Morgunblaðið - 18.11.1913, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.11.1913, Blaðsíða 1
Þriðjudag 1. árgangr 18. nóv. 1913 MOR&UNBLADID 17. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmiðja | Afgreiðslusími nr. 48 I. O. O. F. 9511149 Bio Biografteater 1 Dín Reykjavíknr. | PIU Fyrsta ástin. Fórnin hennar. Sjónleikur i 3 þáttum. Aðal h lutverkið leikur: Frú Lilli Beck. Bio-kaffif)úsið (inngangur frá Bröttugötu) mælir með sínum á la carte réttum, smurðu brauði og miðdegismat, Nokkrir menn geta fengið fult fæði. Tíarfvig Tlieísen Talsími 349, Nýja Bíó frír félagar. Norræn listmynd. Leikin af Jrú A^erholm, herrum Aggerholm og Henry Seemann. Reijkið Godfrey Phillips tókbak og cigarettur sem fyrir gæði sin hlaut á sýningu í London 1908 sjö gullmedaliur og tvær silfurmedaliur. Fæst i tóbaksverzlun R. P. Leví. 3IE Sælgætis- og tóbaksbúBin LANDSTJARNAN Skrifsfofa' Eimskipaféfags tsíands Austurstræti 7 Opin kl. 3—7- Talsimi 409. TIIMIII nrrrrriii 1 niitt H. Benediktsson. Umboðsverzlun. — Heildsala. iiiifiinnirrrm Hvar verzla menn helzt? Þar sem vörnr eru vandaðastar! Þar sem úr mestu er að velja! Þar sem verð er bezt eftir gæðuml Hver uppfyllir bezt þessi skilyrði? óefað Vöruhúsið Rcykjavík. London ij. nóv. kl. 4 síðd. Kiamil Pascha, ýyrverandi stórvezir Tyrkja, dó í da%. Khöýn 17. nóv. kl. 4.30 siðd. Cordosamálið var deemt i daq. Louis Cordosa var damdur i 18 mán- aða hetrunarhússvinnu 0% sonur hans Harry, sem átti upptök svikanna, var damdur í y ára Janqelsisvist. THorð. Hve hryllilega lætur ekki þetta orð í eyrum? Morð, morð! Myrt bróður sinn á eitri I Annars vegar bróðurástin, blíð og barnsleg, og góð sambúð meðal systkina, og hins vegar hatrið, brennheitt og ástriðufult, eða það sem verra er: ískalt tómlæti gegn bróðurnum og ótakmörkuð fégirnd! í æðum þeirra rennur eitt og sama blóð, þau hafa í æsku hvilt hvort við annars brjóst, sæl og glcð yfir tilverunnni og systkinaástinni. Móðir þeirra leggur blessun sína yfir þau bæði, er þau fara úr heimahiisum og í eyrum þeirra hljóma síðustu orð hennar : Elskið hvort annað I.. . Það er leiðarstjarna sii, sem á að lýsa þeim út yfir líf og dauða. En — svo hrapar stjarnan! Konan er fátæk, en með löngun til lífsins berst hún við sultinn og seyruna, en sigrar — með hjálp bróður síns. Hann er sparsemdar- maður, þreyttur á lifinu, en með þá einu þrá, að geta gert eitt- hvað að gagni fyrir munaðarlausa barnið, sem hann elur upp — áður en hann deyr. Sparsemi bróðurs- ins kvelur hana, i fátækt sinni sér hún ofsjónum yfir auð hans, hún öfundar hann og litla barnið, sem arfinn á að fá — og sú hrylli- lega hugsun fæðist í brjósti hennar: myrða hann og eignast féð! Hún býður honum heim og ber á borð það bezta sem hún á í húsi sínu. Enn þá er hið góða hugarþelið til bróðursins sterkara í hjarta hennar, en ágirndin. En aftur grípur morð- hugsunin hana —, og fær vald yfir henni. Eitrið hefir hún útvegað sér áður, og nú er að nota tækifærið! En í barnarúminu sefur lítil saklaus stúlka og dreymir um þá góðu hönd, sem verndar hana frá öllu illu . . . Getur manneskja, sem slíkt gerir, verið Jmeð öllum mjalla. JMaður spyr sjálfan sig aftur og aftur — og manni finst það vera ómögulegt. Það fer hrollur i gegnum merg og bein, og maður spyr sjálfan sig: Hver er þá tilgangur lífsins, hafi hún framið ódæði þetta með réttu ráði? Að hverju er þá stefnt, þegar svo vill til sem hér, að slitin eru hin helgustu bönd, sem binda mennina saman, — sifjaböndin? Vér vitum það eigi og vér skilj- um það eigi, en vér getum eigi annað en samhrygst öllum þeim, sem hin grimmu forlög hafa látið þenn- an sorgaratburð bitna á — ættingj- um þeirra og vandamönnum. Þeir eiga enga sök á þessu og á þá má enginn skuggi falla af þessu máli. En skylda hvers einstaklings á að vera, að milda sorg þeirra, er mest líða. Réttarhald í morðmálinn. Eyólfur Jónsson. í gær voru þau hjónin, Magnús Bjarnason í Dúkskoti og Ingunn kona hans, leidd sem vitni i morð- málinu. Framburður þeirra var mj«g á eina lund. Hvorugt þeirra hafði þekt Eyólf sál. nokkuð, fyr en í haust er hann kom úr kaupavinnunni og settist að hjá þeim. Voru þau nú spurð ítarlega um alla háttu manns- ins eftir það og einkum voru þau int eftir því hversu honum hefðu fallið orð meðan hann lá banaleg- una. Var það alt hið sama og sagt hefir verið áður í Morgunblaðinu. Ennfremur voru fyrir rétti i gær piltar þeir tveir, sem með Eyólfi höfðu farið á fund Júlíönu systur hans, þegar hann sótti gulu kistuna. Þeir gátu ekkert nýtt borið í mál- inu, annað en að þeir hefðu hjálpað Eyólfi með kistuna vestan af Brekku- stíg og heim í Dúkskot. Frekara héfir eigi gerst i málinu enn. Jón Jónsson, sá er bjó með Júlíönu, hefir eigi enn játað á sig neina sök. Grunur nokkur leikur þó á, að eitthvað hafi hann vitað um fyrirætlanir Júlíönu og þykir eigi ólíklegt, að heldur hafi hann hvatt hana til verksins en hitt. Júliana sjálf kvað bera það, en játning hans er enn ókomin. Bæði Jón ogjúlíana báru sig vel í gær í klefum sínum í hegningarhúsinu. Þau neyttu mat- ar síns eins og aðrir. Verða þau að likindum yfirheyrð i. dag... Um Júliönu segja kunnugir, að hún hafi lifað tilbreytingariku lifi, sið- an hún flutti til Reykjavikur. Átti hún fyrst í stímabraki með að feðra barn er hún átti. Þá bjó hún um tíma með manni, er Hannes heitir, en fór frá honum, er Jón kom til sögunnar. Júliana var ástriðurik gleði- kona og um tima gefin fyrir drykk. Kvað þó aldrei mjög mikið að þvi. En skapstór hefir hún ætið verið. Jóni þótti einnig gott í staupinu. Lík Eyólfs er enn í líkskurðar- húsinu. Á að jarða hann siðari hluta vikunnar. Kunnugir segja hann hafa verið fyndinn mann og með afbrigð- um skemtinn, kvæðamann mikinn, og rimur kunni hann margar. Kvöldið sem hann hafði verið hjá systur sinni háttaði hann kl. 9. Lá hann i flat- sæng undir glugganum, en í rúm- Juliana Jónsdóttir. inu þau Magnús og Ingunn i Dúks- koti. Kvað þá Eyólfur rímur marg- ar, áður en uppköstin byrjuðu, m. a. mikið úr Þórðarrímum. Voru það seinustu rímurnar, sem hann kvað um æfina. Vaqabundus. Frá Eyóifi. Meðal annara, sem Morgunblaðið fann að máli, til þess að frétta um æfi Eyólfs sál., var Helga kona Edilons Grímssonar skipstj., á Vestur- götu 48. Hún þekti Eyólf manna bezt frá fornu fari, og síðan hann fluttist hingað til bæjarinsv var hann daglegur gestur i húsi þeirra hjóna,

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.