Morgunblaðið - 16.03.1914, Síða 1

Morgunblaðið - 16.03.1914, Síða 1
Mánndag 16. marz 1914 M0B6UNBLAÐID 1. argangr 132. tölublað Ritstjórnarsími nr. 500 [ Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. ] ísafoldarprentsmiðja [ Afgreiðslusími nr. 140 Biografteater glR’e y k j a v 1 k n Armur laganna. Leyiiilögreglu-sjónleikur í 3 þáttum. Ákaflega hrífandi. »Járnhöndin« og de Croze foringi glæpamannafél. »Hvíti hanzkinn* heyja síðasta leikinn. ( Bio-Kafé er bezt. ' Sími 349. HartYig Nielsen. ’ í 1 w ^ir ■ ii,„jr...—a NýjaBíó: Tiver var sekur? [Leynilögreglusjónleikur í 3 þáttum] V. Psilander leikur leynilögreglumanninn. •Aukamynd: Sfeepí2-Cf)ase hjá Liverpool \ Skrifsfofa Eimskipaféíags íslancts Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Tals. 409. Karla og kvenna- regnkápur nýkomnar í Yörnhúsið. Notið sendisvein frá sendisveinaskrifstofunni. Sími 4 4 4. fundur á þriðjudagskvöld kl. 8^/2 i húsi K. F. U. M. Sig. Jónsson og Sv. Björns- son tala. Allir kjósendur velkomnir. Stjórnin. Regnkápur seldar með afarlágu verði. Sturla iónsson. Heimkoma fulltrúa félagsins. HaiRfdlag tSÍQtfRjavíRur. AUGll ÍSTARINNAR Eftir JOHAN BOJER. Fimtudaginn 19. marz kl. 8 síðd. Ekki leikið í kvöld sökum veikinda eins leikara. — Sunnudagspantanir gilda til fimtudags, sé þeirra vitjað fyrir kl. 4 þann dag í Iðnó. Aðgöngumiða má panta í Bókv. ísaf., þó ekki í síma. Skipin. Yiðtal Yið Svein B)örnsson Vér gátum um það i blaði voru í gær, að þeir Sveinn lögmaður Björnsson og Halldór yfirdómari Danielsson væru meðal farþega á Botniu hingað. Skipið kom hingað i gær kl. D/g siðd., og fórum vér þegar á fund hr. Sveins Björnssonar, stjórnarformanns Eimskipafélagsins, til þess að biðja hann að segja les- endum Morgunblaðsins frá för þeirra Halldórs yfirdómara til dtlanda. En þeir voru, eins og menn vita, kosn- ir af stjórn félagsins til þess að fara utan og semja um byggingu þeirra tveggja skipa, sem ákveðið hefir verið að smiða skyldi íyrir félagið. - Velkomnir til landsins aftur, segjum vér, um leið og vér réttum hr.Sveini Björnssyni hendina. Hvern- ig hefir yður liðið á ferðalaginu. Sveinn kemur brosandi á móti oss og þakkar oss kveðjuna. — Eg þakka, mér hefir liðið ágæt- lega. Tíminn hefir auðvitað verið naumur og mikið höfum vér haft að gera, en erindi voru höfum vér lokið að mestu. Vér fórum fyrst til Leith, þaðan til Lundiinaborgar, yfir Holland og Þýzkaland til Kaupmannahafnar. Þegar eftir komu vora þangað leit- uðum vér fyrir okkur um skipsmíða- stöðvar eftir tilboðum þeim, sem komið höfðu til Eimskipafélagsins. Eins og kunnugt er, komu mörg til- boð um byggingu skipanna, þar á meðal eitt, sem var lang ódýrast, nfl. frá Aktieselskabet Köbenhavns Flydedok og Skibsværft. Þetta félag sömdum vér við, en þó eigi fyr en vér höfðum leitað oss nákvæmra upplýsinga um þá skipastöð og i samráði við ráðunauta vora, menn sérfróða í vélfræði ogskipa- byggingum. Samningar voru undir- skrifaðir þ. 28. febr. og kostar Suð- urlandsskipið 580 þus. kr. og verð- ur afhent i janúar 1915, en Norður- landsskipið 300 þús. kr. en verður eigi tilbúið fyr en í aprílmánuði 1915. Vér fórum fram á að fá ýmsar bætur og breytingar á skipun- um frá því, sem áætlað hefir verið og hefir oss tekist það að miklu leyti. Ennfremur gerðum vér ítrekaðar tilraunir til þess að fá bæði norsku og sænsku skipasmiðastöðvarnar, sem tilboð hafði komið frá, til þess að lækka tilboð sin og var það með öllu árangurslaust. Flydedokken er þvi lang-ódýrust allra þeirra, er til- boð gerðu, og því sjálfsagt að semja við það félag — einkum eftir þeim upplýsingum, sem vér höfum aflað oss um hve góð skip stöðin hefir smiðað. Tilboðin frá Englandi og Þýzkalandi voru lang-hæst, svo ekki kom til mála að gera neina tilraun til samn- inga við þau félög. Eftir upplýsing- um þeim, er vér höfum aflað oss, höfum vér komist að raun um, að Flydedokken i Khöfn er fyrsta flokks skipabyggingaverkstæði og stendur það fullkomlega á sporði öðrum skipabyggingastöðvum á Norðurlönd- um. — — Ætluðuð þér eigi einnig að útvega félaginu lán í erlendum bönkum? spurðum vér. — Rétt er það, og vér höfum einnig verið í samningum við bæði hollenzka, belgiska og þýzka banka um lántöku handa félaginu. Samn- ingar þessir hafa og verið u ndirbún ir að mestu, en þó gátum vér eigi algjörlega útkljáð um lánið áður vér fórum frá K.-höfn. En vér höfum falið hr. skrifstofustjóra Jóni Krabbe að fullgera þá samninga fyrir vora hönd undir eins og þess gerist kost- ur. Að cllum likindum verður lán- ið tekið i annaðhvort hollenzkum eða belgiskum banka og þá eigi al- veg eins mikið og vér hefðum ætlað oss. En um þetta munum vér fá nákvæmar fregnir innan skamms. — Eruð þér eigi yfirleitt ánægðir með árangur farar yðar til útlanda? — Jú, alt hefir gengið eins vel og vér höfðum búist við, og eg er viss um að fólk verður ánægt með skipin, þegar þau koma. Sveinn Björnsson situr á skrif- stofu sinni, önnum kafinn í vinnu þó að eins fáar klukkust. séu sfðan hann sté af skipsfjöl. Pósturinn frá Botníu er að koma, og til dæmis um það, hve mikla athygli stofnun hins íslenzka Eimskipafélags hefir vakið erlendis, sýnir hann oss um 25 bréf erlend, sem komu með þessu skipi frá mönnum og félög- um víðsvegar um heiminn, er vilja eiga viðskifti við félagið og þess vegna beiðast upplýsinga. — Carol. Simfregnir. Húsavík í %œr. Steingrímur sýslumaður Jónsson hefir dregið sig í hlé og er því Benedikt Sveinsson ritstjóri sjálfkjör- inn þingmaður Norður-Þingeyinga. Tiðin er hér afarslæm, harðindi og fannkomur og muna menn ekki meiri snjó. Horfir til stórvandræða ef ekki kemur bati. Heybirgðir manna mjög litlar og allur matfanga- flutningur bannaður vegna ófærðar. Nýir þingmenn. Þingmenskuframboðsfresturinn var útrunninn í fyrradag. Eru því allir þeir sjálf kjörnir þingmenn, er eng- an keppinaut eiga. En þeir verða að minsta kosti 5 í þetta skifti. Eru það þeir: Benedikt Sveinsson þing- maður Norður-Þingeyinga, Hákon Kristójersson þingmaður Barðstrend- inga, Sifurður Eqqerz þingmaður Vestur-Skaftfellinga, Skúli Thoroddsen þingmaður Norður-ísfirðinga og Siq- urður Gunnarsson þingmaður Snæ- fellinga. Nokkrar likur eru og taídar til þess að Þorleiýur Jónsson í Hólum muni sjálfkjörinn þingmaður Austur- Skaftfellinga, vegna þess, að keppi- nautur hans, Sigurður Sigurðsson cand. theol., muni enn eigi hafa náð kjöraldri. Eru atburðir þessir eins dæmi i sögu landsins. Þótti það tiðindum sæta 1908, er Skúli Thoroddsen var sjálfkjörinn þingmaður Norður-ísfirð- inga. Annars virðist þetta bera Ijósan vott um »politiska« deyfð í landinu og áhugaleysi.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.