Morgunblaðið - 03.03.1914, Page 1

Morgunblaðið - 03.03.1914, Page 1
Þriðiudag 1. argangr 3. marz 1914 HOBfiDNBLADID 119. tðlublað Ritstjórnarsimi nr. 500| Ritstjóri: Vilhjálmut Finsen. [ísafoldarprentsmiðja|Afgreiðslusími nr. 140 Biografteater Reyb j avtkur. Bio Konusæmd Astarsjónleikur í 3 þáttum. í aðalhlutverkunum: Einar Zangenberg. Edith Psilander La Rocbello (náttúrumynd). Skrifsfofa Eimskipaféíags Ísíands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Tals. 409. Notið sendisvein frá sendisveinaskrifstofunni. S i m i 4 4 4. Bíómsfurfræ, JtJatjurtafræ, nr Georginer, xanunkler, Bnemoner. M. Hansen Lækjarg. 12 A (uppi bakdyramegin). Hringurinn. Fundur á venjulegum stað og tíma. Stjórnin. Kosningaskrifstofa Sjálfstæðismanna i Templarasundi 3. Opin ® kl. 5-—8 siðdegis. ® Minningarsjóður Björns Jónssonar. Tekið móti gjöfum í skrifstofu og bókverzlun ísafoldar, pappírsverzlun- inni Björn Kristjánsson og verzlun íóns frá Vaðnesi á Laugavegi. Stjórnarbreyfing í Svfþjóð. í Svíþjóð eru, eins og í öðrum ríkjum, þar sem er þÍDgbundin kon- ungsstjórn, tveir aðal-stjórnmáiaflokk- ar: frjálslyndi flokkurinn og íhalds- flokkurinn, og við síðustu þingkosn- ingar varð frjálslyndi flokkurinn ofan á og myndaði hann þá líka ráðuneyti konungs, en forseti þess hét Staaff. Landvarnarmálið hefir verið ofarlega á dagskrá í Svíþjóð á seinni tímum og á það að nokkru leyti rót sína að rekja til þess, að Rússar þykja hafa orðið uppvísir að því að halda njósnarmenn í Sviþjóð til þess að kynnast hervörnum Svía á landamær- unum að austurenda, og að margir eru hræddir um, að Rússar muni ágirnast lönd þau í Sviþjóð, sem liggja Rússlandi næst, enda hafa ýms- ar æsingar gerst í Svíþjóð út af þessum beig af Rússum, sem land- könnuðurinn Sven Hedin hefir átt allmikinn þátt í að koma á stað. Annars hafa utanríkisráðherrar Svía, úr báðum stjórnmálaflokkum, ávalt fylgt því fram, að Svíþjóð eigi að vera að öllu leyti hlutlaus af öllum ófriði milli annara ríkja, og þó að ýmsir íhaldsmenn hafi mælt með því að efla hervarnir, þá er það alls ekki í því skyni að hefja ófrið, heldur aðeins til að verja hlutleysi sitt. Staaff ráðuneytisforseti hélt ekki alls fyrir löngu ræðu í Karlskrona, þar sem hann skýrði frá fyrirætlun- nm stjórnarinnar í landvarnarmálinu, og þótti ýmsum, einkum íhaldsmönn- um, stjórnin ætla að gerast helzt til smátæk í þeim efnum. Bændur } Svíþjóð eru flestir ihaldsmenn, og þeim sér i lagi mislíkaði fyrirætlan- ir stjórnarinnar í hermálinu og vildu gera meiri gangskör að hervörnum. Maður er nefndur Uno V. Nyberq, bóndi á Tiundalandi í Svíþjóð; hann gekst fyrir þvi, að skora á bændur um alla Svíþjóð til þess að fara á fund konungs og tjá honum vilja bænda i landvarnarmálinu, og var áskorun hans tekið svo vel, að 3100 bændur úr öllum fylkjum í Sviþjóð söfnuðust saman i Stokkhólmi fimtu- daginn 5. febrúar þ. á. til þess að ganga á fund konungs, votta honum hylli sina og bera fram fyrir hann óskir sínar um hervarnirnar. Auk þess voru 4000 bændur, sem senda skriflega yfirlýsingu um, að þeirværu samþykkir framsögumanni bændaleiðangursins, og loks flokkur manna af öðrum stéttum, sem létu lýsa þvi yfir fyrir sina hönd, að þeir væru á sama máli og bændurnir. Öllum bændaflokknum var útvegað húsnæði og viðurværi, og daginn eftir, föstudaginn 6. febrúar, var strax um morguninn hringt öllum kirkju- klukkum borgarinnar og hlýddu bænd- urnir fyrst tíðum i ýmsum kirkjum í Stokkhólmi og gengu síðan í fylk- ingu til hallar konungs, Þar var reistur pallur, og stóð konungur og drotning og alt skyldulið konungs þar uppi, þegar bændaliðið brunaði þar að; höfðu sænskar konur saum- að dýrðlegan fána, sem þær gáfu bændunum og var hann borinn á undan fylkingunni. Þegar bændurn- ir höfðu skipað sér i hallargarðinum kvað við lúðrahljómur og sungu bændurnir kvæðið: »Ur svenska hjártans djup engáng*. Gekk sið- an fram áður nefndur sjálfseignar- bóndi Uno Nyber%, hár maður og þrekinn, og ávarpaði konung og sagði, að nú væri um það að ræða að vernda frelsi og sjálfstæði þjóð- arinnar og bændurnir leituðu þvi á konungs fund til þess að láta hon- um i ljósi óskir sínar og vonir um að vörnum landsins yrði skipað svo, að land það, sem forfeðurnir hefðu yrkt, yrði verndað handa niðjunum, svo að þeir gætu notað það eftir- leiðis í fullu frelsi. Bað hann kon- unginn að vera þess fullvissan, að bændur væru reiðubúnir til að leggja til herliðs og flota alt það, sem skyn- berandi menn teldu nauðsynlegt, og óskuðu þeir, að landvarnarmálinu væri að fullu og öllu ráðið til lykta þegar í ár. Var konungi síðan feng- inn i hendur kvennafáninn til minn- ingar um daginn, og var hann reist- ur upp á pallinum. Tók þá konungur til máls, og kvað ekkert geta verið dýrmætara fyrir sig, en að heyra af vörum þjóð- arinnar yfirlýsingu hennar um fús- leika hennar til að láta honum í té trygga stoð i því, að fullnægja hin- um oft þungu konungsskyldum hans. Hann fullvissaði þá urr, að hann mundi ávalt fylgja fram sannfæringu sinni um það, hvað væri rétt og nauðsynlegt að gera til að vernda sjálfstæði rikisins, og lofaði, að hann skyldi ekki bregðast þeim. Kvaðst hann vera bændunum sammála um, að landvarnarmálinu eigi að skipa fyrir i einu lagi og tafarlaust, og að hann héldi fast fram þeim kröfum um vígbúnað herliðsins, sem skyn- bærir menn teldu óhjákvæmanlegar; þyrfti því að lengja æfingartíma hinna varnarskyldu og ekki að eins halda við, heldur auka flotann. »Almátt- ugur guð, sem hingað til hefir hald- ið verndarhendi sinni yfir Sviþjóð, hann varðveiti land vort og þjóð vora nú og framvegis. Guð blessi yður alla. Lifi vort ástkæra föður- land. Lifi Sviþjóð*. Laust þá upp fagnaðarópum, sem aldrei ætlaði að linna, þangað til konungur gerði bendingu með hend- inni og sagði blátt áfram: »Eg þakka yður öllum fyrir komuna*. Um hádegi sama dag áttu 10 full- trúar bændaliðsins tal við stjórnar- ráðið fyrir framan Kansellíið, og hafði Tráff sjálfseignarbóndi orð fyrir þeim. Hann brýndi fyrir Staafl, að bændur teldu landvarnir Sviþjóðar, eins og þær væru nú, ónógar, að þeir vildu að landið verði frjálst og öllum óháð nú eins og að undan- förnu, að þeir vildu, að allir vopn- færir menn væru notaðir til land- varnar, að þeir vildu, að herliðið gæti staðið í stórveldi, ef til þess kæmi, að þeir vildu að flotinn yrði tafarlaust efldur, að þeir vildu, að eingöngu væri farið eftir því, sem skynbærir menn teldu rétt, og að landvarnarmálinu væri ráðið til lykta í ár. Kvað hann bændur búast við að landstjórnin léti í té öfluga og ljósa forustu til þess að ráða land- varnarmálinu til farsællegra lykta fyrir framtíð rikisins, og lofuðu þeir á móti að taka upp á sig allar þær byrðar i mönnum og fjármunum, sem landvarnirnar þörfnuðust, enda mætti landstjórnin eiga vist, ef hún réði landvarnarmálinu til lykta, eins og hér er bent á, að fá alvarlega og öfluga stoð hjá mönnunum úr bænda- förinni. Staaff svaraði að það væri vita- skuld, að stjórnin, sem væri af al- efli að undirbúa uppástungur til gagn- gerðra bóta á landvörn ríkisins, kynni að meta og yrði fegin að þiggja þá stoð, sem er fólgin í yfir- lýsingu mikils mannfjölda, um að hann sé fús á að bera auknar byrðar fyrir landvörnina. Kvaðst hann vona, að þegar stjórnarfrumvarpið væri fullsamið, mundi það koma í ljós, að vér með von um góðan árangur, gætum varið oss — og til annars en varnar væri herlið vort ekki fall- ið — á móti hverjum þeim, sem vildi leita á oss. Um eitt atriði í ræðu framsögumannsins: að ráða ætti landvarnarmálinu til lykta á þann hátt, sem skynbærir menn teldu rétt vera, vildi hann taka fram, að það væri sjálfsagt að leita skýrslna hjá skynbærum mönnum, en ef bændur ætluðust til, að skoðanir þeirra ættu einar að ráða úrslitum, þá gæti hann ekki verið því sam- þykkur, því þó sjálfsagt væri að veita skoðunum skynberandi manna fult athygli, mætti stjórnin ekki afsala sér rétti sínum og skyldu til þess að 3æma sjálf og prófa. Annars kvaðst hann vilja nota tækifærið til að vara menn við að trúa öllurn sögum, sem gengju fjöllunum hærra um útlenda njósnarmenn og um lið- safnað við landamærin, alt þetta væru mestu ýkjur, sem ekki mætti trúa. Að lokum mælti hann með innileg- um orðum fyrir velfarnan fóstur- jarðarinnar. Niðurl. næst.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.