Morgunblaðið - 05.12.1913, Síða 2

Morgunblaðið - 05.12.1913, Síða 2
154 MORGUNBLAÐIÐ fyatida karlmönnum & drengjum fáið þér — bezt og ódýrast, og um leið úr mestu að yelja hjá TL TL D Aa fataverzlun I Hb 1 íli OC UUi Austurstræti 14 Símfréttir. Trá úfíöndum. < r' * ’ < Stjórnarbyltingin i Ung- verjalandí. Það þykir ekki tíð- indum sæta þó eitthvað heyrist um róstur og óeyrðir í ungverska þing- inu. Stjórnin þar hefir um langa hríð fleytt sér á miitugjöfum og öðru því líku og hefir á þann hátt getað kóg^ð mótflokkinn. Fyrir nokkru varð samtstjórnarformaðurinn Lukacs, að leggja niður völd. Hafði blaða- maður einn kallað hann opinberlega »mesta fjárglæframann heimsins* og var sýknaður með dómi í meið- yrðamáli, sem af því leiddi. Tók þá við stjórnarstörfunum Tissa greifi. JEftir stjórnarskiftin fór ýmislegt mis- jafnt að koma fram i ferli fyrirrenn- irans. Heflr hann selt einkaleyfi og hluunindi ýmisleg þeim, sem hæst buðu, og látið leyfisgjöldin renna til kjörsjóðs flokks sins. T. d. hafði hanp veitt félagi manna rétt til að reka spilabanka í Buda-Pest. Skyldi ríkið fá j°/0 af hreinum ágóða, en sjálfur fékk stjórnarformaður il/t milljón kr. þegar í stað og 2 þing- menn, sem þátt höfðu átt i samn- ingnum 500,000 kr. NúhefirTissa neitað lögmæti þessa samnings og synjar leyfisins. Hinir krefjast fjár sins aftur, en það er gengið tij þurð- ar ,í siðustu kosningabaráttu. Þetta mál er ljóst dæmi spilling- ar þeirrar, sem á sér stað i Ung- verjalandi. Stjórnin er einvöld. And- stæðingarnir undir forustu Andressy greifa eru reknir út úr þingsalnum ef þeir segja eitthvað, sem stjórn- inni geðjast ekki að, og hefir það leitt til þess, að þeir halda sér frá þing- salnum, en stjórnin ríkir sem ein- völd væri. Auðugt eimskipafélag. Hamborg-Ameríku-eimskipafél. hefir á fundi i Hamborg ákveðið að auka hlutaféð um 30 miljónir marka — frá 150 til 180 miljónir. Félagið er að láta byggja 8 ný skip — þrjú þeirra feiknastór farþegaskip, sem í ferðum eiga að vera milli Hamborg- ar og New York. Lioyd George og hervarn- ir stórveldanna. Fjármálaráð- herra Breta hélt nýlega fyrirlestur í Middlesborough i Engiandi um fast- eignaskattafrujnvarp sitt:og hervarn- ir stórveldanna. M. a, hélt hann þvi fram, að betra væri fyrir Breta, Frakka, Þjóðverja og Rússa, að kasta fé því sjóinn, er þeir nú eyða í her- varnir, heldur en kaupa bryndreka og vopn til þess að myrða hver annan. Eigi væri unt fyrir aðeins eitt landanna að koma þessu í fram- kvæmd, en ef þau öll væru sammála um að hætta fjárveitingum til her- varna, þá mundi hægt að koma ýmsu því í kring er alþjóðaheill varðaði. Bökmentaverðlaun Nóbels. Eins og »Morgunblaðið« hefir þeg- ar skýrt lesendum sínum frá, voru Nóbels-verðlaunin í bókmentum í ár, veitt indversku skáldi, Rabindranath Tagore. Hann er fæddur árið 1861, og er aí tignurn ættum í Bengal. í föðurlandi sínu hefir Tagore borið höfuð og herðar yfir alla landsmenn sína, og þó víðar sé leitað eru það fáir, sem geta komist til jafns við hann. Á 14. árinu fór hann að gefa út skáldrit sín. Seytján ára gamall flutt- ist hann til Englands og stundaði þar nám litla hríð. Þegar hann kom heim aftur, reit hann ógrynni skáld- rita ýmislegs efnis. Árið sem leið hefir hann dvalið í Englandi og Ameríku og þýtt skáld- rit, sín á enska tungu. Hafa nú þeg- ar komið út 3 bækur: Gitanjali — safn af“ ljóðmælum andlegs efnis, sem sameina á hinn fegursta hátt jötunanda skáldsins og barnslega ein- feldni; nokkrar sögur frá Bengal og ástarljóð. • I Bengal syngja allir ljóð hans og hefir hann sjálfur samið lögin. Rithöfundurinn Per Hallström legg- ur þann dóm á skáldrit hans, að þau séu það bezta, sem birzt hefir nú um marga áratugi. Isafirði í %œr. Tiðin er afaróstöðug svo naumast gefur á sjó. Afli því lítill hér. Hæztu hlutir 80 krónur frá þvi um göngur. Göður ajii í miðdjúpinu 100—150 króna hlutir. Smásíld nokkur hefir veiðst á Skötu- firði og notuð mest til beitu þó dýr sé. Heilsujar manna hér um slóðir má ágætt kalla. Bæjarstjórnarfundur 4. des. 1913. Hann var haldinn á vanalegum stað og tíma. Mörg mál voru á dag- skrá. Mjólkursalan. Sveinn Björnsson bar fram tillögu um að lækka fitukröfur þær, sem nú eru gerðar til nýmjólkur samkvæmt mjólkursölureglugerðinni, 3,25% nið- ur i 3°/0. Kveðst hann koma ffam með tillögu sína i samráði við beil- brigðisnefnd. Af 95 sýnishornum, sem tekin hafa verið af mjólk nú á einum mánuði, reynddst 59 undir fitumarkinu, þar af 31 undir 3°/0. Nær 2/s hlutar allrar mjólkur hér í bænum því undir fitumarki þvi sem heimtað er. Bærinn nú i mjólkur- þröng og hvað yrði ef bannað væri að selja alla mjólk, sem ekki nær fitumarkinu ? Eðlilegra að breyta ákvæði reglugerðar, sem ekki er hœ%t að fullnægja, heldur en vita ákvæðið brotið og geta ekki framfylgt því. Var tillaga Sv. Bj. samþykt. Hverfisgata. — Skúlaskeið. Út af tilmælum frá bæjarfógeta um að breyta húsnúmerunum á Hverfis- götu, bar byggingarnefndin fram til- lögu um að breyta nafni götunnar, og leggur til að hún verði nefnd Skúlaskeið, kend við Skúla fógeta. Talsverðar umræður urðu út af þessu og orðahnyppingar. Lauk svo að samþykt var að fresta málinu til næsta fundar. Tr. G. kallaði nafnið »sérvizkulegt, afkáralegt og ópassandi*. Móakotsbletturinn. H/f. Kveldúlfur hefir farið fram á að fá að byggja stórt fiskþurkunar- og geymsluhús 48X44.40 metrar á Móakotsbletti. Byggingarnefndin vildi ekki veita leyfið nema landinu, sem hún telur vera erfðafestuland, verði breytt í byggingarlóð og þá greitt venjulegt gjald, einn fimtungur af verði landsins, i bæjarsjóð. Sam- þykt var, að breyta umræddu svæði í byggingarlóð gegn venjulegu gjaldi í bæjarsjóð, og sé það miðað við matsverð dómkvaddra manna, þó mætti gjaldið greiðast með þeim fyr- irvara, að það verði endurgreidd, ef sannað verður síðar, að landið sé byggingarlóð. Méð þessum fyrir- vara var byggingarleyfið veitt. Síðan voru dregin út 4 skulda- bréf Baðhússins, nr. 20, 34, 61 og 70, og 1 Laugarnesskuldabréf nr. 54. .CHBjf'eiiit rhs-i Óif'iv 'icj H U}ÍUl | Tltjff með e\s Vesfu í gær: Svartröndótt Sifki sem er alþekt á kr. 8,45 í svuntu. Siffti, tvíbreið og einbreið, svört, mislit og litbrigða. Mjög falleg Baflkjófaefni, eolienne, margir litir á kr. 1.55, að eins í einn kjól af hvorum lit. Dömukamgarn svart og Dömukfæöiö á kr. 2.90. Mikið aí Lfííarboíum og Uííarnærfafnaöi. Vefnarvöruvezíun Tf). Tb. lngó(fsf)vofi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.