Morgunblaðið - 04.11.1914, Qupperneq 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
Tramf). frá 1. bís.
London 3. nóv. kl. 12.35 síðd.
Opinbert franskt skeyti birt í gærkvöldi segir: Milli sjávar
og Oise hafa Þjóðverjar gert áhlaup í dag. Hafa þau verið væg-
ari en áhlaupin í gær. í Belgíu hafa bandamenn haft framgang
fyrir sunnan Dixmude og fyrir sunnan Luvelt(?) og vér liöfura
haldið öllum aðstöðum vorum í Aisne-héi’aði. Aköf sókn Þjóð-
verja milli Braye í Lannois og Vailly hefir algerlega mishepnast.
London 3. nóv. kl. 1.53 síðd.
Flotamálastjórnin tilkynnir að þegar brezka herskipið Minerva
kom til Akaba hafi hermenn setið í borginni; einn þeirra, sem
virtist vera þýzkur herforingi, fekk hinum innfæddu vopn.
Minerva skaut þá á vígin og liðið. Borgin var yfirgefin. Lið,
sem sett var á land, eyðilagði vígin, hermannaskála, pósthús og
búðir. Óvinirnir biðu nokkurt tjón en Bretar ekkert.
Akaba er bær í Arabiu.
London 3. nóv. kl. 3.5 síðd.
Sendiherrann í Petrograd hefir sent skeyti þess efnis, að brezki
ræðismaðurinn í Novorossúsk tilkynnir að 2 tyrknesk beitiskip hafi
þ. 30. okt. skotið á höfnina og að brezka skipið Freiderica hafi
brunnið og eyðilagst.
Reuter-skeyti
(til ísafoldar og Morgunblaðsins).
London 2. nóv. kl. 5,47 e. h.
Sama sem engin breyting hefir orðið í Flandern og Frakklandi,
en það er opinberlega tilkynt að Frakkar taka fanga svo hundruð-
um skiftir. Frá 13.—20. okt. tóku þeir 7683 fanga.
Tyrkir tóku símasamband af milli sendiherra bandamanna og
stjórna þeirra. Sendiherrarnir hafa farið frá Miklagarði.
Rússar hafa tekið Petrokoff aftur. Her Austurríkismanna og
Þjóðverja í Póllandi hefir verið klofinn og heldur undan vestur á
bóginn og suður á bóginn. Þessi klofningur getur orðið til þess,
að Rússar geti barið á þeim hvorum í sínu lagi. Þjóðverjar biðu
feiknamikið tjón við að ráðast á stöðvar Rússa við Baklarjevo á
landamærum Austur-Prússlands. Þeir sendu til einkis hverja her-
sveitina á fætur annari á skotgryfjur Rússa. En þær bókstafiega
bráðnuðu fyrir skotum Rússa.
R e u t e r.
Siðustu simfregnir.
(Frá fréttaritara Morgunblaðsins).
London 3. nóv. kl. 12 á hád.
Bandamenn hafa sótt fram við miðjan Yser-skurðinn.
Þýzkur kafbátur skaut sprengikúlum á gamalt brezkt beitiskip
hjá Dunkirk.
Tyrkneskt herlið hefir ráðist inn í Egyptaland.
ítölsku stjórninni hefir verið veitt lausn.
Uppreistarmenn í Suður-Afríku sigraðir.
Styrjöldin mikla.
Einkabréf frá Berrie stórkaupm. til
Asgeirs konsúls Sigurðssonar.
Frh.
Hvílíkur munur á draum keisar-
ans og því sem gerist í raun og veru
og mun enn gerast! Þýzkaland er
á beljarþröminni fjárhagslega og sig-
ursælir óvinir knýja dyr þess bæði
að austan og vestan og munu bráðlega
brjóta þær upp. Verzlunarfloti þess
er gerður gagnslaus og mörg skip
þess hafa verið tekin. Það er ein-
angrað og viðskifti þess við útlönd
í kaldakoli. Bandariki þess, Austur-
riki-Ungverjaland er á glötunarbarmi
Nýlendum þess er eytt og liinn
bandamaðurinn, ítalia, sem það treysti
á, hefir það að athlægi og er alveg
forviða á framkomu þess. Lygafregn-
ir þess eru reknar ofan i það og
tilraunir þess til þess að vinna sér
hylli hlutlausu ríkjanna hafa alger-
lega mishepnast. Þannig sér nú
keisarinn malunum komið. Auðvit-
að mun Þýzkaland berjast, og það
grimmilega til að verja tilvetu sina.
En dómur þess er kveðinn upp og
Þýzkaland er á leiðinni niður úr
tignarsæti sinu í Evrópu og heimin-
um. Það áform keisarans að verða
annar og meiri Napoleon hefir al-
gerlega farið út í veður og vind.
£<ti8a
Eitt herbergi með sérinngangi og
húsgögnum óskast á leigu nú þegar.
Uppl. gefnr Theodér Jónsson.
^ cTiaupsRapur
Morgunkjólarnir ódýrustu og margsk. ann-
ar fatnaður til sölu á Bergstaðastræti 33 B.
Fæði fæst á Laugavegi 23.
Kristin Dahlstedt.
cTunéié
Q-ulnr hundur í óskilum hjá lög-
reglunni. Vitjist innan 3 daga og borgist
áfallinn kostnaðnr. Annars skotinn.
Eg er hræddur um að bréf þetta
sé ekki jafn ýtarlegt og eg hafði
ætlað i upphafi, en það er miklnm
erfiðleikum bundið að hafa hugann
fastan við skriftir á þessum tímum.
Þegar ófriðnum er lokið og maður
fær að líta yfir alla atburðina, getur
maður litið á þá með meira jafnað-
argeði. En núna, þegar alt er í
óvissu, og maður veit ekkert hvað
birtast muni í blöðunum næsta skifti,
er mönnum það ofraun, að leggja
réttan dóm á það hvernig aðstað-
an er.
Enn á eg eftir að minnast á eitt.
í öllum hlutlausum ríkjum hafa Þjóð-
verjar reynt að afla sér samúðar, sem
þeirri þjóð, er beitt væri órétti. Sér-
staklega hafa þeir lagt kapp á það i
Bandarikjunum, Hollandi og á Norð-
urlöndum. í Bandaríkjunum hafa
tilraunir þeirra mishepnast, nema á
meðal Þjóðverja þeirra, er þar eiga
heima. En það er álitið hér, að
nokkur efi sé á um Norðurlönd og
Holland. Við trúum því ekki að
Holland og Danmörk séu okkur óvin-
veitt, en það er talið að þau rói að
því öllum árum að birgja Þýzkaland
að matvæium og hjálpa Þjóðverjum
til þess að koma út sínum vörum.
Freistingin er auðvitað mikif til þess
að hafa hag af Þjóðverjum i þessu
efni og það er mjög erfitt að gæta
ströngustu hlutleysisregla. En það
versta er, að séu þessar sögur sann-
ar, þá stuðla þessi riki að þvi að
draga ófriðinn á langinn, því það er
áreiðanlegt, að gæti Þýzkland hvorki
flutt vörur úr landinu né inn í það,
mundi fjárhagur þess bráðlega verða
svo slæmur að það gæti ekki stað-
ist. Holland hefir án efa gert sitt
bezta til þess að gæta hlutleysis síns
með hernum á landamærunum, og
við skiljum það vel bve örðugt það
á aðstöðu, sérstaklega vegna þess að
mikill hluti þjóðarinnar er þýzkur.
Ef til vill er það ekki satt að Dan-
mörk veiti Þjoðverjum lið á þennan
hátt, og eg get ekki imyndað mér
að Danmörk vildi gera nokkuð til
þess að hjálpa Þýzkalandi, bæði vegna
þess hvernig Þjóðverjum hefir farist
við Dani og eins vegna hins, að það
er jafnáríðandi fyrir Danmörku sem
önnur lönd að ófriðurinn verði ekki
langvinnur. Ef Danmörk hefði nokkra
von um það að ná Slésvík og Hol-
stein aftur yrði hún að gæta strang-
asta hlutleysis.
■ ■ .... «»;><♦<--m- . .
Skauíar
Sfærsf, best og ódtjrasf
úrvaí f)já
Jes Zimsen.
o a ii ó Ffi n c=a
Afmæli í *lag:
Ingileif Zoega, jungfvú.
Einar H. Sigurðsson, klæðskeri.
Haraldur Árnason, verzlunarstjóri.
Jón Sveinsson, trósmiður.
Hafsteinn Pótursson, prestur f. 1858.
Afmæliskort fást hjá Helga
Árnasyni í Safnahúsinu.
Sólarupprás kl. 8.21.
S ó 1 a r 1 a g — 4.1.
H á f I ó ð í dag kl. 5.42. f. h.
og kl. 6.1. e. h.
A.u g n 1 æ k n i n g ókeypis kl. 2—3
Lækjargötu 2 (uppi).
V e ð riS í gær :
Vm. logn, frost 1.5.
Rv. logn, frost 5.1.
íf. iogn, frost 2.9.
Ak. logn, frost 5.5.
Gr. logn, frost 9.5.
Sf. logn, hiti 0.8.
Þh., F. a.s.a. hvasviðri hiti 6.3.
Ryskingar nokkrar urðu niðri á
verzlunarmannafnndi á laugardaginn.
Komu þangað menn, sem ekki voru
af því sauðahýsi og því ofaukið.
Fundarmenn kölluðu lögregluna sór til
hjálpar að koma mönnunum á brott,
en þá tók eigi betra við og varð
varðmaðuriun fyrir hnjaski nokkru.
Hann kærðij fyrir bæjarfógeta og tók
hann málið til meðferðar. Var fyrsta
réttarhaldið í gærmorgun, en málinu
mun ekki lokið fyr en síðar.
Vór gátum um það í gærrað oss
þætti líklegt, að ráðstöfunin um sím-
stöðina í Lerwick, þar sem brezka her-
sjórnin hefir tekið að sér starfræksluna,
mundi vera tekin til þess að hindra
að íslenzkar afurðir yrðu seldar til
Þýzkalands. Lá nærri að setja þá ráð-
stöfun í samband við farmskírteini'n,
sem nú verða að hljóða á nafn firma
á Norðurlöndum.
Þessi jályktun vor mun eigi vera
rótt. Það er auðvitað, að flestar síma-
stöðvar í þeim löndum, sem í ófriði
eiga, eru í höndum hermanna; og svo
mun einnig vera í fiestum þeim lönd-
um, sem safnað hafa liði í varnarskyni,
ef ófrið bæri að höndum, Stöðin <
Lenvick er brezk eign og því ekkert
undarlegt að hermenn hafi sest þar að,
eins og á öðrum símastöðum í Bret-
landi.
er nú ágætt á
margt um mann-
í s 1. g 1 í m a n:
Er okkar íþrótt
Lærið að glíma.
Gangið < Ármann.
Skautasvell
t^örninni. Var þar
inn < gær.