Morgunblaðið - 30.09.1914, Blaðsíða 1
Miðv.dag
1. arganfjr
30.
sept. 1914
HOKGUNBLADID
326.
tðlublaö
Ritstjórnarsimi nr. 500| Ritstjóri: VilhjAlmut Finsen.
Isafoldarprentsmiðja | Afgreiðslusimi nr. 140
Bio
Bíografteater
Reykjavíknr.
Tals. 475
Drengskaparorð.
Stór þýzkur íyrirliða-ástar-
sjónleikur í 3 þáttum.
Snildarlega vel leikinn.
[ Bio-Rafé er bezt. [ Sími 349. Hartvig Nielsen. ’
Nýja verzlunin — Hverfisgötu 34 (áður 4B) — Flestalt (utast og inst) til kvenfatnaðar og barna og margt fleira. Góðar vörur! — Odýrar vörur! Kjólasaumastofa byrjaði 1. sept.
Hið margeftirspurða
Zephyr hálstau
er nú komið aftur i
Vöruhúsið.
Hjörtur H,jart-arson yfirdóms-
iögmaður. Bókhl.stíg 10. Simi 28.
Venjul. heima I21/*—2 og 4—j1/^.
Shrifsfofa
Eimskipaféíags Ísíands
Landsbankanum (uppi).
Opin kl. 5—7. Tals. 409.
Notið sendisvein frá
Sendlisvelisastödinnl
(Söluturninum).
Sími 444.
Fundur
verður haldinn í
Kvenfélagi Fríkirkjusafnaðarins
fimtudaginn 8. okt.
á venjulegum stað og tima.
Þeir, sem ætla að koma börn-
um til kenslu hjá mér, eru beðnir
að gera mér aðvart, um það, fyrir
oæsta sunnudag.
Til viðtals kl. 3—6 í Miðstr. 8 A.
S. Þ. Thorlacius.
Iðnskólinn í Reykjavík
verður settur fimtudaginn 1. október n. k. kl. 8 siðd.
Þeir, sem óska inngöngu í skólann, gefi sig fram við undirritaðan
í Miðstræti 7, kl. 7—8 siðd. Að viinsta, kosti helminqur skólaqjaldsins (5
krónur) verður að borgast fyrirýram.
Eins og að undanförnu verður, ef nægilega margir sækja, sérstök
kensla í frihendisteikningu (kennari Þór. B. Þorláksson) og i teikningu
fyrir húsgagnasmiði (kennari fón Halldórsson).
» _
tJlsgair <3orfason.
Erlendar símfregnir
London 28. sept. kl. 6 síðd.
Frönsk tilkynning segir að Þjóðverjar dag og nótt endurnýi
áköf áhlaup á allar framfylkingar bandamanna, auðsjáanlega í þeim
tilgangi að rjúfa fylkingar þeirra. Allar tilraunir hafa mishepnast
og hafa Þjóðverjar mist fjölda manna.
Opinber þýzk tilkynning játar að bandamenn hafi haft mikils-
verðan framgang gegn óvinunum, með því að nota járnbrautir.
Þýzkt loftfar flaug yfir vesturhluta Parísar siðastliðinn sunnu-
dag og varpaði niður sprengikúlum. Drap eitt gamalmenni og
meiddi litið stúlkubarn voðalega.
Áköf orusta var háð milli Belga og Þjóðverja á laugardaginn
í nánd við Alost. Riddaralið og stórskotalið rak óvinina af hönd-
um sér, sem að líkindum i hefndarskyni skutu á Malines í gær,
drápu 10 manns og særðu marga borgara.
Skeyti frá Petrograd kveður tilraunir Þjóðverja að komast yfir
Memel, hafa verið hindraðar.
Þjóðverjar láta alment undan siga fyrir framsókn Rússa í átt-
ina til Suwalki.
Reuter.
Hvers vegna
hopuðu ÞjóBverjarP
í enska blaðinu »The Observer«
frá 13. þ. m. er ítarleg ritgerð um
afstöðu heranna á Frakklandi fyrstu
dagana í september og um það hvers
vegna Þjóðverjar hafi tekið að hörfa
norður aftur. Er hér birt stutt ágrip
af þeirri grein.
Hjá hliðum Parísar.
Stjórnin var farin úr París og bú-
ist var við áhlaupi á borgina þá og
þegar. Menn héldu að heljar-byssur
Krupps væru vel á veg komnar og
vissu eigi hvort nógu sterkar fall-
byssur væru til varnar. Menn gerðu
sér í hugarlund að eins gæti farið
um París og Namur. Von Kluck
hershöfðingi hafði rekið vinstri her-
arm bandamanna svo langt suðurað
miðfylkingar þeirra höfðu orðið að
hörfa suður á bóginn af skyndingu.
Alt norð-austur Frakkland var opið
og fimm þýzkir herir höfðu tekið
þar höndum saman.
Þjóðverjar brutust yfir hvert fljótið
á fætur öðru. Oll vigin fyrir norð-
an París höfðu gefist upp — nema
Maubeuge. Þjóðverjar tóku La Fére
og Laon viðstöðulaust og jafnvel
Reims án þess að hleypt væri úr
byssu. Frakkar höfðu löngum vænst
þess að geta veitt viðnám á hæð-
unum í Champagne fyrir norðan
Marne ef í nauðir ræki. En þær
voru yfirgefnar eins og annað. Mið-
fylkingar Þjóðverja óðu Campagne
héraðið, tóku Chateau Thierry, Eper
nay og Chalons og stefndu suður á
mitt Frakkland, suður fyrir París.
Hvernig stóð á þessu stöðuga
undanhaldi. Vér þektum lítið til
Joffre hershöfðingja og enn minna
um fyrirætlanir hans. Þeim, sem ör-
uggastir voru um sigursæld banda-
manna, fór ekki að verða um sel.
NÝJA BÍÓ
Leyndarmálið í hraðlestinni
eða
Máttur dáleiðslunnar.
Stórkostlegur sjónleikpr i 4
þátt., leikinn af ágætis leikurum.
í aðalhlutverkunum m. a. V.
Psilander, Sv. Aggerholm o. fl.
Geysilega spennandi mynd I
Verzíunar-
skóíinn
verður settur í skólahúsinu 1. októ-
ber kl. 4 síðd., og eru þá allir kenn-
arar, nemendur og innsækjendur
beðnir að mæta.
Aftur á móti tók suma að gruna að
eitthvað annað byggi hér undir.
Glappaskot.
Þegar mest var hættan breyttist
afstaðan alt i einu fyrir glappaskot
von Kluck og hers hans, sem. alt til
þessa hafði verið fremstur í árás-
inni. Söguritarar munu sjálfsagt
leagi deila um það, hvort hann hafi
gert rétt í þvi að beygja við austur
á bóginn. Hver svo sem ástæðan
hefir verið til þess, þá mun sannast
að það var glappaskot af Þjóðverja
hálfu. Vér munum fá að sjá að
undanhald bandamanna hefir verið
orsök til þessa glappaskots. Bretar
áttu sinn þátt í því, að það undan-
hald tókst svo vel sem raun varð á,
eins og skýrsla Sir John French ber
ljósastan vott um.
Eftirstæling Þjóðverja.
Þjóðverjar eru, sem kunnugt er,
mjög gefnir fyrir að stæla. Þeir
brutu hlutleysi Belgiu og ruddust inn
yfir Norður-Frakkland og héldu að
þeir gætu komið Frökkum á kné á sex
vikum og unnið stærri sigra en við
Metz og Sedan. Vildu þeir með
þvf stæla sigra Moltke 1870. Þeir
hafa aldrei játað að gæfan hafi fylgt
beim 1870, sérstaklega það að þeir
höíðu Bismarck á móti Napoleon III.
Þeir þakka alla sigra sina síðan á
dögum sjö ára striðsins og yfirburð-
um þýzka kynsins, en þó einkum
prússneska ofurmenninu. Keisarinn
og herforingjaráðið þýzka ætlaði að
láta sömu atburðina ske og 1870,
en á því varð brestur.
Þegar óvinirnir voru komnir að
París, án þess að hafa sigrað í nokk-
urri úrslitaorustu, og her banda-
manna ekki brotinn á bak aftur, þá
var hin upphaflega fyrirætlun Þjóð-
verja fallin um koll. Þeir þurftu
að hverfa að einhverju nýju ráði ef
þeim ætti að verða sigurs auðið.
Fjórar leiðir.
Þetta var orsök til þess að von