur Bjarnason, hefði fótbrotnað í hálk- unni í Asturbænum.. »Mor%tinblað- ið» — og sjálfsagt marga lesenda vorra — langaði til þess að heimsækja hinn slasaða mann á heimili hans á Skólavörðustíg, og þó oss fyllilega væri ljóst hver hætta gæti stafað af slíku langferðalagi á þessum tímum árs, þegar nær allur bærinn er gler- háll og öll stræti sandlaus, þá réð- um vér samt af að senda mann til heimilis Þórólfs, svo lesendur vorir fengju nákvæmar fregnir af slysinu. Eftir langt fundarhald meðal ritstjórn- armanna og miklar bollaleggingar, var loks kosinn hinn fóthvatasti blaðamaður, er vér áttum völ á — maður, sem talinn er fær í flestan sjó — og á alla ísa og hálku, þó sandlaus væri. Fór hann frá skrif- stofunni um hidegisbilið, áleiðis austur í bæ — en öll ritstjórnin, sem eftir var heima, beið með óþreyju símskeytisins frá honum um að nú væri hann »lentur« á Skóhvörðu- stíð 45 hvorki fót- háls- eða hand- leggsbrotinn. — Er það frá blaðamanninum að segja, að ferðin upp Bankastræti gekk vel, því þar hefir verið borinn sandur á gang- stéttina eftir að Morgunblaðið fyrst allra blaða vakti máls á því. Telj- um vér oss þar hafa unnið þarft verk Var margt manna á strætinu, sem fyrst nú eftir margra daga inniveru hætti sér niður í bæ. En Skóla- vörðustígurinn lá auður og yfirgef- inn af öllu nema hálkunni. Eitt einasta glerhált svell, sem jafnvel hinum fótvissa blaðamanni stóð ugg- ur af. »Hér er eitthvað að«, hugs- uðum vér. íbúðarhús á báðar hliðar — en engin Jsála á götunni! Jú, þegar ofar kom á stíginn mættum vér einni af yfirsetukonum bæjarins í regnkápu, með mannbrodda á fót- Leir- og glervörubúðin í Kolasundi hefir með aukaskipinu fengið talsvert af vörum í viðbót við það, sem áður var komið með »Ceres«. Þar er svo margt fallegt, að margur mundi sér kjósa sem jólagjöf. Lítið því inn I Kolasund, og rennið augum á vöruna, og vitið hvort of mikið er mælt. Reykvikingar! Þegar þér komið til Hafnarfjarðar, hvort heldur skemtiferð eða í áríðandi erindum, þurfið þér að fá hressingu. Hana getið þér fengið á HOTEL HAFNARFJÖRÐUR fullkomnasta hoteli bæjarins, Heitur matur og kaldur allan daginn, kaffi og allskonar öll, einnig næturgisting. Reykjavíkurveg 2. Talsimi 24. Steinlausar rúsínur og sveskjur um og tösku i hendi. Hún leit til vor eins og hún vildi spyrja. Hvað an kemur þú? Því við vorum ein tvö á stígnum. Auðvitað hefir hún eigi síður en vér, haft áríðandi erindi á Skólavörðustiginn — erindi, sem undir engum kringumstæðum gat beðið. Hún; hvarf inn í húsið og um leið og hún opnaði dyrnar heyrð- um vér smábarn gráta inni í húsinu. Hún var lika i sjúkraheimsókn. Vér héldum áfram — stauluðumst fram með grjótgarðinum og gripum hendinni við og við i stórgrýtið er á stígnum lá. í gluggum og dyrum húsanna stóðu konur og börn þeirra og litu út á hálkuna. Börnin voru með skólatöskur á herðum — tilbúin að fara í skólann undir eins og sand- vagninn kæmi. En hann kom ekki — og er vist ókominn enn. Mæð- urnar andvörpuðu þungt, en börnin hlóu i hjörtum sínum yfir »frídeg- inum«, þvi þau komust ekki í menta- stofnanirnar.— Vér vorum nú loks komnir i hús- ið nr. 45, þar sem Þórólfur Bjarna- son liggur í sárum eftir slysið um daginn. Hann var hress vel, en verður rúmfastur í minst 14 daga enn. Hafði hann dottið á svellinu fyrir framan heimili sitt og brotið annan fóttinn. Hann býr þar með móður sinni aldraðri, og ersjómaður. Þór- ólfur var kátur vel og kvað það vel gert af Morgunblaðimu að hefja máls á mannhættu höfuðstaðarstrætanna. Kvað það hafa verið hepni, að ekki verra slys hlaut af hálkunni — Zinkhvíta, Blýhvíta, Fernisolía og Terpintína er bezt og ódýrast í Edinborg-. Stúlka sem vill nema ensku, með annarri, hjá ágætum kennara, gefi sig fram sem fyrst við ritsjórann. því vel hefði hann getað dottið svo illa, að eigi hefði hann aftur staðið upp. En vér kvöddum Þórólf og óskuðum honum bráðs bata, og að kominn væri sandur á strætin, er hann aftur kæmist á kieik. Carol Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 6. Eiginmaður á að vera fremur hár vexti, dökkhærður með ljóst skegg, og ljósar augabrýr. Hann á að vera með dökkbrúnt annað augað en grátt hitt. Hann á að vera mikiil glímumað- ur og mjög sterkur og liðugur. Hann á að geta lifað af íþróttum sínum, svo að hann þurfi ekkert að gjöra. Hann á að hafa eina vinnukonu og svo eina barnfóstru, svo að við hjónin getum altaf verið úti, og við þurfum ekki annað en að koma heim bara til að borða. Hann á að faia með mig í leik- húsið, einkum þegar Jens B. Waage og Guðrún Indriðadóttir leika. Hann á að kaupa sér vetrarseðil að skautasvellinu fyrir okkur (það er að segja) pegar búið er að búa það til á Austurvelli svo að við gætum rent okkur þar á skautum á kvöldin. Hann á aldrei að neyta neins tó- baks og aldrei að drek'ka áfengt vín. Hann á altaf að fara með mig í »Bíó« og altaf að vera með mér á dansskemtunum. Hann á að elska mig mjög mik- ið, og þá líkaði mér nú lífið. Og ef minn maður væri svona væri hann sá bezti. Magga litla. 1=3 DAGBÓIflN. C=I Afmælíjl5. nóv. Gnðrón Jónsdóttir húsfrú. Jóhanna Einarsdóttir húsfrú. Margrethe P. A. Gndmundssen. Steinnnn Thorsteinsson. Heigi Teitsson hafnsögnm. 57 ára. Helgi Jósefsson trésm. 46 ára. Auglýsing: I saumavéla-auglýsingn hr. Th. Thorsteinssonar i blaðinu i gær, var mÍ8prentað. J?ar stóð —1. jan. 1912 voru notaðar als 1314 miljónir þessara heims- frægu véla. En það átti að vera l3/*, miljón. Þetta er tekið frem til þess að forðast allan misskilning. £ Naut á svelli. I Hafnarstræti tóku menn í gærmorgnn eftir að naut var leittútúr portinn hjá Gnnnari kaupm. Gunnarssyni og austur i bæ. Vorn tveir menn með nantið, sem i staðinn fyrir »mannbrodda« var vafið tuskum nm klaufirnar. Ferðin gekk ógreitt það er vér sáum. Valurinn: Boð mikið stendur til að verði um borð í »íslands Falkc á sunnu- daginn. Hafa skipstjórinn og sjóliðsfor ingjarnir boðið til sín mörgum bæjar- mönnum 'til miðdegisverðar kl. 7 síðd. Valnrinn fer héðan alfarinn í ár á fimtu- daginn og er boðið þvi kveðjuhót til bæj- armanna. Ceres fer áleiðis til útlanda í dag kl. 6 síðd. Skipið fer kringum land og kem- ur við á ísafirði, Blönduósi, Sauðárkróki, Akureyri og Seyðisfirði. Meðal farþega er séra Matth. Jochumsson á heimleið til Akureyrar. Nord-Jylland, aukaskip Sameinaða félags- ins, fer áleiðis til útlanda i dag. Kemur við á Djúpavogi, Breiðdalsvik, Stöðvar- firði, Fáskrúðsfirði og Akureyri. — Tek- ur kjöt á þessnm stöðum. Dáin er hér i bænum konan Rósa Sig- urðardóttir, til heimilis að Bjarnaborg við Hverfisgotu, 33 ára gömul. Kona Guðm. Jónssonar ökumanns. Hún dó frá manni: og 5 ungnm börnum. Simaslit: Landsiminn var enn slitinn i gær. Samband við Norðurland og útlönd varð skyndilega i gærmorgun en hvarf aftnr að hálfri stnndn liðinni. Evað slit- ið vera hér i Mosfellssveit einhversstað- ar milli Grafarbolts og Esjubergs, en tal- ið víst, að hann komist í lag i dag. ís- ing kvað vera mikil og þræðirnir slitnað af ofþunga hennar. Veðrið i gær Hiti um land alt, nema á Grímsstöðum -f- 6,5 ,í Rvik -f- 3,5, á Isa- firði 0,7, á Akureyri 3,0, Seyðisfirði 1,0. Stormur var i Yestmannaeyjum af austri. en kaldi i Reykjavík. Háflóð kl. 5,49 síðd. Sólarupprás kl. 9 árd. Sól&rlag kl. 3,26. Fult tungl var í fyrra dag. Nýtt blað. Á r v a k u r heitir nýtt blað,. sem Heimastjórnarmenn standa að. Fyrsta blaðið kom út i gærkvöldi. Ritstjóri er Pétur Zóphóniasson, en fyrir útgefenda hönd lýsir Lárus H. Bjarnason 'stefnunni. Mannslát. Hér dó á spitalanum maðnr i gær, sem Eyjólfur Jónsson hét. Ganga sögur um það, að hann hafi dáið af eitri, sem hann hafi borðað i mat. Gekk sú fregn um bæinn i gær, að eitthvað nndarlegt væri um dauða hans. nokkuð er það, að bæj- arfógeti lét, skömmu eftir dauða mannsins, færa likið frá spitalanum, þar sem mað- urinn dó, og upp i likhús gamla spitalans við Þingholtsstræti. Var likið þar kruf- ið af læknum, en þeir eru sem stendur ófáanlegir til þess, að gefa öðrum en bæj- arfógeta frekari upplýsingar i málinu. fast í Liverpool

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.