Morgunblaðið - 16.06.1914, Síða 4

Morgunblaðið - 16.06.1914, Síða 4
1040 MORGUNBLAÐIÐ 0 LI Ð frá Ölgerðarhúsinu Reykjavík Tækifœriskaup á morgun, 17. júní. Minningarspjald Jóns Sigurðssonar verður selt á 50 aura í $ta>ð krónu áður. Þessu kjarakaupi ættu allir að sæta til minningar um fón Sigurðsson forseta. Spjaldið fæst í öllum bókaverzlunum bæjarins og í Safnahúsinu. er langbezt. Biðjið um það. ■ DÖGMENN Sveinn Björnsson yfird.lögm. Hafnarstræti 22. Simi 202. Skrifstofutími kl. 10—2 og 4—6. Sjálfur við kl. 11—12 og 4—6. Vátryggið hjá: Magdeborgar brunabótafélagi Den Kjöbenhavnske Söassurance Forening limit Aðalumboðsmenn: O. Johnson & Kaaber. Eggert Claessen, yfirréttarmála- flutningsmaður Pósthússtr. 17. Venjulega heima 10—11 og 4—6. Sfmi 16. Carl Finsen Austurstr. 3, Rvík. Brunatryggingar. Heima 6 '/4—7 x/4. Talsimi 331. SQg** ELDUR! Vátryggið í »General«. Umboðsm. SIG. THORODDSEN Frfkirkjuv. 3. Heima 3—6. Talsfmi 227. Hjörtur Hjartarson yfirdóms- lögmaður. Bókhl.stíg 10. Sími 28. Venjulega heima kl. 12Y2—2 og 4—SV2 síðdegis. Bogi Brynjólfsson, yfirréttar málaflutn.m. Hótel Island. (Aðalstr. 5). Venjulega heima 12—1 og 4—6. Talsími 384. cTapaé Tapast hafa gleraugu i hulstri. Finnandi beðinn að skila þeim á skrifstofu bæjargjaldkera gegn fundar- launum. Niðursoðið kjöt frá Beauvais þykir bezt á ferðalagi. Feningabudda hefir týnst á veginum milli Hafnarfjarðar og Spít- alastígs i Reykjavík. Finnandi er beðinn að gera Jóh. J. Reykdal á Setbergi viðvart. Kanpið Morgunblaðið. Nýtt 11 f. 44 Saga eftir Hugh Conway. Framh. Og dag eftir dag nagaði hún sál mína eins og eiturormur og svifti mig hair.ingju og friði. En svo kom að lokum það augnablik að mér var sagt að hættan væri afstað- in, að Pauline væri nú með réttu ráði aftur. Með réttu ráði? Var hún hin sama Pauline, sem eg hafði áður þekt, eða var hún nú hin sama og hún hafði verið áður en hún misti minnið? Eg gekk að hvílu hennar og hafði ákafan hjartslátt. Hún lá þar föl og þreytuleg og gat hvorki hreyft legg né lið. En hún opnaði augun og leit á mig. Hún þekti mig auðsjáanlega ekki, en það kom uudrunarsvipur á andlit hennar, og þá vissi eg að hún mundi hafa fengið skilningsgáfu sína aftur. Hún þekti mig ekkil Það fór þá eins og læknirinn spáði. Þegar eg gekk fram úr herberginu aftur gat eg ekki tára bundist, en engin orð fá lýst tilfinningum mínum á þeirri stundu. En svo kom mér enn lýgin hans Macari til hugar. Hún lét mig eng- an stundlegan frið hafa. Macari var að vísu hinn argasti þorpari, en hann gat þó hafa sagt satt. Og hvað gat honum hafa gengið til þess að drýgja glæpinn, ef saga hans var ósönn ? Jafnvel nú, þegar sú stund var komin, er eg hafði heitast þráð, — þegar konan mín hafði aftur fengið minnið — gat eg ekki að því gert að hugsa um þessa sögu og leggja nokkurn trúnað á hana. Við þekkjumst ekki, sagði eg við sjálfan mig, eða hún þekkir mig ekki. Og geti eg ekki fengið sannanir fyrir því, að Macari hafi logið, þá er það betra að hún þekki mig al- drei. En hvar gat eg fengið þær sann- anir? Eg gat ekki spurt Pauline. Og þótt eg spyrði hana, gat eg ekki vænst þess að hún virti mig svars. Og þótt hún gerði það nú samt sem áður, þá var það ekki víst að eg léti mér nægja svar hennar. Eg þurfti að finna Ceneri. Hann var Dömukíæóid ágæta á 2.70 segir kvenfólkið að sé það bezta í borginni. Fæst að eins í Tfusfursfræfi 1. Jlsg. <3. <3unnlaucjSSon & Qo. Konungl. hirð-verksmiðja Bræðurnir Cloétta mæla með sínum viðurkendu Sjókólade-tegundum, sem eingöngu eru búnar til úr fínasta Kakaó, Sykri og VaniIIe. Ennfremur Kakaópúlver af beztu tegund. Ágætir vitnisburðir frá efnarannsóknarstofum. l=^}\&=* JTlorgunbíadið kostar ekki nema 65 aura á mánuði fyrir áskrifendur (34—35 blöð). Sent heim eldsnemma á h v e r j u m morgni. Eina blaðið, sem enginn má án vera. Gerist áskrifendur þegar í dag. Það margborgar sig, — munið það I ef til vill þorpari, en hann var ekki eins undirförull og djöfullegur og Macari. Og nú kom mér skyndilega neyð- arúrræði í hug. Menn grípa stund- um til hinna einkennilegustu og fráleitustu ráða, þegar þeir eiga lif sitt að verja. Hér var heiður og hamingja tveggja manna f veði — alt líf þeirra í veði. Eg ætla að framkvæma þessa á- ætlan. Það nær ef til vill ekki nokkurri átt, en eg ætla að ferðast til Síberíu, og svo fremi að fé, þrautseigja, líf og brögð geta hjálpað mér til að finna Ceneri, þá skal eg pína hann til sagna og láta hann segja mér sannleikann afdráttarlaust. io. K a p í t u 1 i. 1 leit eýtir sannleikanum. Yfir þvera Evrópu og hálfa Asíu ætlaði eg að ferðast til þess að ná stundartali af einum fanga þeirra Rússanna. Það var ekkert vit í því en þó ætlaði eg að gera það. Eg ætlaði þó ekki að ana áfram í blindni, svo yfirvöldin stöðvuðu mig á síð- ustu stundu vegna tortrygni. Eg varð að útvega mér meðmælinga- bréf, sem veittu mér aðgang að þeim stöðvum er eg þurfti að vitja. Peningar voru einnig mikils virði, og eg hafði nóg af þeim sem betur fór. Enda var eg fús til þess að leggja alf mitt fé í sölurnar, fyrir það að vita sannleikann. Og það var margt annað, sem eg þurfti að taka tillit til, enda hafði eg næg- an tíma til undirbúnings. Eg gat ekki farið frá konunni minni fyr en öll hætta var afstaðin. Þess vegna notaði eg tímann til þess að finna þá vini mina, sem nokkur áhrif höfðu á æðri stöðum. Var eg þá svo heppinn að einn þeirra stóð svo vel að vígi, að hann gat beðið annan mann sér miklu æðri að veita mér liðsinni. Var hann þegar fús til þess að hjálpa mér og innan fárra daga fékk eg meðmælingabréf til enska sendiherr- ans í Pétursborg og afritun af bréfi til hans sjálfs, þar sem getið var um erindi mitt. Undirskrift beggja bréfanna var næg trygging þess, að mér mundi verða vel ágengt. Og er eg auk þess hafði fengið mér á- vísun í banka í Pétursborg, var eg albúinn þess að leggja á stað.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.