Morgunblaðið - 16.02.1914, Síða 2

Morgunblaðið - 16.02.1914, Síða 2
496 MORGUNBLAÐIÐ JB&iga 3 herbergi samliggjandi, íneðri hæð hússins í Kirkjustræti io, (nú skrifstofur borgarstjóra), fást til leigu frá 14. mai þ. á. Semja ber við Kristján Þorgríms- son. ist fiskur um hrygg á skömmum tima. Stofnendurnir voru fremur fáir. En í október 1913 voru félagsmenn orðnir um 15 þúsund, samkvæmt skýrslu aðalritara félagsins prófess- ors E. A. Wodehouse’s. í félaginu eru menn úr flestum stéttum mann- félagsins og nálega af öllum þjóð- flokkum: fjöldi þjóðkirkju- og utan- þjóðkirkjupresta, doktorar, læknar, herforingjar, verkfræðingar, kaup- menn, iðnaðarmenn, verkamenn, að- alsmenn o. s. frv. Hér yrði of langt mál að skýra frá rökum þeim er félagsmenn færa fyrir máli sínu; ef til vill verður siðar gerð nokkur grein fyrir því í þessu blaði. En benda má á nokkr- ar bækur, sem komið hafa út um þetta efni t. d. »The Changing world« (Tidskifte), »The immediate Future* (Den nærmeste fremtid) o. fl. Þeir sem æskja frekari upplýsinga um »Stjörnuna í austri* geta snúið sér til frk. Aðalbjargar Sigurðardótt- ur á Akureyri, Jakobs Kristinssonar stud. theol. eða Ludvigs Kaaber’s konsúls i Reykjavik. Smávegis. Miðstöðvarhitun. Þess mun naumast verða langt að bíða, að stórborgirnar fari að taka upp þann sið, að leiða hitann hús úr húsi eins og nú er t. d. leitt gas, vatn og rafmagn. Það þykir nú tillölulega dýrt að hafa miðstöðvar- hitun i hverju húsi, þvi gæta þarf ofnsins dag og nótt og það kostar of mikla vinnu. Hafa nú þegar verið gerðar tilraunir í þá átt víða um lönd að leiða hitann um langa vegu og hefir árangur þess orðið ágætur. Það sem mestu varðar er að þannig sé frá rörunum gengið að ekki fari of mikill hiti til ónýtis. í Ameríku grafa menn rörin 1 % meter niður í jörðina og eru þau vel vafin með Asbest og pappír. í Harrisburg er hitaleiðslustöð með 8 gufukötlum og eru hitaleiðslurörin 5000 metrar á tengd og 7%—30 cm. á vídd. í St. Joseph i Banda- ríkjunum hafa menn tekið gufu þá, er fór til ónýtis á rafmagnsstöð nokk- urri, leitt hana 1600 metra veg og látið hana hita þar upp mörg hús. Amerískir blaðamenn eru álitnir lævisustu blaðamenn i heimi, enda fekk heimskautsfarinn Shackleton að kenna á því. Hann fór með skipinu Mauretania í fyrir- lestraför til Ameríku og á leiðinni hélt hann fyrirlestur um heimskauts- ferð sína fyrir farþegana. Þegar skipið kom til Ameriku, kom heill hópur af blaðamönnum á móti Maure- tania til að ná tali af Shackleton. En til þess að koma í veg fyrir það að þeir næðu tali af farþegum og þannig næðu efni fyrirlestra þeirra, sem hann ætlaði að halda víðsvegar í Ameríku, bauð hann öllum blaða- mönnunum til góðs morgunverðar og byrjaði að skýra frá ferðum sín- um. Blaðamennirnir fundu fljótt að hér var ekki alt með feldu og að verið var að gabba þá. Létu þeir þó á engu bera og hraðrituðu hvert orð er hann sagði. Þegar komið var að kaffinu, fekk einn þeirra, Vilh. Heydrik, merki um að finna upp eitthvert ráð, þvi í svona mál- um vinna allir fyrir einn og einn fyrir alla. Þegar búið var að kveikja í vindlunum, skreið hann undir borð- ið og út á þilfar, án þess að Shack- leton yrði þess var og náði greini- legri skýrslu af fyrirlestri hans hjá farþegunum. £n á meðan sátu hinir blaðamennirnir rólegir og skrifuðu upp lygasögur þær, sem Shackleton sagði. Hann var mjög hreykinn yfir bragði sínu, en brá heldur i brún, þegar hann las fyrirlestur sinn i öll- um kvöldblöðum New-Yorkborgar. Frá útlfindum. SíldveiBi í SvíþjóB. í fyrra mán- uði veiddu Svíar undan Skaganum 70 þús. hektolitra af sild og var verðið á hverjum hektoliter, er sild- in var seld, 7—15 krónur. Sama daginn veiddust i Gautaborg 50 þús. hektolitrar af síld og var verðið þar 15—20 krónur hektolitirinn. Laglegur skildingur. Mál hefir verið höfðað móti forstjórum St. Louis og San Francisco bankanna, sem urðu að hætta viðskiftum sín- um fyrir nokkru. Málfærslumennn- irnir heimta það að þeir greiði bönk- unum 14 miljónir dala. iárnbraut í Alaska. Þingið í Washington hefir samþykt með 46 atkvæðum gegn ié, að leggja járn- braut í Alaska á 1000 mílna svæði. Kostnaður má þó ekki fara fram úr 40 milj. dala. MorBvargurínn þýzki, Wagnerskóla- kennari, sem áður hefir verið getið hér í Mbl., hefir nú verið rannsak- aður af geðveikralæknum og álíta þeir hann að öllu leyti sakbæran. Hann verður því að bera ábyrgð á illverkum sínum, sem ekki eru lítil; það eru 5 morð í Degerloch, 10 morð og 10 morðtilraunir i Míihlhausen og loks 9 áformaðar íkveikjur. Bíð- ur hann nú dóms sins. Ulfar hafa ekki sést í manna minn- um i nánd við St. Pétursborg, fyr en nú í síðasta mánuði að frost og snjóar hafa flæmt þá alveg upp að bænum til að leyta sér bráðar. Bænd- ur all margir fóru i hópum til bæ- jarins með sleða fulla af kjötvörum; alt í einu tóku hestarnir að tryllast og urðu bændurnir þess fljótt varir að á eftir þeim voru stórir flokkar af úlfum, sem altaf komu nær og nær,þó hestarnir væru á harða spretti og byssuskotin dyndu á úlfunum. Urðu bændurnir að kasta út til þeirra heilum nautsskrokkum til að kom- ast undan óvættum þessum. Bankarot i Mexikó. Eftir því er skeyti herma, hefir stjórnin i Mexi- kó séð sér þann kost vænstan að stöðva um 6 mánaða skeið innborg- anir sinar á ríkisskuldarentum. En jafnframt því skuldbindur stjórnin sig til þess að svara skaðlausri greiðslu allra skulda og ber því við, að þetta fyrirkomulag sé nauðsynlegt til þess að hún geti trygt frið í landinu. Snjór i Madrid. I fyrra mánuði voru kuldar miklir i Madrid á Spáni og fannkyngi óvenjuíeg. A öllum vegum lágu stórir skaflar og urðu vagnar allir að hætta umferð aðrir en bifreiðar. Hálkan var þar engu minni en hér í Reykjavík og féllu á einum degi 36 menn á strætin og limlestust válega. Nokkrir frusu i hel. Svíar í Berlín. Svíar þeir, er bú- settir eru í Berlin, héldu nýlega stórt landvarnarþing. Margt var þar jafnaðarmanna og héldu þeir fast fram landvarnarkröfum Svia, ekki síður en aðrir. Var þar aðeins einn ræðumaður á mó'i mörgum og var fundarályktunin á þá leið, að fund- urinn félst á tillögu Staafs, en skaut þó máli því undir konung og ósk- uðu þess, að séð yrði um það, að herinn sænski fengi þær æfingar, er honum væru nauðsynlegar að dómi þeirra manna, er mest hugsuðu um það mál. =3 DAGrBÓE^IN. Afmæli í dag: Anna Einarson, húsfrú. Magnús Pálsson, verzlunarm. Sólarupprás kl. 8.24 árd. Sólarlag kl. 5 siðd. HáflóS er í dag kl. 9.21 árd. og".kl. 9.49 sfðd. Veðrið í gær: Rvík n.a. kul, frost 2.3 íf. n. hvassviðri, frost 4.8. Ak. n, gola, snjór, frost 6,3. Gr. v.n.v. gola, snjór, frost 10.0. Sf. n. gola, frost 3.5. Vm. logn, frost 0.4. Þh. F. v.n.v. kul, hiti 3.1. Forvaxtalækkun. Oss láðist að geta þess í gær, er talað var um forvaxtalækkun Landsbankans, að ís- landsbanki lækkar einnig sína forvöxtu niður í 5V2%. En þrátt fyrir þetta verða sparisjóðsvextir hinir sömu og áður í báðum bönkunum. Leikfélagið hefir undanfarin 2 kvöld sýnt »Æfint/ri á gönguför«, fyrir troöfullu húsi. — Leikur þessi fer mjög vel á leiksviði, er svo lífgandi og hress- andi og samspll leikenda svo afbragðs- gott, að hver sá, sem ekki skemtir sór, hl/tur að vera steingjörfingur. í fyrravetur var leikur þessi leik- inn 15 sinnum í röð og altaf fyrir fuilu húsi. Nú verður hann leikinn að eins nokkrum sinnum vegna for- falla eins leikandans. Leiknum var hrósað mjög i blöðum bæjarins síðast- liðinn vetur og á hann nú, eins og þá, sama lof skilið, enda var honum bæði kvöldin tekið með dynjandi lófa- taki. Leikritið verður sýnt aftur á fimtudag, Skíðamenn bæjarins notuðu mik- ið góða veðrið og skíðafærðina í gær,- Fjöldi ungra manna fóru á skíðum um göturnar og upp fyrir bæinu. B r e z k u r botnvörpungur, »Tri- bune« frá Grimsby, kom hingað í fyrra- dag. Skipið fór aftur á fiskiveiðar í gær. »Earl Herefnd« kom af fiski- veiðum í fyrradag og hafði aflað tæpar 1000 körfur. Skipið fer til Bretlands með aflann. Botnia fer til Austurlands og út- landa í dag kl. 6. Með skipinu taka sór fari Jón Jónsson dócent, frú Flora Zimsen, Ólafur Arnason kaupm., Guðm. Guðmundsson kaupfólagsstj. frá Eyrar- bakka. — Frá Austurlandi fara Jón Arnesen verzlunarstj. og kona hans, ennfr. Stefán Guðmundsson kaupm. V e 8 t a var ókomin til Borðeyrar í gær kl. 5, Kvað vera á Hvamms- tanga ennþá. Kong Helge fór frá Brétlaudi á föstudaginn áleiðis til Bvíkur, hlað- inn kolum til Björns kaupm. Guð- mundssonar. Hóðan fer skipið til Vest- urlands og tekur þar fisk fyrir P. J, Th og Co. — það sem Force átti að taka. En það er um 1500 skpd. Tilraunakosningu Sjálfstæð- ismanna var lokið á Laugardag. Var kosið leynilega, eins og við reglulegar alþingiskosningar. Fékk Sveinn Björns- son yfirdómslögmaður % en Sigurður Jónsson Y2 allra greiddra atkvæða. Sveinn Björnsson er nú erlendis og var honum þegar sent skeyti um ár- angur kosningarinnar. Svaraði hann aftur og kvaðst mundi bjóða sig fram til þingmensku fyrir Reykvíkinga. Verða þeir því l kjöri af Sjálfstæðis- manna hálfu, Sveinn og Sigurður. Ekkert hefir enn frózt um það hverj- ir muni gefa kost á sór fleiri. Hafa Fram-menn og Þjóðreisnar-menn ekkert látið uppi um það enn, hver fulltrúa- efni þeir muni velja sór.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.