Morgunblaðið - 22.11.1913, Síða 2

Morgunblaðið - 22.11.1913, Síða 2
94 MORGUNBLAÐIÐ Jarðarför Eyólfs Jónssonar. Hún fór fram í gær. Athöfnin hófst stundu eftir hádegi i dóm- kirkjunni og var þar fjölmenni sam- ankomið — mest kvenfólk eins og vant er við jarðarfarir. Fyrir miðju altari stóð kistan, svartmáluð með silfur-skraut á hliðum og tvo kransa úr tilbúnum rauðum rósum. ífremstu stólunum sátu vinir Eyólfs og þeir sem borið höfðu hann dauðan inn kirkjugólfið. En til beggja handa raðir af kvenfólki, sumar með hvíta vasaklúta fyrir augum. Grafarkyrð ríkti meðal safnaðarins, þegar síra Bjarni Jónsson að loknum sálminum sté fram og hóf ræðu sína. Síra Bjarni talaði vel og virtist ná föstum tökum á söfnuðinum, sem vel átti við, við þetta sjaldgæfa tækifæri. Bæða prests. Hann minti á, að dauðinn væri sifelt á ferðinni og hlífði engum. Nú við þetta tækifæri væri sérstök alvörustund, vegna hins sorglega at- viks, sem dauði þessa manns stæði í sambandi við. Lýsti Eyólfi sem atorkumanninum eljusama. Þá benti síra Bjarni á ritningar- orðin gömlu: »Sá yðar, sem synd- laus er, kasti fyrsta steininum*. »Vér skulum vorkenna hinum bágstöddu, og hverjir eru bágstaddir, ef eigi þeir, sem hér hafa ósigur beðið* . . . . »Þessi atburður á að vekja alvöru og sorg. Hann á að vekja hjá oss hina sönnu meðaumkun. En um- hugsunin um hann á einnig að vekja hjá oss ásetniner. Nú eigum vér að ákveða með sjálfum oss að hjálpa og Hkna öðrum, reka burt myrkrið og bera sólskinið með oss . . . Biðjum fyrir öllum ætingjum þessa látna manns. Kristin kirkja gieymir eigi hinum ógæfusömu<. Að lokum bað presturinn fyrir barninu litla á Brekkustig, fyrir fóst- urbarni Eyólfs vestra og öllum öðr- um ættiogjum. — Löng þögn varð á eftir ræðu síra Bjarna. Maður hefði nærri getað heyrt flugu anda I kirkjunni. Menn vora auðsjáanlega gripnir af þeim alvöruorðum, sem presturinn hafði látið sér um munn fara í niðurlagi ræðu sinnar. Og það var eins og menn rcnkuðu við sér, þegar vinir hins látna manns stigu fram á gólfið og báru kistuna út. Meðal viðstaddra manna tókum vér eftir bæjarfógeta Jóni Magnús- syni, Árna heilbrigðisfulltrúa Einars- syni, síra Jóhanni Þorkelssyni og Ólafi Björnssyni. Næst kistunni gekk Hannes Hans- son sjómaður, sá er áður bjó með Júlíönu og þekti Eyólf heitinn vel. Það er orðið sjaldgæft hér í bæ, að sjá líkkistur bornar úr kirkjunni í garðinn. En það var gert í þetta sinn. Hvort það hefir verið af sparn- aði gert, vitum vér eigi, en oss þótti eins og viðhöfnin væri meiri fyrir það. í garðinum bað síra Bjarni stutta bæn, og síðan hvarf lfkfylgdin þaðan, þögul og alvarleg, og hélt hver heim tíl sin. En útnyrðingurinn næddi Um leiði hinna dauðu eins og honum væri i nöp við litlu trén sem þar greru, og með honum berst þessi raunasaga víða vegu. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 19. Af þeim ástæðum, að flest af svör- um þeim, hvernig eiginmaðurinn á að vera, virðast vera of heimtufrek, og fæstar mundu verðskulda svo göf- uga eiginleika, þá finst mér heppi- legast að stinga upp á að eiginmað- urinn sé eftir verðleikum konu sinnar. Réttsýnn. Svar nr. 20. Maðurinn minn á að vera lítill, ljóshærður, með ljóst skegg og í grárri regnkápu þegar rigning er. Hann á að vera með harðan hatt og staf og gleraugu — umfram alt gler- augu og »Iast but not least« á hann að draga á eftir sér fæturnar þegar hann gengur. Tobba. Svar nr. 21. Eiginmaðurinn á að hafa heilbrigða sál í hraustum likama. Frekari kröfu geri eg ekki. fáfróð oq ómentuð. Svar nr. 22. Hann á að vera sjáljstœður o% dremrur qóður. Svar nr. 23. Góður eiginmaður er sá, sem ann því sem gott er; sé glaðlyndur, reglusamur og áreiðanlegur. Hann hugsi ekki að eins um sjálfan sig, heldur hugsi hann jafnframt um sína eiginkonu, elski hana og virði. Þannig er góður eiginmaður. G. J. H. F. D. Svar nr. 24. Góður eiginmaður er sá, sem elsk- ar og virðir konu sína, og er henni einlægur í öllu; gjörir ekkert nema í samráði við konuna, að svo miklu leyti sem hann getur komið því við, og ástæður leyfa; er reglusamur og lætur sér ant um að gjöra bæði konu og börn hamingjusöm í efna- legu og andlegu tilliti og yfir höf- uð lætur ylgeisla kærleikans verma og lífga heimilið. L. Svar nr. 25. Um fram alt á hann að elska mig; það er það fyrsta og síðasta. Eg vil að hann sé næmur að sjá galla mína, en fari mjúkum hönd- um um þá, og kunni að fyrirgefa. Hann á að vera léttur í lund, mik- ill íþróttamaður og bindindisvinur. Stella. Hólakirkja. Á morgun halda Skagfirðingar 150 ára vígsluminning Hólakirkju með samkomu að Hólum í Hjaltadal. Kirkjuna vígði Gísli Magnússon 25. sunnudag eftir Trinitatis, árið 1763, sem þá bar upp á 20. nóv. Upptök minningarhátíðar þessarar á sira Björn Jónsson prófastur í Mikla- bæ. Er búist við að allir nálægir prestar og mikið fjölmenni verði viðstatt. Smávegis víðsyegar að, Hetja í lífsháska. Liðfor- ingi nokkur skeindist á hendi í áhlaupi. Hann lét þegar vitja lækn- is, og yfirherlæknirinn kom þangað sjálfur til nans, en þegar hann sá sárið, hristi hann að eins höfuðið. »Er það hættulegt*, stundi liðs- foringinn og leit angistaraugum á læknirinn. »Eg vona að það sé ekki«, svar- aði læknirinn. »En eg ætla að sækja umbúðir þegar í stað«. »Hamingjan hjálpi mér! Mér blæðir til ólifis á meðan!« »Það vona eg að ekki verði. En eg óttast annað*. »Hvað óttist þér?« greip hinn fram í. »Ekki þó kolbrand?* »Nei, nei, herra liðsforingi. Það eina sem athugavert er við sárið er það, að það grói á meðan eg sæki umbúðirnar«. Ólánsdagar. Fyr á tímum var það trú manna, að sumir dagar væru kjörnir ólánsdagar, og þá mætti maður ekki ráðast í neitt stórt fyrir- tæki ef vel ætti að fara. í alman- aki frá 1481 eru sérstakir ólánsdag- ar nefndir: 5. og 27. febrúar, 1. og 29. marz, 10 og 19. april, 3. og 25. mai, 15. júní, 10., 14. og 22. júlí, 1. og 31. ágúst, 2. og 21. september, 4. október, 5. nóvember og 4. og 19. desember. Þá verður maður að forðast kaup og sölu og sérstaklega er það háskalegt að gifta sig á þessum nefndu dögum. Smásaga þessi er sögð af Walter Scott og konu hans. Hún kemur einn góðan veðurdag til hans og er þá í mjög æstu skapi. »Nú verð eg þó að ínrta krakk- ana svo þau muni eftir því«, mælti hún. »Hvað er nú að góða mín? spurði Scott. »Þeir hafa ruglað saman öllu sem á saumaborðinu mínu var, nálum tvinna, skærum og garni svo ómögu- legt er að greiða það sundur aftur. Þetta er til þess að gera mann al- veg æranl« »En heyrðu, gæskan mín! Það hefi eg gert en ekki krakkarnir«. »Því varstu að gera það?« sagði hún og lá bæði ásökun og forvitni í rómnum. »Eg gerði það til þess að þú tækir eftir því að alt var þar I óreglu. Þegar þú tókst svona snildarlega til á skrifborðinu mínu og lagðir þar öll skrif í réttar raðir, þá langaði mig til þess að öllu væri eins vel og reglulega raðað á saumaborðinu þínu!« Uppboð verður haldið í húsi konsúls Brillou- ins mánudaginn 24. þ. m, kl. 11 f. hád. Nánar á götn- auglýsingum. =3 DAG-BÓFflN. E=3 flfmæli 22. nðv. Cecilie Edelbo húsfrú. Maria Áemundsson húefrú. Þorvarður Magnússon póstur 56 ára. Einar Kr. Auðunsson prentari 48 ára. Friðrik Bjarnason 48 ára. Ulaf Forberg simastjóri 42 ára. Veðrið f gær. Frost um land alt. Mest á Grimsstöðum ■— 8 st. Minst á Seyðis- firði 4- 0.9. Annars: i Rvík -j- 5.2, á ísaf. —J— 3.7, á Akureyri -j- 4,0. Logn alstaðar nema norðanandvari i Yestmanneyjum, snðaustan andv. á (xríms- stöðum, S. S. Y. gola á Seyðisfirði. Háflóð er k). 12,14 og 11,32 sfðd. Sólarupprás kl. 9,20 árd. Sólariag kl. 3,05 siðd. Kristján konsúll Þorgrfmsson biður þess getið, að hann hafi ekki átt við Magnúo Yigfússon i Stjórnarráðinn, þar sem hann talaði um á bæjarstjórnarfundi i fyrra- dag, að holræsi hefði fylst gegnum vatns- salerni af sykurtoppapappír, beldur var það Magnús Vigfússon vegagerðarmaður bæj- arins, sem skýrði konsúlnum frá þvi. Akureyri: Vér gátum þess um daginn — eftir áreiðanlegum manni — að Stein- grimur Jónsson, sýslnm. Þingeyinga væri nýr umsækjandi um bæjarfógetaembættið á Akureyri. Hr. háyfirdómari Kristján Jónsson, bróðir sýslumannsins, biður oss geta þess, að fregnin sé i lausu lofti bygð. Leikfélagið. Yér biðjum lesendur vora að muna, að leikfélagið leikur aldrei án þess að auglýsa i Morgunblaðinu, og að auglýsingar þess verða altaf hafðar á 4. dálki fyrstu slðu. Þar geta því allir séð hvað og hvenær leikið er. Salerni: Á bæjarstjórnarfundi i fyrra- dag, var samþykt að hreinsa salerni bæjar- búa einu sinni í viku — eins og nú — & vetrum, en fjórtánda hvern dag á sumrin. »Auka-dollnr« eða kagga, þurfa menn því fyrst um sinn að kaupa — ekki fyr en þessn verður aftur breytt af bæjarstjórn- inni. En þ a ð gæti vel komið fyrir. Hljómleikar. Hr. Brynjólfur Þorláksson endurtekur hljómleika sina i Bárubúð á morgun. Verður þaðliklegasíðasta sinni, sem bæjarbúar eiga kost á sækja hljóm- leika Brynjólfs. Ætti því ekkert sæti að standa autt í Bárunni á sunnudaginn. Gamla Bfó sýnir fyrsta sinni í kvöld heim8fræga mynd, sem gerð er eftir bók Paul Lindaus: Der andere. Þar leik- ur þektasti leikari á Þýzkalandi, Basser- mann, af mikilli snild. Sterling fór i gærkvöld kl. 12 til Stykk- ishólms. Meðal farþega Carl Proppé verzl- unarstjóri, F. C. Möller verzlunarstjóri o.fl. Geir kom hingað í g*r að vestan með enska botnvörpunginn Pavlova, sem braut af sér skrúfuna um daginn norður af Horni. Blður skipið hér þangað til að ný skrúfa kemur frá útlöndum. En það verður með Skallagrlmi, er hann kemur næst frá Eng- landi. Simað var eftir skrúfunni. Eggert Ólafsson seldi afla sinn i Eng- lendi í g»r fyrir 448 pund sterling. Skúli fógeti fór til Hull i gær með 1200 körfur.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.