Morgunblaðið - 11.03.1914, Page 2
éoo
MORGUNBLAÐIÐ
Suður-Þingeyjarsýsla:
Sigurður Jónsson á Arnarvalni, Pétur
Jónsson á Gautlöndum.
Norður-Þingeyjarsýsla:
Benedikt Sveinsson, Steingrímur Jóns-
son.
Eyjafjarðarsýsla: Krist-
jánH. Benjaminsson Tjðrnum,Hann-
es Hafstein, Jón Stefánsson ritstj.
Stefán í Fagraskógi.
A k u r e y r i: Ásgeir Pétursson
kaupm., Magnús Kristjánsson kaupm.
Skagafjarðarsýsla: Jósef
Björnsson, Ólafur Briem.
Húnavatnssýsla: Guðm.
Hannesson prófessor, Guðm. Ólafs-
son, Ósi, Björn Þórðarscm sýslum.,
Tryggvi i Kothvammi, Þórarinn
Jónsson.
Strandasýsla: Magnús Pét-
ursson læknir, Guðjón Guðlaugsson.
N orður-ísafjarðarsýsla:
Skúli Thoroddsen.
ísafjörður: Magnús Torla-
son, Signrður Stefánsson.
Vestur-Ísaíjarðarsýsla:
Sira Þórður Ólafsson, Matthias Ó-
lafsson.
Barðastrandasýsla Há-
kon Kristoífersson, Snæbjörn Krist-
jánsson.
D a 1 a s ý s 1 a : Bjarni Jónsson
frá Vogi, Björn Magnússon síma-
stjóri.
Snæfellsnessýsla: Sigurð-
ur Gunnarsson prófastur, Halldór
Steinsson héraðslæknir.
Mýrasýsla: Sveinn Níelsson
á Lambastöðum, Jóhann Eyólfsson
Sveinatungu.
Borgarfjarðarsýsla:
Hjörtur Snorrason, Skeljabrekku,
Halldór Vilhjálmsson skólastjóri.
01kaup míD.
Það hefir því miður farið auðsjá-
anlega eitthvað á milli mála bjá þeim,
sem skýrði fregnritara Morgunblaðsins
frá ölkaupum minum í haust. Það
er gefið ótvirætt í skyn, að eg hafi
leynt ölgerðarmennina þvi, að eg
væri sjúklingur frá Laugarnesi. En
þegar þeim hafi borist þetta til eyrna,
þá hafi þeir leitað sér nákvæmra
upplýsinga. Og þá hafi hið sanna
komið i ljós. Þessar »nákvæmu
upplýsingarc eiga þeir mér að þakka.
Þvi það var eg og enginn annar,
sem gaf þeim þær áður en eg
keypti nokkurt öl. Eg sagði þeim
og þar á meðal herra Tómasi Tóm-
assyni undir eins frá því að eg væri
sjúklingur innan frá Laugarnesi, og
mæltist til þess, að hann sæi um
flutning á flöskunum heim til mín.
Eg spurði þá, hvort þeir hefðu nokk-
uð á móti þvi að selja mér fremur
en öðrum. Og kváðu þeir nei við.
Eg skýrði þeim svo frá því, að flösk-
urnar yrðu sótthreinsaðar áður en
þeir fengju þær aftur, og sögðu þeir
að þess gerðist engin þörf, þar sem
þeir sótthreinsuðu allar flöskur, hvað-
an sem þær væru, áður en þeir
fyltu þær aftur.
Eg vil geta þess til að koma í
veg fyrir allan misskilning hér
eftir, að fíöskur þær, sem héðan
koma, hafa áður farið i gegnum
sótthreinsunarofninn hér í Laugar-
nesi, og eru þar af leiðandi bezt
sótthreinsuðu ölflöskur bæjarins.
Þess er og einnig getið i grein-
inni, að nú sé svo um hnútana
búið, að enginn sjúklingur megi
selja tómar flöskur, nema með sér-
stöku leyfi. Mér er forvitni á að
vita, hver hefir gefið þessar »upplýs-
ingar* því þær eru ekki frá mér.
Síðan haustið 1898 hafa sjúkling-
arnir mátt selja »leyfislaust« alt sem
þeir hafa átt og hægt er að sótt-
hreinsa. Því jafn vel þótt löggjafar
þjóðarinnar hafi fundið sig knúða til
að takmarka frelsi okkar, þá veit eg
ekki til, að þeim hafi hugkvæmst að
skerða eignarétt okkar fremur en
annara manna.
Laugarnesi 9. marz 1914.
Friðrik Valdimarsson.
Fróttabréf af Miðnesi.
Hettusóttin hefir gengið hér síðan
á jólaföstu og er eigi enn i neínni
rénun. Þó hefir hún verið heldur
væg.
Afli er kominn nógur hér 1 Mið-
nessjó núna, en gæftalaust hefir
mátt kalla síðan um nýár. Hafa
opnir bátar eigi getað róið nema
3—4 róðra á þeim tíma og hafa þá
aflað xo—30 til hlutar á dag skamt
undan landi.
TíBin hefir verið hér afarstirð og
er'enn. Er þvi víða hart 1 búi hjá
þeim er skepnur hafa. Heybirgðir
voru 1 haust bæði litlar og lélegar
og víða sett margt á lítil hey.
C=l D AGBÓfjlN. C=3
Afmæli f dag:
Ágústa Erlendsdóttir húsfr.
Hansína Ounnarsdóttir verzlunarmær.
Ragnhildur Ólafsdóttir húsfrú.
Arni Björn Björnsson, gullsmiður,
Guðm. Hafliðason, verzlunarm.
Sigfús G. Sveinbjarnareon fasteignasali.
Ólafur Thorlacius, læknir, 45 ára.
Valt/r Guðmundsson, dr. phil., 54 ára.
Sólarupprás kl. 7.6 árd.
Sólar.ag kl. 6.12 síðd.
Háflóð er í dag kl. 4.55 árd.
og kl. 5.13 síðd.
Veðrið i gær:
Rvik logn, frost 8.5
íf. a. kul, frost 8.4
Ak. n. kaldi, frost 4.0
Gr. n.n.v. gola, snjór, frost 7.5
Sf. n.v. gola, frost 3.3
Vm. n. kul, frost 2.0
Þh. F. n. kul, frost 1.3
Augnlækning ókeypis í dag
kl. 2—3 i Lækjargötu 2.
P ó s t a r í dag.
Hafnarfjarðarpóstur kemur og fer.
Alftanespóstiur kemur og fer.
Ingólfur til og frá Garði á morgun.
G i f t i n g a r: Guðjón Gunnarsson
frá Hafnarfirði og yngismær Arnfrlður
Jónsdóttir gift 7. mars.
Jón Ól. Þorkelsson Bröttugötu 3 og
ym. Þóra Jónsdóttir gift í gær,
Tunglmyrkvi verður í nótt og
sóst hann hór í Reykjavík frá upphafi
til enda. Hann stendur yfir frá kl.
1.42 til kl. 4.44 og er mestur 3.13
eða 9/10 af þvermæli tunglhvelsins.
S t e r 1 i n g fór til útlanda í gær.
kvöldi. Þessir tóku sór fari:
Matth. Þórðarson útgerðarmaður, Þór-
hallur Daníelsson kaupmaður frá Horna-
firði, Sigurður Pétursson skipstjóri frá
Hrólfskála, frú Ragnheiður Guðmunds-
dóttir. Til Ameríku fóru : Jón Gunn-
arsson Vestur-íslendingur með konu og
barn, Jón P. Árnason, Gunnbjörn Ste
fánsson frá Lækjamóti í Húnavatns-
sýslu, Guðmundur Þorsteinsson og Daní-
el Hjálmsson.
Skautaferðirá Austurvelli hafa
verið með mesta móti undanfarin kvöld.
Skemt hefir fólki verið með hljóðfæra-
slætti og hefir unga fólkinu þótt það
góð skemtun.
Kaupmaður einn hór í bænum
færði oss 5 kr. í gær til Ólafsvíkur-
samskotanna. Vór þökkum.
Borgari hér í bænum hitti oss
á götu í gær, tók upp 10 kr. seðil og
bað oss koma honum til Samverjans.
Fallega gert !
FÖstuguðsþjónustur á
morgun í Dómkirkjunni kl. 6, sóra
Bjarni Jónsson og Passíusálmarnir
sungnir. í Fríkirkjunni kl. 6 síra
Ólafur Ólafsson.
Frá útlöndum.
I. C. Jacobsen faðir Jacobsens öl-
gerðarmanns, ákvað að aðalbygging
Gamle Carlsbergs skyldi eftir sinn
dag og sonar síns, verða ókeypis
bústaður fyrir þann mann eða konu,
sem hefði unnið þjóðfélaginu stærst-
an greiða.
Bygging þessi er ein hin vandað-
ata I Kaupmannahöfn og hefir það
þvi verið ákveðið, að Carlsbergsjóð-
urinn skyldi veita þeim manni, sem
húsið fengi til Ibúðar, árlega fjárupp-
hæð, sem ekki næmi minna en 18
þús. krónum. En það er jafnt hin-
um hæztu embættislaunum i Dan-
mörku.
Á nú að fara að ræða um það
hver skuli hljóta hnossið og er mik-
ið talað um það efni í Danmörku
um þessar mundir. Dr. I. C, Jacob-
sen hafði helzt óskað þess að ein-
hverjum visindamanni yrði veittur
heiðurinn, en setti það þó ekki sem
skilyrði. Eru fyrirmæli þessi þann-
ig orðuð, að sá eða sú skuli verða
íbúandi hússins, sem skarað hefði
fram úr öðrum' í visindum, rit-
smíðum, listum eða öðru. Hafa þeir
Georg Brandes, Vald. Poulsen, Vilh,
Thomsen, Martin Nyrop ogjoakim
Skovgaard verið taldir næstir því
að hljóta heiðurinn. En um marga
fleiri er að velja og er ekki ólíklegt
að Danir séu ispentirc fyrir úrslit-
unum.
Jack Johnson svertingi, fyrverandi
heimsmeistari i hnefaleik, ók nýlega
með konu sinni i vagni um Roue
du Faubourg í París. Framundan
veitingastað nokkrum steig hann úr
vagninum og gekk inn til þess að
fá sér hressingu, en frúin sat kyr í
vagninum á meðan. Af tilviljun
kom þá gamall kennari Johnsons
þar að og heitir sá Galvi. Talaði
hann nokkrum hæðnisorðum til frú-
arinnar og heyrði Johnson það inn
á veitingastofuna, Þaut hann þá út,
réðst á Galvi og sló hann í rot. Lá
Galvi þar á götunni en Johnson
sparkaði í hann eins og vitstola. Var
það með mestu naumindum að átta
lögregluþjónar fengju haldið hinum
óða svertingja.
Frúnni varð ekkert bilt við atvik
þetta. Klappaði hún saman Iófunum
af ánægju þegar Galvi féll og hvatti
mann sinn til að misþyrma honum
enn frekar.
Peningar meö gati. Frakkar hafa
í hyggju að byrja nýja peningasláttu
i ár. Eru það nikkelpeningar með'
gati og eiga þeir að útrýma kopar-
peningum. Á hverjum degi verða
slegnar 273 þús. myntir eða 82 mil-
jónir á ári, svo það verður ekki fyr
en árið 1925 að þeir hafa slegið
nógu mikið af nikkelpeningum til
þess að hinir eldri megi detta úr
sögunni.
Stjórnin bauð 20 þús. franka fyr-
ir beztu tillöguna um gerð hinna
nýju peninga. Og margan mann-
inn langaði til þess að ná í skilding-
inn og komu alskonar teikningar af-
arskrautlegar. En dómnefndin valdi
þá allra einföldustu. Varþaráfram-
hlið fangamark ríkisins R. F. og á
baki gildi peningsins I tölum. Fyr-
ir þessa hugvitsamlegu tillögu fékk
höfunduiinn 20 þús. franka. Nafn
hans er Emile Lindauer og mun það'
aldrei firnast I annálum Frakka.
Peningar með gati hafa þegar
verið slegnir í öðrum löndum, bæði
Belgiu og Klna. Og verkamenn
þeirra landa þræða mánaðarkaup sitt
upp á band og hengja um háls sér
Ef til vill munu Parísaikonur taka
þetta upp á tizkuskrá sina. Er það
ekki ólíklegra en hitt, að hafa hringa
i nefinu, gullhringa um öklana, lita
á sér neglurnar og hafa grænt hár.
En það er alt saman hæst móðins fi
Paris núna.
Kjötlaus borg. Verkamenn slátrar-
anna í Sydney, höfuðborg Ástralíu
gerðu verkfall I fyrra mánuði og
heimtuðu 9 króna launahækkun á
viku. Slátrararnir neituðu fyrst al-
gerlega að verða við þeirri kröfu,-
eða hækka nokkuð laun verkamann-
anna. En eftir fjóra daga urðu þeir
þó að lækka seglin og buðu verka-