Morgunblaðið - 20.11.1913, Side 3

Morgunblaðið - 20.11.1913, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ Skuggamyndir verða sýndar i samkomu- sal »HjálpræðÍ9hersins< i kvöld. f>að er herra ljósmyndari Magnús Ólafsson sem heldnr sýningnna. Eflanst verðnr þessi skemtnn bæði ein hin óáýrasta og bezta Bem fram fer hér i bæ í kvöld og ættu þ vi margir að nota þetta afargóða tækifæri. Kvöldskemtun : I auglýsingu hr. Bern- bnrgs i blaðinn i gær, hefir misprentast. Skemtunin verður haldin 21. þ. m., en ekki 29., eins og þar stóð. Hljómlelkar Br. Þorlákssonar verða vænt- anlega endurteanir í síðasta sinni sannu- dagínn 23. þ. m. kl. 6 síðd., með niður- settu verði — 50 anr. Fálkinn fer héðan alfarinn i kvöld. — Teknr póst kl. 5 siðd. Sterling átti að fara til Stykkisbólms kvöld kl. 6, en kemst væntanlega eigi héðan fyr en á föstndag. Á eftir að fara til Akraness og afferma þar vörnr. Akureyri: Um bæjarfógetaembættið á Akureyri sækir Steingrímnr Jónsson sýsln- maður Þingeyinga, ank borgarstj. Páls Einarssonar og Einars próf. Arnórssonar, Bem áður er frá sagt. Ingólfur kom i gær ofan úr Borgarnesi með fjölda fölks, þar á meðal Brynjúlfur Einarsson símaverkfr. (kemnr frá þvi að byggja Stykkishólmssimann), Ólafnr Sig- nrðsson búfr. á Hellnlandi í Skagaf., Axel Wilhelmsson verzlnnarstj. á Hvammstanga og Eggert Jónsson kanpm. frá Hofsós. Jarðarför Eyjólfs sál. Jónssonar fer fram frá dómkirkjnnni kl. 1 á morgnn. — Ekki i dag kl. 1, eins og misprentast hafði i blaðinu i gær. Dáinn er nýlega i Khöfn Freðerik War- bnrg kanpm. Var hann meðeigandi i firmainn Thor E. Tulinins & Co. í Khöfn. Einnig átti hann >Gam 1 a Bíó« hér í bæn- um og hafði dvalið hér á landi i 3 ár á Anstfjörðum. Svörtu gammarnir. 18 Skáldsaga eftir Ovre Richter Frich. — (Frh.) — Hvar eigum við að lenda ? hróp- aði Burns í eyrað á Fjeld. — Eg á tvo vini hér, svaraði Fjeld og leit um leið á landbréf, sem hann hafði fyrir framan sig. Þeir eiga heima rétt hjá Wandsbeck járnbraut- arstöðinni og við lendum á kapp- reiðarsviði, sem er skamt frá húsi þeirra. — Er óhætt að treysta þeim? — Við getum ekki fengið betri liðveitendur. Það eru beztu vinir Johnny Stone, bætti hann við og brosti. Nú er aðeins vandinn sá að rata heim til þeirra. Fjeld hægði nú flugið og virti hér- uðin fyrir sér. Fyrst stefndi hann meðfram Vilhjálmsskurðinum, þang- að til hann náði Berlínarveginum, þá tók hann stefnu með honum. — — Þarna er afarstór hvítur fáni, sagði Burns. Og þarna er stór slétta. 87 Ögreidd brunabótagjöld, áfallin í oktober, bið eg hlutaðeig- endur að greiða til min sem allra fyrst, svo að komist verði hjá lög- taksbeiðni. Heima á mánu- og fimtudögum kl- 3V2—S'/a e. h. Brunamálastjórinn. Skófatnaður Söngkensla. Frú Laura Finsen, útskrifuð frá Sönglistaskólanum í Kaupmanna- höfn og lengi notið framhaldskenslu á Þýzkalandi, kennir söng. Sérstök áherzla lögð á raddmyndun og heilsusamlega öndunaraðferð (hygieinisk: Pustemetode), sem hlífir hálsinum og þroskar röddina. Vanalega heima til viðtals kl. 5—6 e. m., Laugaveg 20 B (upgi). UPPBOÐ. Ef veður leyfir, verður selt Brak og ýmsir búshlutir, næstkomandi föstudag ki. 11 f. hád., á Laufásvegi nr. 5. er nú með feiknamiklum afslætti, og Skóhlífar eru seldar að eins fyrir 1 kr. og 50 a. í verzl. Edinborg. Hann ætlaði að segja eitthvað meira, en í sama bili stöðvaði Fjeld fram- skrúfuna og loftfarið seig nú hægt niður á jafnsléttu, eins og fugl sem ætlar að setjast. Um leið og hjól- in snertu jörðina, lsgðust vængirnir meðfram hliðum loftfarsins — fugl- inn var horfinn, en stór bifreið þaut yfir sandana. Fjeld leit í kring um sig. Ung stúlka kom hlaupandi á móti þeim og hélt upp um sig pilsunum svo þau flæktust ekki fyrir . . . — Velkominn, velkominn I hróp- aði hún þegar hún var komin í kall- færi: Velkominn, Johnnie I Þeir félagar stigu nú af vagninum. Þá bar stúlkuna þar að og það þótti Burns skrítið, er hún fleygði sér um- svifalaust í faðm Fjelds. Hann starði á þau eins og tröll á heiðríkju. Hún var forkunnaifríð. Hárið var dökt og féll í lokkum, en augun tindrandi. — Þeim gat enginn gleymt sem einu sinni sá þau. — Þetta eru þeir Ralph Burns og Ilmari Erko, sagði Fjeld. — Eg þekki ykkur af bréfum hans, Rúgmjöl í heilsekkjum 16,50 i hálfsekkjum 8,50 Rúgfóðurmjöl kr. 14,00 í Nýhöfn. Vasaljós ö| batterí nýkomin í J. P. T. Brydesverzlun. sagði unga konan fjörlega og rétti þeim hendur sínar. — Og þetta er Bessie Lecoureur Hart frá Dawson City, hélt Féld áfram. Hún er kona bezta vinar míns og á að vísa okkur á gammana. 11. kapítuli. Fjaðrirnar prjár. Niðri hjá Sankt Paulli i Hamborg er drykkjukrá, sem heitir »Fjaðrirn- ar þrjár«, og er í engu frábrugðin öðrum drykkjukrám þar í borginni. Þar er lágt undir loftið og fölsk gyll- ing er höfð til þess að skreyta veggja- listana. Þar er dálítill upphleyptur pallur og þar syngja og dansa nokkrar vændiskonur á hverju kvöldi eftir kl. 6. Enginn veit hvernig kráin hefir fengið heiti sitt, og gestgjafinn, sem öllu stjórnar í húsinu, veit það ekki heldur. Viðskiftavinirnir nefna hann Pétur frænda, og það nafn fellur honum bezt í geð. Það er á allra vitorði að Pétur frændi er argasti bófi. Lögreglan veit það einnig, en þó fær hún aldrei Peningabudda með 4.15 kr. í tapaðist í gær frá Helga Zoéga til Túngötu 55. Skilist til Helga Zoéga. Stúlka óskast i vist á gott heimili í Vest- manneyjum. Hátt kaup. Upplýsingar gefur Stefanía Guð- mundsdóttir Laufásveg 5. ^Cngur ofnismaður reglusamur, á kost á að fá að nema arðvænlega iðn hjá ábyggilegum manni. Ritstjóri vísar á. Beiðhestur og vinnuhestar óskast til kaups. Uppl, hjá Morgunblaðinu. tækifæri til þess að klófesta hann. Hann hefir reglu á öllu hjá sér, lof- ar aldrei söngstelpunum að garga eins og þeim bezt þykir og kastar fyllirútunum út þegar þeir hafa fengið sér nægilega mikið neðan í því. Þó er Pétur frændi gestrisnin sjálf. Allir eru velkomnir inn á veitingakrá hans, ef þeir eiga peninga. Það er alveg sama þó að það séu bófar og ræningjar, nýkomnir úr fangelsinu, því hann hefir gaman af öllum klækj- um þeirra — nema ef þeir fara án þess að borga. Honum er sama þó peningarnir séu falskir, enda hafa »Fjaðrirnar þrjár« hænt að sér grúa af alskonar þorpurum, bæði frá White- chapel, Soho, Montparnesse og Moa- bit, sem ekki hafa einn eyri af ó- falskri mynt i vasa sínum. En Pét- ur frændi veit að lögreglan er á hælunum á þeim og hún sér held- ur ekki í skildinginn, þó að sjaldan græði hún mikið á því að kom inn til hans. Og ef til vill koma nokkrir þangað inn, en fara ekkí út aftur. Að minsta kosti var það áreiðanlegt að Patrick Dawis fór inn í veitinga- krána að kvöldi hins 2. mai 1916, og næsta dag var honum fleygt út- byrðis af loftfari norður í Kristiania. Sala beint frá stórbirgöunum. Ókeypis og buröargjaldafrltt er send hin geysistóra verðskrá vor meb mörg þúsund myndum af hljóðfærum, gull- og silfurvörum, glysvarníngi, stálvörum. leburvörum, toiletvörum, eldhúsgögnum o. m, fl. Stærsta úrval á Noröurlöndum af hljóö- færum og talvólum ásamt plötum, tvi- plötum frd 60 aur. — Mikið úrval af grammófónplötum d ialenzku. Skrifið Nordisk Vareimport Griffenfeldtsgade 4. Köbenhavn N.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.