Morgunblaðið - 03.01.1914, Side 2

Morgunblaðið - 03.01.1914, Side 2
292 MORGUNBLAÐIÐ Drátturinn nm Ingólfshúsið. Nr. 8665 var dregið. Hver er eigandinn? Biskupinn í Laufási. Það var fremur fáment, en góð- ment,á bæjarþingsstofunni í gærmorg- un, er drátturinn um Ingólfshúsið fór fram. Getur verið að færri en vildu hafi vitað hvenær þessi hátiðlega og margþráða athöfn átti að ske. Enn- fremur eigi ólíklegt, að menn alment hafi risið siðar úr rekkju í gær, en endranær, eftir strit og erfiði nýjársdagsins — heimsóknir og hvers- konar gleðskap. Drátturinn átti fram að fara kl. 10 og voru þá um 12 manns saman- komnir í bæjarþingstofunni, og sátu i röð meðfram veggjum stofunnar, hljóðir og vongóðir, eins og hver um sig byggist við að hreppa hnoss- ið. í huga margra Iásum vér eftir- væntinguna og á augnaráði sumra var auðséð, um leið og augun hvörfl- uðu úr einu horni stofunnar í annað, að þeir í huganum voru þegar farnir að flytja, með konu börn og alt sitt dót, í húsið sitt við Bergstaðastræti. Sumir sátu við stofugluggann í Ing- ólfshúsinu og horfðu á rauðar rósir og önnur fögur blóm í garðinum sem ylmuðu og skinu í sumarsólinni! Kl. varð 10V2 og enn gat drátt- urinn ekki farið fram — Ingólfsnefnd- in var enn ókomin. En hún gat sagt eins og maðurinn sem átti að hálshöggva — ekkert verður gert fyr en eg kem. Fyrir innan grindur sat bæjarfógeti Jón Magnússon og virtist hann hálf-óþolinmóður yfir biðinni. Kl. 10.40 kom nefndin og með henni Páll lögregluþjónn Árnason með miðakassann í fanginu. Bæjar- fógeti bað viðstadda ritstjóra og votta að athuga innsigli kassans — að eigi hafi hann verið opnaður eftir að »notarius« innsiglaði hann. Síðan var innsiglið brotið, Gils litla, syni Sigurðar fangavarðar, lyft upp á borð- ið, klútur bundinn fyrir augu honum og skyrtuermar hans brettar upp. Gils stóð við kassann nokkrar mín- útur. Dauðaþögn var i salnum og allra augu hvíldu á litla drengnum, sem fengið hafði það hlutverk, að gefa einhverjum góðum manni þessa sjaldgæfu nýársgjöf. Litla hendin leitar í kassanum. Hann er einhentur — önnur hend- in er máttlaus, og hefir verið það siðan hann var ársgamall. Einn miði er réttur bæjarfógetan- um og hátt og skýrt les hann upp: Númer 866j. Eigi var erfitt að sjá, að enginn viðstaddra manna átti þann miða. Geðshræringin var á enda, og um leið og vér gengum út úr hegning- arhúsinu heyrðum vér alla viðstadda varpa öndinní eins og létt befði verið af þeim þungu fargi — eins og væru þeir fangar, sem verið hefðu í »stein- inum« í fleiri mánuð’ og nú væru að losna þaðan. Hver á miðann ? spurðu allir. Og hvaða númer var dregið? Á fregnmiða Mor^unblaðsins, sem kominn var út um stræti bæjarins stundarfjórðungi eftir að dráttinum var lokið, gátum vér því miður'eigi svarað nema annari spurningunni. Nú vissi allur bærinn hvaða númer hafði verið dregið — en hver á miðann ? Allan daginn var simað til vor og vér spurðir hver ætti miðann. Kl. 4^/a sendi Morqunblaðið út annan fregnmiða og á honum stóð: Mið- ann nr. 8665 hefir biskupinn í Lauf- ási. Vér óskum biskupnum til ham- ingju með þessa óvæntu nýársgjöf. Vaqabundus. Símfréttir. Patreksfirði i %œr kl. 2 siðd. Skipstrand. Fyrir 4 dögum síðan strandaði hér við Kollsvík, nálægt Patreksfirði, brezkur botnvörpungur, »British Em- pire« frá Hull. Öll skipshöfnin bjargaðist, en mjög ólíklegt að skip- ið nokkurntíma náist út. Páll. Þegar er þetta skeyti barst til vor, spurðumst vér frekai fyrir um strand- ið. Björgunarskipið Geir hefir ver- ið kvatt vestur til þess að gera til- raun til að ná skipinu út. Geir fór vestur kl. 6 í gærkvöldi. — Patreksfirði í qœr kl. 6 siðd. Skipshrakningar. Hingað kom í dag botnvörpuskip brezkt, Emeralde frá Grimsby, brot- ið mjög í báðum hliðum. Hafði skipið verið við veiðar fyrir Vestur- landi og lent í ís. Skipið er lekt og bíður viðgerða. Páll. Is kvað nú vera nær landfastur við Bolungarvik. Afli dágóður þeg- ar á sjó gefur. Innbrotsþjófnaður. Brotist inn í Lækjartorgsbazarinn og stolið peningnm. Þegar Hjörtur Hansson kaupmað- ur kom ofan í búð sína, Lækjar- torgsbazarinn, í gærmorgun, sá hann þar vegsummerki, að einhverir höfðu verið þar miður kærkomnir gestir. Hafði verið brotist inn í búðina og stolið þaðan öllum þeim peningum, er í skúffunni voru, en það voru ca. 20 krónur í smásilfri og kopar. Var nú lögreglunni gert viðvart og kom hún að vörmu spori. Þjófurinn (eða þjófarnir) hafði fyrst farið inn í sundið á milli íslandsb. og klúbbhússins gamla, þar sem nú er Lækjartorgsbazarinn. A suður- hlið hússins eru margir gluggar og rúður stórar. Hafði þjófurinn fyrst ætlað að ná einni rúðunni úr, en i þeim svifum hefir brotnað neðri hluti hennar, og hefir hann þá skrið- ið bar inn. En ekki var hann nú kominn inn í búðina að heldur. Er þar geymsluklefi er hann kom inn og dyr þaðan inn í búðina, en þær voru harðlæstar og varð hann því þar frá að hverfa. Aðrar dyr eru rétt hjá og vita þær út í sundið á milli klúbbhússins og Nýhafnar. — Fyrir þeim dyrum er hleypiloka og hefir nú þjófurinn opnað dyrnar og farið þar út. Á norðurhlið hússins er gluggi með litlum rúðum, og er þar innri hluti búðarinnar. Þjófur- inn hefir nú brotið eina rúðuna í þeim glugga, og skriðið þar inn. Ekki segist Hjörtur sakna neinna muna úr búðinni, enda ekki gott að ákveða það að svo vöxnu tnáli. Lögreglan er nú farin að leita ó- dáðamannsins og spáum vér því, að þess muni skamt að bíða að Þor- valdur vísi honum veginn — í stein- inn. — Valdi. ■---■ DAGBÓEflN. C=3 Afmæli í dag: Bernhart F. Smidt vólstjóri Magnús Þorsteinsson, prestur Mosfelli. í dag byrjar 11. vika vetrar. HáflóS er í dag kl. 9.32 árd. og kl. 9.54 síðd. Sólarupprás kl. 10.21 árd. Sólarlag kl. 2.43 síðd. Gamlárskvöld. Mikið var um dýrðir hór í bænum þá. Veðrið var kyrt og milt og bærðist ekki hár á höfði. Klukkan sex var flestum búð- um lokað, en götustrákarnir hófti þá þegar »kínverja«-skothríð á aðalgötum bæjarins. Klukkan tólf voru allir, sem vetling gátu valdið, á kreiki og var krökt af fólki um allar götur, en flug- eldasýningar voru á hverju strái. Niðri á bryggju var samankominn múgur og margmenni að horfa á flugeldasýningar björgunarskipsins. Kvaddi »Geir« gamla árið með mörgum skotum, og heilsaði því nýja með löngu »pípi«. Þó þótti mönnum tilkomuminni við- höfn björgunarskipsins við þessi ára- mót en oft áður. Málleysingjaskólinn hafði og undur- fagrar skrautljósa-sýningar og er þær þraut, tók við Siggeir Torfason, en eldregnið dundi yfir allan Laugaveginn og næstu götur. Þá kom Jón Zoega og Bernhöft, báðir í Baukastræti, með fögur skrautljós og skot. En þar sem þröngin var mest voru drengir með »kínverja« og púðurkerl- ingar og skemtu sér við það, að gera fólkinu hvert við. Getur það oft verið gaman, en þó ætti ekki að leyfa nokkr- um manni að skjóta púðurkerlingum þar sem þröng manua er saman komin. Af því geta hlotist slys oft og tíðum, og slfkar »kerlingar« valda ætíð skemd- um á klæðum manna, brenna þau oft til óbóta. F 1 u g m . Veðrlð i gær: Reykjavfk, aust- angola, hitl 1.7. ísafjörður, norðvest- angola, frost 1.0. Akureyri, logn, frost 3.0. Grímsstaðir, logn, frost 8.0. Seyöis- fjörður. logn, frost 1.9. Vestmanna- eyjar, logn, regn, hlti 3.3. í Þórshöfn á Færeyjum, norðvestan- kul, hiti 7.3. M a r z seldi afls sinn (um 1000 körfur) í Hull f gær fyrir 497 sterl- ingspund. G e i r fór til Patreksfjarðar í gær kl. 6, til þess að reyna að bjarga botn- vörpungnum brezka, sem þar strand- aði. Force, fiskflutningsskip P. J. Th. & Co., sem strandaði á Fuglaskeri við Akranes um daginn, er nú sokkið. — Tekist hafði að ná úr skipinu 6—700 skpd. af saltfiski áður en það sökk. M i k i ð var um dýrðir á Austur- velli á Gamlárskvöld. Th. Thorsteins- son kaupm. hafði fengið lúðraflokkinn »Harpa« til þess að spila fyrir fólkið. Ennfremur voru þar flugeldar betri og fegurri en vór áður höfum sóð hér i bæ. Var Ijósunum komið fyrir á stóru hjóli, sem snúið var, en inu f miðju bjólinu gat að lesa Th. Th. Troðfult var af fólki kringum völl- inn, og var gerður hinn bezti rómur að þessari sjaldgæfu ljósasýningu hr. Thorsteinssons. Haraldur p r ó f e s s o r Níel s- s o n ætlar að flytja hið ágæta erindi um Helen Keller, hið sama sem hann flutti í Bárubúð síðastliðinn mánudag, fyrir Hafnfirðingum. Fyrirlesturinn verður haldinn í Fríkirkjunni á sunnu- daginn kl. 6 e. h. Sundkapparnir. Af þeim 6 mönnum, sem í þetta sinn tóku þátt í Grettissundinu, var að eius einn, er þreytt hefir sundið í hvert sinn, sem það hefir farið fram. En það er Sigur- jón Sigurðsson. Lögrétta. Meðritstjóri hennar er orðinn Einar skáld Hjörleifsson — að því er sagt er. Stjórnarráðið. Hagfræðisskrif- stofan hóf starf sitt í gær. For- stöðumaður hennar er Þorst. Þor- steinsson cand. polit.. en aðstoðarm. Georg Ólafsson cand. polit. Eins og kunnugt er hefir Þorst. gegnt starfa á 3. skrifst. stjórnarráðs- ins. í þá stöðu er nú skipaður af ráðherra Guðm. Magnússon prentari og skáld (Jón Trausti). Reynslu-hjónaband. Meðal Igorotte-Indiána í Norður- Ameríku tíðkast sá siður, að hjóna- band eigi er talið löglegt, fyr en báðir málsaðilar hafa í votta viður- vist lýst því yfir, að þau séu vel ánægð með sambúðina. Fyrst eru þau gift og búa saman í 3 mánuði. Þá koma saman allir heldri menn kynkvíslarinnar og spyrja hjónin hvernig þeim líki sam- búðin. Ef annaðhvort þeirra er eigi ánægt, þá skilja þau. — Oft hefir verið talað um það, hvernig koma eigi í veg fyrir hjóna- skilnað. Ef til vill gæti þessi venja Indíánanna, ef hún væri notuð, orðið til þess að bæta sambúð hjóna. En komið gæti það þá fyrir, að sama konan yrði »til reynzlu* á fleiri stöðum.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.