Morgunblaðið - 31.12.1913, Side 2

Morgunblaðið - 31.12.1913, Side 2
284 MORGUNBLAÐIÐ Endurkoma Krists Og „stjarnan í austri14. Eftir C. W. Moncrieýý M. A. prest i enskn þjóðkirkjunni. Svo mun flestum þykja sem breitt sund greini sundur þessi tvö hugsana- svæði: trú og vísindi. Trúmennirn- ir hafa engin veruleg boð eða ákveðna fræðslu að bjóða vísindamönnunum, uppeldisfræðingunum eða þeim, er við þjóðfélagsfræði fást. Og enda þótt visindamennirnir játi einhverja trú sem einstaklingar, þá taka þeir þá trú lítið til greina þegar til vís- indalegrar starfsemi kemur, hvort heldur sem þeir vinna að aukinni þekkingu eða umbótum þjóðfélags- skipunarinnar. Þó mun það sanni næst, að trúin hvetji þá til starfsemi og blási þeim ýmsu í brjóst;enhún veitir þeim ekki skýra né skipulega og ákveðna heildarþekkingu á heim- inum og lögum þeim,erhonum stjórna né heldur á þroskalögmáli efnis, sál- ar og anda, á eðli uppruna og ör- lögum mannanna, hverttakmark þeirra er og hv'ar veginn er að finna, er að því liggur. Það sem mannkyninu er þörf á er »vísindaleg trú«. Hún gæti orð- ið vlsindalegri þekkingu samferða á öllum þeim sviðum sem unt er, og víkkað sjóndeildarhring hennar og fullkomnað. Slík trú mundi verða þjóðfélagsfræðingum og stjórnmála- mönnum leiðarstjarna, vekja þá til frekari og árangursbetri rannsókna og blása þeim viturlegum og affara- sælum framkvæmdum í brjóst. Hún mundi veita einstaklingum heilbrigða skoðun á réttu framferði og gagn- taka hjarta hans með innilegustu lotningu og dýpstu trúartilfinningu, er honum yrði ljóst hversu dýrð- lega framtið hann getur átt í vænd- um. Vegna þessa verður alþjóð heims í fyrsta lagi að bera þá háleitu von i brjósti, að sátt og sameining kom- ist á með trúarbrögðunum. Og þessu verður unt að koma i kring, ef þeir sem hæzt standa í andleg- um efnum, gera sér æ gleggri grein þess, hver þau aðalsannindi eru, sem fólgin eru í öllum æðri trúarbrögð- um og alstaðar eru hin sömu, en vaxa upp úr hinu sem aðgreinir trú- arbrögðin og litlu eða engu máli skiftir. í öðru lagi er það von vor að bráðum ljómi, mitt á meðal vor, hið mikla leiðarljós, hann, sem einn getur hjálpað mannkyninu út úr þessari andlegu ringulreið, sem það er nú statt i og sameinað trúna og vísindin. Þvi að undir þvi er menn- ingarþroski vor kominn. Það þarf að renna upp nýtt ljós, ný opin- berun, það þurfa fram að koma ný trúarbrögð, sem í raun og sannleika eru vísindaleg og náð geta um allan heim. Og hann, eins og sá er vald hefir, getur einn boðað þessa trú á þann hátt er hæfir kröfum nútimans, hann einn getur krýnt hinar miklu hugsjónir fortíðarinnar og innblásið mannkyninu háleitari hugsjónum, heldur en nokkurn hefir enn þá órað fyrir. Ekki ætti að þurfa að geta þess, að þetta mundi að engu leyti rýra hinn fyrri boðskap Krists. í þvi er ekki annað fólgið en þetta tvent: að vera kann að kristindómurinn hafi glatað ýmsu af hinni upprunalegu kenningu, og aflagað margt í henni á umliðnum öldum, og að nú á tím- um verður að taka tvent til greina: hinar tröllauknu ýramýarir vísindanna 0% hið ndna samband milli allra hluta heimsins. Og sökum þessa ber eigi að eins nauðsyn til þess að grafa upp það sem glatast hefir, heldur og að oss birtist nýr sannleikur, sem trúin gat fremur án verið áður. Nú er það alsanna, að bróður- kærleikurinn er æ að verða sterkari með þjóðunum, þrátt fyrir alla sundr- ungu í trúmálum, stétta- og þjóða- rig. Þeim fjölgar sífelt, sem fúsir eru til þess að berja á andlegum hleypidómum og fórna jarðneskum gæðum mannkyninu til heilla. Nú á tímum ber mjög á hjálpfýsi manna; en henni er enn þá ekki beint í rétta átt, þvi að fyrirhyggjuna vantar. Sökum þess kemur hún oft að engu haldi. Það er og alsanna, að trúhneigðir menn úr ðllum trúarflokkum hneig- jast æ meir hver að öðrum, þrátt fyrir alla trúboðsviðleitni, sem í raun- inni má þó þakka þetta, þvi að viðkynnin á báðar hliðar skýra skiln- inginq og efla umburðarlyndið. Ljós vottur þessa er það, hversu Bahai- hreyringin og Guðspekifélagið eflist. En bæði þessi félög vinna að ein- ingu allra trúarbragða, og i þau er öllum frjálst að ganga, hverrar trúar eða þjóðar sem þeir eru. Enn er það alsanna, að ýmsir and- ansmenn úr flokki trúmanna og vís- indamanna eru farnir að eiga sam- leið á einu rannsóknarsviði vísind- anna. Gefið gaum að visindamönn- unum og hinum fáu forkólfum trú- arbragðanna, sem haldast i hendur að rannsóknum dularafla mannsand- ans og náttúrunnar. Gefið gaum að sálarrannsóknunum, sem bæði trúmenn og vísindamenn vinna nú að af kappi. Agætt er að þessu skuli þoka svo mjög áfram. Framh. Hvita mansalið. Mansalsmenn eru á þönum um allan heim til þess að ná í ungar stúlkur. Hafa þeir oft klófest dætur auðugra manna, þó hitt sé tíðara, að fátækar og umkomulausar stúlkur falli í hendur þeirra. Nýlega hefir horfið ung stúlka í New-York, Jessie Mc Cann að nafni og ætla menn að hún sé á valdi mansalsmanna. Faðir hennar er vell- auðugur kaupmaður og hefir hann heitið 3600 króna verðlaunum hver- jum þeim, er finnur stúlkuna eða get- ur gefið upplýsingar um það, hvar hún er niður komin. e ........ Æröfin'. í einhverri fegurstu götunni i borginni Toronto í Kanada, stendur tvílyft hús, úr rauðum múrsteini og hvítum sandsteini. Bæði að utan og innan er húsið hið snotrasta. Herbergin eru rúmgóð og björt, einkum þó það sem snýr að göt- unni. En þó er þetta hús nefnt »Gröfin« og er til þess þessi saga: Það eru nú mörg ár siðan að maður að nafni »Stóri Bill« bjó á þessum stað. En þá voru einungis bjálkahús i þessum hluta borgarinn- ar. Stóri Bill rændi sér ungri og fagurri konu og flutti hana heim til sín. En hann var fyllirútur hinn mesti og misþyrmdi henni á ýmsa lund. Einu sinni sáu nágrannar hans að hann ætlaði með valdi að ná af hönd hennar hring með græn- um steini, en hún formælti honum þá svo voðalega, að honum féll all- ur ketill í eld. Skömmu áður en hún dó, hét hún að hefna sín á hverjum þeim, sem dirfðist að trufla grafarfrið sinn. Stóri Biíl flýði vestur i skógana og var þar skömmu síðar drepinn af Yníánum. Löngu síðar var bjálkahúsið rifið og fann þá einn verkamaðurinn beinagrind af kvenmanni. A vinstri hönd var hringur með grænum steini og stakk finnandinn honum i vasa sinn. Einni stundu síðar féll skriða á manninn og drap hann. Fyrsti maðurinn sem í nýja húsinu bjó, hét Whitelow Green. Eftir tveggja mánaða dvöl þar, varð hon- um einn góðan veðurdag fótaskort- ur á húströppunum og rotaðist hann til dauðs. Sá er næstur kom var vélfræð- ingur Drawnee. Hann átti dóttur að nafni Mabel og var hún 19 ára gömul. Hún ætlaði einusinni að loka þar glugga, en féll þá dauð á gólfið. Læknirinn sagði banameinið hjartaslag. Adam Geszler umboðsmaður flutti nú inn i húsið. Einn morgun er hann vaknaði kendi hann lasleika nokkurs og sendi því konu sína til læknisins, en er hún kom heim aft- ur lá maður hennar dauður í her bergi því, er veit að götunni. Næstur dó þarna maður, sem nefndur var »Prince Charlie«. Hann drap sig á karbólsýru. Maður er nefndur James Marwell, og hafði áður átt heima i Buffalo. Hann var sá er næstur bjó i Gröf- inni. Fáum dögum eftir að hann flutti þangað kafnaði hann í svefn- herbergi sínu af gasi, sem streymdi út um gaspipurnar. Nú stóð húsið autt í marga mán- uði og fekkst enginn til að taka það á leigu. Þó kom að því, að þar kom maður, sem ekki kvaðst óttast drauginn. Hann hét William Reinard Scott, og var stór og sterk- ur maður og hafði aldrei kent sér neins meins. En skömmu síðar fekk hann slag og dó samstundis. Var hann sjöundi maðurinn í röðinni, sem dó þarna í húsinu. Nú stend- ur húsið í eyði, og eru litlar líkur til þess að nokkur vilji setjast þar að framar. Yindlarnir hans Edisons. Edison reykir ákaflega mikið og vindlarnir hans eru ágætir. En einu sinni hafði hann þó fengið sérstak- lega góða vindla og var kassinn inni á vinnustofu hans. Þjónarnir vissu um þetta, og áður en Edison varði höfðu þeir hnuplað nær öllum vindl- unum. Edison varð vondur, en sagði þó ekki eitt orð við piltana. Hann símaði einungis til tóbakssalans og bað hann að senda sér eins vonda vindla og hann gæti. Kaupmaður- inn sendi honum þegar vindla, sem lyktuðu svo illa þegar þeir brunnu, að ekki var líft i sama herbergi. Nokkru síðar símar Edison til hans aftur og spyr þvi hann fái ekki vindl- ana Kaupmaðurinn bregst ókunn- uglega við því, segist hafa sent hon- um vindlana þegar í stað. Nokkru siðar fann Edison kassann tóman inni í læstum skáp. Hann virti kassann fyrir sér nokkra stund og sagði svo brosandi: Nú, í þetta skifti hefi eg áreiðan- lega reykt þá sjálfur. Börnin á St. Thomas. Við manntal, sem nýlega hefir farið fram á Vesturheimseyjum, hefir það komið i Ijós, að 70 af hverjum 100 börnum, sem þar fæðast, eru óskilgetin. Meðal presta og and- legrar stéttar manna í Danmörku hefir þetta vakið gremju mikla. Fyrst höfðu menn hugsað sér að ráða bót á siðferði svertingjanna með því, að láta að eins skýra hjónabandsbörn í kirkjunni, en hin utan kirkju. Bisk- up Sjálands hefir samt ákveðið að ekkert slíkt ákvæði skuli koma til framkvæmda. Blaðamaður danskur, sem mjög mikið hefir ritað um Vesturheims- eyjarnar, skýrir svo frá, að ástæð- urnar fyrir þessum fjölda óskilget- inna barna liggi beint fyrir. »Fólk- ið er blóðheitt*, segir hann, »og’ stúlkurnar verða fegnar að hafa ein- hvern karlmann, sem gætir þeirra og gefur þeim i sig og á«. »En«, bætir hann við, »til þess er hjónaband eigi nauðsynlegt«. Ástin sigrar! Kona ein í New-York hefir nýlega orðið uppvís að þvi, að hafa myrt mann sinn og gert tilraun til þess að myrða 4 börn sín á eitri. Hafði hún í margar vikur byrlað þeim arsenik éí matnum; beið maðurinn bana af, er 3 vikur voru liðnar, en börnin liggja enn mjög þungt hald- in á sjúkrahúsinu. Þennan voðalega glæp framdi hún af ást til annars manns, sem hún síðar ætlaði að eiga. —

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.