Morgunblaðið - 24.11.1913, Page 1

Morgunblaðið - 24.11.1913, Page 1
Mánudag 24. nóv. 1913 HORfiDNBLADID 1. árgangr 23. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ísafoldarprentsmið j a Afgreiðslusími nr. 48 I. O. O. F. 9511289 Bio IBio Biografteater Reykjavíkur. ,Hinn‘ eftir hinu nafnkunna leikriti Paul Lindaus, i fimm þáttnm. Sýningin er 2 klukkustundir. Aflalhlutverkið leikur frægasti leikari Þjóðverja Albert Bassermann. Aðgöngumiðar kosta: Beztn sæti 0,70, önnur sæti 0.60, almenn sæti C,80. Aðgöngumiðar fyrir börn verða ekki seldir. Bio - kaffifyúsið (inngangur frá Bröttugötu) mælir með sínum á la carte réttum, smurðu brauði og miðdegismat, Nokkrir uienn geta fengið fult fæði, Jlarívig Jlietsen Talsimi 349. Nýja Bíó Stökk-kafarinn. Norræn listmynd i 2 þáttum. Stribolt. Undrabarn. — Hlægilegt. 4 manna orkester sunnud. kl. 7—9. Reykið Godfrey Phillips tóbak og cigarettur sem fyrir gæði sín hlaut á sýningu í London 1908 sjö guUmedaliur og tvær silfurmedalíur. Fæst í tóbaksverzlun R. P. Leví. Sa =j L L Sælgætis- og tóbaksbúöin LANDSTJARNAN á Hótel Island. )in i j= J Sftrifsfofa ^ Eimskipafélags íslands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Talsimi 409. 4\ ijl 11 ’ziii nn iiirrrrjn^ H. Benediktsson. Umboðsverzlnn. — Heildsala. TTTTrrrrrrmillimTríi V öruhúsinu. Leikhúsið. Trú og heimili, eftir Karl Schönherr. — Það er áhrifamik;ð leikrit, sem Leikfélag Reykjavíkur lék fyrsta sinni í gærkveldi, og það er yfirleitt mikið vel með það farið. Frá aðalefni leiksins hefir verið sagt áður hér i blaðinu. Það er *vor allranáðugasti herra, keisarinnc, sem á sligamannavisu segir við vissan hluta þegna sinna: Peningana eða lífið, þ. e. kastið trú yðar, eða út úr landinu með ykkurl Og vesalings fólkið er milli tveggja elda. Annars vegar fastheldnin við óðul þess. Hins vegar ást á hinum nýju, end- urfæddu trúarbrögðum. Flesta lætur höf. meta trúna meira. — Einna átakanlegast í leiknum er það, er elzti maðufinn, Roít gamli, lýsir fylgi sínu við nýju trúna. Meðferð Leikfélagsins á þessu leik- riti mátti heita sérlega góð. Ekkert hlutverk var illa af hendi leyst, flest dável og sum mjög vel. Helqi Helqason lék hlutverk gamla Rotts betur en nokkuð annað, sem eg hefi til hans séð. Þau Rotts- hjón (|ens Waage og Emilía Indriða- dóttir) voru og myndarlega leikin, sumir kaflar í leik Emilíu, þegar snögg geðskifti gerast í hug hennar, ágætir. Keisarans fulltrúi, »ólmi riddarinn* sem alt drepur, sem eigi sver við kaþólska trú, sem er blóðslettóttur frá hvirfli til ilja af manndrápum, en er »sannkristinn« Maríu meyjar ridd- ari — það miður þakkláta hlutverk er leikið af Jakobi Mölkr, með krafti. Þrjár persónur eru í leikritinu, eins og til þess að létta á alvöruþungan- um í því. Það er Englbauer bóndi (Friðfinnur) spaugilegur karl, sem leikanda tóksl vel að ráða við, og flökkuhjú tvö, sem ganga syngjandi gegnum lífið (Stefanía Guðmundsd. og Ragnar Hjörleifsson). Son Rottshjóna, unglingsdreng ákaflega skapmikinn og eldfjörugan, leikur frú Guðrún Indriðadóttir, og er orð á gerandi, hve vel hún gerir það. Árni Eiriksson hefir í leik þessum hlutverk, sem eigi virðist hægt að gera neitt sérstaklega mikið úr, og Loftskip Zeppelins brennur. Morqunblaðið flutti fregnir af því um daginn, að eitt af loftskipum Zeppeiins hefði brunnið, er það var á siglingu skamt frá Johannisthal á Þýzkalandi. Eitthvað hafði komist í ólag þegar skipið var komið 500 fet í loft upp, vélin sprakk og alt komst í bál og brand á augabragði. Á ör- fáum mínútum brann skipið og féll til jarðar með braki miklu, sem heyrð- ist í margra rasta fjarlægð. Á skipinu voru 28 ménn og fórust þeir alíir. Þetta loftskip var hið stærsta, sem Þjóðverjar áttu. Var það af sömu gerð sem fyrsta loftskip Zeppelins, en að öllu fullkomnara en nokkurt hinna. — Lík mannanna sem fórust, voru öll óþekkjanleg af brunasárum og meiðslum. Handleggir og fætur voru rifnir af mörgum, en höfuðlausir búkar tveir fundust nálægt skipsbrotunum. Að eins einn maður var á lífi þegar fólk kom að, og hrópaði hann i sifellu: Drepið mig, drepið migl Hann dó eftir tvær stundir. Slys þetta bar að í sömu vikunni, sem Volturno brann í Atlantshafi; þar fórust 136 manns. Daginn eftir varð námuslysið mikla á Suður Bret- landi; þar fórust 435 manns. Ennfremur varð járubrautarslys sama dag og fórust þar 6 menn. Þetta skeði alt á einni viku — »svört vika* í meira lagi. Af þessum slysum skeði eitt á hafi, eitt neðanjarðar, eitt á landi og eitt — í loftinu. Efri myndin er af loftskipinu, sem hét L 2, er það lagði á stað frá Johannisthal. Neðri myndin sýnir »strandið« — loftfars-rústirnar, þar sem það féll til jarðar. sama er um hlutv. Herb. Sigmunds- sonar. Enn eru óupptaldir nokkrir leik- endur, en sama er um alla, að sæmi- lega eru af hendi leyst hlutverkin öll. Er það cjaldgæft í annálum Leik- félagsins, að leiksýning í heild sinni hepnist eins vel. Hitt skal ósagt látið, hvort Reyk- víkingar kunna að meta leikrit og leiksýning þessa, hvort þeir meta eigi meira alls konar »hopp og hí«, en alvarlega lýsing á mjög einkenni- legu og merku tímabili í sögu trú- bragðanna. Comes. Eimskipafélagið. Bráðabirgðastjórnin hefir nú látið fullgera uppdrætti og nákvæmar lýs- ingar á þeim tveim skipum, sem ráð- gert er að byrja með. Er nú verið að senda uppdrætti þessa og lýsing- ar til helztu skipasmiðastöðva í Dan- mörku, Noregi, Þýzkalandi, Hollandi og Englandi (10—20 alls), og þeim ætlað að gera tilboð um smíði á skipunum. Mun það tilætlun bráðabirgðastjórn- arinnar, að fá tilboð þessi svo tím- anlega, að stjórn sú, sem væntan- lega verður kosin á stofnfundi fé- lagsins þ. 17. jan. næstkomandi, geti þegar gert ráðstafanir til að láta smíða skipin. Gert mun ráð fyrir að smíði skipanna taki alt að 12 mánuðum. Uppdrættirnir munu verða hlut- höfum og öðrum til sýnis á skrif- stofu félagsins, Austurstræti 7, um miðja vikuna.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.