Morgunblaðið - 08.04.1915, Síða 2
2
MORGUNBLAÐIÐ
ur héðan úr Reykjavík, jón Péturs-
son að nafni, druknaði þar af báti.
Jón var lengi í þjónustu Helga
kaupm. Zoega — var enskumælandi
allvel og annaðist afgreiðslu brezku
botnvörpunganna, sem Zoega hefir
umboð fyrir hér á landi. Þá var
hann og túlkur erlendra ferðamauna
i nokkur sumur. En nú fyrir nokkr-
um vikum fékk Jón fasta atvinnu
um hrið hjá Hoydal lifrarbræðslu-
manni i Vestmannaeyjum og fluttist
því þangað. —
Hann var á leið i land úr botn-
vörpung, er slysið bar að. Hoydal
þessi sat í skutnum en Jón réri.
Háflóð var en brim töluvert. Stefndu
þeir nú bátnum yfir tanga nokkurn,
sem vel flaut yfir er háflóð var. Þar
hvolfdi bátnum. Hoydal komst á
kjöl og var bjargað, en Jón Péturs-
son druknaði.
Jón var dugnaðarmaður, áreiðan-
legur og iðjusamur og drengur hinn
bezti. Atti hann marga vini sem
munu sakna hans. En sorglegastur
er þessi atburður fyrir það, að Jón
hafði fyrir aldraðri móður og systur
sinni að sjá. Hann var þeirra eina
stoð. Móðir Jóns er Margrét Björns-
dóttir sem lengi bjó í Hjallhúsum í
Grjótagötu og allir gamlir Reykvík-
ingar munu kannast við. Hjá henni
er ennfremur tökubarn, sem til henn-
ar kom fyrir nokkrum árum, svo
Jón heitinn hafði allþungum heim-
ilisskyldum að gegna, þó ekki væri
hann sjálfur kvæntur.
Margrét er bláfátæk og hefir ekk-
ert haft undanfarin ár, nema það
sem sonur hennar vann sér inn.
Hérerþví þörf á hjálp, fremusen
oft endranær. Vér höfum áður beð-
ið lesendur vora um hjálp handa
fátæku fólki, þegar illa hefir staðið
á fyrir þvi, og þeir hafa brugðist
drengilega við. Vér vonum því, að
Reykvikingar reynist og vel nú, er
vér minnum þá á, að móðir Jóns
hefir mist þá einu stoð, sem hún
átti í lífinu. Vér veitum gjarna
móttöku peningagjöfum og skorum
á alla vini og kunningja Jóns, að
minnast hans með því að rétta móð-
ur hans hjálparhönd.
Rússneskt blað
i Stokkholmi.
Það er i ráði að gefið verði út
rússneskt blað í Stokkhólmi. Það á
að heita »Skandinav:ski Listok* og
á að verða fréttablað fyrir Rússa þá,
sem heima eiga á Norðurlöndum, en
ekkert að fást við stjórnmál, eftir
sögn. Það er rússneskur kaupmaður
sem leggur fram fé til fyrirtækisins
og þegar ófriðnum er lokið á það
að verða verzlunarblað og stuðla að
því að viðski/ti aukist með Rússum
og Norðurlandaþjóðum.
Þjóðverjar sökkva far-
þegaskipi.
112 manns drukkna.
Sjónarvottur segir frá.
í skeyti frá brezku utanríkisstjórn-
inni var sagt frá þvi, að þýzkut kaf-
bátur hefði sökt skipinu Falaba og
112 manns farist.
í enskum blöðum frá 31. marz er
gjör sagt frá þessum atburði.
Falaba var á leið frá Liverpool til
Afríku með marga farþega. Einn af
þeim var brezkur liðsforingi og tók
hann myndir af farþegum og skips-
höfn, er þeir voru að ryðjast í bát-
ana. Hvolfdi þá sumum bátunum,
og sést fólkið i sjónum, þar sem
það er að reyna að komast á kjöl,
en sumt að sökkva. Hann náði lika
mynd af kafbátnum, sem var skamt
frá skipinu. Blað það, sem mynd-
irnar flytur, borgaði 200 pd.sterl. fyrir
þær og telur þær vera eftirtektar-
verðustu myndir, sem teknar hafi
verið í þessari styrjöld. Þegar Falaba
sökk, stakk fyrirliðinn myndavélinni
í vasa sinn og fleygði sér í sjóinn.
Náði hann fyrst i planka og gat
haldið sér uppi þangað til sildveiða-
skip bjargaði honum klukkutíma síð-
ar, þá rænulausum. Vélin sjálf var
þá gegnblaut og ónýt, en mynda-
dregillinn óskemdur.
Fyrirliða þessum segist þannig frá
atburðum :
Falaba var í St. George-sundinu á
suðurleið, sunnudaginn 28. marz. —r-
Veður var bjart, sólskin og stinn-
ings kaldi og fremur úfinn sjór.
20 minútum eftir hádegi sást fyrst
til kafbátsins. Hann var þá ofan-
sjávar og hafði uppi hvítt flagg. Við
héldum fyrst að hann væri enskur,
en eg sá i sjónauka að þýzki örninn
var i einu horninu.
Skipstjórinn á Falaba breytti um
stefnu og hófst nú eltingaleikur milli
skipanna. Kafbáturinn var hrað-
skreiðari og náði Falaba eftir tíu
mínútur.
Skipstjórinn á kafbátnum kallaði
í lúður til okkar og sagði að við
fengjum 10 'min. frest til að kom-
ast í bátana. Var nú tekið að setja
ofan bátana. Fyrsta bátnum hvolfdi
er hann kom í sjóinn, i honum
Voru um 60 manns. Meðan þessu
fór fram var kafbáturinn eitthvað
30 eða 40 metra frá skipinu, voru
margir skipverjar uppi á þilfari báts-
ins, en skeyttu ekkert um fólkið
sem var að drukna rétt hjá þeim.
Eg sá tundurskeytið þegar það
stefndi á Falaba og þegar það kom
á skipið varð mikill hvellur og
síðan lagðist Falaba á hliðina og þá
steypti eg mér i sjóinn.
Síldveiðaskip kom til að bjarga
og náði 90 manns og annað skip
náði 14 manns, en 7 voru látnir
þegar í land kom, þar á meðal
skipstjórinn á Falaba.
Eins og nærri má geta eru ensk
blöð æf yfir þessum aðförum og
mörg blöð Bandarikjamanna jtaka í
sama strenginn. New York Herald
segir meðal annars: *Þetta er ekki
hernaður, þetta eru morð. Menn i
hlutlausum löndum kenna í brjóst
um þá sem fyrir þessu verða og
hafa viðbjóð á þeim mönnum sem
ráða þvi að slik morð eru framin«.
-------
« D AGBÓRIN.
Afmæli í dag:
María Halldórsdóttir húsfrú.
Guðm. Gíslason trósm.
Jóhannes Nordal íshússtjóri.
Jóhannes Sigurðsson prentari.
Stefán Kr. Bjarnason skipstjóri.
f. Kristján konungur IX 1818.
Afmæliskort selur Friðfinnur Guð-
jónsson, Laugaveg 43 B.
Sólarupprás kl. 5.28 f. h.
Sótarlag — 7.34 síðd.
Háflóð er í dag kl. 1.11 f. h.
og — 1.45 e. miðu.
Þjóðmenjasafnið opið kl.
12—2.
Veðrið í gær:
Vm. a. gola, hiti 3.2.
Rv. a. hvassviðri, hiti 1.7.
ísf. n. hvassviðri, frost 3.5.
Ak. n.n.a. gola, regn, hiti 1.0.
Gr. Ekkert samband.
Sf. n.a. kul, snjór, hiti 1.3.
Þh. F. s.s.a. hvassviðri, hiti, 3.8.
Vesta fer héðan norður um land á
morgun.
Sterling kom frá Kaupmannahöfn
og Leith í gærdág. Skipið hafði komið
við á Norðfirði á leið hingað. Farþegi
þangað vai Konráð Hjálmarsson kaup-
maður. Hingað til bæjarins kom brezk-
ur erindreki sápuverksmiðju Lever
Bros í Port Sunlight.
f bjarma blossavitans heitlr mynd,
sem Nýja Bio Bynir nú. Er hún leikin
af dönskum ieikurum, sem í þetta sinn
leika óvanaleg vel. Danskar myndlr
eru annars farnar að þreyta fólk. Menn
eru orðnir leiðir á að sjá sömu menn-
ina leika aðalhlutverkin ætið, og því
verður ekki neitað, að tilgerð er meiri
hjá þeim en t. d. amerískum eða ítölsk-
um leikurum. í bjarma blossavitans
var m. a. synd í Kristjaníu nú fyrir
skömmu og hlaut mikið lof blaðanna
þar.
í Öhent.
Kona nokkur, sem er nýlega koW
in til Lundúna segir svo frá:
Enda þótt eg sé brezk, dvaldi e£
flóra mánuði í Ghent undir stjórn
Þjóðverja. Það átti eg að þakka Þ^
að eg kunni flæmsku, því eg he
dvalið í Ghent í 10 ár.
Þegar eg fór þaðan var þar a^
mikill skortur á kjöti, mjólk °S
smjöri. Þar er nú fjöldi fátæklÍDf?a
og á hverri götu mæta mannni tötra
klædd börn, sem biðja um brauð og
föt. Það er hryggileg sjón að s]
ungar mæður ganga um með yngstu
börnin sín á handleggnum og Liðjs
beininga. Áður en ófriðurinn hófst
var það sjaldgæft að þar s*uSt
betlarar.
Oft heyrði eg á samræður þýzkfa
liðsforingja og er mér minnisstæð-
ust þessi smásaga: Þrír fyrirliðaf
höfðu keypt sér fatakoffort og etnn
þeirra bað að kóróna og fangamafh
sitt yrði grafið á sitt koffort. Béð'
arþjónninn spurði hvaða kóróna Þa^
ætti að vera. »Hértogakóróní‘
sagði hann, »en ef þér hafið hana
ekki þá getur kóróna Belgakonungs
dugað«. Eg frétti síðar að Þetta
hefði verið yngsti sonur hertoga°s
af Wúrtemberg.
Dyravörður á gistihúsi nokkfn
sagði mér til dæmis um agann, a
ungur hersveitargjaldkeri hefði skot
ið sig vegna þess að hann vantað1
tæpar tvær krónur í sjóðinn. Mat*
ur nokkur var dæmdur í 8 daga
fangelsi eða 100 króna sekt f}'fIÍ
það að hann sagði við fyrirliða nokk'
urn að það væri ekki rúm fyflf
hann í strætisvagni einum. Öðfö
sinni kom kona og vildi fá vega
bréf til Antwerpen. Henni
neitað um það. »Hvernig steníluf
á þvi?« spurði hún. Fyrir það vaf
hún sektuð um 45 krónur.
ferðir yflr Atlanzhaf.
G. P. A d o 1 p h, hinn góðkuf|1^
vélameistaii á Vestu, mun vera e
meðal þeirra erlendra sjómanna,
flestar ferðir hefir farið milli Island0
útlanda.
uiu
Hann hefir alls farið 200 sio’1^
yfir Atlanzhafið og mun það
fremur sjaldgæft. f/
I 16 ár samfleytt hefir Adolph v ^
ið í förum á Vestu, en 34 ár eru ^
in síðan hann róði sig hjá Saöe‘Iia
fólaginu.
Þegar Vesta kom hingað ulU .
inn hafði Adolph farið 100 ferðifh1
að til lands.
Ólafur Þorsteinsson verkfræðingur
kom hingað á Vestu frá útlöndum.
Mun hann að líkindum ílengjast hér
á landi.
Gangverð erlendra mynta í bönk-
unum er nú : Sterlingspund kr. 19.25,
mörk kr. 84.50, florin kr. 161 og
dollar kr. 4,25.
Bílar i Bandaríkjufl11111'
—---- .
í vetur var talið hve marglf jjjt
bíla í Bandarikjunum og fe^
þá að áttugasti nver maður Þaf^f í-
bíl. Ef eins margir ættu ÞÖ
landi, væru hér 11,000 bílar-