Morgunblaðið - 09.06.1914, Side 3

Morgunblaðið - 09.06.1914, Side 3
MORGUNBLAÐIÐ 1007 Breiðablik. MánaBarrit gefið út í Winnipeg. — Ritstjóri sira Fr. J. Bergmann, Verð árgangsins er á íslandi að eins 2 krónur - kostaði áður 4 krönur - þó jafn-stórt og áður. Nýr (IX.) árgangur byrjaði með júní-heftinu. Spyrjist fyrir og gjörist áskrifendur ritsins hjá útsölumanni þess hér á landi, sem er Guðbjörn Guðmundsson, TJorðursfíg 7. (Hittist einnig daglega í ísafoldarprentsmiðju). Drekkið að eins öl frá Ölgerðarhúsinu Reykjavík. Hver og einn er velkominn á Norðurstíg 3 til þess að sjá hvernig ölið er búið til. JTJorgunbíaðið kostar ekki nema 65 aura á mánuði fyrir áskrifendur (34—35 blöð). Sent heim eldsnemma á h v e r j u m morgni. Eina blaðið, sem enginn má án vera. Gerist áskrifendur þegar í dag. Það margborgar sig, — munið það I Konungl. hirð-verksmiðja Bræöurnir Cloetta mæla með sínum viðurkendu Sjókólade-tegundum, sem eingöngu eru búnar til úr fín asta Kakaó, Sykri og Vanille. Ennfremur Kakaópúlver af beztu tegund. Ágætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum. Niðursuöuvörur frá A S. De danske Yin & Conseryes Fabr. Kanpmannahöfn I. D. Beauvais & M. Rasmussen eru viðurkendar að vera beztar í heimi. Gerlarannsóknarstofa Úsýnifegar flugvélar. Þegar flugvélarnar voru svo vel úr garði gerðar, að þær mátti nota í hernaði, sáu menti þegar að af þeim stóð öllum land- og sjó-her hinn mesti voði. Lögðu þá hugvitsmenn- irnir heila sína í bleyti til þess að finna upp nýjar fallbyssur, sem nota mætti til þess að senda loftbátunum banvæn skeyti. Og þeim tókst að smiða þæt byssur. En þá fann hugvitsmaður nokkur þýzkur upp á því, að gera loftvél- arnar þannig úr garði, að ekkert heyrðist til þeirra og þótti mikils vert um þá uppgötvun. En nú hefir þó annar samlandi hans gert betur. Hann hefir sem sé fundið upp ósýni- legar flugvélar, það er að segja, þær eru ósýnlegar þegar þær eru komn- ar 1000 stikur í loft upp. Galdur- inn er í þvt fólginn, að alt annað en grindin og vélin sjálf er gert af gagnsæju efni, sem líkist »celluloid« og hefir það þá kosti, að það getur ekki brunnið og er auk þess mjög sterkt. Eru því flugvélarnar nú hálfu hættulegri í ófriði en áður. Frá útlöndum. Á Indlandi er sá siður, að for- eldrar verða að láta af hendi álitleg- an heimanmund með dætrum sfnum, er þær giftast. Annarsenginn hægð- arleikur að finna menn handa þeim. Nýlega kom fyrir tilfelli, sem mikið hefir verið talað og ritað um á Ind- landi. Brahmin nokkur átti dóttur 14 ára að aldri og fagra mjög. — Marga hafði hún biðlana, en for- eldrarnir voru fátækir og því ekki tiltök að nokkur biðlanna vildi ganga að eiga hana, er þeir heyrðu hvernig ástatt var með efnahag föðursins. — Þeim kom þá til hugir að taka lán og gefa dótturinni og ræddu það mál með sér svo dóttirin heyrði. En hún vildi ekki af þvi vita, ritaði þeim kveðjubréf, gekk út og hengdi sig. Og nú rita Indversk blöð langar og miklar blaðagreinar um, hve ó- hæft það sé, að karlmenn setji nokk- ur skilyrði um heimamund með kon- um sínum*. Og úr þvi hefir orðið, að fjöldi ungra manna i Kalkutta hefir gefið yfirlýsingu þess efnis, að þeir eigi vilji þiggja nokkurn heiman- mund með konum þeim, er þeir gangi að eiga. Reiður hafur. Bifreiðarstjóri nokkur danskur var fyrir skemstu á ferð upp um héruð með menn nokkra sem voru að létta sér upp. En meðfram veginum á einhverjum stað stóð hafur nokkur í tjóðri. Leit hann óhýrum augum til bif- reiðarinnar þegar hún nálgaðist og bjóst til varnar. Steig hann upp á veginn og rendi sér á vagninn. Hafurinn slapp ómeiddur frá við- ureigninni, en ljósker bifreiðarinnar fór í þúsund mola undan hornum hans. Dýrasta bók heimsins. Hana keypti nýlega Ameríkumaður, Huntington að nafni, í London. Hertoginn af Devonshire átti í safni sínu kvartoútgáfuna af Hamlet og gaf Huntington um 330 þús. kr. fyrir hana. Ennfremur keypti Huntington biblíu sem Gutenberg átti og kostaði hún 280 þús. kr. — Bretar eru vondir yfir að bækur þessar skuli vera fluttar úr landinu og segja, sem satt er, að þær auð- vitað hefðu átt að verða i safni á Englandi. En Ameríkumönnum þykir fengur í þessum bókakaupum. Huerta hryggur. Eftir að uppreistarmenn í Mexico höfðu tek- ið Tampico og með öllu unnið sig- ur á her Huertas forseta, komst hann í standandi vandræði. Svo þungur var hann í skapi eitt sinn, er hann sat á ráðstefnu með ráð- gjöfum sínum sínum, að hann kast- aði til þeirra skammbyssu sinni og bað einhvern þeirra að drepa sig. En eins og allir Mexicomenn geng- ur Huerta ætíð með skammbyssu i vasanum. — Fjöldi hermanna i liði hans hefir gert uppreisn og gengið f lið með uppreistarmönnum. Má búast við miklum nýjungum úr þeirri átt innan skan s. Villudýrabardagi. í dýra- garðinum í New York viidi það til fyrir skömmu að tvævett ljón komst úr búri sínu og tnn i annað búr. Var þar fyrir tigrisdýr og hófst nú ægileg viðureign milli þessara tveggja óargadýra. En svo fóru leikar að tigrisdýrið bar sigur af hólmi og beit dýrakonunginn á barkann. í Heming í Danmorku var ný- lega skuldamál nokkurt fyrir dóm- stólunum. Orsök þessa var sú, að hinn ákærði hafði greitt lánardrotni sínum 9 aurum minna en honum bar. Var hann því dæmdur til þess að greiða þessa 9 aura og auk þess 6 krónur í málskostnað. Enskur prestur sat í hæginda- stólnum sínum með revkjapipu í munninum og dagblað í hendinni. Það er barið að dyrum og inn kem- ur vinnukona hans með bréf. í því stendur að hann hafi erft 25 þús. kr. eftir afa sinn, sem hann aldrei hafði séð. — Afinn hafði lagt 20 sterlingspund í banka og mælt svo fyrir að sonur dóttur sinnar, efhún nokkurntíma eignaðist nokkurn, skyldi eiga peningana. Maðurinn var dauður þegar dóttirin giftist og eignaðist son. En bókin fanst af tilviljun mörgum árum siðar í bank- anum — og þá komst alt upp. Gísla Guðmundssonar Lækjargötu 14 B (uppi á lpfti) er venjulega opin n—3 virka daga. Skrifsfoja Eimskipaféíags Ísíands Austurstræti 7 Opin kl. 5—7. Tals. 409.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.