Morgunblaðið - 21.09.1914, Blaðsíða 1
Mánudag
1. argaugr
21
sept. 1914
MORGUNBLADIB
317.
tðlublad
Ritstjórnarsími nr. 500| Ritstjóri: VilhjAlmur Finsen. |Isafoldarprentsmiðja j Afgreiðslusimi nr. 140
<
bíó BROSTIN GÆFA
Snildarlegur sjónleikur í 4 þáttum eftir góðskáldið Sven Lange. Aðalhlutverkið leikur hin heims-
fræga leikkona, Betty Nansen, sem aldrei áður hefir sést hér í lifandi myndum.
A A
Leikurinn stendur yfir 1 ^/a klukkustund.
> <
Ertendar símfregnir
London 19. sept. kl. 6 síðd.
Engin úrslit hafa enn orðið í orustunni við Aisnefljótið.
Bandamenn hafa þó haldið áfram að sækja fram á vinstra
fylkingararm óvinanna og hafa rekið af höndum sér mörg áköf
mót-áhlaup.
Miðfylking óvinanna, frá Rheims til Argonne, hefir búið um
sig ramlega þar sem góð er aðstaða 0g gerir eigi annað en verja
sig. —
Einnig gerir hægri fylkingararmur Þjóðverja eigi annað en
verjast, nálægt landamærunum.
Rússar tilkynna að framsókn Þjóðverja á framfylking Rússa í
Austur-Prússlandi, hafi verið algerlega stöðvuð á fimtudaginn af
Rennenkampf yfirliðsforingja.
Þjóðverjar hörfa undan á ýmsum stöðum.
Rússar veita enn Austurríkismönnum í Galiciu eftirför, og hafa
tekið margar fallbyssur og 5000 fanga i nánd við Jaworow.
Brezkur blaðamaður tilkynnir að óhugur mikill 8é í mönnum
. Vínarborg, en fjöldi sé þó ennþá, sem trúi því fastlega að Þjóð-
verjar muni að lokum koma Austurríkismönnum til hjálpar.
Símskeyti frá Rómaborg segir að uppþot mikið hafi orðið í
Vínarborg. Grjóti var kastað á glugga hermála- og utanríkisráðu-
neytisins. R e u t e r.
Jawórow er bær í vestanverðri Galiciu og hefir 11 þús. íbúa.
WÞ
|| M
V Nyja
Tals. 475
Mirzi.
(vonda stjúpan) leikrit í 3 þáttum
Stór, fögur og áhrifamikil mynd.
Leikin af alþektum dönsknm leiknrnm,
þar á meðal:
Systrunum Sannom.
[ Bio-Rafé er bezt ]
[ Slmi 349. Hartvig Nielsen. ]
Skrifsfofa
Eimshipafélags íslands
Landsbankanum (uppi).
Opin kl. 5—7. Tals. 409.
Hjörtur Hjartarson yfirdóms-
lögmaður. Bókhl.stíg 10. Sími 28.
Venjul. heima i2J/a—2 og 4—5x/a-
Notið sendisvein frá
Sendisveinastöðimii
(Söluturninum).
Sími 444.
Hið margeftirspnrða
Zephyr hálstau
er nú komið aftnr í
Vöruhúsið.
Nýja verzlunin
— Hverfisgötu 34 (áðnr 4B) —
Flestalt (utast og inst) til kvenfatnaðar
og barna og margt fleira.
GóBar vörur! — Odýrar vörurl
Kjólasaumastofa byrjaði 1. sept.
Fastar »Bíl«-ferðir milli Hafn-
arfjarðar og Reykjavíkur hefjast þ. 18.
þ. m. Frá Reykjavík: kl. 10, 1, 3,
6 og 9. — Burtfararstaður í Rvík:
Hafnarstr. 8.
Reykjavík 17. sept. 1914.
Gunnar Gunnarsson.
Biðjið ætið nm hina
heimsfrægu
Muslad öngla.
irO
Búnir til al
0. Mustad & Sön.
Kristjaníu.
Oína, eldavélar
og alt sem þar til heyrir
selur enginn ódýrar og vandaðra en
Kristján Þorgrímsson.
Maubeuge fellur.
Þjóðverjar taka 40 þúsund
Frakka til fanga.
Það var auðvitað mál, að Þjóð-
verjar myndu eigi hætta fyr en þeir
hefðu náð öllum viggirðingum á
landamærum Belgíu og Frakklands
á sitt vald. Gæfan fylgdi vopnum
þeirra í Belgíu og á Norður-Frakk-
landi — og það reið á miklu fyrir
þá að nota tímann vel og vinna á
á sem flestutn stöðum.
Það var þann 8. þ. m. Fregnir
höfðu borist hvaðanæfa frá ófriðar-
stöðvunum um það, að bandamenn
hefðu hætt undanhaldi sinu og berð-
ust nú á öllu orustusvæðinu við
Þjóðverjaherinn. Og fregnunum
fylgdi að bandamönnum veitti held-
ur betur. Einmitt þá kom fregnin
um fall Maubeuge, hins siðasta virkis,
sem enn var eigi fallið í hendur
Þjóðverja. Fregnin kom úr aðalher-
stöð Þjóðverja og segir þar að þeir
hafi tekið 40 þús. manns til fanga,
þ. á. m. 4 yfirliðsforingja, 400 fall-
byssur og ógrynni af öðru herfangi.
Frakknesk blöð, sem oss hafa bor-
ist, segja að setuliðið hafi gert alt,
sem i þess va'di stóð til þess að
hindra það, að Þjóðverjar næðu virk-
inu. En þeir urðu að gefast upp,
því hinar feiknastóru og hraðskeytu
þýzku fallbyssur tættu viggirðingarn-
ar í mola.
Þjóðverjar sátu um Maubeuge i
14 daga og biðu voðalegt mannfall.
Svo dýrkeypt hefir virkið verið. En
fyrir Frakka er það mjög tilfinnan-
legt að missa 40 þús. manna nú
þegar mest riður á fyrir þeim.
Gaskatlar, tvær stærðir, járn-
pottar emaileraðir, krystal- og græn-
sápa m. fl., nýkomið í verzlunina
á Vesturgötu 39.
Jón Árnason.
Símfregnir.
Ólafsvik í gær.
Islands Falk handsamar
botnvörpung.
Fálkinn kom í morgun að brezk-
um botnvörpung við ólöglegar veið-
ar í langhelgi. Heitir sá Valetton
og er frá Hull. Tók Fálkinn hann
á Ólafsvikurmiðum. Var hann flutt-
k ur til Stykkishólms og verður dæmd-
ur þar á morgun (mánudag).
Landsimastjórinn
meiðist.
Fyrir hálfsmánaðar tima fór For-
berg landsímastjóri héðan áleiðis til
Austfjarða í eftirlitsferð. Ætlaði hann
aðallega að lita eftir hinum nýju
simalínum, sem unnið hefir verið að
á Austurlandi í sumar.
— Ferð hans hefir í alla staði
gengið vel þangað til siðastliðinn
miðvikudag. Var hann þá staddur
í Jökulsárhlíð í Fljótsdal. Vildi þá
það slys til, að hestur sló hann
í fótlegginn, skamt fyrir neðan héð.
Hlaut landsímastjórinn svo mikinn
áverka af þessu, að hann eigi gat
stigið í fótinn, en varð að leggjast
rúmfastur að Ketilsdölum.
Læknir var þegar sóttur og degi
síðar kom Ingólfur héraðsl. Gíslason
frá Vopnafirði. Fótleggurinn var
ekki brotinn, en Iæknirinn býzt við
að landsímastjórinn muni liggja rúm-
fastur í 3—4 vikur.
Hr. Forberg ætlaði að koma hing-
að með Floru næst, en að öllum
likindum veiður hann eigi ferðafær
til þess tima er Flora fer frá Vopna-
firði.