Morgunblaðið - 21.11.1913, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 21.11.1913, Blaðsíða 2
90 MORGUNBLAÐIÐ WZtrSiii m: ' • •V>: ■' : ...........—\—«. ......Ml, Woolworth-byggingin við Broadvay i New-York. Hiín er 57 lofthæðir fyrir ofan jörð, eða um 800 fet, og hefir kostað um 40 milj. kr. Það sem veknr mesta eftirtekt útleodinga þegar þeir koma til New- York, eru hinar risavöxnu byggingar (Skyscrapers), sem eiga hvergi sinn líka í öllum heimi. í þessum hiisum eiga oft mörg þúsund roanna heima. Tvent er það sem gerir mönnum það fært að smíða þessi hús og búa í þeim. Það er lyftivélin, sem flytur mann á fáum sekundum frá gólfi og upp á efsta loft, og stálgrindin sem má vera eins há og hverjum sýnist. í raun réttri er hver þessi bygging heil borg út af fyrir sig, með lyftivél og sporvagn, eigin vatnsleiðslu, brunalið, rafmagnsstöð og upphit- unartæki, póst- og síma-skrifstofu, einkennisklædda lögregluþjóna, gilda- skála, verzlunarbúðir og lyfjabúðir. Sá sem á heima í höllum þessum, getur fengið þar allar lífsnauð- synjar sínar, án þess að fara út fyrir húsdyr. Þar er talsími og ritsími handa öllum íbúum hússins. Bréfunum fleygir hann í lyftivélina, en hún skilar þeim niður í póstkassann, sem stendur fram við húsdyr og er tæmd- ur á hverri klukkustund. Hádegisverð fær hann sér á fyrsta sal, þar sem gríðarstórar veitingastofur eru. Hann kaupir sér lífsábyrgð á öðru lofti, vixla og ávísanir á þriðja og geymir peninga sina og verðbréf á 3. og 5. lofti kjallarans, — Því i kjallaranum eru mörg loft. Læknar eru við hend- ina í húsinu, ef heilsan er slæm, efnafræðingur og óteljandi málaflutnings- menn og fjármálamenn. Og þar eru rakarar, skraddarar og skósmiðir, tó- bakssalar, pappirssalar, járn- og glysvarningssalar. Þar er einkaleyfisskrif- stofa og í fám orðum sagt, alt sem nöfnum tjáir að nefna. Eins og nærri má geta, er ys og þys þarna allan daginn og næt- urnar líka. Því Ameríkumenn kæra sig kollótta þó þeir verði að vinna allan sólarhringinn. Eitt af þessum byggingum er Woolworth á Broadvay. Það er talið að í því húsi séu að minsta kosti 10.000 manns frá kl. 2—4 á daginn. Það er hið sama og allir borgarbúar Reykjavíkur væru þar saman- komnir. Annrikið og gauragangurinn er svo mikill þarna, að engan á sinn líka. Götuþröngin hjá Englandsbanka í Lundúnum, þar sem manni virðist þó hvorki hægt að hreifa hönd né fót, er ekkert hjá þeim ósköpum. Tíminn er peningar og enginn veit það eins vel og Ameríkumenn. Ljósast dæmi þess er atvik sem bar fyrir mig á rakarastofu í Lord Court- húsinu í Williamstræti. Þar sat aldraður maður inni og lét raka sig. Skó- burstarinn lá á knjánum fyrir framan hann og gljáfægði skóna hans. Ung stúlka skar neglur hans, en skraddarar tveir festu tölur á buxurnar og »pressuðu« jakkann hans. En meðan þessu fór fram, talaði hann í sím- anum við verzlunarfélaga sinn yfir á Wallstrætiskauphöll. Vaqab. Trá útlöndum. Nýtt kensluáhald í landafræQi hefir H. Anderson, sænskur verkfræðing- ur, gert nú nýlega og hefir það fengið lof fjölda margra mikilsmet- inna kennara. Það er Skandinavíu- skaginn gerður af grjóti, sem hann nefnir gerfigrjót, og sýnir nákvæm- lega öll fjöll og dali, ár og vötn. Ahald þetta á ekki að kosta meira en 5—6 krónur, svo allir barnaskól- ar geti keypt það. Jafnrétti karla og kvenna. Héma um daginn sást óþarflega ölvuð stúlka á götum Kristíaníu. Lögregl- an tók hana þegar og »setti hana inn«. En hún var ekki ánægð með vistina og lét öllum illum látum, svo fangavörðurinn varð að setja hana í járn. Tango er sá dans sem nú er mest umtalaður. Hann fluttist hingað í álfu frá Suður-Ameríku. Fyrst var hann álitin siðspillandi og ekki öðr- um hæfur en lauslátu fólki, en nú er hann dansaður á helztu samkomu- stöðum stórborganna. í London hafa te- og kaffihúsin tango dansa til þess að skemta gesturn sínum og spá blöðin því að þeir muni verða helzta dægrastyttingin þar í vetur. Frá Mexiko. Bandamenn hafa nú sent 4 herskip, 1 fallbyssubát og eitt aðstoðarskip til Veracrus. Eitt herskip- anna hefir hin heztu loftskeytatæki sem til eru, og stöðugt að skiftast á skeytum við Washington Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 17. (Lag: Um sumardag er sólin skin). Ó, að eg fengi eiginmann ástargjarnan, brosleitan, fríðan, ungan, frjálsiyndan og fram úr lagi ástríkan, já, ástríkan. A mig horfi' hann eina bara og ekki faðmlög sín má hann spara, og augunum hann skjóti’ á ská, ó, skemtilegur væri’ hann þá. Hörfrún. Svar nr. 18. Hvernig maðurinn minn á að vera. 1. Maðurinn minn á að vera ríkur. 2. Hann á að láta mig hafa öll völd yfir peningunum. 3. Hann á aldrei að finna að því, hve miklu eg eyði. Að öðru leyti er mér alveg sama hvernig hann lítur út. Ein aý dtján. Svar nr. 21. Eiginmaðurinn á að vera trúmað- ur, ekki drykkjumaður, sjálfstæður, duglegur og ráðdeildarsamur, rækja vel starf sitt, hvað sem hann vinn- ur, sem heiðarlegt er, skyldurækinn og góður við konu og börn og góð- ur heimilisfaðir. í einu orði sagt: Eiginmaðurinn á að vera prúðmenni í orðsins fylsta skilningi. Ef hann er það, þá er hann líka góður eiginmaður. M. Símfréttir. ^Akranesi { gœr. Afli er fremur lítill þessa dagana. Hér gengur bettusótt, er þó fremur væg. Annars fréttalítið. Gísli. Dýrafirði í gœr. Afli er hér góður. Vélaskipið »CapelIa« aflaði í dag 750 af væn- um fiski. P. Pistill frá Snæfellsnesi. Varanger, flóabátur Breiðfirðinga um undanfarin 4 ár, er nú að hætta ferðum sinum að þessu sinni. Von- andi verður þetta siðasta árið, sem Breiðfirðingar þurfa að nota jafn ó- fullkominn og ófullnægjandi bát, og höfum vér heyrt, að sýslunefndir Snæfellsnes, Dala- og Barðastrandar- sýslna muni hafa hug á, ef ekki beint að kaupa nýjan bát, þá vera sér í útvegun um betri bát etlendis. Munu þegar vera gerðar ráðstafanir hér að Iútandi. Ósk manna hér er, að þegar nýji báturinn kemur, verði hr. Ól. Sig- urðsson einnig skipstjóri á honum. Ólafur hefir getið sér hið bezta orð á Varanger, og mun leitun á jafn kunugum manni um þessar slóðir, En heyrst hefir að hann standi framar- lega sem skipstjóraefni hins nýja »Eimskipafélags íslands«, og mund- um vér unna honum þess, þó fegnir vildum vér hafa hann hjá okkur framvegis. Varanger á nú að stunda fisk við Vesturland fyrst, og síðan við Vest- mannaeyjar þegar vertíð byrjar þar. Aðal hvatamaður þessarar nýbreytni er Ólafúr og á hann þakkir skilið fyrir það. Afli er hér góður. O. J. P. Líkamsment. Allir kannast við J. P. Mtiller hinn danska, sem ritað hefir bókina *Mín aðferð*. Hann er heimsfræg- ur maður, og þúsundir manna iðka líkamsæfingar hans á hverjum morgni. En nú hefir Þjóðverji nokkur kom- ið með »sína aðferð« og er hún mjög frábrugðin hinni. Hann kveð- ur flesta kvilla mannanna vera þvi að kenna að þeir gangi á tveimur fótum, en forsjónin hafi aldrei ætlast til þess, maðurinn hafi átt að ganga á fjórum fótum, en hann hafi sjálf- ur vanið sig -á hitt. Þjóðverjinn ræður mönnum því til að hlaupa á fjórum fótum, kvölds og morgna, aftur og fram um gólfið heima hjá sér. Æfingarnar eiga að vera til þess,að líkaminn fái að hvílast í þeim skorðum sem forsjónin sjálf hefir ætlast til, og ætlar hann klukkutíma á dag til þeirra, hálftíma að morgni og annan að kvöldi. Þess er getfð að margir hafi að- hylzt kenningar hans, bæði karlar og

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.