Morgunblaðið - 26.03.1915, Side 1
í'ðstudag
26.
°*arz 1915
MOBfiDNBLADIÐ
2. argangr
142.
tölublað
Ritstjóraarsími nr. 500
Ritstjóri: Vilhjálmur Finsen. | Isafoldarprentsmiðja | Afgreiðslusimi nr. 499
Binl Keykjavtknr |D|n
^ Biograph-Theater | P’U
kl. 9-10.
Æskusynd
Sjónleikur í 4 þáttum.
Aðalhlutverkin leika systurnai
Emilie og Ragnhild Sannom.
í*etta er óefað einn af þeim
aUra beztu myndum, sem hér
Eafa sést — komið því áður
etl það er orðið of seint. —
^erð þó að eins ro, 23 og 40 a.
Vakningarsamkomur
Vfirða haldnar í samkomusal Hjálp-
^ðishersins frá 21.—28. marz,
tvert kvöld kl. 8.
Allir velkomnir.
Guðsþjónustur
Har. próf. Níelssonar.
j ^lstar liggja frammi til 30. þ. m.
k bókverzlunum ísafoldar og Sigf.
^undssonar og hjá prentsmiðju-
^auda Halldóri Þórðarsyni, og eru
, 'r sem styrkja vilja fyrirtækið,
, ölr að skrifa nöfn sín á einhvern
P6ssata lista.
Reykjavík 24. marz 1915.
Nefndin.
^pinn fundur.
^ »Bifröst“ og „VíkiDgnr"
halda
opinn íund
í kvöld kl. 9
1 Goodtemplarahúsinu, niðri.
flnibrella11 og
Crescent“
viðurkendu þvottasápur farabezt
^ð tau og hörund. Notkunar-
eiðarvísir á umbúðunum.
' Góðu en
ódýru
My sápur og
i»a ans
(inia kaup-
jkr mönnum
^Pan fræga No. 711J u”ndalt
súlu fyrjr kaupmenn, hjá
Q. Eiríkss, Reykjavík.
Erl. simfregnir.
frá fréttarit. ísafoldar og Morgunbl.
Khöfn 24. marz.
Austurríkismemi hafa
dregið saman mikið lið á
landamærum Ítalíu og
Austurrikis.
ítalir hafa bannað alla
útflutninga á vörum til
Þýzkalands gegnum Sviss-
land.
Japanskt lið er á leið
frá Mandshuri til Rúss-
lands.
------^--------
t
Islenzkur gráðaostur.
Eins og menn muna kom hingað í
fyrra dálítið af íslenzkmn gráðaosti,
sem Jón Guðmundsson frá Þorfinns-
stöðum f Onundarfirði hafði gert með
frakkneskri gráðamyglu. Fekk sá ost-
ur lof allra þeirra er reyndu og þótti
ekki standa að baki þeim gráðaosti út-
lendum, er hingað hefir fluzt. Þessi
tilraun með gráðaostagerð hór, hepnað-
ist því þegar svo vel, að mönnum
vöknuðu vonir um það, að ostagerð
gæti orðið framtíðargróðavegur fyrir
íslenzka sveitabændur.
í sumar sem leið reyndi Jón aftur
að gera osta, en sú tilraun hepnaðist
ekki jafnvel og sumarið áður, og var
það mest því að kenna, að gráðamygl-
an hafði úrkynjast við geymsluna. En
það er hægt að laga. Þó er annað
meira um vert, að það hefir verið sann-
að með tilraunum, að vór íslendingar
getum gert gráðaosta úr íslenzkri gráða-
myglu og jafnast þeir fyllilega á við
osta þá, er J. G. gerði í fyrra.
í 2. heftinu af Búnaðarritinu þ. á.
ritar Gísli Guðmundsson gerlafræðing-
ur um ostagerð. Er sú grein fróðleg
mjög, og ættu sem flestir bændur að
kynna sér hana. En einn kaflann úr
henni skulum vór birta hór, lesendum
til fróðleiks :
»Um veturinn 1913 sótti egbænda-
námsskeið á Hvanneyri; gerði eg þá
nokkrar loftrannsóknir f Borgarfirði og
veiddi meðal annars gráðasveppi. Sfðar
um veturinn ræktaði eg þessa sveppi,
og sendi Halldóri skólastjóra á Hvann-
eyri dálftið af þeim og bað hann reyna
að gera gráðaost. Um sumarið gerði
skólastjórinn nokkra gráðaosta bæði úr
sauðamjólk og kúamjólk. Ostagerðin
hepnaðist vel, og sauðamjólkurosturinn
var að mínu áliti engu lakari en frakk-
neskir gráðaostar, nema að því leyti,
að myglugróðurinn var ekki nóg á víð
og dreif um ostinn. í kúamjólkurost-
inum var myglugróðurinn vel dreifður,
en osturinn var bragðverri en úr sauða-
mjólkinni og líktist mjög dönskum
gráðaosti, sem gerður er mestmegnis
úr kúamjólk. Tilraunir skólastjórans
sanna þvf, hð gráðaost má gera úr
sauðamjólk með íslenzkri gráðamyglu,
jafnvel engu síður en frakkneskri. í
rannsóknarstofu minni hefi eg gert
nokkra gráðaosta með frakkneskri og
íslenzkri gráðamyglu, og virðist mór
íslenzk gráðamygla jafnhæf til osta-
gerðar og sú frakkneska«.
Hörmungar Serbíu.
Bréf frá Sir Thomas Lipton.
Eins og Morgunblaðið hefir fyr
frá skýrt sigldi Sir Thomas Lipton
snekkju sinni, sem Erin heitir, suður
til Balkanskaga, með hjúkrunargögn
handa Serbum. í bréfi sem hann
hefir ritað heim til Englands, lýsir
hann svo ástandinu þar i landi:
Það er ómögulegt að lýsa þeim
hræðilegu hörmungum. sem land
þetta þjá. Öll sjúkrahús eru full af
taugaveikissjúklingum. Ryan læknir
sem er fyrir hjúkrunarfélagi Ameriku-
manna, hér, hefir 2900 sjúklinga að
gæta. Hann sagði mér að yrði ekk-
ert aðhafst og það þegar í stað, til
að stöðva útbreiðslu taugaveikinnar,
mundi hún útrýma helming þjóðar-
innar að minsta kosti.
Fyrsta sjúkrahúsið, sem eg kom í
á leiðinni til Nish, er í Ghevgheli.
Það sjúkrahús er amerikskt. Lækn-
irinn, dr. Donnelly, sýndi mér það
hátt og lágt. Þar voru 1400 sjúkl-
ingar flestir taugaveikir. Mér var
sagt að hús þetta hefði áður verið
tóbaks- og silkiverksmiðja. Margir
sjúklingarnir höfðu ekkert að sér,
hvorki sængur né teppi — þeir lágu
bara í fötunum. Eg sá að einn
þeirra var dauður og allir voru hin-
ir sárveikir.
Eg hitti þar ameríkskar hjúkrunar-
konur. Þær höfðu upphaflega verið
tólf, en sjö þeirra lágu nú í tauga-
veiki. Læknarnir höfðu upphaflega
verið sex, en þrír þeirra höfðu tek-
ið veikina og lágu.
Dr. Donelly kom á járnbrautar-
stöðina til| þess að kveðja mig um
leið 1 og egftfór. Hann var þá enn
eins stálhraustur og fjörugur og
nokkur maður getur verið. Tvær
hjúkrunarkonur komu einnig lil járn-
brautarstöðvanna til þess að kveðja
mig. .Eg kom aftur til Ghevgheli
eftir nokkra daga. Ædaði eg þegar
að fara á fund dr. Donelly, en frétti
þá að hann hefði dáið daginn áður
úr taugaveiki. Hjúkrunarkonurnar,
sem fylgdu mér til járnbrautarstöðv-
anna, lágu báðar í sömu veiki mjög
þungt haldnar.
Þegar eg kom til Nish voru þar
öll sjúkrahús full og meira en það
Veikindin voru hræðilega mikil —
mest taugaveiki.
Frá Nish fór eg til Belgrad. Þar
var mikið um taugaveiki, þótt eigi
væri ástandið jafn slæmt og i Nish.
Á leiðinni frá Belgrad kom eg við
NÝJA BÍÓ
I loftfari yfir
Atlantshafið.
Þýzkur sjónleikur í 4 þáttum
og 75 atriðum. Leikin af fræg-
um leikurum.
Þessi ágæta mynd, sem er
einstök í sinni röð, sýnir ferð
með Zeppelinsloftfari á milli
New-York, Berlín og Péturs-
borgar og fer leikurinn fram á
öllum þeim stöðum.
Mynd þessi, sem líkist mjög
hinni frægu mynd »Atlantis« í
þvi hvað hún er efnismikil og
viðburðarík, verður efalaust kær-
komin hér, enda hefir hún hlot-
ið einróma lof hvarvetna þar
sqm hún hefir verið sýnd.
Myndin stendur yfir 1 */2
tíma. Aðgöngumiða má panta
í sima 344 og 107 og kosta
0,60, 0,50, 0,40 og 0,10 fyrir
börn.
Leikfélag ReykjaYíkur
ímyndunarveikin
eftir Moliére.
Sunnud. 28. marz kl. 81/*.
Aðgöngumiða má panta í Bók-
verzlun ísafoldar í dag.
IPantaða aðg.m. verður að sækja
fyrir kl. 3, daginn sem leikið er.
K. F. D. K.
Fundur í kvöld kl. 8 og hálf.
Inntaka nýrra félaga.
Allar stúlkur og konur vel-
komnar.
á aðalherstöðvum Serba i Kragujewatz.
Þar var mögnuð taugaveiki. Frú
Hankin-Hardy, sem hefir umsjón
sjúkrahúss þar í borginni, sagði að
hjá sér væru 600 sjúklingar, flestir
taugaveikir. Hún sagði að enginn
læknir eða hjúkrunarkona væri þar
sér til hjálpar. Einu mennirnir, sem
hún hafði sér til aðstoðar, voru
austurríkskir fangar. Hana skorti
algerlega öll þau hjúkrunargögn, sem
nauðsynleg eru talin á sjúkrahúsum,
hversu auðvirðileg sem þau eru.
Þetta er að eins eitt dæmi af
óteljandi og f mörgum sjúkrahúsum
er ástandið enn verra en í þessu
sjúkrahúsi, og eg er viss um það
að veikindi eru sums staðar meiri
heldur en á þeim slóðum þar sem
leið mín lá.
Það er svo mikill skortur á sjúkra-