Morgunblaðið - 18.06.1914, Blaðsíða 3
MORGUNBLAÐIÐ
1047
Parisien, og ræddust þeir forseti
lengi við í dag. Málalok urðu þau,
að Dupuy hugðist ekki maður til
að koma ráðuneyti á stofn, en vís-
aði á M. Peytral, frjálslyndan öld-
ung (senator), sem nokkrum sinnum
hefir gegnt ráðherrastörfum og þris-
var verið fjármálaráðherra.
M. Poincaré gerði honum orð í
dag, en hann kvaðst ekki heldur kenna
sig mann til þess að takast þennan
vanda á hendur, en vildi þó vera
Poincaré til aðstoðar.
Svona horfir í kvöld. Poincaré
ætlaði að eyða deginum í Rouen,
en varð að hætta við. Seinna ákvað
hann að dvelja þar minsta kosti 2
stundir, en hvarf frá því lika.
París, sunnud.kvöld (seint).
M. Ribot, öldungur, sem sat á
tali við forsetann fram til kl. 7 i
kvöld, hefir fallist á að reyna að
stofna ráðuneyti. Hann byrjar ekki
að leita sér samverkamanna fyr en á
morgun*.
C=3 DAGBÓfjlN.
Afmæli í dag:
Britte L. N. Bendtsen, húsfrú.
Þóra Jónsdóttir, húsfrú.
Einar Pálsson, trósm.
ísleifur Þorsteinsson, söðlasm.
Gísli Konráðsson f. 1787.
í d a g hefst 9. v. sumars.
Sólaruppráskl. 2.3
Sólarlag kl. 10.54
Háflóð er í dag kl. 1.4.
og kl. 1.36.
VeðriS í gær:
Rv. sa. kaldi, hiti 9.5.
íf. ljgn, regn, hiti 10.3.
Ak. s. stinngola, hiti 15.0.
Gr. s. andvari, hiti 9.5.
Sf. logn, hiti 12.2.
Vm. s.a. kul, regn, hiti 7.7.
Þh. F. v.s.v. kul, móða, hiti 9.4.
Póstar á morgun:
Póstvagn frá Ægisíðu.
Sterling frá BreiSafirði.
Þj óðmenjasafnið opið kl. 12—2.
M y n d i r af nýja fánanum voru til
sýnis í bókaverzlunargluggum ísafold-
ar í gærdag. Fjöldi fólks stóð þar og
athugaöi þá.
* M e r k i Eimskipafólagsins, blátt
Þórsmerki á hvítum feldi, var fyrsta
sinni dregið á stöng f gærmorgun yfir
skrifstofu fólagsins. Geröin er fögur,
en feldurinn þyrfti að vera stærri, til
þess að njóta sín verulega vel.
Háskólinn kaus rektor sinn í
gær fyrir næsta ár. Hlaut kosningu
Jón Helgason prófessor.
K r í u e g g fundu tveir drengir í
gær í hólmanum í tjörninni.
Fánanefndinni bárust 35 kross-
fánatillögur, 11 till. um margbrotna
gerð, 7 áskoranir um að halda fánan-
um óbreyttum.
Uppboð.
Nokkur hundruð pund af smjörlíki, sem orðið hefir
fyrir skemdum, verður selt á uppboði í verzlunarhúsum
Hliðin á Austurvelli verða
opnuð, eins og sjálfsagt er, þegar hann
telst hæfilega þur.
G. Zoéga,
Leiðrótting. Fyrra verkefniðí
róttarfari við háskólaprófin var ekki
rétt tilgrelnt í Morgunblaðinu í gær.
Það átti aS vera: j>Riftingar-reglur
gjaldþrotalaganna«.
í dag kl. 6 síðdegis.
Frá landsímastöðinni.
Stúlka á aldrinum 18—23 ára verður tekin til kenslu við lands-
símastöðina i Reykjavík. Kenslutimi 2 mánuðir. Eiginhandar umsóknir,
ásamt læknisvottorði og vottorði um kunnáttu, stílaðar til landssímastjór-
ans ber að senda undirrituðum fyrir 28. þ. m.
Símastjórinn f Reykjavík, 17. júní 1914.
Gísli J. Ólafsson.
Gamla Bíó. Þar eru nú sýndar
myndir Böcklins, málarans heimsfræga
og er þess vegna mjög lærdómsríkt og
mentandi að koma í Gamla Bíó. Fræg-
asta mynd hans er Heley eða Dauðra-
eyjan ; þangað flytjast dánir menn.
' Ari Jónsson, sýslumaður Hún-
vetninga, fór héðan í fyrradag norður
til sýslu sinnar, landveg úr Borgarnesi.
Hann kemur hingað um næstu mánað-
amót, til að vera á fundi íslands-
banka.
Langlífi.
Landinn lífseigastur.
Danska blaðið >Nationaltidende«
er hreykið yfir því, að með Dönum
deyi nú færri af þúsundi hverju ár-
lega, en í nokkru öðru landi Norð-
urálfunnar. Árið sem leið, 1913,
voru þeir komnir niður í 12.5 af
þúsundi, og er það óneitanlega mjög
lág tala. Þeir hafa líka verið að
smálækka lengi, svona jafnt og þétt
um þetta tæpan l/% af þúsundi á ári.
Eigi er oss kunnugt um það, hvort
þeir hafa talið okkur íslendinga með
i þessum síðari ára skýrslum — lík-
ast til þó að það sé ekki, þvi að
ur en að við eignuðumst hagstof-
una höfum við verið svo langt á effir
allri aðgæzlu, að vinna úr öllu slíku.
En þeir mega vara sig á okkur, þeg-
ar við komum með okkar gögn, því
að þótt við stæðum þeim langt að
baki að þessu fram yfir aldamót, þá
er nú svo skjót breyting á því orð-
in, að X9H, síðasta árið sem við
eigum skýrslu um, erum við ein-
mitt búnir að ná þeim. Þá var 13.4
hjá báðum. Og þá má mikið vera
ef vér erum ekki komnir fram úr
þeim núna, jafnhratt og oss hefir
miðað. Það væri engin furða held-
ur, virðist mér, hér er hreinna loft
og strjálli bygð.
------■■■
Beauvais
Leverpostej
er bezt.
^ £eiga
Á Vesttjðrðum, á rólegum
stað, fást leigð 5 herbergi í nýju húsi,
um tvo sumarmánuði, hentug handa
þeim, er tæki sér sumarleyfi.
Póstafgreiðsla, sími og hafskipa-
bryggja. Afgr. v. á.
17. júni.
Svo fór sem til var ætlast ogvér
höfðum áður um getið. Kl. 3 l/z
söng »17. júní« og síðan hélt Bjarni
Jónsson frá Vogi skörulega ræðu.
Þá söng »17. júní« aftur og síðan
var gengið til íþróttavallarins undir
trumbuslætti og lúðrahljómi. Leik-
mótið var sett með því að allir þátt-
takendur gengu í skrúðfylkingu um
völlinn, en formaður í. S. í., Axel
Tulinius yfirdómslögmaður setti mót-
ið með snjallri ræðu. Síðan gengu
hetjurnar aftur um völlinn, og að
lokum sýndi U. M. F. Iðunn fim-
leika, og var það fyrsta atriðið á
skrá leikmótsins. Væri vel ef annað
færi þar eftir og eiga »Iðunarkonur«
þakklæti okkar óskert fyrir fram-
komu sína.
En þetta er að eins byrjun. Hér
mun margt á eftir fara, er alla góða
íslendinga varðar, og mun að því
síðar vikið.
Aðalfundnr Bókmenta-
télagsins var haldinn í Iðnó í
gærkveldi. Embættismenn voru þess-
ir kosnir: Forseti prófessor Bjöm
M. Ólsen, Dr. phil. 188 atkv. Vara-
forseti Dr. Jón Þorkelsson, 37 atkv.
í fulltrúaráð: Jón Jónsson dócent
158 atkv. og Einar prófessor Arn-
órsson 28 atkv.
Halldór sýslum. Júlíusson
kom til bæjarins I fyrrakvöld.
Hér með tilkynnist vinum og vanda-
mönnum, að jarðarför míns hjartkæra
eiginmanns Bergþórs Eyjólfsonar, skip-
stjóra, sem andaðist 7. júnf er ákveðin
föstudaglnn 19. júni og hefst með hús-
kveðju kl. II ‘/2 á heimili hins látna,
Laugaveg 53.
Valgerður Árnadóttir.
Gullarmband týndist á götum
bæjarins. Finnandi beðinn að skila
því til Morgunblaðsins gegn fundar-
launum.
í verzlun
Ó Ámundasonar
er nýkomið ágætt
bygg.
Sódi
fæst hvergi eins ódýr í bænum eins
og hjá
h|, P. J. Thorsteinsson & Co.
Pundið aieins 4 au.
Sýrenur, Rösir,
Hegg og Geitblöð
selnr Einar Sæmundsen skógvörður.
Er að hitta í Gróðrarstöðinni frá
12—1 e. h. og 5—6 e. h.
Reiðbjól fást leigð gegn lágu
gjaldi hjá
Jóh. Norðfjðrð, Bankastrati 12.