Morgunblaðið - 03.03.1914, Qupperneq 2
MORGUNBLAÐIÐ
564
árlega útsala
hefst í næstu viku.
Frá útlöndum.
Landgreifinn af Hessen, sem einu
sinni ferðaðist hér á landi og alment
var kallaður iblindi prinsinn«, dvel-
ur um þessar mundir í Lundúna-
borg. Þótt hann sé fæddur blindur,
hefir hann ferðast mjög mikið um
sína æfi og segja kunnugir, að erfitt
sé að sjá á honum, að hann sé blind-
ar. Hann er söngelskur mjög og
hefir jafnan í för með sér nokkra
framúrskarandi hljómleika- og söng-
menn. í leikhús fer hann oft og
skemtir sér ágætlega, þó ekkert sjái
hann af því, er gerist á leiksviðinu.
Nýlega féll fiugvél til jarðar suður
á írlandi og týndi flugmaðurinn lífi
sínu. Hann hét Arthur og var auð-
ugur mjög.
Erfðaskrá hans var opnuð í Dub-
lin á írlandi nýlega og kom þá í
ljós að hann hafði unnað hugástum
14 ára gamalli stúlku, undurfagri.
Mynd hennar fanst á líkinu, en eigi
kom ættmönnum hans til hugar, að
hann ætlaði að gefa henni eigur sín-
ar allar eftir sinn dag. En það gerði
hann. Erfðaskráin sagði svo fyrir
að hún skyldi eignast allan auð hans,
en það voru um 300 þús. kr. Mynd
þeirra sést í glugga Mbl.
Ræningjar réðust nýlega á járn-
brautarlest nálægt Washington. Drápu
þeir 3 menn, sem eigi vildu láta af
hendi peninga sína, rændu síðan
hitt fólkið alt — og hlupu svo af
iestinni.
Róstur á þingi Japana. Um mið-
jan fyrra mánuð var á þingi Japana
rætt um skattalöggjafar frumvarp
fyrir landið, og voru menn þar ekki
á eitt mál sáttir. Urðu mótstöðu-
menn frumvarpsins all-háværir og
gerðu þingspjöll. Lá við sjálft að
allur þingheimur lenti í áflogum, en
einn þingmaður mölbraut atkvæða-
kassann í bræði sinni.
Síðar um kvöldið réðist einn af
mótstöðumönnum frumvarpsins inn
í herbergið þar sem skattanefndin
sat á rökstólum og barði svo óþyrmi-
lega á einum nefndarmanninum. að
flytja varð hann í sjúkrahús. En
óróaseggurinn var settur í varðhald.
Skóverksmiðja brann í Glasgow
15. febiúar. Er skaðinn metinn hálf
miljón króna, en 15 þúsund verka-
menn mistu atvinnu sína við brun-
ann.
Verkfalli sjómanna og hafnarmanna
á Spáni, er nú lokið á þann veg
að vinnuveitendur urðu að lækka
seglin.
Tyrkir fá fé. Banquet Perrier í
Paris, hefir lánað Tyrkjum 150 þús.
tyrknesk pund. Var það þá fyrsta
verk stjórnarinnar tyrknesku að greiða
embættismönnum sinum laun þeirra.
Á þingi Þjóðverja hefir nú verið
rætt allmikið um það er Amundsen
var bannað að halda fyrirlestra sína
á norsku í Flensborg. Vita flestir
þær tiltektir og þykir, sem og er,
landinu litill sómi ger með þeirri
ráðstöfun. Telja þær þrjár ástæður
sýna það, að bannsins hefði ekki
verið þörf, i fyrsta lagi að þetta var
fyrirlestur vísindalegs efnis en ekki
politískur, í cðru lagi að engin ástæða
hefði verið til að ætla það að Amund-
sen væri Þjóðverjum andvígur í
hugsunarhætti og i þriðja lagi væri
norskan ekki svo lik dönskunni, að
hætta gæti stafað af því að Suður-
Jótar heyrðu mælt á því máli.
Berklaveiki á Lapplandi. Norð-
menn eru mjög hugsjúkir yfir því
hve berklaveiki breiðist óðfluga út
á Lapplandi og hafa nú nýlega sett
nefnd til þess að rannsaka ástæður
þess og koma með uppástungur um
einhver hjálpráð.
Hefir nefnd þessi nýlega lokið
starfi sínu og sent þinginu álit sitt.
Aðalorsökina til þessa þjóðarmeins,
kveður hún vera ill og ónóg húsa-
kynni. Búa Lappar eingöngu í
torfhreysum þeim, sem nefnd eru
gammar. Er þar moldargólf og eru
menn, kvikfénaður, heyforði og bús-
hlutir víða hvað innan um annað,
því ekki er verið að skifta kofum
þessum í sundur með skilrúmum
Gluggar eru þar engir, eða þá alveg
ófullnægjandi og engtn rúm. Verð-
ur því fólkið að sofa á gólfinu.
Tillögur nefndarinnar eru þær, að
bændum sé veitt fé að láni til þess
að reisa sér sæmileg húsakynni og
að reist verði að minsta kosti þrjú
heilsuhæli í landinu.
Berserksgangur. Undirforingi nokk-
ur frá Þelamörk í Noregi Steinólfur
Dale að nafni, skaur í fyrra mánuði
mann nokkurn til bana og hét sá
Jóhannes Knudsen Vik.
Dale kom heim að nóttu til og
var ölvaður. Varð hann afarreiður,
er maturinn var ekki á borðiuu
handa honum og er Jóh. Vík svar-
aði honum, varð hann enn reiðari
og kastaði leirtaui í höfuð hins, þar
sem hann lá í rúmi sínu. Reis þá
Vík á fætur og tók í lurginn á
honum svo eftirminnilega að hann
lofaði bót og betrun og gekk því
næst inn á herbergi sitt, sem var
uppi á lofti. í húsinu voru 8—10
leiguiiðar og heyrðu þeir allir að
Dale hleypti skoti úr skammbyssu
og þaut síðan niður stigann. Heyrð-
ust þá enn 3 skot. Hélt hann
svo áfram niður í stofu. Voru þar
fyrir fjórir til fimm menn. Miðaði
Dale þá byssunni i hópinn og skaut.
Varð fyrir Jóh. Vik og féll hann
þegar dauður niður. Annan mann
hitti kúlan einnig í hægri hendina.
tók hún af einn fingur og braut
annan.
Var nú þegar sent eftir lækni og
fógeta. Daginn eftir var Dale yfir-
heyrður þar sem líkið lá á börun-
um. Brá honum hvergi, en sagðist
hafa haft ölæði alt til rnorguns og
ekkert muna hvað fram hefði farið.
Var síðan farið með hann í fangelsi.
Dale þessi var áður foringi socia-
lisa í Saude héraði, en hefir alla jafna
þótt ófyrirleytinn og enginn jafnað-
armaður ef því var að skifta.
------------------
Slys.
Maður verður fyrir
skammbyssuskoti.
I gærmorgun bar það slys við um
borð í Sterling, að skot hljóp óvart
úr skammbyssu og varð fyrir maður.
Særðist sá allmiklu sári. Var hann
þegar fluttur í land og í sjúkrahús,
Batt Matthías Einarsson læknir um
sárið.
Vér höfum fengið upplýsingar frá
hr. Nielsen skipstjóra á Sterling um
það, hvernig slysið atvikaðist. Segir
hann þannig frá:
í gærmorgun var vont veður og
lítið að starfa um borð. Bað
eg þá bátsmanninn, sem heitir Jón
og er færeyskur að ætt, að fægja
fyrir mig tvær byssur sem eg á og
geymdar voru uppi í »bestik«-her-
berginu. Var hann þeitn starfa al-
vatfur. En er hann tók byssurnar
tók hann einnig marghlevpu, sem
þar var og fór með hana fram í
klefa skipverja. Ætlaði hann þar að
sýna félögum sínum hvernig vopnið
væri notað, en gætti þess ekki að
tvö skot voru í byssunni. Tókhann
fyrst tvisvar í gikkinn og lét han-
ann hlaupa en í þriðja skifti reið af
skotið. Kom það skáhalt í brjóstið
á öðrum manni, Svendsen að nafni,
og rendi meðfram rifbeininu, kom
kúlan út undir holhöndinni og
fanst í fötum mannsins er hann var
afklæddur. — í gærkvöldi var mað-
urinn allhress og er lífi hans engin
hætta búin.
--------«í>X»--------
1=3 DAGBÓFflN. C=l
Afmæli í dag:
GuSlaug Hjörleifs, ungfrú
Amundi Arnason, kaupm.
Kjartan Eyjólfsson, trósm.
Sólarupprás kl. 7.33 árd.
Sólar.ag kl. 5.48 síðd.
Háflóð er í dag kl. 8.57 árdegis
og kl. 9.18 síðd.
Veðrið í gær:
Rvík. v. gola stinn, snjór, frost 4.0
ísf. logn, frost 3.9
Ak. logn, frost 3.8
Gr. s. andvari, frost 10.0
Sf. v.n.v. gola, frost 2.7
Vm. v. gola stinn, snjór, frost 4.3
Þh.F. v.v.v. stinnur kaldi, hiti 2.7.
P ó s t a r á morgun :
Sterling fer til Breiðafjarðar.
Ingólfur kemur með vestanpóst og
norðanpóst.
Lækning ókeypis kl. 12—1.
Austurstræti 22.
Tannlækning ókeypis kl. 2—3
í Austurstræti 22.
Þjóðmenjasafnið opiðkl. 12-2.
N a n c y — saltskip til H. P. Duus
verzlunar kom hingað í gærmorgun
snemma.
4 k r ó n u r sendi einhver ónefndur
maður inn á skrifstofu vora í gær og
bað oss koma þeim til Samverjans.
Annar sendi 3.70. Vér þökkum gjafirnar.
N i e 1 s e n, skipstjóri á Sterling,
framkvæmdastjóri Eimskipafólagsins,
sem verður, liggur sem stendur á
skipi sínu veikur af het.tusótt. Skip-
stjóri er þó eigi mjög þungt haldinn.