Morgunblaðið - 07.01.1914, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 07.01.1914, Blaðsíða 2
312 MORGUNBLAÐIÐ Samverjastarfið. Það bar við einhverntíma á miðri jólaföstu að góðkunningi minn og gamall reglubróðir, sem eg raunar hefi ekki tekið eftir að hafi neitt elzt síðan eg sá hann fyrst fyrir 17 eða 18 árum, lá andvaka í rúmi sínu — hefir ef til vill drukkið of sterkt kaffi á einhverju kaffihúsinu. Svefn- inn flýði hann, og hann kunni ekki neitt ráð við þesskonar, sem sé að hefja 7 upp í 7. veldi og þegar það dugar ekki, að fara þá líkt með ein- hverja hærri tölu. — Það voru aðr- ar vandaspurningar, sem komu í huga hans og þá meðal annars þessi: Hvað eiga templarar að taka á stefnu- skrá sína til viðbótar við verndun banniaganna ? — Eftir ýms heilabrot kom »Samaritanen« danski í hughans. Hafði hann á Hafnarárum sínum séð fátæklingana fara þangað hungraða en koma aftur sadda. Og annað- hvort var það hann sjálfur eða ann- ar maður honum nákunnugur, sem hafði séð Maríu kongsdóttur koma þangað með bróður sinn eða ná- frænda, biðja um 2 diska af hafra- graut, borða af þeim við hliðina á tréskóuðum förumönnum — og borga xo kr. fyrir hvern skamt. — ]á, þetta ættum vér templarar að gera, hugsaði hann, það er að segja, ekki að selja konungsbörnum fyrir 10 kr. diskinn, því að vér erum rétt að segja öll kongsbörn eða af kon- ungum komin einhverntíma endur fyrir löngu, en hitt er það: vér ætt- um templarar að gangast fyrir því að gefa fátæklingum hafragraut og eitthvað fleira, sem þeim má að haldi koma i harðindunum. Vér höfum nú í 30 ár verið að reyna að bæta kjör manna með því að fá £á tál að drekka minna, nú er kominn tími til að reyna að bæta kjcr ein- hverra með því að gefa þeim kost á að borða meira. — Eg gleymdi að spyrja hann að hvort hann hefði getað sofnað þegar þetta heillaráð var komið í huga hans. — Sennilegt þykir mér það samt. — Með því að hann var sjálfur i stjórn umdæmisstúkunnar hér i bæ, sneri hann sér til formanns hennar dag- inn eftir, og ekki latti hann það. Hann hóaði saman embættismönnum, eða réttara sagt framkvæmdarnefnd umdæmisstúkunnar. Ávarp var sam- ið, það sýnt ýmsum mætum borg- urum bæjarins, er flestir gerðust með- mælendur. Svo fóru gjafir að koma, og nú á að byrja á morgun kl. 10 árd. — Eins og kunnugt er, verða matar- veitingarnar i G.-T. húsinu uppi (í litla salnum), heitur matur borinn þar á borð i 3 stundir, frá kl. 10 árd. til kl. 1 siðd., ókeypis handa fátæklingum, fyrir 25 eða 30 aura handa þeim, sem eru með annan með sér, — og vitanlega er ekki bannað að taka upp seðlaveski og borga eins og kongsdóttir, ef ein- hvern efnamann langar til þess. Það er ómögulegt að fullyrða neitt um hvernig þetta muni takast; vér, sem höfum tekið starfið að oss, er- um reyndar ekki óvön að lita til fátækra, en óvön að hjálpa þeim á þenna hátt, og þá er það ekki siður nýbreytni fyrir fátæklingana. Aðal- atriðið er að full tiltrú sé á báðar hliðar. Þeir, sem við skort eiga að búa, láti tii sín heyra, eða að kunn- ugir leiðbeini þeim til vor, séu þeir óframfærnir. Letingjar láti ekki sjá sig, nema þeir hafi aura með. Því að okkar á milli sagt, er það veiga- mesta mótbáran, sem heyrst hefir gegn þessu starfi, að einhverjir let- ingjar eða nauða-sparsamir menn muni misbrúka góðgerðasemina, fylla sig á graut ókeypis, fara svo heim og liggja í bælinu þangað til farið verður að skamta hjá oss daginn eftir. Eg vona að þær spár rætist ekki, og fari einhver til þess, þá verði nógir til þess að hvísla því að oss, og fær þá sá maður engan graut framar, nema fyrir gallharða peninga. Hitt atriðið er vitanlega ekki síð- ur mikilsvert, að gjafirnar til starfs- ins haldi áfram. Það er komin góð byrjun, en samsvarar ekki nema svo sem 8—xo daga forða, ef að- sóknin verður mikil. Vér viljum komast hjá að fara með gjafalista um bæinn, og höfum hvorki spurt kvikmyndaleikhúsin hvort þau vildu ekki gefa oss ágóðann af einu eða tveimur kvöldum, né spurt viðskifta- vini þeirra, hvort þeir vildu nú ekki fara í »Bíó-bindindic fáeina daga, en láta inngangseyririnn fyrir mál- tíðir hanaa bláfátækum meðbræðrum sínum — en einhverjum hefir samt komið það í hug. — Við sjáum hvort þeir gera það ekki óbeðnir, — og ræðum svo frekara um starfið að mánuði liðnum. Siqurbjörn Á. Gislason. Kvikmyndaleikhúsin. Nýja Bíó sýnir í kvöld efnis- ríka og fjölbreytta myndaskrá. Er þar fyrst sýndar fegurstu landlags- myndir frá Indlandi, Sviss, Ítalíu og Svíþjóð. Bera þar fyrir auga mörg dásamlega fögur héruð, sérstaklega frá Sviss. Eru þær myndir undra líkar ýmsum íslenzkum héruðum. Næsta mynd er tekin í kolanámu og sýnir hvernig kolin eru höggvin og flutt á markaðinn. Einnig er þar góð lýsing á æfi námumannanna og hinum sólarlitlu dögum þeirra. Er þetta hin fyrsta lifandi mynd, sem tekin hefir verið neðanjarðar. Að síðustu koma »Erljend tíðindi« og er þar meðal annars sýndar nokkrar háskalegar reiðæfingar frá reiðskól- anum í Saint-Cyr. Yfirleitt má segja um dagskrá leikhússins að þar sann- ist á »Bíóið« það, sem um það hefir verið mælt: að það sé bezta og fjöl- skrúðugasta myndabók heimsins. Ces. Gamla Bíó. Það er fjölbreytt myndaskráin í gamla Bíó núna — ekki færri en fjórar myndir, hver annari betri. Fyrst er »Amatör«- myndasmiðurinn, saga minns sem einkis lætur ófreystað til að ná i góðar myndir. Lifandi fréttablað og ffótti frá fangelsinu, sem er mjög »spennandi« og að lokum »Búktal- arinni. Er það sagan af því hvern- ig vinur vor Bummy trúlofaðist, misti kærustu sina og náði í hana aftur. Geta menn hlegið sig dauð- þreytta er þeir sjá og skilja gang málsins. ----—..................■---- C=a DAGBÓIflN. »---------------» Afmæli í dag: Einar Einarsson skipstjóri. Jósef S. Húnfjörð. Sigurður Þorsteinsson verzlunarmaður. Sólarupprás kl. 10.17 árd. Sólarlag kl. 2.52 síðd. Háflóð er í dag kl. 12.53 árd. og kl. 1.31 síðd. Drengir handsamaðir. Eins og vér höfum getið um áð- ur hefir síðasta hálfa mánuðinn við við og við verið brotist inn í búðir hér í bænum og þar stolið einhverju litilræði af peningum. A sumum stöðum hafa tilraunirnar mishepnast, eins og t. d. í Smjörhúsinu á ný- ársdag, er þar var gerð tilraun til innbrots. Lögreglan hefir nú handsamað ó- dæðismennina og eru það.’drengir 2, héðan úr bænum, um 11 ára að aldri, sem báðir hafa áður gert sig seka í einhverjum smáafbrotum. — Þeim hefir verið komið fyrir í gæzlu- varðhald hjá fólki úti i bæ, og mega fyrst um sinn ekki búa í heimahús- um. Próf var haldið í málinu í dag og meðgengu báðir drengirnir syndir sínar, að þeir hefðu gengið í hús í þeim tilgangi að stela, sumstaðar stolið, og hefðu einnig verið í Smjör- húsinu í þeim erindum á nýársdag. Þorvaldur sótti annan drenginn í barnaskólann og fanst þá á stráksa kvenúr, sem stolið hafði verið úr húsi einu í Austurbænum nýlega. Hvort drengir þessir eru sekir að þjófnaðinum úr Edinborgarverzlun og Konfektbúðinni, vita menn eigi enn, en ólíklegt þykir það mjög. Carol. Lifandi grafin. Rússneskur bóndi misti konu sína í haust. En af því ekki var hægt að ná í lækni, varð presturinn að gefa dánarvottorð. Hann hikaði heldur ekki við það, og ráðlagði bónda að láta jarðsetja hana sem allra fyrst, svo líkið skyldi ekki rotna, því heitt var í veðri. Var nú gert eins og prestur lagði fyrir. En bóndi var þó ekki fullviss um það að konan hefði dauð verið og fekk nokkru síðar leyfi yfirvaldanna til þess að mega grafa hana upp aftur. Voru þar margir viðstaddir. En er kistan var opnuð blasti við þeim svo hryllileg sjón, að orð fá naumast lýst. Konan hafði raknað við i kist- unni og dáið þar skelfilegum kvala- dauða. Hún hafði í æðinu nagað alt kjötið af höndum sér svo ekki var annað eftir en beinin; hárið hafði hún reitt af höfði sér, og lá það í flyksum í kistunni. Og auk þessa hafði hún stungið augun úr höfði sér. Allir stóðu sem þrumulostnir er þeir sáu þessa hrygðarsjón, og mundi bóndi hafa viljað gefa mikið til að hann hefði ekki grafið konuna upp. Augnlækning ókeypls kl. 2—3 í Lækjargötu 2. VeðriS f gær: Rvik: a. kul, frost 4.2. ísafj.: logn, frost 7.2. Ak.: n. n. v. andvari, frost 8.5. Gr.: v. s. v. andv., heiðskírt, frost 12.0. Sðf. s. v. andvari, frost 2.4. Vm.e.: logn, frost 4.2. Þórsh., F.: norðankaldi, snjór, frost 0.3, Auðnupeningar. Fyrir nokkr- um dögum kom unglingspiltur Inn á flkrifstofu Morgunblaðsins og vildi hitta ritstjórann. Hann kom með 2 krónu pening og bað oss að koma hon- um til Heilsuhælisins. Sagðist hann hafa fundið hann í fórum sínum, er hann las hina ágætu sögu Guðmundar landlæknis í jólablaði Morgunblaðsins. H e i 1 s u h æ 1 i ð. Maður nokkur kom i fyrradag til landlæknisins og lagði 4 auðnupeninga á borðið. Hann bað landlæknirinn taka við þessari litlu gjöf til Heilsuhælisins — og þaufc svo út, án þess að láta nafns síns getið. Þetta var fallega gert. Skúli fógeti kom í gær frá Bretlandi. Snorri Sturluson kom í gær frá Grimsby. Dáinn. A Vífilsstaðahælinu dó gær Jón Jónasson, fyrrum ritstjórí Fjallkonunnar og skólastjóri við barna- skólann í Hafnarfirði. Jón heit. lá lengi á hælinu mjög aðfram kominn af tæringu. Skautafólagið: Spádómur vor og vinnumanna bæjarstjórnarinnar, sem vór gátum um í gær, hefir rætzt. Þegar búið var að ausa Austurvöli vatni í gær, kom rigningin og eyði- lagði svellið. Botnvörpungurinn Earl Hereford kom frá Bretlandi í gærkvöld. Farþegi um borð var Geir Thorsteins- son kaupmaður. Skipið hafði fengið fremur ilt veður í hafi. J ólagleði fyrir fátæk gamalmenni hélt Thorvaldsensfóiagið i Iðnó í gær. Hófst skemtunin kl. 5 síðd. með mið- degisverði, sætsúpu og nautakjöti. Síðan var leikið á lúðra fyrir fólkið, sem annars skemti sór við dans, spil- um og öðru. Kaffiveitingar með sæta- brauði voru tvisvar um kvöldið. Alls voru boðin um 260 gamalmennl á jóla- Þrettándinn. Umferð var með mesta móti um götur miðbæjarins i gærkvöldi. Mikill gauragangur í Aðal- stræti — og óhemju af púðurkerling- um skotið.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.