Morgunblaðið - 20.11.1913, Side 2

Morgunblaðið - 20.11.1913, Side 2
86 MORGUNBLAÐIÐ Trá útíöndum. Tlý uppgötvun. Símskriff. Tveir sænskir verkfræðingar hafa nýskeð gert merkilega uppgötvun í sambandi við símana, og er hún fólgin í því, að skrifa má bréf með símanum og jafnvel vélrita. Ekki þarf annað en setja vél þá, er þeir hafa smiðað, í samband við simana sem nú eru algengir. Sá sem vill skrifa vini sinum, fær venjulegt síma-samband og svo skrifar hann, og viðtakandi les bréfið með eigin- hendi hins heima hjá sér, jafnóðum og hann skrifar. Þessi aðferð get- ur komið að notum alstaðar þar sem sími er fyrir, og má mikils vænta af uppgötvaninni, því auk þessa er líklegt, að ýmsir gallar á tal- og ritsíma leggist niður. Mót8pyrna íra gegn heimastjórninni. A fundi, sem háður var í Belfast, samþyktu 6000 kaupmenn, sem eiga yfir meira en 100 miljónum sterlings- punda að ráða, að svo fremi sem heimstjórnarlögunum yrði beitt í Ulster, þá neiti þeir að borga einn eyri í skatt. í samþykt þessari láta þeir einnig í Ijós ánægju sína yfir þvi, að sjálf- boðalið skuli hafa safnast til þess að berjast með oddi og egg móti lögunum. ParÍ8. Forsætisráðherra Frakka, Barthou, átti fyrir viku síðan tal við nefnd þá, sem á að sjá um blut- töku Frakka í Olimpíuleikunum, sem háðir verða í Berlin 1916. Barthou lofaði að fara fram á það á þingi, að veittir yrðu 400.000 frankar af ríkissjóði, til þess að standast kostn- aðinn, sem af leikunum leiddi. stokkhólmur: Verðbréfhafa fallið geypilega í verði, um 20—30 af hundraði. Margir hafa orðið gjald- þrota. Orsökin er talin sú, að eftir- spurnin á heimsmarkaðinum sé of lítil, en meiri líkindi eru til þess, að njósnarmálið alræmda muniráðamestu um. Útgerðarmiðill nokkur, Brandelius að nafni, varð 7. nóv. að gefa upp verzlun sína sem þrotabú. Skuldirnar eru 10 miljón krónur, og er ómögu- legt að segja, hve víðtækar afleiðing- ar þetta ógurlega fjárþrot hefir i för með sér. Búlgaria. Grunt er á því góða enn milli Grikkja og Búlgara. Þegar Grikkir skiluðu aftur föngum þeim hinum búlgörsku, er- þeir tóku í síð- asta ófriði, vantaði marga þeirra, sem stóðu á nafnalista Grikkja. En þeir neituðu að gefa nokkrar upp- lýsingar þessu viðvíkjandi, þegar Búlgarastjórn krafðist þess. Senni- legast þykir að Grikkir hafi drepið fangana. Óteljandi Búlgarafjölskyld- ur klaga Grikki daglega fyrir stjórn sinni. Það er sagt, að þeir hefti ferðir Búlgara eða jafnvel myrði þá, ef þeir koma inn fyrir landamærin í verzlunarerindum. Kvenréttindakonur. Snemma í þess- um mánuði ók Asquith forsætisráð- herra í bifreið upp um héruð. Réð- ust þá kvenréttindakonur á vagninn, köstuðu steyttum pipar framan í ráð- herrann, og ætluðu sýnilega að dusta úr honum rykið á eftir. En þá bar þar að lögregluþjón, sem bjargaði honum úr greipum þeirra. 3. nóv. kveiktu þær á járnbrautar- stöðinni i Streatham-Hill, sem er smábær rétt hjá Lundúnum. Þó varð skaðinn lítill, því slökkviliðinu tókst að eyða eldinum. Noregur. í Bergen er svo þröng- býlt að til stórra vandræða horfir. Til þess að ráða bót á því, hefir bæjarverkfræðingurinn komið með þá uppástungu, að hluta burtu bæjar- landinu til þeirra, sem vildu byggja. En það land er 31 hektari, og áætl- ar hann að þar geti búið rúmlega 6200 manns. Uppástunga hans er sú, að leggja fyrst vegi, leiða þang- að vatn og grafa skolpræsi, og af- henda mönnum svo skikana. Kostn- að við vinnu þessa hefir hann áætl- að 620,000 krónur, eða 100 kr. á hvern ibúa. Gefi bæjarstjórn sam- þykki sitt til þessa, og úthluti land- inu með sæmilegum kjörum, er bú- ist við að húsasmíðar fari óðum í vöxt, og borgarbúar fái nægileg húsa- kynni. Ljón í Norðurálfu. Það bar til tíðinda fyrir nokkrum vikum suður á Steiermark á Þýzka- landi, að óargadýr eitthvert lagðist á fé bænda. Hugðu þeir að það mundi úlfur vera eða björn, sem kominn væri i mörkina. Söfnuðust bændur nú s^man og hugðu að vinna óvætt þessa, en ekki bar fundum þeirra saman í það skifti. Hefir nú svo farið fram um hríð, að enginn hefir séð dýrið, en drepið hefir það nú freklega 350 af alidýrum bænda. Uxa drap það fyrir einum manni, og át af honum hérumbil 60 pund af kjöti. A því þóttust menn sjá að hér mundi grimmara dýr vera en venjulegur skógarbjörn. Síðar fundu menn slóð þess, og þóttust þekkja að þar væri ljón komið. En hvað- an ? Nú er frá því að segja, að hjá dýratemjara í Karnten hlupu á brott nokkur dýr, fyrir æði löngu síðan. Maðurinn hefir þrásinnis fullyrt það, að sér hefði tekist að finna þau öll aftur og handsama, en nú er hann horfinn, og veit enginn hvað af hon- um hefir orðið. Er það ætlan manna að enn muni ófundin ein hýena og og eitt ljón af dýrum þeim, sem á brott hlupu, og ætli hann nú annað- hvort að handsama þau aftur eða þá að leynast, til þess að komast hjá hegningu. Bændurnir í Steiermark eru, sem nærri má geta, óttaslegnir mjög, enda ekki óhultir um líf sitt, því vargurinn gengur heim að híbýlum þeirra um nætur. Skólarnir eru lok- aðir, því enginn þorir að seada börn sín út fyrir húsdyr, og ferðamenn þora ekki að fara um vegina. En nú er lagt fé til höfuðs þess- um héraðsfjanda, 3000 kr., og hefir það freistað ýmsra til þess að leita hann uppi og drepa. Maður er nefndur Fritz v. Schellendorf og á heima í Múnchen. Hann er nafn- kunnur veiðimaður, og hefir um mörg ár stundað ljónaveiðar í Afriku. — Schellendorf lagði á stað fyrir þrem vikum síðan með nokkra menn og marga góða hunda, að freista þess, að hann fengi feldan að velli þenna vágest. Hefir ekki spurst til ferða þeirra síðan, en fyrir fáum dögum var símað frá Murzuschlag, sem er þorp i grend við Wien, að þar hafi rándýr drepið bæði svín og kýr, og voru þegar sendir veiðimenn þaðan til þess að elta þau. Þýzk og aust- urrísk blöð hafa naumast um annað rætt hinar síðustu vikur en tíðindi þessi. Þykir öllum til stórra vand- ræða horfa, og skjótra og góðra að- gerða við þurfa. En sem sagt, varg- urinn stendur enn heilum fótum og er öllum landslýð til skelfingar. Bréfaskrína. Hr. Kvöldtílýur! Þökkum fyrir hugvekjuna; erum að ýmsu leyti yður samdóma — en getum undir engum kringumstæðum birt grein- ina fyr en þér komið til viðtals við oss. Hr. Herkules! Vér erum alveg á sama máli. Komið til viðtalsl Gnúsi! Þér getið sótt handritið á skrifstofu vora; getum eigi birt greinina. --------------------- Símfréttir. Hajnarfirði 20. nóv. Fríkirkjan verður víqð sunnudaqinn 14. des. nœstkomandi. Hér liqqja nú fiskiskip pau, er Gunnar Hafstein bankastjóri l Feer- eyjum keypti. Fareyinqarnir, sem komu með Sterlinq, bíða hér byrjar til sins heima. Ritstjórnarát. í gær kom piltur með heljarstór- an poka inn á skrifstofu Morqun- blaðsins. Hann gekk til ritstjórans og hlammaði honum á borðið, svo handritin fuku í allar áttir. Pok- inn var hátíðlega opnaður og, ilmur nýrra ávaxta fylti"herbergin. “»H/f. Thorsteinsson|i& Co (Godthaab) send- ir ritstjóranum §þetta«, sagði stráksi — og þaut út. Allir ritstjórnarmenn stóðu upp úr sætum sínum og flykt- ust kring um borð ritstjórans, þar sem blóðrauð epli og safamiklar perur lágu í hrúgu. Öll vinna hætti i hálfa stund og tóku menn nú til óspiltra málanna. Leið eigi á löngu áður hvert eplið á fætur öðru hvarf í maga hinna hungruðu og mat- elsku blaðamanna, sem rifu í sig sælgætið úr Godthaab, eins og þeir hefðu eigi mat bragðað síðan Morg- unblaðið byrjaði starf sitt. Tíminn er dýrmætur á ritstjórn- arskrifstofunni og hafði ritstjórinn að eins kvatt fólkið til vinnu aftur, er barið var að dyrum. — »Kom inn«, sagði einhver —og inn gekk Einar garðyrkjufræðingur Helgason með lítinn pakka í hendi sér. Hann kvað það vera ost — íslenzkan Rockefordost — og bauð oss að bragða. Osturinn var afbragðs góður,. bráðfeitur og næringarríkur. Bróðurmorðið. Próf í því voru haldin í gær. Hafðí bæjarfógeti Jón Magnússon látið kalla Jón Jónsson úr klefa sinum og fyrir rétt. Jón meðgekk eigi — sagðist ekkert hafa vitað um fyrirætlanir Júlí- önu. Júlíana hefir legið rúmföst síðustu tvo dagana og hefir því eigi verið fyrir rétti. Búast má við að málið standi lengi yfir, áður það verður dæmt og eigi ólíklegt, að læknir verði látinn skoða Júliönu og rann- saka hvort geðveik sé eða eigi. =3 D AGBÓfJIN. ----------------------- Afmœlf 20. nóv. Hansina Þórðardóttir verzlk. Reinh. Andersen klseðsk. 50 ára. Sigr. Olafsdóttir hú-fr. 41 árs Ragnh. Magnúsdóttir húsfrú 34 ára Olafur Þorsteinsson læknir 32 — Veðrið f gær. Hitastigin vorn -4- 2.5 f Rvlk, -4 6,2 á ísaf., -4- 9,0 á Akureyrir -5- 12,0 á Orimsst., -4- 2,8 á Seyðisf. Hægt veðnr nm land alt. Háflóð er i dag kl. 9,44 siðd. Sólarupprás kl. 9,14. Sólarlag kl. 3,11. Bragi, botnvörpnngur Thorsteinssons- hræðra, seldi afla sinn i Englandi í fyrra- dag fyrir 403 Sterlingspnnd. Nýja Bfó. Þar er þessa dagana sýnd gamanmynd, sem heitir: Chr Schröder ger- ist leiguþjónn. Maðurinn er nafnkunnnr fyrir kýmni sina, og skemti áhorfendum vel að vanda, en þó þótti mönnum meira koma til íþess að sjá þar annan mann, sjálfan leikhús8tjórann í Nýja Bió, hr. Johs. Bang. Nú eru siðnstu forvöð i kvöld til þess að sjá myndina, fyrir þá sem ekki hafa séð hana áður, Eftirtekt mikla vakti við söngskemtun frú Finsen i fyrra kvöld hið hljómfagra hljóðfæri frá Weissbrod. Hljóðfærið er hið ^fyrsta, sem hingað flyzt frá þeirri verksmiðjn, og er tónskáldið Árni Thor- gteinson sá, sem hljóðfærið hefir í umboðs- söln. Yerksmiðjueigandinn var hér sjálfnr i snmar á »Grrosser Kurfiirst* og þótti mikið til söngskemtnnar þeirrar koma. sem hald- in var fyrir þjóðverjana þá.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.