Morgunblaðið - 06.03.1914, Blaðsíða 2

Morgunblaðið - 06.03.1914, Blaðsíða 2
S76 MORGUNBLAÐIÐ Fiskiveiðahlutafélagið „ÍSLAND“. Framhald aðalfundar félagsins, er var frestað hinn 31. janúar stð— astliðinn, verður nú laugardag 7 þ. m. kl. 5 síðdegis í »Hótel Reykjavik«. Dagskrá hin sama og auglýst hafði verið fyrir fyr-ákveðinn fundardag, 31. janúar. Reykjavík 3. marz 1914. Stjórnin. verið að ræða um það, að afnema stöðuna, því fé væri þegar veitt til hennar, enda hefði og bæjarstjórnin auglýst hana lausa. En þar eð eng- inn hefði gefið sig fram eða sótt um starfið, væri nú um það eitt að ræða, hvernig bæjarstjórnin ætti að haga sér. Væri það ekki úr vegi, að fara þess á leit við Bened. Jón- asson að hann héldi starfinu áfram lengur en til hefði staðið, eða þá að öðrum kosti að leitað yrði til annara verkfræðinga og reynt að fá þá til þess að gegna starfinu. Tók þá Tryqgvi til máls. Kvað það sízt koma sér á óvænt þótt Knútur mælti þannig. Væri til hér í bænum verkfræðingafélag og hefði það nú myndað með sér hring (trust) og því augljóst hver árangur þess yrði að leita til þeirra. En kvað sér þykja gaman ef einhver bæjar- fulltrúanna gæti komið með dæmi um það, hvort dýrara yrði að skifta starfinu eða hafa núverandi fyrir- komulag. Sagðist vita, að með skift- ingu starfsins gæti kostnaður aldrei farið fram úr 3 þús. Þótti þó rétt- ast eins og sakir stæðu, að vísa málinu til veganefndar, Jóhann gat þess þá, að fljótreikn- að væri dæmi Tryggva. Hefði bær- inn áður goldið 2400 krónur fyrir lítinn hluta af því starfi, sem bæj- arverkfræðingi nú væri falið. Síðan kom fram tillaga um það að vísa málinu til 3 manna nefndar. Baðst borgarstjóri þá undan því að verða í kjöri, en sagði að sér þætti vænt um það, ef hann mætti sitja á fundum nefndarinnar. Siðan voru kosnir: Jóhann, Knud Ziemsen og Sighvatur Bjarnason. Þá kom fram beiðni frá félaginu »Rún« um að mega setja hreyfivél í kjallara í húsinu 21 í Þingholtsstræti. Ætti sú vél að knýja setjaravél hina nýju. Varsamþykt, samkvæmt til- lögu borgarstjóra, að vísa málinu til brunamálanefndar. Þá var rætt um eignanám á lóð Helga Magnússonar við Bankastræti 7 undir framlengingu Ingólfsstrætis. Las Þorvarður Þorvarðarson upp bréf frá Helga, þar sem þess var getið, að nú vildi hann ekki lengur fá lóð i skiftum fyrir lóð sína, heldur greitt andvirði hennar. Hafði byggingar- nefnd matið lóðina til fjár þannig, að 20 kr. skyldi kosta ferstikan af landi því, sem færi undir strætið sjálft, en 5 krónur það, sem gengi til gangstétta. Gerði Þorvarður að tillögu sinni, að lóðin yrði keypt með þessu verði. Urðu miklar umræður um málið, og margt talað utan við efnið sjálft. Talaði einn fulltrúanna t. d. um framlengingu Ingólfstrætis suður eftir og þann kostnað, sem það hefði í för með sér. Sumir skutust á hnútum þvert yfir salinn og lá við að farið yrði í mannjöfnuð. Heyrð- ist það þó á flestum, að þeim þótti sanngjarnt matið og óhóflega lengi dregið málið. Var það einkum Jó- hann, sem strykaði undir þau orðin. Sagði hann það tvent vítaverðast við meðferð máls bessa, að ekkert fé væri ætlað til þess í fjárhagsáætlun- inni, að kaupa fyrir þessa lóð, þótt nefndin hefði átt að vita þörf þess og eins væri hitt hve óhemjulega lengi Helgi hefði verið dreginn á svarinu. Mundi mörgum i hans sporum hafa þóít sér nóg boðið og leitað styrks hjá lögunum til þess að ná rétti sínum. Tók þá Tryggvi til orða á þá leið, að happ væri það bænum að hafa hér átt við miðlunarmann en engan ofstopa. Hefði Jsumum, og þar á meðal bæjarfulltrúanum (J. J.) naum- ast blöskrað það að fara í mál þótt minni ástæða hefði verið til. Gat hann þess og, að Helga væri hér einnig unnið þægt verk með framlengingu strætisins. Yrði þá hús hans horn- hús við þá götu og mundi hækka drjúgum í verði, því umferð yrði ákaflega mikil um götuna eftir það að höfnin væri fullger og kolaupp- lagning yrði á »Batteríinu«. Sighvatur Bjarnason vildi að mál- inu væri frestað til næsta fundar, því það væri svo illa undirbúið. Borgarstjóri gat þess, að frestun væri sama sem að vísa málinu til annarar umræðu, enda þyrfti það að ræðast á tveimur fundum. Urðu menn þá á það sáttir að visa málinu til annarar umræðu og var þá fundi slitið. =3 DAGBÓIflN. Afmæli í dag: Geir Konráðsson, trésm. Jónas Eyfjörð, trósm. Leifur Jóhannsson, stud. art. Sólarupprás kl. 7.0 árd. Sólar.ag kl. 6.18 síðd. Háflóö er í dag kl. 12 á hádegi. Veðrið í gær: Rvik n.n.a. hvassviðri, frost 6,7 íf. n. stormur, frost 9.4 Ák. n.n.v. andvari, snjór, frost 7.5 Gr. logn, frost 14.0 Sf. s.v. andvari, frost 8.1 Vm. n.a. andvari, frost 3.5 Þh. F. n.v. gola, frost 1.8. Eyrna- uef-og hálslækning ókeypis kl. 2—3 í Austurstræti 22. L æ k n i n g ókeypis kl. 12—1. Austurstræti 22. F j ö 1 d i sjómanna liggur veikur af hettusótt. Hafa nokkur skip orðið að koma inn aftur vegna sjúkdóms þessa, og skila af sór sjúklingunum. Annars er heilsufar yfirleitt heldur ilt hór í bænum á þessum timum. Nokkrir liggja í lungnabólgu, aðrir i magaveiki eða hettusótt, fjöldi í kvefsótt og nokkr- ir í gulu og taugaveiki. M. og S. biðja oss að koma einni krónu til Samverjans. Kærar þakkir! S t e r 1 i n g fór til Vesturlands í gærmorgun. 7T1orQimblaðið kostar ekki nema 65 aura á mánuði fyrir áskrifendur (34—35 blöð). Sent heim eldsnemma á h v e r j u m morgni. Eina b laðið, sem enginn má án vera. Gerist áskrifendur þegar í dag. Það margborgar sig, — munið það 1 C e r e s kom hingað frá Vesturlandi í gærmorgun kl. 10. Hafði komið við á Ákranesi í suðurleið. Farþegar með skipinu voru : Sighvatur Bjarnason bankastjóri, Debell forstjóri, Jakob Havsteen umboðssali, Smith símaverk- fræðingur, Jakob Möller bankamaður o. f). G e i r (kom hingað í gær að sunu- an með botnvörpung þýzkan í eftir- dragi. Heitir sá Freyja og er frá Geestemiinde og hafði skipið strandað nálægt Hvalsnesi. Geir fór með skip- ið inn í Sund til viðgerða. Grímudansleikur verzlunar- mannafélagsins var í gærkvöldi og nótt í Iðnó. Mátti þar sjá margar »fígúr- ur« og mismunandi að útliti. Glóðu búningarnir af ýmsu skrauti og voru sumir gerðir af hinni mestu »konst«. Þó var enginn f nýju klæðunum keis- arans. Líktist þessi mannsöfnuður mest huldufólki þar sem það sveifl- aðist hvað iunan um annað með lóttu dansstigi, en bak við grímurnar brostu andlitin og í brjóstum ungmennanna slógu hjörtun svo hratt að þröngt varð um þau innan rifjanna. Var þá mörgu ljúfu orði hvíslað í hlerandi eyra og roðnaði margur meyjarvangi undir grímunni, en augun tindruðu af æskufjöri. — Þar sem enginn þekkir mann, þar er gott að vera .... En — hvað var Adam lengi 1 Paradís i S m i t h símaverkfræðingur kom í gær með Ceres frá Isafirði. Fór hann þangaö með skipinu og ætlaði að gera við símabilun við ísafjarðardjúp, en varð eigi úr vegna stöðugs óveðurs meðan skipið stóð við. Stefán Stefánsson — hinn góðkunni ferðamannatúlkur, liggur þungt haldinn af lungnabólgu. Á Austurvelli. í fyrradag tók Skautafélagið sig til og ruddi öllum snjónum af Aust- urvelli. Gamlir og reynúir veður- spámenn sögðu að hann væri alveg einlægur við norðanáttina. En þeg- ar þeir sáu kallana, sem voru að hamast við að moka snjónum burtu og fægja svellið fyrir Skautaíélagið þá kom áhyggjusvipur á gömul, veðurbarin andlitin á þeim, og trúin á norðanáttina tapaðist burtu, alveg eins og snjórinn á svellinu. Margra ára óyggjandi reynsla sagði þeim það að vísu, að ekki væri sennilegt að regnið færi að streyma niður úr alheiðskíru lofti. En fyrir Skauta- félaginu verður jafnvel rótgróin og fyrirframákveðin náttúruniðurröðun að beygja sig — það var lika margra ára óyggjandi reynsla. Og gerast kannske ekki margir ótrúlegir hlutir á þessu landi nú á tímum f Höfum við ekki nýlega mátt horfa upp á það, að dregið væri um Ingólfshús- iði Hefir ekki Briet verið kosin aftur í bæjarstjórn ? Og er þá nokk- uð ótrúlegra t. d. að bráðum verði farið að virma að Port Reykjavíki Eða að hellidemba komi úr heiðskíru lofti, þegar Skautafélagið fer að böl- sótast í snjónum ? Svona hugsuðu gömlu karlarnir og svona hugsaði margur maður. En fregnin um snjómoksturinn barst eins og fiskisaga austur um allar sveitir og er sagt, að mikil þakkar- hátið hafi verið haldin í gærkvöldi af Arnesingum og Rangæingum við Þjórsárbrú, því engum datt i hug að efast um, að nú væri bráðlega von á hlákunni. En upp i Borgarfjörð fréttist það í gær með símanum, að austankallarnir hafi mútað Skautafé- lagsstjórninni til að láta moka snjón- um burtu; eg get þó lýst því yfir eftir beztu heimildum, að það eru tilhæfulaus ósannindi. En hver getur lýst þeirri undrun, sem gagntók höfuðstaðarbúana, þeg- ar á daginn leið og komið var kvöld og enn var ekki kominn dropi úr lofti. Menn skimuðu í allar áttir til þess að gá að hvort hvergi sæist regnbakki á loftina, menn hristu og;

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.