Morgunblaðið - 24.11.1913, Page 2

Morgunblaðið - 24.11.1913, Page 2
MORGUNBLAÐIÐ ioé Hafnarfjörður. Bæjarstjórnar- Á síðasta bæjarstjórnar- málefni. fundi hér var fjárhags- áætlun kaupstaðarins árið 1914, til síðari umræðu. Eftir langar og ítarlegar umræður í 7^/2 kl. tima, var hún samþykt. Árið 1913 voru tekjur bæjarins 26.779 kr. og gjöldin jafn mikil. En árið 1914 eru tekjurnar áætlaðar 31.964 kr. og þar af 12.534 kr. í niðurjöfnunargjöld. í fyrra var vatnsveitan og rafljósa- stöðin, látin standa með sömu upp- hæð tekju- og gjaldamegin, og svo er enn með rafljósastöðina. Ekki er þó svo að skilja, að fyrirtæki þessi — sérstaklega vatnsveitan — gefi ekki arð umfram stofn-reksturs- og viðhaldskostnað, heldur hefir ágóð- anum verið varið til aukningar. Á næsta ári er gert ráð fyrir að vatns- veitan gefi 1000 kr. arð. Nú hefir bærinn látið byggja 200 tonna vatns- geymir ofan við hafskipabryggjuna, til þess að skip verði fljótari við vatnstöku, og munu þau nú hvergi hér á suðurlandi geta menn fengið jafn fljóta afgreiðslu á vatni og hér við bryggjuna. Þeir liðir, sem mestri breytingu hafa sætt á áætluninni nú og í fyrra, eru lóðargjöldin, og vextir og af- borganir lána. Aukning lóðargjald- anna stafar af því, að bærinn hefir nú eignast allar þær lóðir í bænum, er áður tilheyrðu Garðakirkju, og falla þvi öll lóðargjöldin, sem Garða- prestur áður hafði, til bæjarins á næsta ári. Aftur á móti hafa vextir hækkað sem svarar til 60 þús. kr. — þá upphæð skuldar bærinn kirkjujarða- sjóði vegna landkaupanna. Lán þetta ávaxtast með 4%, og endurborgast á næstu 60 árum með 1000 kr. á ári. Fátækra framfærsla fer heidur hækk- andi. Stafar sú hækkun aðallega af 2 vitfirringum sem bærinn verðnr að sjá um. Fara þeir með nálega 1200 kr. á ári. Annar þessara sjúkl- inga er búinn að vera veikur í mörg ár, og hefir hann gert mönnum hér allmikil leiðindi og umstang. Hefir bærinn orðið að kosta miklu fé til þess að hindra það að sjúklingur þessi væri ekki að flækjast á götum bæjarins, bænum til stór skammar. Vonandi er að röðin komi bráðum að honum, þvi á geðveikrahælislista læknisins mun hann hafa verið tek- inn 1908. Á hælinu mun kostnað- ur við dvöl sjúklinga þessara ekki fara fram úr 360 kr. árl. Aukaútsvörin hækka um 1607 kr. frá í fyrra, en ekki ætti sú hækkun að þurfa að koma tilfinnanlega nið- ur á gjaldendum, með því að þeim hefir fjölgað, og gjaldþol einstakra manna aukist. Aætlun yfir tekjur og gjöld hafn- arsjóðsins (bryggjunnar 0. fl.) var til umræðu á þessum fundi, en var frestað til næsta fundar. Framtfðar- Á. kL Rirrel & Co. Ltd. horfur. frá Liverpool hefir tekið hús og lóðir M. Blöndahls kaup- manns á leigu um næstu 2 ár. Fram- kvæmdarstjóri firmans W. S. Hadden er nú hér staddur, til þess að gera ýmsar ráðstafanir viðvíkjandi fyrir- hugaðri starfsemi hér á næsta ári, m. a. ráða verkafólk og leigja eða kaupa fiskireiti. — Þetta firma hefir enga útgerð með höndum, heldur kaupir það fisk af útlendum botn- vörpunum hér á höfninni og verk- ar hann hér. — Eru slikir menn sem hann, góðir gestir í bæinn, og er hann líklegur til að veita mikla atvinnu hér á næstu árum. Veðráttan teppir nú sem Atvinna. sten(jur vjnnu vjg byggingu fiskireitanna. Nokkrir menn keyptu nýlega barkskipið »Vasco de Gama« er h/f. P. J. Th. & Co. átti, og lengi lá inni í Sundum. Er nú sem óðast verið að rífa skip þetta og hafa margir menn atvinnu við það. Kaupendur skipsins gera sér von um hagnað af kaupunum, því í skip- inu er mikið af kopar, látúni og eir. Hafnargerð Reykjavikur kvað hafa falað innviði skipsins til kaups. Edinborg hér er að Edinborg hér að hætta. hætti verzlun um næstu áramót. Er það mikill skaði fyrir bæjarfélagið, því verzlun þessi hefir löngum verið hæsti gjaldandi hér til bæjarsjóðs, og veitt bæjarmönnum mikla atvinnu. Vonandi er þó að einhver fylli skarðið áður en langt um líður, því húseignir og lóðir verzlunarinnar liggja mjög vel við; samhliða hafskipabryggjunni, og í járnbrautarsambandi við hana. Setbergs- Jóh. J. Reykdal bóndi á bóndinn. Setbergi er nú að koma upp hjá sér rafmagnsstöð til Ijósveit- ingar og hitunar. — Stöðina ætlar hann að reisa heima á túni, en vatn- ið fær hann úr upptökum Hafnar- fjarðarlækjar, en það er alllöng leið frá Setbergi. Er hann byrjaður á skurðgrefti, og öðrum framkvæmd- um. Gerir hann sér vonir um að stöðin framleiði meira rafmagn en hann sjálfur þarf að nota, og mun hann ætla að setja það sem umfram verður, til lýsingar i Hafnarfirði. — J. J. R. er brautryðjandi rafmagns- notkunar hér á landi, í Hafnarfirði. Hann leiðbeindi og þeim eina bónda á landinu sem ennþá hefir komið upp rafmagnsstöð hjá sér, bóndanum á Bíldsfelli i Grafningi. — Nú eru menn farnir að sjá hve ómissandi er að hafa rafmagnið til lýsingar hér á landi, því flestir bæir og kauptún vilja nú koma á fót hjá sér rafmagns- stöðvum þar sem þvi verður við komið. Dugnaði J. J. R. ætti að halda á lofti, þvi landið á slíkum mönnum sem honum mikið upp að unna. — Vonandi verður þetta ekki seinasta rafmagnsstöðin, sem bændur ráðast í að koma upp hjá sér, þar sem nóg vatnsafl er til. Fleiri munu á eftir fara. Hafnarf. 16/u—1913. 5. Hvernig á eiginmaður- inn að vera? Svar nr. 29. Góður eiginmaður er heimilisrak- inn og er því ekki á ótal fundum fram á nætur meðan konan hans sit- ur þreytt yfir börnunum heima. Hann er jafnkurteis við konuna sina og áður við heitmeyjuna, og ber svo mikla virðingu fyrir henni, að honum kemur ekki í hug að taka hana í faðm sinn utan hún sé jafn- fús til að leggja hendur um háls hans; ofbeldi i hjónabandinu er hon- um því jafn-andstyggilegt eins og utan pess. En þýðlyndur er hann, og er aldrei svo þreyttur, að honum sé ekki ljúft að gefa konunni sinni góðan koss, er hann kemur frá vinnu. Hann er varkár og lundlipur, eink- um þegar konan hans er »nervös« af barnagargi eða lasleika. Hann reynir í fám orðum af fremsta megna að efna sem flest aí fögrum loforðum, sem hann gaf istmey sinni fyr, er hún í fyrsta skifti settist á kné honum, hallaðist að brjósti hans og trúði honum fyrir framtíð sinni. Þótt hann verði karlfauskur, en hún hrukkótt kerling, verður hún jafnan »gamla kærastan« hans. Hamingjusamur eiginmaður. LíOGMBNN Sveinn Björnsson yfirdómsiögm. Hafnarstræti 22. Simi 202. Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—5. EGGERT CLAESSEN. yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulega heima 10—II og 4—5. Sfmi 16. C=3 D AGBÓFJIN. ■--------------■ Afmæli 24. nóv. Gnðrfður Gfaðmundsdóttir húsfrú. Steingrimur Steingrfmsson skipstj. 39 ára. Helgi Jónsson bóndi i Tungu 29 ára. Eirikur Bjarnason járnsm. 47 ára. Arni Kr. Magnússon skipstj. 40 ára. Veðrið I gær. Hiti um land alt. f Reykjavík S S A hvassviðri og 3,2 stig. Stormur í Vestmannaeyjum af S S V og hiti 3,6. Suðaustanstormur á Isafirði, hiti þar 7,3. Á Akureyri sunnankaldi og 3 stiga hiti. Á Grim8stöðum minstur hitir 0,9, og suðvestankul. Sama veður á Seyðisfirði, en hitinn þar 9,9. Háflóð er kl. 2,6 árd. og 2,32 siðd. Sólarupprás kl. 9,23 árd. SólarUg kl. 2,56 siðd. Ýlir (frermánuður) byrjar i dag. Á íþrðttavellinum suður á Melum sáust' i gtermorgun nokkrir röskir iþróttamennr sem voru að æfa hlaup. ! C= Gátur. Hálkan. Eftirtekt nokkra hefir það vak- ið meðal Austur-bæjarmanna, að borinn hefir verið sandur á hálkuna i Banka- stræti og Laugaveg. En i miðhænum sózt eigi sandkorn ennþá. Eftir hverju blður bæjarverkfrseðingurinn ? Ef til vill eftir fleiri fótbrotum I Jósep, hertogi í Sachsen-Altenburg, var vanur því í hvert skifti, er ókunn- ur maður heimsótti hann, að bera upp fyrir honum tvær gátur. Hin fyrri var þannig: »Hvað munduð þér gera, ef þér væruð tann- læknir?« Sá sem spurður var átti auðvitað örðugt með að svara, en þá hló hertoginn og sagði: »Ef maður væri tannlæknir, þá mundi maður draga út tímans tönn. En hvað munduð þér gera ef þér væruð skírari?« Sú gátan var nú litlu auð- ráðnari en hin, og hertoginn svaraði svo sjálfum sér hlæjandi: »Ef mað- ur væri skírari, þá mundi maður skíra eilífðina í hafinul* Friðrik Vilhjálmur IV, í Prúss- landi, hafði heyrt getið um þennan vanda hertogans. Einu sinni var hann á ferð um Altenburg og heimsótti þá hertogann. Ekki leið á löngu áður en þar kom, að hertoginn bar upp fyrir honum fyrri spurninguna. Konungur hugsaði sig um stundar- korn og segir síðan: »Ef eg væri tannlæknir, þá mun eg skíra eilífð- ina í hafinu«. Hertoginn varð fyrst alveg for- viða, en þegar hann skildi sneiðina, þá svaraði hann hlæjandi: »Fyrst svona er, þá þarf eg ekki að bera upp fyrir yður síðari gátuna 1« Gamla Bio. Troðfnlt hús var við báð- ar eýningar þar i gærkvóldi, og eins á langardaginn. Hefir áreiðanlega-eigi ver- ið sýnd betri mynd, en þessi, siðan kvik- myndahúsin tókn til starfa hér i bænnm. Fyrirlestur Árna Pálssonar í Iðnó í gær var mjög vel sóttnr. Sterling varð að fara fram hjá Ólafs- vik, á leið til Stykkishólms, vegna óveð- nrs. Juliana Jónsdóttir liggnr enn veik i hegningarhúsinn. Engin próf verið haldin yfir henni i nokkra daga. Jón félagi hennar hefir verið fyrir rétti, en ekkert játað enn. Varö, fiskskip til Mr. Geo. Coplandr kom í gær frá Seyðisfirði með eitthvað af fiski. Skipið fermir hér meira og heldnr svo eftir nokkra daga til Spánar. Lárus H. Bjarnason, prófessor sagði sig úr fólaginu »Fram« í fyrradag, eins og getið var um hór í blaðinu. Á fundi, sem haldinn var í Good-Templ- arahúsinu það sama kvöld, sögðu sig 140 menn úr fólaginu — fylgismenn prófessorsins. Munu þeir þegar stofna með sór nýtt fólag, til þess að berjast fyrir áhugamálum sínum.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.